Morgunblaðið - 09.04.2000, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.04.2000, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Myndlistar- sýning í Dan- mörku veldur fjörfískum Sýningin EYEGOBLACK í Trapholt-safn- inu í Kolding hefur valdið deilum. Erling Klingenberg myndlistarmaður fjallar um sýninguna, þar sem meðal annars getur að líta gullfíska í Moulinex-blöndurum sem gestum gefst kostur á að ræsa. s HINUM rólega og fallega bæ Kolding á Jótlandi er safnið Trapholt, sem kannski fáir Is- lendingar þekkja en er vel þess virði að sækja heim fyrir þá sem hafa áhuga á arkitektúr, húsgagnahönn- un, handverki og almennri myndlist. Það er titlað mest sótta safnið í Dan- mörku utan Kaupmannahafnar, þótt greinarhöfundi kæmi ekki á óvart ef þessa dagana hefði það yfírhöndina hvað aðsókn (og ásókn) varðar. Þai- stendur nú yfír sýning EYE- GOBLACK með dönsku myndlistar- mönnunum Michael Kvium, Christi- an Lemmerz, Niels Bonde, Eirik A. Frandsen og Macro Evaristti en hann er einmitt höfundur þess verks sem vakið hefur hvað mest umtal í fjölmiðlum undanfamar vikm-. Verk hans samanstendur af tíu Moulinex-blöndurum fylltum vatni með gullfiski í hverjum þeima. Þeim sýningargestum, sem löngun hafa til, stendur til boða að ræsa blandara og breyta fisknum í minningu eina. Þetta boð eða þessi siðferðisáskorun listamannsins kveikti í fólki jafnvel áður en sýningin var formlega opnuð almenningi. Dýravemdunarsamtök Danmerkur höfðu haft spurnir af verkinu og mótmæltu harðlega og mótmælin enduðu inni á borði lög- reglunnar í Kolding í formi ákæru. Það nægði hins vegar ekki og var nær öllum fjölmiðlum gert viðvart sem varð til þess að óvenjumikið af þeirra fólki var mætt á opnunina með sín tæki og tól til að festa þenn- an voðaatburð á filmu. En ekkert gerðist, enginn gestur vogaði sér að matreiða fiskisúpu, fyir en eftir klukkutíma bið, að einn blaðaljós- myndari borgaði einum gestanna tvö þúsund danskar krónur fyrir að taka af skarið. Það gerði hann með glöðu geði, enda orðinn þyngri af víni og auram, flössin blikkuðu og heyra mátti spennufallið. Því næst mætti lögreglan á staðinn og endurvakti spennuna og var safninu gert að taka strauminn af blöndurunum. Sam- kvæmt gögnum lögreglunnar höfðu dýravemdunarlög verið brotin og kæra var lögð fram. aginn eftir gat að líta fyrir- sögnina; „Morð á gullfisk- um“ og með fylgdi viðtal við gerandann sem sagðist einfaldlega ekki hafa getað haldið höndunum að sér. Ekki minnst einu orði á þóknun- ina. Hinir fjölmiðlarnir fylgdu fast á sftir með fyrirsögnum eins og; „Safnstjórinn ákærður fyrir að setja straum á blandarana", „Dauðinn í blandaranum", „Skandallinn í kring- um plokkfiskalist", o.s.frv. Umræðu- þættir vora á sjónvarpsstöðvunum, bar sem verkið var borið saman við daglega slátran og fiskveiðar og raedd spurningin um hvað væri list og hvað ekki. Formaður dýravernd- unarsamtakanna viðurkenndi að hann borðaði ferskan fisk og annað kjöt með bestu lyst en þetta væri nú allt annað mál. Hvernig öðravísi, út- skýrði hún nú ekki. En það skýrðist nú allt þegar einn sjónvarpsmaður- inn, á annarri stöð, tók viðtal við Macro Evaristti um verkið. A borði fyrir framan þá hafði verið komið fyrir samskonar blandara með fiski í. I lok þáttarins stakk sjónvarpsmað- urinn hendi sinni ofan í tækið og gleypti fiskinn eins og ekkert væri eðlilegra. Þetta snýst allt saman kannski bara um smekk. Næstu daga á eftir þessu öllu sam- an streymdu hótanir alls staðar að úr heiminum til safnsins í formi tölvu- pósts eða símhringinga. Starfsfólki og listamönnum hótað limlestingum Og lífláti. YN ér til varnar líkti forstöðumað- 1 ^ ur Trapholts safnsins Peter S. kJ Meyer, sér við bílasölumann sem ber ekki ábyrgð á aksturslagi hugsanlegs kaupanda ef sá hinn sami myndi valda skaða á keyptum bíl. Myndlistarmaðurinn Marco Evar- istti sagði að hann ýtti ekki á hinu ör- lagaríku taka heldur væri m.a. að skoða vald okkar mannanna yfir lífi og dauða, kannski að segja að sá eigi kvölina sem eigi völina. Hann sagði það mikilvægt að þekkja til sögu Goethe um Fiskimanninn og að ann- að verk á sýningunni væri samhang- andi Fiskaverkinu og fólk myndi skilja betur ef það væri ekki blindað af eigin sannfæringu mótaðri af fjölmiðlum og gæfi sér tíma að skoða sýninguna í heild sinni. Greinarhöf- undur ákvað að fara að dæmi hans. Meginþema sýningarinnar er að velta fyrir sér hlutverki myndlistai- í sámfélaginu annars vegar og hins vegar hlutverki samfélagsins í myndlistinni. Kannski eitthvað til að hugsa um ef tekið er tillit til þess storms sem þetta einstaka verk hef- ur ýtt af stað út í samfélagið. Sérstöðu þessarar sýningar segja listamennirnir vera að þeir vinni sum verkin að hluta á staðnum og skipti sér óspart hvor af verkum annars. Þó að um ólíka listamenn sé að ræða mynda þessi afskipti sam- runa á milli verka og sterka heildar- mynd. yrsta verkið sem blasir við manni þegar komið er inn á sýninguna, er áðumefnt verk Evaristti, ljósmynd af manni í sjómannsklæðum, með buxumar á hælunum. Hann hefur falið getnað- arlim sinn á milli læra sér eins og til að fela veiðarfæri karlmennskunnar. Marco Evaristti er af ítölsku og rúss- nesku bergi brotinn, búsettur í Dan- mörku til fjölda ára en fæddur í Chi- le. Hann las því Fiskimanninn eftir Goethe á spænsku og dró út einstök orð sem honum þótti skipta máli og fékk þau þýdd yfir á dönsku, þar næst á þýsku, aftur yfii’ á spænsku og loks enn á ný yfir á dönsku. Með þessu fæst ákveðin brenglun á milli orðanna og merkingar þeirra. Þessi orð ritaði hann beint á ljósmyndina og tengdi ákveðnum líkamspörtum fiskimannsins. Ekki löngu fjær hafði hann komið fyrir inni í veggnum glerboxi með sprengjuvörpukúlu. Oddur kúlunnar stóð út úr boxinu þakinn varalit, líkast til Helena Rub- instein en verkið hét „Helena“. þar við hliðina stóð borðið umdeilda með fiskunum í blönduranum og fyrir of- an hékk málverk Christian Lem- merz, „Ail-over Virginia", af mann- Ljósmynd/Aðalsteinn Stefánsson Forstöðumaður Trapholts, Peter S. Meyer, sýnir fyrstu fréttamönnum sem mættu á staðinn hið umdeilda verk Marco Evaristti sem samanstendur af tíu Moulinex-blöndurum fylltum vatni með gullfiski í hverjum þeirra. IJósmynd/Aðalsteinn Stefánsson „Adolfs hundur“, uppstækkuð teikning gerð af Christian Lem- merz, upprunalega gerð af fyrr- um listamanninum Adolf Hitler. eskju sem engu var líkara en lent hefði í hvirfilvindi eða jafnvel í blönd- uranum. Christian Lemmers ætti að vera öllu vanur hvað fjölmiðlafár varðar. Fyrir nokkram áram sýndi hann svínsskrokka í glerkössum sem látn- ir voru rotna í listasafninu í Esbjerg (sem Peter S. Meyér var þá í forsvari fyrir). Heilbrigðiseftirlit Danmerkur lét loka sýningunni vegna hættulegr- ar gasmyndunar og lyktar en hún var opnuð aftur eftir að „nauðsynleg- ar“ ráðstafanir höfðu verið gerðar. En óskiljanleg múgæsing fylgdi í kjölfarið sem neitaði listrænu gildi verksins og skildi ekki þá list sem listamaðurinn sá í þessum rotnandi skrokkum. Lemmerz fór þó öðravísi að á sýn- ingunni EYEGOBLACK í Trapholt. Verkið hans „Virginia", er stytta af liggjandi konu í fullri stærð, sem hef- ur verið rist á hol þannig að innyflin hanga út, og fætumir sniðnir af henni. Þó myndefnið hljómi ekki fal- lega var styttan svo fallega höggvin í marmara að áhorfendur gatu ekki annað en dáðst að henni. Handverkið varð ofan á, það er nokkuð sem allir geta tileinkað sér, og myndefnið varð fjai’Iægt eins og að skoða óhugnanlega fréttamynd í dagblöð- unum. Christian Lemmerz sagði greinarhöfundi að myndefn- ið hefði hann úr ljósmynd af vændiskonu myrtri í Bandaríkjunum 1940. Kannski óþörf vitneskja en maður spyr sig þó hverju það breyti hjá fólki þegar vændiskonur og morð eru annars vegar. Álítum við það eins mikinn missi og ef um einhvern „góðborgarann" væri að ræða, tja, eða gullfisk. Fyiir ofan hékk stækk- uð blýantsteikning af hundi og þegar betur var að gáð var hún árituð og upphaflega gerð af listamanninum fyrrverandi Adolf Hitler. Maður gat ekki annað en brosað að þessari sætu teikningu af hundi sem gæti verið teiknuð af saklausum kvöld- skólanema í myndlist en ekki af manni sem bar síðar ábyrgð á dauða milljóna manna. Ég gat heldur ekki gert að því að tengja það við fiskana í Moulinex-tækjunum og viðbrögð fólks. Hitler var jú þekktur fyrir að hann þoldi ekki að sjá eða heyra að dýram væri misþyrmt. Hann kippti sér nú ekki upp við að fyrirskipa misþyrm- ingar á fólki og tilraunir í „þágu“ vísindanna en myndlistar- maðurinn Michael Kvium lætur sér nægja að gera það með litum á striga. Hann sýndi stórar málverka- samsetningar, þar sem hvert mál- verk gæti staðið eitt og sér en mynd- efni tengdust á einstaka stað og sköpuðu heildarmynd. Sumar mynd- irnar í samsetningunni voru svartar abstraktmyndir eða af munstri sem gæti verið veggfóður en aðrar af af- mynduðu, næsta djöfullegu fólki, oft samvöxnu á höndum. Á einstaka stað hefur þessi vöxtur handa rannið saman við leggi afkvæmis og það gæti vakið spumingar um líffræði- legar tilraunir, klónanir eða einhvers konar úrkynjun. Þessar samvöxnu verur Kviums, faðir, móðir, barn, virðast innilokaðar í veröldinni og því ferli sem fjölskyldulífi fylgir nú á tímum. Einnig hafa staðið yfir mikl- ar umræður í Danmörku um bam- eignir fólks sem komið er til ára sinna og hvaða áhrif það getur haft á heilbrigði barnsins. Kannski er það lykillinn að verkum Kviums. Ég verð að játa að ekki er auðvelt að setja sig inn í hans hugarheima en gæti líkt þeim við það að Helgi Þorgils Frið- jónsson hitti enska málarann Francis Bacon í helvíti. Annar listamaður sem veltir fyrir sér gildum fjölskyld- , unnar er Erik A. Frandsen. Hann gerir það í formi ljósmynda, sem sýndar eru samhliða og endur- gerðar í málverkum, annaðhvort beint á veggi safnsins eða á málmplötur. Myndir hans vekja um- hugsun um endurtekningu atburða og hversdagsþrungna hamingju sem fæst ekki um eigin vankanta. Hann segist með verkum sínum vilja skoða fjölskylduna sem kjarna samfélags- ins fyrir öryggi, kúgun og kynferði. Hvemig honum tekst til skal látið ósagt en besta verk hans á sýning- unni var neonskilti sem hann kallar ,Afklæðast“ (Undressing). Neonpíp- urnar era beygðar í óregluleg form en við nánari skoðun taka þær á sig mynd manneskju. Greinarhöfundur sá annars konar verk eftir Frandsen á annarri sýningu. Það voru ljós- myndir teknar á löngum tíma af pari í rúminu með rauð ljós á ýmsum stöðum líkamans. Hreyfingar pars- ins og langur ljósopstími myndavél- arinnar mynduðu einskonar ljósa- teikningar, eins og krassað væri yfir ljósmyndirnar. Sjálfsagt er þetta neonverk unnið út frá svipuðum for- sendum, „hversdagsleg hreyfing fjölskyldunnar" færð yfir í teiknað, ófyrirsjáanlegt form. Að lokum gat að sjá verk Niels Bonde, myndbandsupptökur og texta tengda fréttum af stuldi mál- verksins Ópsins eftir norska lista- manninn Edvard Munch fyrir nokkram áram. Á myndbandinu má einnig sjá upptökur eftirlitsvéla af verknaðinum sjálfum, viðtöl við fólk sem talaði um mikilvægi þessa verks fyrir norsku þjóðina (og safnið) og viðtöl við lögreglu um rannsóknina. Blaðaúrklippur héngu límdar upp um alla veggi safnsins. Röktu þær eftirförina miklu og enduðu í fjög- urra metra háu afriti af grein sem lýsir handtöku Pál Enger, þjófsins. Niels Bonde veltir fyrir sér og spyr um verðmæti listarinnar, hverskyns eign hún sé og hvemig listaverk öðlist gildi. Hvenær og hvernig öðlast listaverk vissan sess innan síns samfélags? Kannski er honum svarað með fjörfiskunum í fjölmiðlunum og viðbrögðum fólks út frá verki Marco Evaristti. Sumu fólki var svo umhugað um líf þessara tíu gullfiska að þegar greinarhöfund- ur ætlaði ásamt Ijósmyndara að sjá sýninguna aftur var safninu lokað vegna sprengjuhótunar. Það eru einmitt þessi viðbrögð sem mér þykir miklu merki- legri en verkið er kannski í sjálfu sér. Sýningin mun verða sett upp á fjórum stöðum í Suður-Amer- íku og á Spáni, en þar sem um ólíka menningarheima er að ræða mun hún þróast eftir aðstæðum á hverj- um stað, enda sýningunni ætlað að varpa ljósi á sambandið milli mynd- listar og samfélags. Gaman væri að sjá, ef þessi sýning færi óbreytt til þessara landa, hvort viðbrögðin yrðu hin sömu. Kannski yrði allt vitlaust á meðal kaþólikka á Spáni vegna „fjöl- skyldumynda" Kviums og Frandsen; eða myndu verk Lemmerz valda því að þyrmdi yfir allt og alla ef sýningin færi til ísraels eða Þýskalands? Ef ekki, þá fengju verk Marco Evaristti og hinna listamannanna fyrst þá um- fjöllun sem þau ættu skilið. Hvað sem því líður hefur öll umræða á faglegu nótunum um þessa annars ágætu sýningu farið fyrir ofan garð og neð- an vegna múgæsingar og móðursýki. Fjölmiðlar virðast ekki sýna lista- verkum áhuga nema þau hneyksli al- menning og nær undantekningar- laust fer þar fram mjög einlit umræða. Því miður lýsir það kannski um- fjöllun fjölmiðla nú á dögum þegar myndlist er annars vegar. Til að skapa almenna umræðu og umfjöll- un í dag og til að verða titlaður bjart- asta vonin þarf listamaðurinn kannski að fróa sér á myndbandi, gera þarfir sínar í búðarglugga til að verða útnefndur framlegastur - og það án gagnrýnnar hugsunar. Verst af öllu er að þetta hefur allt saman verið „sjokk“ í blöðunum áður og mun sjálfsagt verða áfram. Margur maðurinn, fjölmiðlarnir og gullfiskarnir eiga nefnilega eitt sameiginlegt: nokkurra sekúndna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.