Morgunblaðið - 09.04.2000, Side 11

Morgunblaðið - 09.04.2000, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2000 11 I Eyjafirði er laxveiði í Fnjóská og Eyjafjarðará, en auk þess er sjó- bleikjuveiði í öllum ám í firðinum og vaxandi tekjur af henni. í Hvalfírði eru laxveiðiár og ber þar hæst Laxá í Kjós, en auk þess eru þar Brynju- dalsá og Botnsá. Að auki er stutt í aðrar laxveiðiár eins og Laxá í Leir- ársveit, ár í Borgarfirði og Elliðaám- ar, Úlfarsá og Leirvogsá í nágrenni Reykjavíkur. Um 40-50% af laxveiði landsins er úr ám við Faxaflóa," seg- ir Sigurður og heldur áfram: „Varðandi hugsanlega erfðameng- un hefur verið sýnt fram á að sá norski laxastofn sem hér hefur verið notaður í strandeldisstöðvum er mjög ólíkur íslenskum villtum stofn- um í ánum. í kvíaeldi á laxi er mjög hætt við því að lax nái að sleppa úr haldi í einhverjum mæli. Þegar kvía- eldi var reynt á íslandi á síðari hluta níunda áratugarins kom í Ijós að lax slapp úr kvíunum í stórum stíl, vegna illviðra, selur reif gat á kvíar o.s.frv. Þetta leiddi til þess að um nokkurra ára skeið var lax af eldisuppruna al- gengur í ám við Faxaflóann þar sem eldi var mest stundað. Ósvarað er hvort laxastofn Elliðaánna skaðaðist vegna þessa og að það sé skýringin á bágu ástandi stofnsins. Líklegt er því að laxar nái að sleppa úr haldi nú sem fyrr þótt búnaður sé betri en áð- ur. í Noregi er áætlað að 2-5% laxa í kvíum sleppi, en þessar tölur voru hærri áður. Þegar laxaseiði ganga til sjávar læra þau leiðina og nota til þess öll skilningarvit, sjón, lykt, segulsvið og straumlag. Þegar lax er rændur þessari reynslu ratar hann ekki heim. Er nóg að lax missi af hluta leiðarinnar þá ratar hann ekki heim. Þetta hefur verið sýnt fram á í til- raunum erlendis, t.d. í Noregi. Ef gönguseiði sleppur úr kví leitar það þangað á ný þegar kynþroska er náð, en fer síðan í ferskvatn í nágrenninu, gjarnan laxveiðiá, þegar nær dregur hrygningu. Sleppi fiskur síðar úr kvíum verður rötunin heim ómar- kvissari og getur sá flakkað meira og leitað í ár á stærra svæði þegar slík- ur lax verður kynþroska. Eins er það mjög háð því hvenær lax sleppur hvað mikið af honum lifir. Hæsta lifi- talan er á laxi sem sleppur á göngu- seiðastigi eða skömmu síðar og eins af laxi sem sleppur næstum því kyn- þroska fiskur að vori eða sumri. Ef mikið innstreymi aðkomulax á sér stað, samanborið við stofn árinn- ar eða það gerist ár eftir ár, getur það leitt til breytinga á erfðasam- setningu villtra stofna með ófyrirsjá- anlegum afleiðingum. Haldnar hafa verið ráðstefnur á vegum Alþjóða hafrannsóknarráðsins, ICES, og Al- þjóða laxavemdunarstofnuninni, NASCO, og gefin út rit þar sem eindregið er lagt til og varað við stofnablöndun og því að brjóta niður stofnamun og líffræðilegan fjöl- breytileika, sem er afleiðing af mörg þúsund ára þróunarlegri aðlögun viðkomandi stofna að umhverfi sínu.“ Hver erhættan? „Ljóst er að stórfellt eldi á laxi í kvíum getur teflt náttúrulegum laxa- stofnum í tvísýnu. Stór spurning í þessu sambandi er hvenær kyn- þroska er náð hjá norskum eldislaxi í kvíum við íslenskar aðstæður. Um þetta atriði liggja ekki fyrir upplýs- ingar. Það skiptir einnig máli hvort gönguseiði verði notuð til heilsárs- eldis eða nýta eigi sumartímann til eldis stærri lax. Heilsárseldi þýðir meiri hættu á að lax sleppi. Ef lax sleppur á gönguseiðastigi eða stuttu síðar eru einnig miklar líkur til að hann komi aftur til hrygningar. Þannig er skiptieldi hættuminni kostur. í þessu sambandi skiptir einnig gífurlega miklu máli hvort og í hve miklum mæli laxinn nær kyn- þroska haustið eftir sleppingu; það er um sláturtímann. Ef hann gerir það ekki er hættan mun minni. Enginn getur séð fyrir áhrif af hugsanlegri erfðablöndun frá norsk- um laxi á íslenska laxastofna. Áhrifin eru m.a. háð stærð fyrirhugaðrar eldisstarfsemi. Um það hefur ekkert komið fram í óljósum erindum fyrir- tækjanna og er nauðsynlegt að slíkar upplýsingar verði tiltækar ef meta á áhættu af starfseminni. Til fróðleiks skal þess getið að á Vesturlandi veið- ast að jafnaði um 15.000 laxar á stöng sem eru um 3 kg að meðal- þyngd eða um 45 tonn á ári. Ljóst er að áhættuþættir vegna erfðameng- unar aukast eftir því sem eldisstarf- semi eykst. Áform um að framleiða 8 þúsund tonn af laxi í Eyjafirði hafa verið nefnd í fjölmiðlum. Ef hver fiskur er 4 kg þá þarf 2 milljónir fiska í þá framleiðslu. Að jafnaði væru þrjár kynslóðir laxa í eldi eða 6 milljónir laxa að lágmarki. Líklega ganga um 50-70 þúsund laxar árlega í íslenskar ár. Ljóst er því að ekki þarf mikil slys í eldinu svo að áhrifin geti orðið mikil á náttúrulega laxa- stofna. Reynsla Norðmanna sýnir að 2-5% sleppi sem þýðir að 40 til 100 þúsund laxar sleppi af hverri kynslóð sem eru jafnmargir eða fleiri laxar en náttúra Islands fóstrar. Notkun geldstofna í eldi kæmi í veg fyrir erfðamengun. Slíkir stofnar eru not- aðir í silungseldi víað um heim, en lít- ið í laxeldi. Þá lausn ætti að kanna að fullri alvöru.“ í viðbót við þetta vék Sigurður að því að sjúkdómar væru viðvarandi vandamál í öllu fiskeldi og nýjasta dæmið væri ISA-veiran sem herjar nú á laxeldi Færeyinga eftir að hafa gert mikinn usla í Noregi, Kanada og á Bretlandseyjum. Hann nefndi að taka yrði einnig með í umræðuna hættuna sem stafaði af laxalús, sem hefur magnast mjög í tengslum við kvíaeldi erlendis, og gæti gert usla í sjóbleikjustofnum Eyjafjarðar og sjóbirtingsstofni Laxár í Kjós, auk þess sem gönguseiðum væri hætt við smiti. Loks sagði Sigurður: Hvar eru neikvæðu áhrifin? „Ef út í kvíaeldi verður farið á ís- landi lendum við án efa í sömu vandamálum og aðrar þjóðir. Skil- yrði til kvíaeldis eru hér erfiðari og óhagstæðari en víða erlendis þannig að áföllin gætu hæglega orðið meiri. Þar sem lax- og silungsveiðar hér á landi eru mjög verðmæt auðlind, 1,8 milljarðar og hratt vaxandi, hljóta varúðarsjónarmið að vega mjög þungt vegna starfsemi sem skaðað getur slíka hagsmunni. Skaði sem unninn er á þessari auðlind getur oft verið óafturkræfur. Hér er því um stórar ákvarðanir að ræða. Ætla ís- lendingar að viðhalda sínum dýr- mætu náttúruauðlindum sem fólgn- ar eru í fjölbreyttum fiskstofnum í ám og vötnum eða ætla þeir að hætta öllu fyrir eina tilraunina enn í fisk- eldi sem byggist á afar tæpum fjár- hagslegum forsendum?" Vigfús Jóhannsson forstjóri Stofn- fisks sagði í samtali, að þegar fisk- eldið hefði verið að byggjast upp í landinu á sínum tíma hefði mikið ver- ið talað um erfðamengun, en síðan hefði umræðan tekið miklum breyt- ingum og stafaði það m.a. af því að 10-15 árum seinna hefði ekki tekist að sýna fram á þessi hugsanlegu neikvæðu áhrif. „Síðan hafa verið m.a. skrifaðar vandaðar álitsgerðir, m.a. í Kanada, þar sem beinlínis er bent á með rökum að slík blöndun geti verið til bóta. Það er almennt mjög erfitt að skilja með stofnerfða- fræðilegum rökum þessa hættu sem verið er að tala um,“ segir Vigfús og heldur áfram: „Á sama tíma vita menn að laxinn hefur innbyggðan erfðafræðibund- inn eiginleika til að leita á nýjar slóð- ir til hrygningar. Þetta er þekkt meðal kyrrahafslaxins og draga mátti sömu ályktanir af niðurstöðum rannsókna á hafbeitarlaxi á íslandi fyrir nokkrum árum. Þannig virtist alltaf hluti stofnsins hafa erfðabund- inn eiginleika til að „villast" í aðrar ár og virðist það virkjast við ákveðnar umhverfisaðstæður, t.d. ef ástand sjávar er lélegt þegar göngu- seiðin koma í sjó. Þetta virðist vera svar náttúrunnar til að tryggja blöndun stofna af mismunandi upp- runa í ánum. Þetta er þekkt almennt úr stofnerfðafræðinni og nægir að nefna mannfólkið í því sambandi. En þegar kemur að laxinum þá allt í einu gilda allt önnur lögmál og þá þarf að fara að setja reglugerðir um það hverju má blanda saman og hverju ekki. Þetta er gert án þess að nokkuð sé vitað hvaða afleiðingar þessar reglur hafa. Það má aftur á móti færa rök fyrir því að þessar reglur geti beinlínis haft neikvæðar afleið- ingar. I dag er þess krafist að við fiskirækt í tiltekinni laxveiðiá sé ein- göngu notaður fiskur sem uppruninn er úr ánni. Hvað þýðir þetta í raun? Þarna er örugglega verið að þrengja erfðamengi árinnar eins mikið og hægt er að gera, m.a. vegna þess að það er þá háð ástandi árinnar það sumar sem fiskurinn veiddist hvað valdist til undaneldis og getur oft og tíðum verið byggt á veiðum á klak- fiski á einum degi og jafnvel úr ein- um veiðistað. Það er almennt eins og náttúruval sé ekki til í þeirri líffræði sem liggur að baki þessum reglu- gerðum.“ Vigfús heldur áfram: „Vegna um- ræðu um að fiskur sleppi úr kvíum er alveg ljóst að það getur gerst. Aftur á móti eru aðstæður allt aðrar í dag og þá fyrst og fremst vegna þess að búnaður hefur batnað mikið og allar aðferðir við eldið sjálft eru miklu betri. Vandamálið við kvíaeldi í dag er ekki hvort kvíamar standist veðr- áttuna heldur hvort fiskurinn í kvíunum þoli álagið. Þetta eru m.a. ástæður þess að laxeldi víðast hvar í heiminum hefur skilað mjög góðum árangri á síðustu árum og m.a. verið góður hagnaður af greininni víðast hvar. Það er ósköp einfalt, að fyrir- tæki sem eru að missa fisk skila ekki hagnaði og því fara þeir hagsmunir saman. I samningum Alþjóðsam- bands laxeldisframleiðenda við NASCO um uppbyggingu villtra laxastofna er einmitt lögð áhersla af beggja hálfu á að það sé hægt að fyr- irbyggja að fiskur sleppi úr kvíum með réttum búnaði og vinnureglum. Umræðan hér á landi að undanförnu hefur allt of mikið snúist um þetta atriði og eins og ekki hafi verið gerð tilraun til að afla upplýsinga hvað hefur verið gert í þessum málum undanfarin 10 ár, sem m.a. sést á því að annars staðar er umræðan um fiskeldi öll á einn veg, þ.e. verið að leita að frekari sóknarfærum enda almennt allir sem til þekkja sammála um að fiskeldi er umhverfisvæn að- ferð við framleiðslu á fiski og hefur m.a. stuðlað að uppbyggingu á villt- um laxastofnum, m.a. með því að draga úr þörfinni á villtum laxi á markað og þannig m.a. auðveldað netauppkaup.“ Hvað með sjúkdómahættuna? „Varðandi umræðu um sjúkdóma og villtan lax hefur dýralæknir fisk- sjúkdóma, sem skjólstæðingur bæði villta og eldislaxins, margoft sagt að vandamálið hér á landi snýr fyrst og fremst að þeirri ógn sem eldisfiski stafar af villtum fiski. Það eru miklu meiri líkur á að sjúkdómar berist þá leiðina heldur en að eldisfiskur smiti villtan lax. Það hefur ekki verið sýnt fram á þá ógn sem villtum laxi stafar af sjúkdómum frá eldislaxi. Það var ekki í fiskeldi sem kýlaveikin fannst í fyrsta skipti hér á landi heldur í villt- um laxi í Elliðaánum. Það er allt of mikil einföldun að tala aðeins um sjúkdóma þegar eldisfiskur er ann- ars vegar, sjúkdómar finnast og hafa eflaust miklu meiri áhrif á náttúru- lega dánartölu laxins í sjó heldur en menn hafa talið til þessa. Áhrif þeirra á villta laxinn eru mjög tengd umhverfinu á hverjum tíma og lík- legt að þættir eins og mengun hafi þar mikil áhrif. Það skyldi þó aldrei vera að mengun í Elliðaánum, sem hefur verið sýnt fram á að er mikil, hafi skapað skilyrði fyrii’ sjúkdóma eins og kýlaveikina. Það verður að segjast eins og er, að með því að beina allri umræðunni að einhverju sem enginn veit hvað er, þ.e. erfða- mengun, er eins og allir þeir sem áttu að vita betur hafi sofið á verðin- um og laxastofninn i ánum hefur hrunið á sama tíma. Ávallt eru notuð orð eins og að láta náttúrulega laxinn njóta vafans. Hvað með Elliðaárnar? Hvar er ráðgjöf opinberra aðila og reglugerðarsetningin þegar kemur að eftirliti með mengun og stjórnun á rennsíi í ánum þar sem fiskifræð- ingar hafa árvisst birst í íjölmiðlum og sýnt hvernig árnar eru þurrkaðar upp á stórum kafla. Jafnframt hefur verið sýnt fram á að mengun frá gatnakerfi og jafnvel sundlaugum í Reykjavík er látin renna óhindi’að í Elliðaárnar. Hvar er krafa þessara aðila þá um að villti laxinn njóti vaf- ans?“ Óhræddur sjúkdómafræðingur Gísli Jónsson fisksjúkdómafræð- ingur á Keldum er meðmæltur því að kvíaeldið beri að leyfa og tók skýrt fram er leitað var álits hans í þessa samantekt, að hann stæði bæði með laxveiði- og laxeldismönnum. Gísli vildi einkum tjá sig um sjúkdóma- þáttinn, en vegna umræðu um erfða- mengun vildi hann taka fram, að norski laxinn sem um ræðir, yrði ekki kynþroska fyrr en þriggja ára og ef eitthvað slyppi úr kvíum væri bæði langt í kynþroska og yfirgnæf- andi líkur að sá lax leitaði aftur að kvínni eftir að hafa étið í hafinu. En síðan sneri Gísli sér að sjúkdóma- málinu. „Það sem mest ber á nú er ISA- veiran sem fyrst fannst í eldislaxi í Noregi, en fannst síðan í kvíalaxi við Kanadastrendur og á vesturströnd Skotlands á árunum 1996-1998. Nú er hún komin til Færeyja og gerir þar mikinn usla. Þessi veira er skyld flensuveirunni, en leggst á blóð og nýru eldislaxa. Það er engin ástæða til að ætla að við sleppum við þessa veiru hér á landi, en hvort hætta er á að smit bærist í villta stofna er ekki vitað. Það hefur ekki fundist sjúkur villtur lax með þetta smit. Það hefur heyrst að menn hafi talið sig finna ISA-veiruna í villtum löxum í Skot- landi og Kanada, en ég er nýkominn af ráðstefnu Alþjóða fisksjúkdóm- astofnunarinnar og þar bar öllum saman um að ISA veiran verður ekki greind á þann hátt sem þar er haldið fram. Það er sem sagt hvergi stað- fest. Hvað er smit? Enginn sjúkur eða dauður villtur lax hefur fundist. Nú er byrjað að nota tilraunabólu- efni í Kanada, en engin reynsla er komin á það enn þá. Laxalús hefur gert mikinn skaða sums staðar erlendis. Þegar menn velta fyrir sér hver hætta geti verið þar á ferðum ber að líta á gífurlegan þéttleika eldisstöðva erlendis. Hér erum við að tala um skiptieldi á tveimur stöðum og heilsáreldi á ein- um stað. Það er engin hætta á lús, hún nær sér ekki á strik í þeim mæli sem hún getur gert usla við þær að- stæður sem hér eru og þá á ég eink- um við meiri sjávarkulda hér á norð- urslóðum. í Eyjafirði er einhver laxagengd, en þar er fyrst og fremst sjóbleikjugengd og laxalúsin lætur bleikjuna vera. Þessar tegundir hafa hvor sína lúsategundina. Varðandi skiptieldið hér fyrir sunnan hafa þeir aðilar sem hugðust vera í Hvamms- vík ákveðið að færa sína starfsemi undir Vogastapa. Þá hafa menn talað um sníkjudýr- ið Gyrodachtilus sem leggst á smá- seiði í ám og hefur gert gífurlegan usla í norskum ám, nánast rústað stofnum 40 áa. Þetta dýr er upp- runnið í ferskvatni og barst með seiðum frá Svíþjóð í norsku árnar. Dýrið þolir ekki saltvatn og því hægt að verjast því. Varðandi kýlaveiki og kýlaveikibróður, þá er nú sett sem skilyrði að seiði séu bólusett fyrir þeim pestum. Það sem ég legg áherslu á er að skrattinn sé ekki málaður á vegginn. Ég ber hag villtra laxastofna mjög fyrir brjósti, en sé ekki að þeim stafi hætta af einni eða tveimur fiskeldis- stöðvum."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.