Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 92

Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 92
PfergmnMntíit* fELCCÍ r\ZI Síðan 1972 Leitið tilboða! Trausti íslenska múrvörui II steinpi MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍM15691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA S691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl I FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Flugvirkjar hjá Flugleiðum boða verkfall frá og með 13. aprfl Flug frá landinu stöðvast samdægurs Samkeppnisstofnun Landssím- inn ákvað —* sjálfur hækkun LANDSSÍMINN ákvað hækkun GSM-álags úr 7,47 kr. í 12,50 kr. án nokkurra afskipta Samkeppnisstofn- unar en í frétt Morgunblaðsins í gær var sagt að Samkeppnisstofnun hefði í bréfi til Landssímans gefið til kynna að svo kynni að fara að stofnunin beitti fyrirtækið sektum hækkaði það ekki álag á millilandasímtöl úr GSM- símum í tengslum við kvörtun Frjálsra fjarskipta. Guðmundur Sigurðsson, forstöðu- maður Samkeppnissviðs Samkeppn- \?stofnunar, segir að stofnunin hafi ekki beint neinum fyrirmælum til Landssímans um að hækka GSM- álag vegna máls Frjálsra fjarskipta, enda sé því máli ólokið. Hann segir að Samkeppnisstofnun hafi borist afrit af bréfi Landssímans til Frjálsra fjarskipta í framhaldi af fundi fyrirtækjanna, en þar tilkynni Landssíminn um hækkun GSM-álags úr 7,47 kr. upp í 12,50 kr. á mínútuna. „Þessa ákvörðun tók Landssíminn án nokkurra afskipta Samkeppnisstofn- unar enda hefur erindi Frjálsra ■■•Ptarskipta aðeins hlotið hefðbundna stjórnsýslumeðferð. Það þýðir að leit- að var umsagnar Landssímans um málið og honum greint frá því að brot fyrirtækja á samkeppnislögum eða ákvörðunum gætu varðað viðurlög- um, t.d. beitingu stjórnvaldssekta." Guðmundur segir að slík tilkynn- ing sé í samræmi við stjómsýslulög um andmælarétt og sé í fullu sam- ræmi við hefðbundin vinnubrögð samkeppnisyfirvalda. í þessu hafi því ekki á nokkum hátt falist úrskurður um háttsemi Landssímans. Loks lét sólin sjá sig GÆRDAGURINN minnti okkur á að sumarið er handan við hornið, þótt enn geti brugðið til beggja vona. Fólk notaði tækifærið og dreif sig í sundlaugarnar.Veður- horfur næstu daga eru nokkuð góðar, en á mánudag er búist við að kólni eilítið í veðri með norð- anatt. FLUGVIRKJAR hjá Flugleiðum hf. hafa boðað ótímabundið verkfall frá 13. apríl nk. semjist ekki fyrir þann tíma. Komi til verkfalls stöðvast allt flug til og frá landinu samdægurs. Flugvirkjar hjá Flugfélagi Islands hf. hafa einnig boðað til verkfalls frá og með 17. apríl nk. Flugvirkjafélag Islands hélt kjör- fund um verkfallsboðun 3. og 4. apríl sl. Samþykkt var ótímabundið verk- fall sem á að ná til vinnu við allt línu- viðhald flugvéla Flugleiða og við- haldsstýringu á Keflavíkurflugvelli. Skal það hefjast að morgni 13. apríl. Kosningarétt höfðu 156 félags- menn; 106 samþykktu verkfallsboð- un, 4 felldu hana en auðir seðlar og ógildir vora engir. Þá var samþykkt ótímabundið allsherjarverkfall hjá Flugfélagi ís- lands hf. frá og með 17. apríl nk. kl. 11. 22 félagsmenn höfðu kosninga- rétt, 12 sögðu já og enginn nei. Einn seðill var ógildur og annar auður. Einar Sigurðsson, aðstoðarfor- stjóri Flugleiða, segir fyrirtækið treysta því að ekki komi til verkfalls. Segir hann að það verði að forðast í lengstu lög. „Það myndi koma mjög illa niður á flugrekstrinum og ferðaþjónustunni líka. Ef til þess kæmi gæti það valdið miklu tjóni á mörkuðum erlendis. Flugið og ferðaþjónustan er sér- stök að því leyti að þetta er ekki vara sem hægt er að geyma til sölu seinna. Þetta era hvort tveggja at- vinnugreinar sem eru að vaxa, en hafa verið með tiltölulega veika rekstrarstöðu. Það er líka mikilvægt fyrir atvinnulífið sem er að fóta sig á alþjóðavettvangi að einangrast ekki hér vegna verkfalls,11 segir Einar. Einar sagði að Flugleiðir þyrftu að hafa til hliðsjónar heildarlauna- greiðslur félagsins sem væru um átta milljarðar króna. „Hver tíu prósent, hvort sem þeim er skipt nið- ur á tvö, þrjú eða fjögur ár, eru átta hundruð milljónir. Hvert prósentu- stig á laun þýðir 80 milljóna króna útgjöld fyrir félagið," sagði hann. Morgunblaðið/RAX ■ Stofnunin hafði/12 --------------- Fæðingarorlof Kveðjur frá útlöndum FJÖLDI árnaðaróska hefur borist að utan til karlanefndar Jafnréttis- ráðs vegna samþykktar laga um lengingu á fæðingarorlofi hér á landi. Ingólfur Gíslason, starfs- maður nefndarinnar, segir að á bil- inu 30-40 heillaskeyti hafi borist frá starfsbræðrum á Norðurlönd- um, Englandi og Bandaríkjunum. Hann segir að þegar breytingin hefur að fullu náð fram að ganga jíiiandi Islendingar fremstir allra þjóða hvað varðar rétt karla til fæðingarorlofs. I Fæðingarorlof/6 Fólksbflar lækka um á ann- að hundrað þúsund króna BÍLAUMBOÐIN eru þegar farin að bregðast við breytingum á vöru- gjaldi sem samþykktar voru á Al- þingi síðdegis í gær, sem felur í sér fækkun vörugjaldsflokka úr sex í tvo. Toyota hefur lækkað verð allt frá 2,25% upp í 12,06% og Brimborg hefur lækkað verð um allt að 12%. Mest verðlækkun verður á jepp- um með bensínvélar stærri en 2.500 rúmsentimetra, sem báru 65% vöru- gjald en fara í 45%, og með dísilvél- ar yfir 3.000 rúmsentimetra sem báru einnig 65% vörugjald en fara í 45%. Þannig lækkar Toyota Land Páskar í Dublin 20. - 24. apríl Eigum örfá sæti laus í skemmtiferö til írlands um páskana. KynnlA ykkur sérstaka golfdagskrá fyrir kylflnga. Samvinnuferðir Landsýn Cruiser 100 VX með bensínvél úr 5.680.000 kr. í 4.995.000 kr. eða um 685.000 kr. Dísilbíll sömu gerðar lækkar úr 5.980.000 kr. í 5.265.000 kr. eða um 715.000 kr. Lítils háttar hækkun verður á verði Land Cruis- er 90 með dísilvél sem fer úr 40% vörugjaldi í 45%. Hækkunin er þó minni en sem nemur hækkun vöru- gjaldsins eða 1,30 í 1,67% fyrir dísil- bílinn meðan hækkunarþörfin var 3,2%. Lítilsháttar verðlækkun verð- ur einnig á Corolla og allt að 5,67% á Avensis með 1,8 1 vél. RAV4-jepp- lingurinn lækkar um allt að 4,65%. Áhrif á markað með notaða bfla Júlíus Vífill Ingvarsson, fram- kvæmdastjóri Bílheima, segir að hér sé verið að stíga skref frá neyslustýringu sem hafi verið alltof mikil. 65% vörugjaldsflokkurinn hafi ekki þjónað neinum tilgangi. Nánast enginn fólksbíll hafi verið fluttur inn af bílaumboðunum í þeim flokki. Fyrirhuguð breyting sé af hinu góða en það hafi komið á óvart að 40% vörugjaldsflokkurinn hækk- aði í 45% sem valdi hækkun á öllum innfluttum japönskum jeppum sem voru í 40% vörugjaldflokknum. Hann segir að breytingin opni einn- ig fyrir endurskoðun á innflutningi á bandarískum bílum, ekki síst GMC Suburban og öðrum stórum banda- rískum bflum. „Stærstu fréttirnar eru þó kannski þær að vinsælir bílar eins og Subaru lækka og aðrir fólks- bflar með 2,0 1 bensínvélar, eins og Opel Vectra og Nissan Primera, lækka um eitthvað á annað hundrað þúsund krónur. Ýmsir bflar sem fram til þessa hafa aðallega verið seldir með 1,6 1 vélar verða boðnir með 1,81 og 2,01 vélar. Þarna verður áherslubreyting og línan mun breikka. Það koma aftur inn bflar með 1,81 vélar sem hafa lítið verið á boðstólum til þessa,“ segir Júlíus. Hann telur að breytingin hafi jafnframt áhrif á verð notaðra bfla. Reikna megi með því að verð á al- gengum jeppum sem nú eru til sölu á bflasölunum breytist ekki á svip- stundu en með tímanum muni þeir hækka lítillega. Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar, segir að mestu áhrif vegna fyrirhug- aðrar vörugjaldsbreytingar verði á bflum með bensínvélar yfir 3,0 lítra aðstærð og ef tekið sé dæmi af lúx- usjeppa, eins og Ford Explorer, lækki hann um 12%, eða úr 4,5 millj- ónum kr. í tæpar 3.960.000 kr. eða um 540.000 kr. Áhrif verði einnig til lækkunar á fjölskyldubflum með 2,0 lítra vélar, eins og Ford Mondeo- skutbfl með sjálfskiptingu sem kost- ar nú um 2,4 milljónir en lækkar um 6,5% eða 170.000 kr. Egill kveðst telja að tilfærsla verði milli vélar- stærða og verði í kjölfarið auðveld- ara fyrir fjölskyldur að eignast rúm- góða fjölskyldubíla. Þá muni samkeppnisstaða milli jeppa með bensín- og dísilvélar jafnast. Einnig megi reikna með því að innflutning- ur nýrra jeppa frá Bandaríkjunum aukist en sá innflutningur hafi nán- ast legið niðri vegna tollmismunar. Hekla hf. hefur ekki ákveðið verð- breytingar enn sem komið er. Jó- hannes Reykdal, blaðafulltrúi Heklu, segir að helstu áhrifin af vörugjaldsbreytingunni verði þau að hægt verði að bjóða bíla með hag- kvæmari vélar. Mitsubishi hefur þróað nýja gerð véla, svokallaðar GDI-vélar, sem eru bæði spameytn- ari og umhverfisvænni en hefð- bundnar bensínvélar. Þær hafa hins vegar aðeins verið fáanlegar með 1.800 rúmsentimetra slagrými. Jó- hannes segir að hægt verði að bjóða þessar vélar á viðráðanlegu verði og sömuleiðis er væntanlegur á markað hérlendis nýr Pajero-jeppi með 3,5 lítra GDI vél sem fer úr 65% vöru- gjaldi í 45%. ■ Tvær breytingar/10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.