Morgunblaðið - 09.04.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2000 23
kennd vegna gæða þess lesefnis sem
maður velur sér til svæfingar. Að
heimta Nóbelsverðlaun til handa
hverjum rithöfundi af einskæru ör-
yggisleysi yfir reikulli smekkvísi
sinni er ófyrirgefanleg og mann-
skemmandi taugaveiklun. Betra er
að kaupa skyndilist af hjartans lyst,
en óglaður markverða list.
Æja vígir nýjan sýningarsal bak-
við verslun Gallerís Listar í Skip-
holti.
Pað er mikil heiðríkja í málverk-
um hennar, en áhrifa Karólínu Lár-
usdóttur gætir töluvert í þeim.
Reyndar eru ómæld áhrif Karólínu á
íslenskt skjmdimálverk sérstakur
kapítuli út af fyrir sig. Minningar um
kátar kynslóðir sem stíga hringdans
úti í guðsgrænni náttúrunni eru
skáldleg minni um fortíð sem aldrei
var nema í draumheimi listamanns-
ins. í kaldhömruðu einkalífi íslenskr-
ar fortíðar fór þráfalt meir fyrir
sudda og útsynningi en suðrænni sól
og sumri.
En sólin selst betur en suddinn og
við því er ekkert að segja, eins og
Steinn heitinn Steinarr orðaði svo
oft. Verk Æju eru hvorki mjög til-
þrifamikil né of persónuleg, en gleð-
in sem vissulega vantar í mannlífið á
okkar bóreölsku breiddargráðum er
þar í þeim mun ríkari mæli. Því ættu
gestir að njóta þeirrar sígaunasælu
sem hún bregður upp áður en
skammlíf sýning hennar er öll.
Gallerí Fold,
R a u ö a r á r s t í g
MÁLAÐAR
ÞRYKKMYNDIR
SIGRI'ÐUR A.E.
NIKULÁSDÓTTIR
Til 16. apríl. Opið á verslunartíma.
GALLERÍ Fold er metnaðar-
fyllra listhús en Gallerí List, enda er
þar að finna til sölu mun metnaðar-
fyllri verk, stundum eftir ágætustu
listamenn okkar. Til að mynda má
finna þar litla höggmynd eftir Jón
Gunnar Ámason ef grannt er skoð-
að. Fold stendur einnig fyrir upp-
boðum á verkum mætra listamanna,
lífs og liðinna.
Vandinn er hins vegar sá að í Fold
ægir öllu saman í einum miklum
haframélsgraut svo að stundum
reynist erfitt að sjá gimsteinana fyr-
ir gallsteinum. Þetta er yfirleitt öll-
um til vansa. Til dæmis er það slæmt
fyrir Kristján Davíðsson að hanga
við hliðina á Sossu. Þó svo hann komi
auðvitað frábærlega út úr þeim sam-
anburði er það á kostnað samræmis-
ins. Að horfa á suma veggina í Fold
er eins og að hafa mörg útvarpstæki
í gangi í einu, hvert með sína sortina
af hávaða. Sá sem er ekki vanur að
stíga ölduna ætti því að taka sjó-
veikipillu áður en hann stígur inn í
þetta ágæta listhús við Rauðarár-
stíginn.
Sem betur fer er salur á bakvið
fyrir sérsýningar. Þar sýnir nú Sig-
ríður Anna Elísabet Nikulásdóttir.
Þótt hún sé vissulega á sömu nótum
og Paul heitinn Klee, án þess að hug-
myndaríkið sé í líku hlutfalli, er hún
snöggtum næmari en Æja í Gallerí
List. Margar mynda hennar eru
bara virkilega fínar svo langt sem
þær ná, þótt vissulega væri gaman
að sjá hana glíma við persónulegri og
íramsæknari viðfangsefni.
Það þýðir ekki að Sigríður Anna
þurfi að gefa Klee endanlega upp á
bátinn. Hún þyrfti bara að taka hann
sér til fyrirmyndar í fleiru en útlit-
inu. Spurningin er að vísu alltaf nær-
tæk hvort hægt er að byrja í ákveðn-
um stíl, ákveðins listamanns og
brjóta hann svo af sér með tíð og
tíma, ellegar hvort aðfenginn stíll er
þegar fangelsi. Þótt Sigríður Anna
gerði ekki annað en láta á það reyna
myndi list hennar vafalaust taka
Halldór Björn Runólfsson
ÞITT FE
HVAR SEM
ÞÚ ERT
- Gœðavara
Gjafavara — inatdr- oij kaffislell.
Allir veróflokkar.
^via/MVV
Heiinsfrægir Iidnnuðir
m.a. Gianni Yersace.
3 VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
KRINGLU
Þú færð góðan kaupauka í Kringlunni.
fram ó sunnudag því við veitum Kringlugestum
afslótt af öllu ó milli himins og jarðar.