Morgunblaðið - 09.04.2000, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 09.04.2000, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ Appelsínukassi frá Silla & Valda og „Potemkintj öld“ úr Haraldarbúð Þegar Ingiríður ekkjudrottning, móðir Margrétar Þórhildar Danadrottningar, varð níræð nýverið þá var þess minnst með ýmsum hætti, skrifar Pétur Pétursson. / ISLENDINGAR muna „göm- ul kynni, sem gleymast ei“ frá ýmsum heimsóknum prinsessunnar, sem margir töldu að ætti eftir að verða drottning íslendinga þegar Friðrik níundi tæki við konungdómi af föður sínum, Kristjáni tíunda. Það varð þó allt með öðrum hætti. Meðan Ingi- ríður var krónprinsessa ferðaðist hún viða með eiginmanni sínum, sem var svo heillaður af hljómlist að Danir nefndu hann „den Symphoniende". Það kom í hlut Friðriks krónprins og Ingiríðar prinsessu að vígja stækkun sendistöðvar Ríkisútvarps- ins er stofnunin réðst í það stórvirki að auka sendiafl stöðvarinnar úr 16 kw í 100 kw. Þeim áfanga var ákaft fagnað. Þá var enn talið nauðsynlegt að stjóm og rekstur íslenskra stofn- ana væri í höndum Islendinga, en er- lendir þjóðhöfðingjar gjaman fengn- ir til þess að „punta upp á“ við ' hátíðleg tækifæri. Svo var t.d. við þennan tímamótaviðburð. Greinarhöfundur var enn í hópi al- mennra hlustenda ríkisútvarpsins og dvaldist raunar í föðurlandi prins- sessunnar hinn 1. ágúst 1938 þegar hún þrýsti á hnapp og tilkynnti stækkun stöðvarinnar. Árið 1941 réðst höfundur til þularstarfa og heyrði þá frásagnir af ýmsum merk- isatburðum þar sem ýmis stórmenni komu við sögu. Meðal þeirra starfsfé- laga, sem kunnu hvað flestar sögur frá liðnum árum var Sveinn Ólafsson. Hann var sonur Ólafs Þorvaldssonar, þingvarðar og fræðimanns, og Theodóra Sveinsdóttur, matreiðslu- konu og gestgjafa. Foreldrar Sveins vora þjóðkunn, hvort á sínum vett- vangi, Ólafur fyrir búskap og ritstörf, en Theodóra reisti skála við þjóð- braut þvera, Hvítárvallaskála í Borg- arílrði, en rak um langt skeið matsölu í Reykjavík. Sveinn Ólafsson vann lengi í ýms- um deildum Ríkisútvarpsins. Hann var lipur sem fjölleikamaður og kleif svimhátt við uppsetningu loftneta. Síðar hvarf hann úr þjónustu Ríkis- útvarpsins. Hann hafði þó alliöngu áður útvarpað m.a. örlagafundi bæj- arstjómar 9. nóvember 1932. Daginn sem fréttin um aftnæli Ingiríðar ekkjudrottningar birtist sat ég við gömul blöð og frásagnir frá fyrri áram. Þar kom meðal annara . minninga frásögn um heimsókn krónprinsessunnar er ég skráði eftir Sveini Ólafssyni. Hún kann að verða einhverjum til fróðleiks: „Gamlir útvarpsstarfsmenn sem hittast á fömum vegi eða mæla sér mót til skrafs og ráðagerðar, gera sér það stundum til gamans að segja hver öðram sögur frá löngu liðinni tíð og rifja upp skopleg atvik, sem gerst hafa í starfi, ekki hvað síst þegar hvað hátíðlegastur blær var á þeirri hlið er að hlustendum sneri, naumur tími til úrræða, en krafist úrlausnar verkefnis án tafar. Þegar hugsað er til atburða fyrri tíðar kemur í ljós, að minni manna er mjög misjafnt. Það sem einn man óljóst eða rétt rámar í að eitthvað hafi gerst - stendur öðrum ljóslifandi íyr- ir hugskotssjónum. Það er eins og allt hafi „gerst í gær“. Þegar að er gáð reynist þó í flestum tilvikum nauð- synlegt að hyggja að dagsetningu og » jafnvel ártali, því einum atburði kann Ingiríður krónprinsessa kveikir á perunni - „við það fóru sendivélamar á Vatnsendahæð á stað,“ sögðu blöðin í ágúst 1938. Bak við prinsessuna við hliðina á auða stdlnum situr Friðrik krdnprins. Næstan til hægri má greina De Fontenay, sendiherra Dana á íslandi. Lengra til hægri er hirðmeyjan Reventlow. Forfaðir hennar var Bardenfleth stiftamtmaður. Jdn Helgason biskup er á meðal gesta. Hermann Jdnasson forsætisráðherra situr fremst t.v. Skömmu áður enþessi athöfti fór fram hafði Hermann tekið Ólaf Thors glímutökum í hliðarherbergi meðan þeir biðu þess að komast að hljdðnema. Hermann lagði Olaf á leggjarbragði en Ólafur var dviðbúinn. Hermann sagði við frú Bodil Bergtrup, ambassador Dana: „Jeg er glimakonge.“ Sveinn Ólafsson sá um „púlt“ krónprinsessunnar og ljdsaper- una sem lýsti glatt. að svipa til annars þó að sögumaður sé handviss um að þetta hafi gerst „árið sem hún Dimma dó“ eða haust- ið sem hann „Runki fór í réttimar". Sveinn Ólafsson fv. branavörður réðst snemma til starfa hjá Ríkisút- varpinu. Hann var í hópi fyrstu starfsmanna viðgerðarstofu; starfaði þá jöfnum höndum að viðgerðum, út- varpi frá samkomum og skemmti- stöðum, vann að hljóðritun o.fl. sem til féll. Hvarvetna prýddi hann starfs- hópinn með léttri lund og hug- kvæmni við lausn vanda, sem að höndum bar. Þegar Ríkisútvarpið réðst í stækk- un útvarpsstöðvarinnar á Vatnsenda og jafnframt byggingu endurvarps- stöðvar á Eiðum, kom það til af knýj- andi nauðsyn. Svo mjög kvað að trafl- unum frá „frjálsri útvarpsstöð“, sem starfaði í Lúxemborg, að afllítil stöð Ríkisútvarpsins hlaut að lúta í lægra haldi og tókst ekki að gegna því hlut- verki að koma dagskrá sinni ótrafl- aðri til hlustenda. Um Lúxemborgar- stöðina sagði Gunnlaugur Briem, verkfræðingur Ríkisútvarpsins: „Þessi stöð var ekki reist handa hlustendum í Lúxemborg, heldur í gróðaskyni til þess að útvarpa auglýsingum sérstaklega fyrir breska hlustendur, þar eð breska út- varpið leyfði ekki auglýsingaútvarp." Gunnlaugur sagði ennfremur: „Lúx- emborgarstöðin braut alþjóðasam- Valgerður Tryggvaddttir auglýsingastjdri. þykktir um öldulengdir." Þegar ljóst varð, að starfsemi er- lendra útvarpsstöðva traflaði dag- skrá Ríkisútvarpsins með þeim hætti, að ekki var við unað, var ráðist í að stækka stöðina og efla úr 16 kw styrk í 100 kw. Eins og geta má nærri var kostnaður ærinn fyrir fámenna þjóð, að bregðast með myndarlegum hætti við ofurefli erlendra auðhringa, sem höfðu komið auga á mátt fjár- magnsins til þess að tryggja völd og áhrif á útvarpsöld. Barátta Ríkisútvarpsins við öflug- ar erlendar stöðvar, yfirgangur óbilgjamra stórbokka, sem vildu knésetja kotríkið og hirtu hvergi um alþjóðalög og reglur, allt er það saga, sem vert væri að segja, en verður að bíða. Og nú kemur Sveinn Ólafsson til sögunnar. Hann man vel stækkun stöðvarinnar og undirbúning hátíð- legrar athafnar. Það kemur glampi í augu Sveins og hann hýmar allur og svo kemur sólskinsbros og glaðvær hlátur, er hann hugsar til dagsins þegar stöðin var stækkuð og langþráðum áfanga náð. Við Sveinn sátum í kjallara Ut- varpshússins við Efstaleiti, tveir gamlir húskarlar, og virtum fyrir okkur ljósmyndir, sem Ólafur Magn- ússon, konunglegur hirðljósmyndari Danakonungs, tók, er Friðrik, Dana- krónprins og ríkisarfi, og Ingiríður krónprinsessa tilkynntu stækkun Guðrún Reykholt skrifstofumaður. stöðvarinnar við hátíðlega athöfn, sem fram fór í útvarpssal í Lands- símahúsinu 1. ágúst 1938. Það þótti vel til fundið, er það vitn- aðist, að Friðrik og Ingiríður yrðu á ferð í því skyni að kynnast landi og þjóð, þar sem fyrirhugað var, ef allt færi að óskum Dana, að þau yrðu þjóðhöfðingjar. Má því segja að Friðrik krónprins væri einskonar vonbiðill er eygði fagurt fyrirheit. Hann hafði við hlið sér unga brúði, Ingiríði, sænska prinsessu. Af því til- efni var einnig sænskur fáni í út- varpssal, auk íslenska þjóðfánans og Dannebrog. Dagblöðin skýra frá at- höfn þeirri er fram fór í útvarpssal: „Laust fyrir kl. 2 á mánudaginn var, var hinn rúmgóði bjarti útvarps- salur í Landssímahúsinu þéttskipað- ur gestum, er þangað hafði verið boð- ið í tilefni af því, að þá skyldi opna hina stækkuðu sendistöð á Vatns- endahæð. Kl. 2 komu krónprinshjónin og fylgd þeirra, „adjutant" og hirðmeyj- an Reventlow. Bauð útvarpsstjóri þau velkomin. Síðan studdi krón- prinsessan á hnapp á raftaug, en við það fóra sendivélarnar á Vatnsenda- stöð á stað og heyrðist vélaysinn í gjallarhomi, sem sett var upp í saln- um. Salurinn var skreyttur fyrir þetta tækifæri með íslenskum, dönskum og sænskum fána.“ Svo sem fram kemur á Ijósmynd- inni, sem hér birtist, styður Ingiríður prinsessa fingri sínum á hnapp á litlu snotra púlti, sem komið hefir verið fyrir á miðju gólfi í útvarpssal. Sveinn Ólafsson hefir sitthvað að segja um sögu þess. Hann segir svo frá: „Það varð uppi fótur og fit á við- gerðarstofu útvarpsins þegar það vitnaðist að krónprinsinn ætti að tala úr ræðupúltinu, en Ingiríður prins- essa ætti jafnframt að setja stöðina í gang. Það átti að gerast með tákn- rænum hætti. Nú varð ljóst að allt vantaði til þess og nú vora góð ráð dýr. Það kom í hlut okkar á viðgerð- arstofunni að leysa vandann, ásamt starfsmönnum í magnarasal. Eg stökk út í Aðalstræti til Silla og Valda: þar fékk ég tvíhólfaðan app- elsínukassa. Svo hljóp ég í Haraldar- búð í Austurstræti og keypti blátt flauel og leggingaborða. Síðan var hafist handa. Það var borað gat á spjaldið milli hólfanna í appelsínu- kassanum og í þá hlið sem upp vissi. Síðan var komið fyrir rafgeymi, 6 volta, í botninum. Hann var þungur og traustur. Svo var dreginn kapall úr geyminum og komið fyrir ljósa- pera og hnapp á plötunni, efri hlið kassans. Síðan var kassinn skreyttur með bláa flauelinu og saumaðar gyllt- ar leggingar. Ég held,“ segir Sveinn, „að einhveijar stúlkumar hafi séð um það. Þær vora hver annari betri, Guð- rún Reykholt, Sigrún Gísladóttir, Sigríður Bjamadóttir og Valgerður Tryggvadóttir. Þær hljóta að hafa unnið handavinnuna. Þetta gekk allt eins og í sögu og var tilbúið í tæka tíð. Svo þegar stundin kom, þá reis prins- essan úr sæti sínu, gekk að púltinu og þegar tilkynnt var að nú ætlaði Ingi- ríðrn- krónprinsessa að setja stöðina í gang, þá studdi hún á hnappinn sem tengdur var í 6 volta geyminn á botni appelsínukassans. Þá kviknaði ljós á „keleríisperunni", sem við höfðum komið fyrir á „borðplötunni" og „við það fóra sendivélamar á Vatnsenda- hæð á stað“ sögðu blöðin. Sannleikur- inn var sá, að magnaraverðirnir, eins og tæknimennimir hétu þá, vora á gægjum bak við glerið í magnarasal og fylgdust með því þegar kviknaði á peranni á púlti prinsessunnar. Þá hringdu þeir á Vatnsendastöðina, raunar vora þeir í símasambandi við stöðvarverðina, sem settu nú allt í gang við þessi tíðindi." Höfundur er fyrrverandi þulur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.