Morgunblaðið - 25.05.2000, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra ræddi byggðamál á fundi hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar
Hagsmunamál
allra að sporna
við fólksflótt-
anum suður
Morgunblaðið/Kristján
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, flutti erindi á hádegisverðarfundi á
Akureyri í gær og sagði nú unnið að faglegri úttekt á flutningi ríkisstofnana út á land.
Nauðsynlegt er að efla
byggðakjarna, segir Val-
gerður Sverrisdóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráð-
herra. Hún sagði ekki
vænlegt að grípa til sér-
tækra aðgerða.
VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, sagði mun meiri skilning á
því nú en áður að miklir fólksflutningar af
landsbyggð á höfuðborgarsvæðið væru vandi
sem ekki einungis landsbyggðin stæði
frammi fyrir heldur öll þjóðin. Aimenningur í
landinu áttaði sig æ betur á því að um óheilla-
vænlega þróun væri að ræða og þjóðfélags-
lega óhagkvæma. Kostnaður sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu væri sífellt að aukast en
tekjur sveitarfélaga á landsbyggðinni drægj-
ust æ meira saman. Hún sagði það sameigin-
legt hagsmunamál allra að gripið yrði til að-
gerða til að sporna við þessari þróun.
Þetta sagði ráðherra á hádegisverðarfundi
sem Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Há-
skólinn á Akureyri og sjónvarpsstöðin Ak-
sjón efndu til á Fiðlaranum í gær, en hann
var sá síðasti í röð funda um atvinnu- og
byggðamál og haldnir hafa verið í vetur.
Nauðsynlegt að efla
byggðakjarna
Að mati Valgerðar er ekki vænlegt til ár-
angurs að grípa til sértækra aðgerða og vill
hún fara varlega í þeim efnum. Ekki væri til
lengri tíma litið farsælt að veita styrki í verk-
efni sem fyrirsjáanlegt væri að bæru sig
ekki. Nefndi Valgerður að vænlegast væri að
stuðla að því að skapa hálaunastörf úti á
landsbyggðinni.
Hún sagði of litla samhæfingu vera milli
þeirra sem stæðu að atvinnumálum, ekki yrði
ólíklegt að betri árangur næðist ef meiri sam-
vinna væri á milli til að mynda atvinnumála-
ráðuneytanna og nefndi Valgerður í því sam-
bandi vega- og jarðgangaáætlun sem og
uppbyggingu flugvalla, en á þessu sviði væri
samvinna mikilvæg. Einnig mætti vera meiri
samvinna milli þeirra sjóða sem veita fé til
atvinnumála, eða jafnvel sameining, þannig
hefði fólk betri yfirsýn og vissi hvert ætti að
leita.
Ráðherra ræddi um nauðsyn þess að efla
byggðakjama á landsbyggðinni, en sagði
tómt mál að tala um slíkt án þess að hafa op-
inbera áætlun á því sviði til að styðjast við.
Gott framboð menntunar á landsbyggðinni,
m.a. háskólamenntunar væri forsenda þessa
að líf þar yrði blómlegt. Reynsla af Háskólan-
um á Akureyri sannaði að með tilkomu hans
settist menntað fólk að á svæðinu.
Þá nefndi Valgerður að sveitarstjórnir
væru mikilvægt tæki til að viðhalda og efla
byggð í landinu en sveitarfélög þyrftu að
vera stærri þannið að hún lagði áherslu á
sameiningu sveitarfélaga á landsbyggðinni.
Þannig væru þau betur í stakk búin til að
taka að sér fleiri og stærri verkefni.
Fagleg úttekt á
flutningi ríkisstofnana
Að beiðni Valgerðar er nú unnið að fag-
legri úttekt á starfsemi ríkisstofnana með
það að markmiði að skoða möguleika á flutn-
ingi þeirra eða einstakra verkefna á þeirra
vegum út á landsbyggðina. Gert er ráð fyrir
að úttektinni verði lokið næsta haust og mun
ráðherra í framhaldi af því kynna hana í rík-
isstjórn jafnframt því sem lögð verður fram
raunhæfa áætlun á hugsanlegum flutningi
þeirra stofnana eða verkefna sem undir iðn-
aðar- og viðskiptaráðuneytið heyra. Valgerð-
ur sagði sömu lögmál gilda hvað opinberar
stofnanir varðar og einkafyrirtæki, flutning-
urinn yrði að vera hagkvæmur til að af hon-
um yrði. Hún sagði einkafyrirtæki í auknum
mæli leita eftir því að verkefni væru unnin úti
á landi og nýttu til þess nýjustu tækni og full-
yrti ráðherra að slíkt hið sama yrði gert á
vegum ríkisstofnana á næstunni.
Valgerður nefndi einnig í ræðu sinni að já-
kvætt væri hversu vel sveitarfélög á lands-
byggðinni hefðu tekið í hugsanlegan flutning
RARIK til Akureyrar og sameiningu við
orkufyrirtæki þar. Slík samstaða væri mikil-
væg.
Hún gerði möguleika á stórfelldu laxeldi í
Eyjafirði að lokum að umtalsefni og sagði að
þó illa hefði til tekist í fyrstu tilraun ættum
við ekki að dæma okkur úr leik í þessum efn-
um. Möguleikarnir væru miklir og um að
gera að nýta sér þá. Reynsla Norðmanna
væri sú að nú væri hægt að stunda fiskeldi í
mun kaldari sjó en áður og því væri líklegt að
Eyjafjörður gæti hentað undir laxeldi.
Jarðgöng í Vaðlaheiði
hagkvæmur kostur
Hugsanleg jarðgöng í Vaðlaheiði voru á
meðal þess sem spurt var um og sagði Val-
gerður að þau væru kostur sem hún vildi
halda inni í umræðunni enda yrði um að ræða
aðgerð sem talin væri afar hagkvæm og ekki
sérlega dýr miðað við margt annað. Þegar
komin væru göng til Siglufjarðar væri þetta
eina fjallið sem fara þyrfti yfir á stóru land-
svæði, eða þaðan og allt austur í Norður-
Þingeyjarsýslu.
American-Scandinavian Foundation
Islendingur
formaður í
fyrsta skipti
KRISTJÁN T.
Ragnarsson, endur-
hæfingarlæknir, var
kjörinn formaður
stjórnar American-
Seandinavian Found-
ation á ársfundi
stofnunarinnar 11.
maí. Hann er fyrsti
Islendingurinn, sem
gegnir formennsku
frá stofnun ASF fyr-
ir 90 árum.
Kristján hefur
gegnt ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir
stofnunina um ára-
bil. Árið 1999 varð
hann varaformaður
stjórnarinnar og í
janúar formaður framkvæmda-
stjórnar. Hann hefur einnig ver-
ið atkvæðamikill í öðrum nor-
rænum félögum, þar á meðal
íslensk-ameríska félaginu þar
sem hann var forseti frá 1980 til
1985.
í fréttatilkynningu er haft eft-
ir Kristjáni að hann geti ekki
hugsað sér meira spennandi
tíma til að setjast í sæti for-
manns stjórnar American-
Scandinavian Foundation. Nú sé
byggingu Skandinavíuhússins að
Ijúka óg stofnuninnar bíði það
verkefni að nota
húsið til að ná því
markmiði sínu að ná
til nýrra hópa. Um
leið verði ASF
áfram að efla skipti
á námsmönnum,
fræðimönnum, lista-
mönnum og lærling-
um við ýmsar
menntastofnanir og
fyrirtæki um gervöll
Bandaríkin og á
N or ðurlöndunum
fimm. Stefnt er að
því að Skandinavíu-
húsið verði opnað í
október.
Kristján er pró-
fessor og formaður
endurhæfingardeildar Mount
Sinai læknaskólans í New York-
borg. Hann er fæddur Reykvík-
ingur og lauk læknanámi frá Há-
skóla Islands árið 1969. Hann
sérhæfði sig við Rusk endurhæf-
ingarstofnunina við læknamið-
stöð New York-háskóla og starf-
aði þar sem læknir og kennari til
1986 þegar hann tók við stöðu
sinni við Mount Sinai-læknaskól-
ann. Þar hefur hann sérhæft sig
í umsjá fólks, sem á við vanda-
mál að stríða vegna sjúkdóma og
meiðsla á mænu og heila.
Kristján T. Ragn-
arsson endur-
hæfingarlæknir.
Morgunblaðið/Golli
Borgarlífið skoðað
ÞEGAR maður er frekar stuttur í
loftinu getur verið gott að klifra
upp á næsta skúr og skoða borgar-
lífið þaðan. Það gerðu a.m.k. þessir
snáðar og ekki ber á öðru en annar
þeirra hafi komið auga á eitthvað
merkilegt, kannski sá hann kött
vera að veiða sér til matar, nú eða
bara fugla að veiða sér til matar,
eða maðk að skriða ofan í jörðina,
nei svo góða sjón getur drengurinn
nú varla verið með.
Lambakjöts-
neysla eykst
um 16,2%
NEYSLA á lambakjöti í apríl sl. hef-
ur aukist um 16,2% miðað við sama
mánuð í fyrra, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Landssamtökum sauðfjár-
bænda.
Á ársgrundvelli hefur neyslan
aukist um 2,7% og eru það umskipti
frá því sem verið hefur. Neysla á
lambakjöti er langmest í prósentum
talið miðað við aðrar kjöttegundir
eða um 36,7% af heildarneyslu kjöts.
Svo virðist sem neytendur séu
farnir að láta hreinleika og áreiðan-
leika matvæla ráða töluvert þegar
keypt er inn. Mælingai- á þungmálm-
um í íslensku lambakjöti leiddu í ljós
svo lág gildi að ekki hefur verið hægt
að ákvarða þau með nægjanlegri
vissu. Sama má segja um blý og
kvikasilfur í innmat, en rannsóknir
hafa leitt í Ijós að það sem mælst hef-
ur er langt undir öllum viðmiðunar-
mörkum frá öðrum löndum. Einnig
er þetta töluvert lægra en í öðrum
kjöttegundum hérlendis, eins og
fram kemur í niðurstöðum Ólafs
Reykdals matvælafræðings hjá Mat-
vælarannsóknum á Keldnaholti.
Hannaði rafsegulbylgjuvara
HREIÐAR Jónsson uppfinninga-
maður hefur hannað svokallaðan
rafsegulbylgjuvara og sótt um
einkaleyfi fyrir uppfinningunni í
Bandaríkjunum. Hreiðar segir að
rafsegulbylgjur valdi skepnum og
mönnum miklum skaða og sjúkdóm-
um. Um það vitni mörg dæmi. Eink-
um eigi þetta við um andlega og
líkamlega vanlíðan. Hann segir að
rafsegulbylgjur séu einnig flutn-
ingslínur fyrir sýkla. Hreiðar hefur
unnið að rannsóknum á þessu máli
síðastliðin fimm ár.
Hann segir að tækið sem hann
hefur hannað geri það að verkum að
rafsegulbylgjur frá jörðu eða
spennistöð fari undir hús í stað þess
að fara í gegnum það. Stjórn Félags
hugvitsmanna í Reykjavík hefur
stofnað Félag áhugamanna um
varnir gegn rafsegulmengun í þeim
tilgangi að vekja athygli á þeirri vá
sem rafsegulmengun er. Hreiðar
segir að einkaleyfisstofa Bandaríkj-
anna sé búin að gefa það út að einka-
leyfi fyrir rafsegulbylgjuvaranum
verði gefið út.
Hreiðar byrjaði að hanna tækið
árið 1995 og segir að erfiðlega hafi
gengið að sannfæra menn um skað-
semi rafsegulbylgna en nú séu menn
mun móttækilegri fyrir málinu.