Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Kristinn Ágiistsson skoðar sokka sem voru prjónaðir fyrir 20 árum.
Víkurprjón fagnar
20 ára afmæli
Fagradal - Víkurprjón hefur nú
starfað í 20 ár og hélt af því tilefni af-
mælishátíð 1. aprfl.
Víkurprjón byrjaði á að framleiða
sokka, enn í dag eru einnig fram-
leiddar peysur, húfur og fleira úr ull,
allt sérhannaðar vörur fyrir Víkur-
prjón. Þá rekur fyrirtækið einnig
ferðamannaverslanir bæði í Vík þar
sem ferðamönnum gefst kostur á að
fylgjast með hvemig flíkurnar eru
unnar og í Reykjavík. Fram-
kvæmdastjóri frá upphafi er Þórir
Kjartansson.
í afmælinu fékk almenningur að
ganga um fyrirtækið og skoða fram-
leiðsluna og vélar, einnig var búið að
setja upp skemmtilega sýningu á
myndum úr starfi Víkurprjóns frá
því það var stofnað.
Geysigóð
þátttaka í
bandýmóti
Ólafsfirði - Gríðarleg þátttaka var í
bandýmóti fyrirtækja sem haldið
var í Ólafsfirði sfðastliðinn laugar-
dag. Það voru tveir ungir kennarar,
þær Guðrún Unnsteinsdóttir og
Hildur Amars Ólafsdóttir, sérlegir
félagar í Bandývinafélaginu, sem
stóðu á bak við þennan viðburð sem
átti hug Ólafsfirðinga allan laugar-
daginn.
A annað hundrað manns tóku
þátt og það verður að segjast eins
og er að undirbúningi og leikgleði
þátttakenda var viðbrugðið. Allir
reyndu að vera í flottasta keppnis-
búningnum, enda gefin verðlaun
fyrir nánast allt: flottasta markið,
flottustu sokkana, heitasta búning-
inn, breiðasta brosið, flottustu fóm-
ina, bestu tilþrifin. Þá voru lfka
verðlaun fyrir flottustu innkomuna,
besta „fagnið“ og sárasta ósigur-
inn.
Mótið hófst laust fyrir hádegi og
stóð fram eftir degi. 18 Iið mættu til
leiks, hvert öðru skrautlegra, þau
marseruðu inn á leikvanginn undir
lúðrablæstri, þar voru reglur móts-
ins kynntar, síðan var létt upp-
hitunaræfíng og gert í skyndi að
meiðslum eftir upphitunaræfing-
araar.
Hófst svo keppni, þar sem lið
kepptust um að slá hvert annað út,
þar til tvö stóðu eftir, lið Garðars
Guðmundssonar hf. og Kökuhornið,
sem kepptu til úrslita. Sjómennirnir
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Vélamennirnir hjá Vélfagi mættu í sínum réttu búningum.
Keppnislið bæjarskrifstofunnar, Ásta Snjólaug Sigurfinnsdóttir, bæjar-
fulltrúi, Kristfn Gunnólfsdóttir, hreinsitæknir, Kristinn Hreinsson bæj-
arritari, Guðmundur Þór Guðjónsson bókari, Ásgeir Logi Ásgeirsson
bæjarsljóri. Fremstur er Hafsteinn Hafsteinsson félagsmálafulltrúi.
sigruðu sætu kökukonumar eftir pottinum en um kvöldið var upp-
spennandi leik. skeruhátíð í félagsheimilinu Tjarn-
Eftir mót var samkoma í heita arborg.
Handmálaðir grískir
íkonar frá kr. 1.990
Tilvalið til fermingargjafa
Klapparstíg 40, sími 552 7977.
Hnattbar
Góð tækifænsgjöf
húsgögn
Armúla 44
sími 553 2035
Arshátíð Grunnskdla Grindavíkur þótti takast með eindæmum vel
Gúmmí-
Grettir
góður
Grindavík - Það er jafnan mikil og
góð skemmtun þegar skólinn í
Grindavík heldur árshátíð. Þetta ár-
ið var engin undantekning og ef eitt-
hvað var tókst hún betur en áður.
Árshátíðin er margskipt en í
stuttu máli sagt em krakkamir í
1.-4. bekk með sérstaka árshátið sem
er reyndar tvískipt og haldin í
„Heilsubælinu“ en svo nefnist aðst-
aða elstu nemendanna til matar og
drykkjar. Sú árshátið er ekki á sama
degi og aðrar og um margt með öðm
sniði. Þá er öllum boðið í kaffi og
kökuhlaðborð að hátíð lokinni.
Eldri krakkamir í 5.-7. bekk halda
sérstaka sýningu en era með 8.-10.
bekk á balli, en 5.og 6. bekkur fara
fyrr heim af balli. Þeirra sýning
tókst með miklum ágætum og var að
heyra á flestum að vel hefði tekist til.
Nokkur atriði em síðan valin af þess-
ari sýningu til að vera á sérstakri
bæjarsýningu sem flestallir bæjar-
búar sækja. A þeirri sýningu era líka
valin atriði frá skemmtun 8.-10.
bekkjar en sú sýning er borin uppi af
einu stóra atriði þar sem leikaramir
era valdir úr hópnum, en ekki eins
og hjá yngri krökkunum þar sem all-
ir era með. Alls tóku 26 krakkar þátt
í leikritinu þar af 22 leikarar undir
öraggri stjóm Boga Hallgrímssonar,
Brynjars Þorsteinssonar og Sigríðar
Ómarsdóttur. Leikritið sem sýnt var
er í raun Grettir eftir þá Ólaf Hauk
Símonarson, Egil Ólafsson og Þórar-
in Eldjám í styttri útgáfu. Það verð-
ur að segjast að allir sem stóðu að
þessari sýningu stóðu sig með mikilli
prýði og ljóst að einhverjir framtíð-
arleikarar era í hópnum. Um kvöldið
spilaði síðan hljómsveitin Sóldögg
fyrir dansi og þurfti nánast að vinda
suma þegar þeir komu heim, þar sem
þeir höfðu ekki stoppað í dansinum
allt ballið. Á bæjarsýninguna var síð-
an, eins og alltaf, vel mætt og boðið
upp á góða skemmtun.
5.V með atriði sitt á ársháti'ðinni.
Morgunblaðið/GPV
Tónlistarskólar á Vesturlandi
halda sameiginlega tónleika
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
Harmonikkunemendur úr Stykkishólmi fluttu valsa á Tón-Vest tón-
leikunum í Stykkishólmi.
Stykkishólmi - Tónlistarskólamir
á Vesturlandi héldu sameiginlega
tónleika í Stykkishólmskirkju mið-
vikudaginn 29. mars. Samstarf er á
milli tónlistarskólanna í kjördæm-
inu. Á hveiju hausti hittast skóla-
stjóramir og ræða málefni tónlist-
arskólanna og ákveða hvar og
hvenær sameiginlegir tónleikar
verða haldnir.
Tónleikar þessir ganga undir
nafninu Tón-Vest og hafa verið
haldnir til skiptis á þéttbýlisstöð-
unum á Vesturlandi síðastliðin átta
ár. Að þessu sinni komu fram nem-
endur frá öllum tónlistarskólunum,
þ.e. frá Akranesi, Borgarbyggð,
Hellissandi, Ólafsvík, Grandar-
firði, Búðardal og Stykkishólmi.
Verkefnaskráin var fjölbreytt og
gaman að hlusta á spilarana, sem
greinilega höfðu lagt mikla vinnu
við æfingar í vetur.
Tuttugu og tvö tónlistaratriði
vora á dagskránni, söngur, samspil
á fiðlur, harmonikkur og gítara og
einleikur á píanó og blokkflautur.
Að lokum var gestunum boðið
upp á veitingar sem kennarar og
foreldrar nemenda Tónlistarskóla
Stykkishólms sáu um.