Morgunblaðið - 09.04.2000, Side 27

Morgunblaðið - 09.04.2000, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2000 27 Stofnað hefnr verið sameiginlegt hagsmunafélag, Bláa plánetan, tii þess að berjast gegn einkavæðingu á vatni. ,Afnot af vatni eru sjálfsögð mannréttindi. Hvemig er þá unnt að selja vatn?“ er spurt. Reynsla af einkavæðingu, meðal annars í Argentínu og Frakklandi, segja talsmenn Bláu plánetunnar ekki vera góða. Einkavæðing telja þeir að geti haft í för með sér að fjölþjóðafyr- irtæki slái eign sinni á vatnsauðlindir. Jafnframt gagnrýndu umhverfis- vemdarmenn, viljayfirlýsingu um 120 ráðherra sem sátu alþjóðlegu ráð- herraráðstefnuna. í yfirlýsingunni er kveðið á um að allir ættu að hafa að- gang að hreinu vatni, vemda ætti vistkerfið og tryggja ætti nægilega fæðuframleiðslu. Að mati gagnrýn- enda var ekki nægilega sterkt að orði kveðið í yfirlýsingunni, hvorki sé minnst á einkavæðingu né sölu á vatni. Þörfín fyrir vatn réttindum yfírsterkari Segja má að umræðan um vatnsbú- skap heimsins hafi fundið sér nýjan farveg á nýafstaðinni Alþjóðlegri vatnsráðstefnu í Haag. Hingað til hef- ur verið litið á aftiot af vatni sem rétt- indi en nú virðist sem hugarfars- breyting hafi átt sér stað. Þörfin fyrir vatn, er að verða réttindum yfirsterk- ari. Alþjóðlegar ár em um 300 talsins og sameiginlegar vatnsauðlindir ríkja hafa orðið tilefni til ágreinings t.d. milli Bandaríkjanna og Mexíkó, vegna Colorado-fijóts. Samkvæmt samningum hafa Bandaríkjamenn rétt á að nota það mikið vatn úr fljót- inu að stundum er lítið eftir handa Mexókóbúum. Stríðsástand er talið vofa yfir í Miðausturlöndum og jafnvel Afríku, ef ekki verði gripið í taumana. Þar þekja eyðimerkur stór svæði og sum lönd hafa alfarið þurft að treysta á vatn úr ám sem eiga upptök sín í öðm landi svo sem Namibía og Botswana. Réttindin era því lítil en þörfin mikil. Astand vatnsbúskapar þykir afar slæmt víða í Afríku en þar vex borg- arbyggð hvað hraðast í heiminum. Talið er að borgarbúum muni fjölga úr um 150 milljónum í um 500 milljón- ir árið 2020. Stærstu borgir álfunnar, svo sem Jóhannesarborg, sækja neysluvatn um 600 km leið þar sem vatnsból í nágrenninu eru uppurin. Góðu fréttimar eru þær að fjöldi Afríkuríkja hafa með aðstoð SÞ leitað nýrra lausna til að stjórna vatnsbirgð- um á hagkvæmari máta. Talið er að um helmingur vatns sem fer til stór- borga fari til spillis m.a. vegna leka í vatnsveitum. Anthony Turton, forstöðumaður AWIRU, vísindastofnunar um rann- sóknir á vatni í Afríku, stjómaði fundi um vatn og fullveldi á vatnsráðstefn- unni. Hann segir í samtali við Morg- unblaðið að nauðsynlegt væri að fá aðstoð alþjóðlegra samtaka til að miðla málum og ná sáttum milli rQqa sem deila um sameiginlegar auðlindir. Vegna áratuga ólgu og ófriðar milli ríkja í Afríku er ekld unnt fyrir eitt ríki að hafa frumkvæði, það ylli tor- tryggni, að sögn Turtons. Á ráðstefn- imni var rætt um deilur milli Suður- Afríku, Swasilands og Mósambík um afnot af ánni Inkomati. Fljótið á upp- tök sín í Suður-Afríku en rennur um Swasiland og Mósambík. „Milli ríkj- anna hefur lengi verið viðvarandi spenna og tortryggni. Mósambík er mest vanþróað ríkjanna þriggja og landið liggur neðst við ána. Sam- kvæmt alþjóðlegum samþykktum fá landsmenn þar vatn en ekki nægjan- lega mikið meðal annars til sykur- framleiðslu sem fjöldi bænda hefur afkomu sína af. Allt vatn í ánni hefur nú þegar verið nýtt, hátt í 40 stíflur hafa verið reistar, m.a. til raforku- framleiðslu fyrir Suður-Afríku og Swasiland. I Mósambík er vilji fyrir að reisa stíflur til varnar flóðum en þá líklega á kostnað sykurframleiðslu. Deilur era því jaftit innan ríkis sem utan.“ Ekki horfir þó til stríðsrekstrar í Suður-Afríku að mati Turtons. Unnt sé að leysa málin á annan máta. Að írumkvæði Svía, hefur verið komið á fót nefnd vísindamanna frá ríkjunum þremur sem kryfja eiga vandann og koma með tillögur að úrbótum. Togstreita milli kynjanna Á ráðstefnunni var mikið rætt um málefni kynjanna. Meðal annars var rætt um breytta stöðu kvenna vegna Morgunblaðið/Hrönn M. Um 300 böm frá öllum heimshornum vom í Haag til þess að vekja athygli á yfírvofandi vatnskreppu. tílkomu fleiri brunna og vatnsdælna sem þróunarsamtök og einkafyrir- tæki hafa komið fyrir. Með tilkomu þeirra hefur þjóðfélagsskipanin riðl- ast, að sögn Turtons. „Konur hafa um aldir verið vatnsberar í Afríku og víð- ar. Ekki er óalgengt að þær fari fót- gangandi um fjórar klukkustundir dag hvem til að ná í vatn fyrir fjöl- skylduna. Þar sem ekki þarf að fara eins langar vegalengdir og áður hefur skapast spenna í samskiptum kynj- anna. Konur hafa meiri frítíma en áð- ur, karlamir verða afbrýðisamir og halda að þeir séu að missa völdin yfir konunum. Eina ráðið að þeirra mati er að eyðileggja brannana sem byggðir hafa verið.“ Mikilvægt er að matí Turtons að þróunaraðstoð og verkefni eins og að koma fyrir vatnsdælum eða brunnum séu unnin í samvinnu við heimamenn. Annars fari illa. Morgunblaðið/Hrönn M. Þessi mótmælandi stóð fyrir framan ráðstefnuhöllina í Haag til þess að benda á hættuna sem fylgir mengun neysluvatns. Einnig hafi komið skýrt fram sú rök- semdarfærsla að með því að nýta vatnsafl til framleiðslu raforku í stað jarðefnaeldsneytis sé verið að minnka losun gróðurhúsalofttegunda. I Evrópu og Norður-Ameríku hafa um 75% hagkvæmrar vatnsorku verið nýtt en aðeins um 6% í Afríku, 25% í Suður-Ameríku og 40% í Ástralíu. Því era enn gríðarlegir möguleikar fyrir hendi tíl þess að vinna með þessum hættí á móti gróðurhúsaáhrifum á heimsvísu, að mati Árna. Ráðstefna um hamfaraflóð í Reykjavík Alþjóðleg ráðstefna um hamfara- ílóð verður haldin í Reykjavík í júlí í sumar á vegum vatnamælinga Orku- stofhunar og Alþjóða vatnafræðinga- félagsins, í tengslum við Reykjavík, menningarborg árið 2000. Von er á um 200 manns alls staðar að, að sögn Áma. „Ráðstefnan er haldin hérlend- is því hér verða mikil flóð, þá sérstak- lega jökulhlaup, sem kennt geta mönnum ýmislegt um hegðun og framgang stórflóða sem taka sífellt fleiri mannslíf og eru kostnaðarsöm, samanber flóðin í Mósambík. Einnig verða hér hamfarahlaup sem vekja mikla athygli erlendis, meðal annars hjá þeim sem rannsaka nú landmótun jarðar.“ Hvaðan kemur vatnið? Á vatnsráðstefnunni í Haag vora haldnir yfir 80 fundir um nánast hvað- eina sem snertir vatnsbúskap heims- ins. Einn fundur fjallaði um hvaðan vatnið kemur. Að sögn vísindamanna er vatn jarðarbúa gjöf frá stjörnun- um. Jörðin er eina blauta plánetan í himinhvolfinu svo vitað sé. Ekki hefur enn tekist að færa sönnur á að vatn sé að finna á tunglinu. Eitt sinn var vatn til á Mars og Venus en vegna örlítilla breytinga í sólkerfinu þurrkaðist það upp. Vísindamenn telja mögulegt að afdrif Mars og Venusar endurspegli örlög jarðarinnar. Rætt um kosti og galla stíflna Hitamál á ráðsteftiunni var bygg- ing stórra stíflna. Umhverfisvemdar- samtök segja stórar stíflur vera tíma- skekkju, reynslan sýni að þær hafi ekki skilað tílætluðum árangri. Víða hafa þær verið reistar til þess að koma á áveitum til landbúnaðarfram- leiðslu. Á Indlandi t.d. hafa um 40 milljónir manna misst afkomu sína og húsnæði vegna byggingu stórra stíflna. Á hinn bóginn segja menn að ávinningurinn af stífluframkvæmdum sé orka, neysluvatn og vatn til land- búnaðarframleiðslu. I haust er væntanleg skýrsla sem unnin er af Alþjóðlegu stíflunefndinni en í henni eiga sætí fulltrúar allra stærstu hagsmunaaðila og ftjálsra fé- lagasamtaka. Þar era m.a. fulltrúar þeirra sem vinna að áveitumálum, vatnsorkumálum, neyslu- og frá; rennslismálum og flóðavömum.í skýrslunni er reynt að meta kostí og galla stíflugerðar en um 800.000 stífl- ur stói’ar sem smáar hafa verið byggðar í heiminum. Ami Snorrason, forstöðumaður á vatnamælingum Orkustofnunar, var á ráðstefnunni og fylgdist með umræðum um vatn og stíflur. „Það er athyglisvert að erfið- ustu málin hvað varðar stíflurgerð er búseturöskunin, það er flutningur á fólki af lónssvæðum. Einnig er bú- seturöskun á svæðum neðan miðlun- arlóna því þar rýmar afkoma manna oft í kjölfar þess að rennsli vatnsfalls- ins er breytt. Það sjónarmið vegur þungt meðal annars vegna jiess að ekki hafa komið til bætur í samræmi við skaðann, né ávinning annarra, til dæmis á Filippseyjum þar sem íjöldi fólks varð landflótta án þess að yfir- völd gerðu nokkrar ráðstafanir." Ami bendir á að málið horfi þver- öfugt við hér á landi. Röksemdar- færslan með byggingu stíflna hefur einmitt verið að hluta til þess að vama búseturöskun. Lög um vemdun dýra í útrýming- arhættu hefur einnig orðið til að stöðva framkvæmdir við hveija stífl- una á fætur annarri í Bandaríkjunum, að sögn Ama. Þar í landi og víðar era ferskvatnsdýr í útrýmingarhættu eða hefur þegar verið útrýmt vegna mengunar og stíflna í ám og vötnum. Niðurstöðu fundarins um vatn og stíflur, segir Árni hafa verið að nauð- synlegt sé að grípa til stíflugerðar til þess að koma í veg fyrir fæðu- og neysluvatnsskort og leysa orkuþörf. Á undanförnum árum hafa stöðugt meiri kröfur verið gerðar til faglegrar stjórnunar á heilbrigðissviði. Lögð hefur verið áhersla á aukna hagræðingu í rekstri, öryggi/gæði upplýsinga og betri þjónustu við sjúklinga. Fagfólk á heilbrigðissviði, s.s. læknar, hjúkrunarfræðingar og stjórnendur hafa brugðist við þessum kröfum með aukinni áherslu á upplýsingatækni. Nýherji efnir til ráðstefnu um lausnir á heilbrigðissviði á Grand Hótel Reykjavfk fimmtudaginn 27. aprfl 2000. Skráning og afhending ráöstefnugagna Setning ráðstefnu Forstjóri Nýherja Lausnamengi Nýherja á heilbrigðissviði SAP sjúkrahússtjórnun - Viðskiptahugbúnaður sem styður alla meginferla í rekstri sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana. Kaffihlé Symbol heilbrigðislausnir - strikamerki, handtölvur og þráðlaus net. Hádegisverður Lausnir IBM á heilbrigðissviði - rafrænar sjúkraskrár. Kaffihlé Fjarlækningalausnir frá VCON. Þráðlaus búnaður innan heilbrigðisstofnana - lausnir frá Lucent, Nortel og Ericsson Samantekt, spurningar og svör Léttar veitingar Fyrirlestrar verða bæði á íslensku og ensku. A meðal fyrirlesara verða Dr. Jesper Bredesen, Torben Liner, Jeff Schou, Björn Songe-Möller, Bo Ericsson, o.fl. Þátttökugjald er kr. 7.000,- ef skráð er fyrir 14. apríl annars 9.000,-. Skráningu má tilkynna með tölvupósti á heilbrigdi @ nyherji.is eða símleiðis til Bjarka Jóhannessonar í sfma 862-5647. Skráningu lýkur 19. apríl. NÖRTEL NETWORKS NYHERJI Skaftahltö 24 • 105 Reykjavik Sími: 569 7700 • Fax: 569 7799 www.nyherji.is itbrigði Upplýsingat.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.