Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
íá"-.-
FOSTUDAGIIVJIM 14. apríl kl. 20
LADGARDAGllMTSI 15. apríl kl. 16
Edward Crafts
Georgina Lukács
Kristján Jóhannsson
Hljómsveitarstjóri: Rico Saccani
Einsöngvarar: Georgina Lukács,
lldiko Komlosi, Kristján Jóhannsson,
Edward Crafts
Kór íslensku óperunnar
Giuseppe Verdi: Requiem
lldiko Komlosi
Sálumessa Verdis er eitt stærsta og frægasta verk
þeirrar tegundar. í henni nýtast honum meistaratök
sín á dramatík, því sálumessan er mikið átakaverk.
Einvalalið einsöngvara tekur þátt í flutningnum.
Tryggið ykkur miða á þessa stórtónleika
SINFONIAN
Miðasala
kl. 9-17 virka daga
Háskólabió v/Hagatorg
Simi 562 2255
www.sinionia.is
ERLENT
Sprengihætta í kjölfar áreksturs tveggja lesta í Noregi
Reutcrs
Eldur logar í lestarvagni eftir árekstur tveggja lesta í Lilleström.TöIuverð sprengihætta fylgir própangasi sem
geymt var í öðrum vagninum og varð lögregla því að rýma miðborg bæjarins.
Talið að eldur kunni
að loga í þrjá daga
Osló. AP, AFP, Reuters. 9
ELDUR logaði áfram í flutningalest
í nágrenni lestarstöðvar í miðbæ
Lillestrom í Noregi í gær, eftir að
kviknaði í lestinni aðfaranótt mið-
vikudags. Að sögn lögreglu var talið
að eldurinn kynni að lifa í allt að þrjá
daga og ekki var búist við að á annað
þúsund manns sem urðu að yfírgefa
heimili sín í kjölfar eldsvoðans
fengju að halda heim í gær.
Eldurinn kom upp um eittleytið
aðfaranótt miðvikudags í kjölfar
áreksturs tveggja lesta. Lestin sem
kviknaði í var með 104 tonn af próp-
angasi innanborðs, en efninu fylgir
mikil sprengihætta. Lögregla fyrir-
skipaði því snemma í gærmorgun að
rýma skyldi allar byggingar í allt að
700 metra fjarlægð frá lestarstöð-
inni og aðstoðaði bæði lögregla og
her fólk við að yfírgefa svæðið, m.a.
skólaböm og sjúklinga á nærliggj-
andi sjúkrahúsi.
Ekki hefur verið reynt að slökkva
eldinn en að sögn lögreglu var tekin
sú ákvörðun að láta própangasið
brenna til að forðast frekari
sprengihættu. Vatni er þó sprautað
á gasgeymana til að kæla þá niður.
Sprengihætta er engu að síður talin
mikil að sögn dagblaðsins Aften-
posten sem hafði eftir Jorgen
Hoidal lögreglustjóra, að ef spreng-
ingin yrði kraftmikil, kynni hún að
valda tjóni í allt að 650 metra radíus.
Taldi uppistandið
vera heræfingu
Rúnar Kristinsson knattspyrnu-
maður og fjölskylda hans voru í hópi
þeirra sem urðu að yfirgefa heimili
sitt og sagðist Rúnar í fyrstu hafa
haldið að um heræfingu væri að
ræða. „Maður hélt ekki að það væri
mikil hætta á ferðum,“ sagði Rúnar
og kveðst þó hafa áttað sig á alvör-
unni þegar fólk á æ stærra svæði
var beðið um að yfirgefa hús sín.
„Við bjuggumst til að mynda við
að geta verið í okkar húsi, en svo var
svæðið orðið um 800-1.000 metrar að
radíus.“ Að sögn Rúnars fór brott-
flutningurinn þó vel fram og gaf fólk
sér góðan tíma til að yfirgefa svæð-
ið. Rúnar og fjölskylda hans dvöldu
síðan á hóteli utan við Lillestrom í
gærdag ásamt um hundrað öðram,
m.a. Reyni Bjömssyni lækni og fjöl-
skyldu hans. En fólki var veittur
samastaður á hótelinu yfir daginn.
„Það er núna gengið á milli fólks
og kannað hvort það hafi einhverja
svefnaðstöðu í nótt. Eins og staðan
er núna þá er ekki búist við að þetta
klárist í dag,“ sagði Rúnar og kvaðst
búast við að fjölga myndi á hótelinu
er kvöldaði þar sem margir hefðu
haldið til vinnu í Ósló.
Rúnar sagði fólk að mestu taka
brottflutningnum með ró, en Aften-
posten hafði í gær uppi harða gagn-
rýni á yfirvöld fyrir að hafa beðið
með að flytja fólk brott úr miðbæn-
um í tæpa sjö tíma eftir að brunans
varð vart.
Að sögn Rúnars var ekki að sjá að
sama reiði ríkti meðal almennings,
en að því er haft var eftir lögreglu
lágu ekki fyrir fullnægjandi upplýs-
ingar um hættuástand fyrr en
snemma á miðvikudagsmorgun.
Nýkomin sending af sófasettum
Vandað Mantelassi sófasett
Litir dökkkoníaksbrúnt M/leð ria
og Ijóskoníaksbrúnt fgy
Áklæði í fjórum litum. |
M/áklæði aðeins kr.
178.000.-
Vönduð gæðohúsgögn
á góðu verðl!
Hjá okkur eru Visa- og
Euro-ra&amningar
ávísun á sta&jreiöslu
I
• 9
usqogn
Ármúla 8-108 Reykjavík
Síml 581-2275 ■ 568-5375 ■ Fax 568-5275