Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Lítið þokast í við- _ ræðum SA og VMSÍ LÍTIÐ hefur þokast í samningavið- ræðum Samtaka atvinnulífsins og landsbyggðarfélaga innan Verka- mannasambandsins undanfarna daga. Sérmál væntanlegs samnings eru enn til umræðu og þótt nokkuð hafi áunnist er talsverð vinna enn eftir. Á hinn bóginn hefur sjálfur launaþátturinn ekki enn verið rædd- ur. Semjist ekki fyrir 13. apríl nk. hefst verkfall 26 félaga innan VMSÍ. Hópum stillt upp f launaflokka Aðalsteinn Baldursson, formaður Verkalýðsfélagsins á Húsavík, sagði í gærkvöldi að lítið hefði gerst í við- ræðunum. „Það gengur ekki neitt,“ sagði hann. „Við erum vonsviknir, enda vantar allan kraft í viðræðum- ar og teljum atvinnurekendur alls ekki standa sig í stykkinu." Aðalsteinn segir að miðað við óbreyttan gang stefni allt í verkfall. Sérmálin hafi enn sem komið er ver- ið til umfjöllunar og hópum stillt upp í launaflokka. „Umræður um launahækkanir eru alveg eftir og það er ekkert smáræði. Það liggur íyrir að okkar fólk sættir sig ekki við það sem fólst í samning- um Flóabandalagsins. Atkvæða- greiðslan þar sýnir að jafnvel þótt við tækjum á okkur rögg og semdum strax væri nánast vonlaust fyrir okk- ur að fá slíka samninga samþykkta í atkvæðagreiðslu. Þess vegna verður að koma eitthvað nýtt inn í viðræð- umar - eigi ekki að skella á verk- fall,“ sagði Aðalsteinn. Flugfélag' Islands fjölgar ferðum innanlands FLUGFÉLAG íslands hefur fjölgað ferðum á nokkra áætlunarstaði sína innanlands. Er það gert annars vegar í kjölfar þess að Islandsflug hætti flugi um síðustu mánaðamót til nokk- urra staða og hins vegar er ferðum fjölgað þegar kemur íram á vorið. Ami Gunnarsson, markaðsstjóri Flugfélags Islands, upplýsti að ferð- um milli Reykjavíkur og Akureyrar hefði verið íjölgað úr sex í sjö til níu á dag en þær verða 10 í sumar þegar háannatíminn stendur yfir. Til Eg- ilsstaða var bætt við fjórðu ferðinni fimmtudaga, fiöstudaga og sunnudaga og til Vestmannaeyja er nú flogið fjór- um sinnum á dag en áður vom þijár ferðir þangað. Flug á aðra áfanga- staði er að miklu leyti óbreytt nema hvað í vetur var flogið tvisvar á dag til Hafnar og sagði Ami það hafa gefist vel. Verða famar þijár ferðir þangað á degi hveijum yfir hásumarið. Flugfélag íslands tók síðastliðinn mánudag í notkun aðra ATR-flugvél íslandsflugs og hin verður komin í áætlunarflugið næstu daga en félagið leigði þær tímabundið. Verða vélam- ar hvítmálaðar og merktar Flugfélagi Islands. Flugmenn Islandsflugs ann- ast flugið en flugfreyjm- og flugþjónar koma frá Flugfélagi íslands eftir að hafa hlotið þjálfun á vélamar. Eilífur Friður sýknaður af ákæru um tollalagabrot Yar í fullum rétti með 67 smaragða í Leifsstöð HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur sýknað Eilíf Frið Edgarsson, öðra nafni Jorge R. Cabrera Hidalgo, af ákæra lögreglustjórans í Reykjavík fyrir tollalagabrot með því að hafa flutt 67 smaragða til landsins í októ- ber 1997. Eilífur er kólumbískur að upprana og hefur búið hérlendis síðastliðin 12 ár. Hann tók sér hið íslenska nafn er hann hlaut íslenskan ríkisborgara- rétt fyrir fáeinum áram og íhugar nú að fara í skaðabótamál við íslenska ríkið. Eilífur neitaði alla tíð þeim sökum sem á hann vora bomar enda taldi hann að ekki þyrfti að framvísa stein- unum sem tollskyldum vamingi í Leifsstöð, þar sem andvirði þeirra væri innan þess tollkvóta sem hann mátti hafa meðferðis. Steinana keypti hann á 200 dollara í Kólumbíu og lögðu tollverðir hald á þá og töldu Eilíf hafa ýmsan annan vaming sem uppfyllti tollkvótann. Enn hefur Ei- lífur ekki fengið upplýst hvað lá að baki þeim fullyrðingum tollgæslunn- ar. í niðurstöðu Héraðsdóms Reykja- víkur kemur fram að engin gögn í Innherji kaupir fyrir tugi milljóna x Landsbankanum INNHERJI í Landsbanka ís- lands hf. keypti bréf í bankanum fyrir 10 milljónir króna að nafn- verði hinn 9. mars sl. Þetta kom fram í tilkynningu sem birt var á Verðbréfaþingi Islands í gær. Lokagengi bréfa Landsbankans 9. mars var 4,35, og sé mið tekið af því nemur kaupverðið tæpum 44 milljónum króna. Gengi bréfanna á Verðbréfaþingi í gær endaði í 4,75 og því er markaðsvirði þess hlutar sem innherjinn keypti kom- ið í tæpar 48 milljónir króna. málinu renni stoðum undir fullyrð- ingu tollvarðanna um að Eilífur hafi uppfyllt tollkvótann við komuna til landsins. Ennfremur segir að mjög hafi verið á reiki hvað tollyfirvöld ætluðu sér í málinu. Dómurinn taldi ennfremur að verðmætamat gullsmiðs, sem virti steinana til rúmra 82 þúsunda króna, nægði ekki til að véfengja það verð sem Eilífur hélt fram að hann hefði greitt fyrir steinana, enda hefði kvitt- un hans upp á 200 dollara, um 15 þús- und krónur, ekki verið dregin í efa. Vill fá steinana aftur „Ég er mjög ánægður með niður- stöðu dómsins en verð ennþá ánægð- ari þegar ég fæ steinana mína aftur, því um það snýst rnálið," sagði Eilífur í samtali við Morgunblaðið. „Ég hef varið miklum tíma síðastliðið tvö og hálft ár í að leita réttar míns eftir að steinamir vora ranglega teknir af mér og íhuga nú að fara í skaðabóta- mál við ríkið á grandvelli sýknudóms héraðsdóms." Auk þess sem héraðsdómur sýkn- aði Eilíf var allur sakarkostnaður, 60 þúsund krónur, lagður á ríkissjóð. Morgunblaðið/Kristinn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri lék fyrsta leiknum í skák Timmans og Stefáns Kristjánssonar í upphafi nítjánda Reykjavíkur- skákmótsins, en Timman vann skákina. Nítjánda Reykjavíkur- skákmótið sett í gær Lítið um óvænt úrslit í fyrstu umferðunum NÍTJÁNDA Reykjavfkurskákmótið hófst í gær í Ráðhúsi Reykjavíkur og var lítið um óvænt úrslit í fyrstu umferðinni. 76 þátttakendur eru á mótinu, þar af 20 stórmeistarar. Þeirra á meðal má nefna Short, Englandi, Kortsnoj, Sviss, Timman, Hollandi, Sokolov, Bosníu, Ehlvest, Eistlandi, Christiansen, Bandaríkjunum, Mil- es, Englandi, og DeFirmian, Banda- ríkjunum, sem allir unnu skákir sín- ar nema Christiansen sem stóð betur gegn Tómasi Björnssyni seint í gærkveldi, en þá stóð skákin enn yfir. Þá stóð sænski stórmeistarinn Agrest, sem er rússneskættaður, einnig betur gegn Arnari Gunnars- syni og Wojtkievicz stóð betur gegn Júlíusi Friðjónssyni. Islensku stórmeistararnir unnu Islensku stórmeistararnir, Hann- es Hlífar Stefánsson, Helgi Áss Grétarsson, Þröstur Þórhallsson og Helgi Ólafsson, sem allir taka þátt í mótinu, unnu einnig sínar skákir. Önnur umferð verður tefld í dag og hefst klukkan 17. Teflt er alla alla virka daga í Ráðhúsinu frá 17- 24 en um helgar frá 14-21. Níu um- ferðir verða tefldar á mótinu. Andlát HALLDOR HALLDÓRSSON HALLDÓR Halldórs- son, fyrrverandi pró- fessor, lést aðfaranótt miðvikudagsins 5. ap- ríl á áttugasta og níunda aldursári. Halldór var fæddur á ísafirði 13. júlí árið 1911 sonur hjónanna Halldórs Bjarnasonar, kaupmanns þar, og konu hans Elísabetar Bjarnadóttur. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1932 og lauk magistersprófi í íslenskum fræðum frá Háskóla ís- lands árið 1938. Hann varð doktor frá Háskóla íslands árið 1954. Halldór var kennari við Mennta- skólann á Akureyri 1938-51 er hann varð dósent við Háskóla ís- lands í íslensku nútíð- armáli og hagnýtri ís- lenskukennslu. Hann var prófessor við Há- skóla íslands 1957- 1979. Halldór var einn þekktasti málfræðing- ur þjóðarinnar og eft- ir hann liggja fjöl- margar bækur og ritgerðir á því sviði og um efni því tengt. Hann gegndi auk þess fjölmörgum trúnaðar- störfum á sínu sviði. Kona Halldórs var Sigríður Guðmundsdóttir, en hún lést 1997. Þau eignuðust fjögur börn, Guð- mund blaðamann á Morgunblað- inu, sem er nýlátinn, Hildigunni, Elísabetu og Halldór. Sérblöð í dag úá: ateuri c\ Morgunblaðinu í iv / dag fyigir tímaritið 24-7. j Útgefandi: I . ^ ý Alltaf ehf. k - M ,J Ábyrgðar- K / maður: L J Snorri Jónsson mM—J. Kvennalandsliðið í knattspyrnu tapaði 8:0 í Bandarík|unum/B3 Chelsea lék á als oddi gegn Barcelona/Bl Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.