Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 1
82. TBL. 88. ÁRG. FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS AP Sharif bíður dóms DÓMUR verður kveðinn upp í dag í máli Nawaz Sharifs, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, sem hefur verið ákærður fyrir tilraun til að myrða Pervez Musharraf hers- höfðingja skömmu fyrir valdarán hersins í október. Verði Sharif fundinn sekur á hann dauðadóm yf- ir höfði sér. Þúsundir stuðningsmanna Shar- ifs hyggjast safnast saman við dóm- húsið f Karachi þegar dómurinn verður kveðinn upp. Eiginkona Sharifs sagði að óeirðir myndu blossa upp ef hann yrði dæmdur sekur. Stuðningsmenn forsætisráðherr- ans fyrrverandi hrópa hér vígorð gegn einræðisstjórn Musharrafs í Karachi. ■ Lif á bláþræði/33 Þing Evrópuráðsins ræðir refsiaðgerðir gegn Rússlandi Rússar vara við nýju , járntjaldi“ í Evrópu Strassborg. AFP, AP. FORMAÐUR sendinefndar Rúss- lands hjá Evrópuráðinu í Strass- borg varaði við nýju ,járntjaldi“ í Evrópu ef samþykkt yrði að svipta Rússa atkvæðisrétti sínum á þingi ráðsins. Þing Evrópuráðsins greiðir í dag atkvæði um nokkrar tillögur um refsiaðgerðir gegn Rússum vegna hemaðaraðgerðanna í Tsjetsjníu, meðal annars tillögu þess efnis að rússneska sendinefndin verði svipt atkvæðisréttinum. Það yrði þó að- eins táknræn aðgerð því henni yrði ekki komið í framkvæmd fyrr en á næsta fundi þingsins í júní. „Með því að svipta sendinefndina atkvæðisréttinum myndi Evrópu- ráðið glutra niður einstæðu tæki- færi til samstarfs við Rússland," sagði Dmítrí Rogozín, fonnaður nefndarinnar. „Það myndi leiða til nýs járntjalds í Evrópu“. Lögð hefur verið fram önnur til- laga sem kveður á um að Rússar fái frest til 31. maí til að verða við kröf- um Evrópuráðsins, ella verði þeim vikið úr ráðinu. Stjómmálanefnd þingsins samþykkti tillöguna með 25 atkvæðum gegn fjórum í fyrra- kvöld. Stuðningsmenn tillögunnar krefj- ast þess að Rússar hefji viðræður við leiðtoga Tsjetsjena, semji um tafarlaust vopnahlé og heimili óháða rannsókn á mannréttindabrotum í Tsjetsjníu. Stjórnvöld í aðildarríkj- um Evrópuráðsins myndu þurfa að samþykkja tillögu um að Russlandi yrði vikið úr ráðinu og líklegt er að það tæki nokkra mánuði. Robinson krefst rannsóknar Mary Robinson, mannréttinda- fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, skor- aði í gær á rússnesk stjórnvöld að efna til „trúverðugrar" rannsóknar á ásökunum um að rússneskir her- menn hefðu gerst sekir um gróf mannréttindabrot í Tsjetsjníu, með- al annars fjöldamorð, aftökur án dóms og laga, nauðganir og pynt- ingar. Hún gekk þó ekki svo langt að krefjast alþjóðlegrar rannsókn- ar. ■ Skæruliðar tóku/34 Grín gert að landsliðum Amstcrdam. Reuters. SKYNDIBITAKEÐJAN Mc- Donalds hefur beðið landslið Möltu í knattspyrnu afsökun- ar á sjónvarpsauglýsingu þar sem hent var gaman að mögu- leikum þess og landsliðs Is- lands á að komast í úrslita- keppni Evrópumótsins í sumar. í auglýsingunni sáust leik- arar í búningum landsliðanna taka þátt í samkeppni McDon- alds þar sem miðar í úrslita- keppnina voru í vinning. Gefið var til kynna að þetta væri eini raunhæfi möguleiki liðanna á að komast í úrslitakeppnina. „Við ætluðum alls ekki að móðga neinn. Við höfum beðið knattspyrnusamband Möltu afsökunar," sagði talsmaður McDonalds í Hollandi þar sem auglýsingin var sýnd. Hann bætti við að engar kvartanir hefðu borist frá Islandi. Tyrkneska þingið hafnaði Demirel forseta Stiórn Ecevits situr Sprengi- hætta í N oregi þrátt fyrir ósigur Ankara. Reuters, AP. TYRKNESKA þingið hafnaði í gær stjórnarfrumvarpi um að lögum um kosningu forseta landsins yrði breytt til þess að hægt væri að ýósa Sulei- man Demirel á ný. 303 þingmenn voru fylgjandi en hefðu þurft að vera 367 eða tveir þriðju hlutar þingheims til að breytingin yrði staðfest. 177 voru á móti. Niðurstaðan er mikið áfall fyrir Bulent Ecevit forsætisráð- herra og samsteypustjóm hans. Ecevit sagði að þrátt fyrir úrslitin myndi hann ekki slíta stjómarsam- starfinu sem varað hefur í eitt ár. „Ríkisstjóm okkar mun halda áfram að sinna hlutverki sínu af eindrægni og af festu,“ sagði hann. „Við vonum að niðurstaðan hafi verið þjóðinni fyrir bestu.“ „ Almenningur vill hann ekki“ Þingið kýs forsetann sem hefur af- ar lítil völd en hann hefur stundum gegnt hlutverki sáttasemjara í stjórnarkreppu. Demirel er 76 ára gamall, hefur verið virkur í stjórn- málum í fjóra áratugi og í nýrri skoð- anakönnun lýsti mikill meirihluti kjósenda stuðningi við að hann hætti. „Almenningur vill hann ekki,“ sagði dagblaðið Radikal í fyrirsögn í gær er það skýrði frá könnuninni. Hins vegar vilja um 60% framhald núverandi stjórnarsamstarfs. Kjörtímabili forsetans lýkur 16. maí. Ecevit hefur lagt áherslu á að Demirel verði áfram í embætti vegna þess að þannig yrði stöðug- leiki best tryggður. Tyrkir þurfi að geta einbeitt sér að mikilvægum samningum við Alþjóðagjaldeyris- sjóðinn um efnahagsumbætur á næstu árum en einnig eru samskipt- in við Evrópusambandið í brenni- depli. MIÐBÆR Lillestrom í Noregi var rýmdur snemma í gærmorgun eft- ir að eldur kom upp um ndttina í lestarvagni þar sem própangas var geymt. Ekki var ráðist í að slökkva eldinn þar sem talið var að sprengihætta, sem sögð er um- talsverð, myndi aukast við slíkar aðgerðir. Talið er að eldurinn geti logað í allt að þrjá daga á meðan própangasið brennur. Um 3.000 manns, þeirra á meðal skólabörn og sjúklingar á sjúkra- húsum, þurftu að fara úr miðbæ Lillestrom vegna sprengihættunn- ar og voru hús rýmd í allt að kíló- metra fjarlægð frá eldstaðnum. Eldurinn blossaði upp þegar tvær lestir rákust saman vegna bilunar í hemlum annarrar þeirra. ■ Talið að eldur/32 Deutsche Bank og Dresdner Hætt við samruna Frankfurt. Reuters. DRESDNER Bank, þriðji stærsti banki Þýskalands, kom fjárfestum á óvart í gær með því að falla frá áformum um að hann sameinaðist þýska stórbankanum Deutsche Bank. Með samrunanum hefði orðið til stærsti banki heims en margra vikna samningaumleitanir bankanna fóru út um þúfur þegar stjóm Dresdner Bank samþykkti einróma að hafna áformunum. Stjórn Dresdner Bank sakaði Deutsche Bank um að hafa grafið undan sammnaáformunum með því að krefjast þess að fjárfestingar- þjónustudeild bankans, Dresdner Kleinwort Benson, yrði seld. Dresdner Bank hafnaði þeirri kröfu og sagði að deildin hefði staðið sig betur á mikilvægum sviðum fjárfest- inga en Deutsche Bank. Aðalbankastjóri Deutsche Bank kvaðst hafa orðið fyrir vonbrigðum með ákvörðun Dresdner Bank því rökrétt hefði verið að sameina bank- ana. Hann sagði að ekki kæmi til greina að Deutsche Bank sameinað- ist öðram banka á næstunni. Fjármálasérfræðingar sögðu að það væri báðum bönkunum fyrir bestu að samrunatilraunin fór út um þúfur því hún hefði verið illa grand- uð frá upphafi. Þeir töldu líklegt að aðrir bankar myndu nú reyna að kaupa Dresdner Bank. Verð hlutabréfa í Deutsche Bank hækkaði um 7,5% við tíðindin, en það hafði lækkað um 30% frá því skýrt var frá áformunum um samrunann. Verð hlutabréfa í Dresdner hækkaði einnig um rúm 7%. MORGUNBLAÐH) 6. APRÍL 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.