Morgunblaðið - 25.05.2000, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 2006
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
The Times Ijallar um
Okkur veitist hver upphefðin eftir annarri að utan á þessu herrans kristnihátíðarári.
rVampyrino 920
Sogkraftur 1.300 W'
Fimmfalt filterkerfi
k Tveir fylgihlutir Á
AEG
Rykbomba
Réttsýnar ryksugur
á rosalega fínu
verði*
Vampyrino SX
• Sogkraftur 1.300 W
• Lengjanlegt sogrör
• Fimmfalt filterkerfi
• Þrír fylgihlutir
900
.
stgr
Vampyr 5020
• Ný, orkusparandi vél
• Sogkraftur 1.300 W
• Fimmfalt filterkerfi
• Tveir fylgihlutir
CE-POWER
• Ný, kraftmikil ryksuga
í sportlegri tösku
• Sogkraftur 1.600 W
• Lengjanlegt sogrör
• Fimmfalt filterkerfi
• Tveir fylgihlutir
B R Æ Ð U R N I R
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is
Geislagötu 14 • Slml 462 1300
* Það að lyksuga sé réttsýn veröur
ekki útskýrt hér og kannski aldrei,
en maöur hefur það á tilfinningunni
að það hljóti kannski að geta skipt
máli
Vornámskeið Greiningarstöðvar
Þroska- og hegð-
unarfrávik barna
Stefán J. Hreiðarsson
FIMMTÁNDA vor-
námskeið Grein-
ingar- og ráðgjafa-
stöðvar ríkisins verður
haldið á Grand Hóteli í dag
og á morgun. Stefán J.
Hreiðarsson læknir er for-
stöðumaður Greiningar-
stöðvar, hann var spurður
hvert umfjöllunarefni vor-
námskeiðs væri að þessu
sinni?
„Yfirskrift námskeiðs-
ins er; Þroska- og hegðun-
arfrávik barna, grunur
-frumgreining - greining.
Það verður fjallað um að-
draganda þess að frávik í
þroskahegðun uppgötvist
hjá bami, helstu leiðir til
að tryggja að slíkt gerist
sem fyrst og þau viðbrögð
sem eru nauðsynleg til að
tryggja að vandamál barnsins sé
skilgreint á fullnægjandi hátt.“
- Er mikill misbrestur á að fólk
komi nógu fljótt með börn sín ?
„Það er erfitt að tala um beinan
misbrest en margar rannsóknir
benda til þess að óæskileg töf
verði oft. Það er þannig þekkt að
grunur vaknar hjá foreldrum en
þau virðast oft eiga erfitt með að
ná eyrum fagfólks með áhyggjur
sínar. Stundum vakna áhyggjur
hjá fagfólki t.d. við eftirlit hjá ung-
barnavernd og í skólum og leik-
skólum og þá geta stundum orðið
erfiðleikar við að vekja máls á þvi
við foreldra.“
- Erum við hér þess megnug að
bregðast við á þann hátt sem
æskilegt er?
„Svarið er bæði já og nei. Við
eigum afbragðs fagfólk sem hægt
er að leita til á ýmsum vettvangi
en álag á flesta er mikið og biðtími
við flest úrræði. Þannig er oft
nokkurra mánaða bið eftir þjón-
ustu Greiningarstöðvar. Hins veg-
ar eru ný úrræði að skapast og má
þar nefna greiningarteymi
Heilsuvemdarstöðvar sem
dæmi.“
-Af hverju er mikilvægt að
greina þessi frávik snemma?
„Tilgangur þess er að sjálf-
sögðu að hafa áhrif á atburðarás-
ina og bæta framtíðarhorfur
barnsins með viðeigandi þjálfun
og kennslu. En einnig að styðja
foreldra."
- Eruð þið búin að fjalla um öll
helstu atiiðií sambandi við fatlan-
ir bama á þessum vornámskeið-
um?
„Vornámskeið hafa verið haldin
á hveiju vori frá því Greiningar-
stöð tók til starfa. I hvert sinn hef-
ur verið tekið fyrir afmarkað efni
á sviði fatlana og komið víða við,
hins vegar er þekkingin á hverju
sviði alltaf að aukast og breytast.
Það hefur verið mikil aðsókn að
þessum námskeiðum allt frá byrj-
un og þátttakendafjöldi farið mest
upp í rúmlega fimm hundruð. I ár
eru skráðir þátttakendur rúmlega
þrjú hundruð og er þar að finna
fulltrúa helstu stétta heilbrigðis-
kerfis og þjónustukerfis fatlaðra."
- Eru margir fyrirlesarar á
þessu vornámskeiði?
„Fyrirlesarar em
alls sextán. Rætt verð-
ur t.d.um hvernig leit-
að er að frávikum í
ungbamavemd, leik-
skólum og hjá bömum í
áhættuhópum. Einnig
verða kynnt tæki til
frekari skimunar, svo
sem íslenski þroska-
listinn, atferlislisti Achenbach og
EFI-málþroskaskimunin. Þá
verður fjallað um á hvem hátt
verður staðið að greiningu á
ákveðnum fötlunum og hlutverk
heilbrigðis- og skólakerfis í þess-
um efnum. Síðast en ekki síst
► Stefán J. Hreiðarsson fæddist
á Akureyri 28. júlí 1947. Hann
tók stúdentpspróf frá Mennta-
skólanuin í Reykjavík og lauk
læknaprófi frá Háskóla Islands
1974. Hann fór til framhalds-
náms í Bandaríkjunum 1976 og
var við það til 1982, fyrstu þrjú
árin stundaði hann nám í al-
mcnnum barnalækningum og
svo þrjú ár við Kennedystofnun-
ina í Baltimore í fötlunum barna.
Stefán hefur verið forstöðumað-
ur Greiningarstöðvar frá 1. jan-
úar 1986. Hann er kvæntur Mar-
gréti O. Magnúsdóttur meina-
tækni og eiga þau þrjú börn og
eitt barnabarn.
verður fjallað um notkun greind-
arprófa og um það á hvern hátt
hvernig greining nýtist til að bæta
framtíðarhorfur barnanna."
- Hvað með annað fræðslustarf
á vegum Greiningarstöðvar?
„Við höfum lagt áherslu á það
síðustu árin að byggja upp víð-
tækara fræðslustarf á Greiningar-
stöð, fyrst og fremst í formi Iítilla
námskeiða sem fjalla um afmörk-
uð efni, svo sem óhefðbundnar
tjáskiptaleiðir, einhverfu og með-
ferð hennar, klofinn hrygg svo
dæmi séu nefnd. Þessi námskeið
hafa verið haldin reglulega á veg-
um Greiningarstöðvar en jafn-
framt geta skólar og aðrar stofn-
anir óskað eftir slíku námskeiði
fyrir starfsfólk sitt; Fræðslufull-
trúi Greiningarstöðvar, Vigdís
Halldórsdóttir, hefur yfirumsjón
með þessu starfi."
- Fáið þið erlenda fyrirlesara á
þessi námskeið hjá Greiningar-
stöð?
„Yfirleitt ekki. Þegar byrjað
var með vornámskeiðin var hluti
af hugmyndafræði þein-a að leiða
fram þá þekkingu sem til er á ís-
landi þannig að fyrirlesarar hafa
alltaf verið íslenskir fagmenn. Við
höfum einstaka sinnum fengið er-
lenda gesti en síðan sækja sér-
fræðingar Greiningarstöðvar
gjarnan ráðstefnur erlendis. T.d.
var hópur starfsfólks á alþjóðlegri
ráðstefnu um innhverfu í Glasgow
í síðustu viku og tveir starfsmenn
kynntu þar niðurstöður rann-
sókna sem gerðar hafa
verið hér í þessum efn-
um.“
- Hvar er mest þekk-
ing á þessum efnum í
heiminum núna?
„Það er erfitt að
nefna einn stað eða eitt
iand. Við búum að því á
Islandi að sérfræðingar okkar
hafa sótt sérþekkingu sína til
margra landa beggja vegna Atl-
antshafsins, þannig að vonandi
tekst okkur að sækja það besta
frá hinum ýmsu stöðum og nýta í
þjónustu okkar við skjólstæðinga
og fjölskyldur þeirra.“
Eigum af-
bragðs fag-
fólk sem hægt
er að leita til
á ýmsum vett-
vangi