Morgunblaðið - 25.05.2000, Síða 28
w v» v»
ERLENT
0002 ÍAM.ðS aUÖAai JTMMI'*!
28 FIMMTUDAGUR 25. MAI 2000
la ndsbanki.is
aiíIAji<i 4Ji <)UQM
MORGUNBLAÐIÐ
Samningaviðræðum við uppreisnarmenn á Filippseyjum frestað
Þaö sem
skiptir máli er
aö vera meö...
Fjárfestu á hlutabréfamarkaði án þess að taka áhættu
FORGJOF
Þú getur ekki tapað
Sölutímabil 4.-26. maí
uiidslKmkmii
oa Oplfi it* n t*l l*i
Greidir stjórn Estrada
lausnargjald fyrir gíslana?
Manila, Jolo. AP, AFP, Reuters.
Reuters
Uppreisnarmaður úr röðum Abu Sayyaf á verði yfír tveim gislum, Marc
Wallert frá Þýskalandi og Maria Moarbes frá Líbanon. Myndin var tekin
í búðum uppreisnarmanna á eynni Jolo á þriðjudag.
FYRIRHUGUÐUM viðræðum fúll-
trúa stjórnvalda á Filippseyjum við
islamska uppreisnarmenn í syðsta
hluta eyríkisins um lausn erlendra
gísla úr haldi var frestað í vikunni
þangað til í dag, að sögn BBC. Sam-
tök uppreisnarmanna, er nefnast
Abu Sayyaf, hafa oft tekið gísla en
ávallt sleppt þeim gegn greiðslu frá
stjórnvöldum í Manila og sögðu tals-
menn stjómvalda að til greina kæmi
að sú yrðu einnig niðurstaðan að
þessu sinni.
Uppreisnarmenn krefjast þess að
stofnað verði sérstakt ríki múslima á
svæðinu en flestir íbúar Filippseyja
eru kaþólskir. Abu Sayyaf-liðar
halda tveim Filippseyingum og 19 út-
lendingum, þ.á m. Malasíumönnum,
Þjóðverjum, Frökkum og Finnum í
gíslingu en fólkinu var rænt 23. apríl
á ferðamannaeyjunni Sipadan í
grannlandinu Malasíu. Hafa samtök-
in með óformlegum hætti boðist til að
láta Þjóðverjann Renate Wallert,
sem er veik, lausa gegn því að fá tvær
milljónir dollara eða um 150 milljónir
króna í lausnargjald.
Stjórn Josephs Estrada, forseta
Filippseyja, hefur vísað kröfunum
um sjálfstætt, islamskt ríki í suður-
hlutanum á bug. Gíslamir fengu fil-
ippseyska blaðamenn, sem leyft var
að heimsækja þá í víggirtum búðum
á eynni Jolo, að koma á framfæri ósk
til stjórnvalda um að flýtt yrði við-
ræðum um lausn þeirra úr gíslingu.
„Líkamlegt ástand gíslanna var
ágætt en sumir þeirra voru þó langt
niðri og þunglyndir," sagði einn
fréttamaðurinn, Camcer Ordonez.
Stjórnarhermenn hafa átt í stöð-
ugum bardögum við flokka uppreisn-
armanna múslima á Mindanao og
víðar í suðurhlutanum að undanförnu
en vopnaðar skærur hafa verið þar
tíðar síðustu áratugi. Síðustu mánuði
hafa um 200.000 manns orðið að flýja
heimili sín vegna átakanna.
Gíslamálið er orðið mikið vanda-
mál fyrir Estrada sem auk þess hef-
ur legið undir þungu ámæli fyrir
spillingu og óstjóm. Stuðningur við
hann í skoðanakönnunum hefur
hrapað og ekki bætir úr skák fjöldi
sprengjutilræða í Manila að undan-
fomu. Einn lét lífið í tilræði í stór-
markaði sl. sunnudag. Óljóst er
hverjir standa fyrir tilræðunum en
yfirvöld vamarmála hafa kennt
múslimasamtökum um, annaðhvort
Abu Sayyaf eða öðmm og öflugri
samtökum, MILF. Ósennilegt þykir
hins vegar að þau hafi bolmagn til að
standa fyrir aðgerðum svo langt frá
aðalvígjum sínum í suðurhlutanum.
Lögreglan segist gruna hópa
hægri-öfgamanna um sprengjutil-
ræðin í höfuðstaðnum. Sé markmið
þeirra að grafa undan ríkisstjóminni.
Skæmliðahópar kommúnista hafa
einnig verið virkir lengi á Filippseyj-
um. Einn hópurinn gerði í gær árás á
tvo báta á fljóti nálægt borginni
Sasmuan í Pampanga-héraði og
felldu fréttamann auk þess sem fjórir
særðust. Um borð vora einnig borg-
arstjóri Sasmuan og sonur Estrada,
Joel Ejercito, en hvoragur þeirra
særðist.
Forsetinn gerir Iítið
úr vandanum
Estrada forseti gerir lítið úr átök-
unum, hann viðurkennir þó að við
„minniháttar vanda“ sé að etja á
Mindanao. Fulltrúar ferðaþjónustu-
mála segja ennfremur að ekki sé um
að ræða neina hættu á helstu ferða-
mannastöðum, aðeins séu átök á af-
mörkuðum og afskekktum stöðum.
Fjármálaráðherrann, Jose Pardo,
sagði á hinn bóginn fyrr í vikunni að
stjórnvöld myndu verða að endur-
skoða áætlanir um hagvöxt ef upp-
reisnarmenn múslima héldu áfram
aðgerðum sínum fram í júní eða leng-
ur.
Hinn áhrifamikli leiðtogi kaþólsku
kirkjunnar í landinu, Jaime Sin
kardínáli, sakaði í gær ríkisstjómina
um að valda ekki hlutverki sínu, hún
væri stefnulaus og sundrað.
„Æ fleiri telja að tómarúm sé á
æðstu stöðum valdsins. Ekki einu
sinni liðsmenn stjórnarinnar, einkum
þeir sem fara með ákvörðunarvaldið,
geta tekið sig saman í andlitinu,"
sagði kardínálinn. Hann hefur lengi
gagnrýnt Estrada harkalega en for-
setinn er fyiTverandi kvikmyndaleik-
ari og glaumgosi og þótti beita óspart
lýðskrami er hann var kjörinn í emb-
ættið 1998. Sin sagði kirkjuna reiðu-
búna að hafa milligöngu um friðar-
viðræður við múslima.
Sjálfstæðisbarátta í 30 ár
Aðskilnaðarsinnar úr röðum músl-
ima í suðurhlutanum hafa um 30 ára
skeið reynt að brjótast undir yfirráð-
um ráðamanna í Manila. Sumir emb-
ættismenn á Filippseyjum segja að
uppreisnarmenn séu ekkert annað
en staðbundnir hópar glæpamanna
er séu á höttunum eftir lausnargjaldi
íyrir gísla. Aðrir telja þá vera í sam-
bandi við alþjóðlega, islamska
hryðjuverkamenn. En faðir Angel
Calvo, prestur sem flúði frá eynni
Basilan í suðurhlutanum eftir að
starfsbróðir hans þar var tekinn í
gíslingu, segir uppreisnarmenn njóta
stuðnings meðal ungs fólks á svæð-
inu sem aðallega er byggt múslimum.
Hann segir að stjórnvöld hafi ekki
sinnt þörfum fólks á svæðinu. Frétta-
skýrendur benda á að þótt islam hafi
orðið sameiningartákn í átökunum sé
raunveralega ástæðan fyrir
óánægjunni efnahagslegt misrétti.
Opinber þjónusta á sviði menntunar
og heilbrigðismála sé lélegri en ann-
ars staðar á Filippseyjum og húsa-
kynni verri.
Engell ritstjóri Ekstrablaðsins
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
HANS Engell, fyrrverandi ráð-
herra og leiðtogi danska Ihalds-
flokksins, hefur tekið að sér að rit-
stýra Ekstrablaðinu. Tilnefningin
kom vægast sagt á óvart þótt Engell
hafi reyndar verið blaðamaður er
hann hóf feril sinn í stjórnmálum.
Hann varð að láta af embætti
flokksleiðtoga árið 1998 eftir að hafa
verið staðinn að því að keyra drakk-
inn. Engell tekur við ritstjórninni af
Sven Ove Gade, sem hefur stýrt
blaðinu síðan árið 1976 og lætur nú
af störfum fyrir aldurs sakir.
Upplag Ekstablaðsins er nú hið
minnsta í mörg ár. Blaðið hefur lýst
yfir andstöðu við aðild Dana að
Efnahags- og myntsambandi
Evrópu, EMU, og þeirri stefnu ætl-
ar Engell ekki að breyta fyrir þjóð-
aratkvæðagreiðsluna um EMU-að-
ild 28. september.
Hverfur úr stjórnmálum
Það mátti öllum vera Ijóst að
Engell hvarf ekki sjálfviljugur úr
stjórnmálum eftir að hafa verið
staðinn að því að keyra drakkinn.
Hann var að koma heim frá kvöld-
verði fyrir tveimur árum er hann
keyrði á steinsteypublokk á vegi,
sem verið var að leggja. Hvorki
hann né aðrir slösuðust, en hann
hringdi á lögregluna, sem þegar sá
að ástand ökumannsins var ekki
sem best.
Á þeim tíma skein stjarna Engells
skært í dönskum stjórnmálum og
hann var vinsæll stjórnmálamaður,
sem naut trausts og vinsælda langt
út fyrir raðir flokksmanna íhalds-
flokksins. Bendt Bendtsen núver-
andi formaður íhaldsflokksins er
þriðji formaðurinn frá því að Engell
neyddist til að segja af sér. Það lá í
loftinu að Engell gerði lífið ekki létt
fyrir eftirmenn sína, en sem stendur
virðist sem nýja formanninum hafi
tekist að sameina flokkinn á ný og ró
hafi færst yfir. Er hið nýja starf
Engells var tilkynnt lýsti hann því
yfir að hann hætti samstundis allri
stjórnmálaþátttöku. Það samræmd-
ist ekki hinu nýja starfi að vera
bundinn einum ákveðnum stjórn-
málaflokki.
Barist gegn minnkandi sölu
Líkt og hitt síðdegisblaðið hefur
Ekstrablaðið mátt horfa upp á
minnkandi sölu undanfarin ár.
Langmest af sölu blaðsins er lausa-
sala og hún hefur dregist mjög sam-
an. Upplag blaðsins er nú 139 þús-
und eintök og það er minna en
upplag BT, sem keppir við Ekstra-
blaðið á síðdegismarkaðnum.
Margir velta fyrir sér hvernig
Engell muni taka á ritstjórn blaðs,
sem hefur það sem yfirlýsta stefnu
að taka á viðkvæmum málum og lít-
ur á sig sem hálfgerðan götustrák er
ekki lætur kurteisi og mannasiði
halda aftur af sér. Fyrir því fann
Engell ótvírætt er hann varð að láta
af embætti flokksleiðtoga.
Það vekur einnig athygli að Eng-
ell skuli gangast inn á að láta vera
að halda á loft stefnu sinni um
EMU-aðild. Hann er fylgjandi
EMU-aðild, en hefur sagt að hann
muni ekki fjalla um málið í leiðurum
sínum og þar af leiðandi ekki ganga
gegn yfirlýstri stefnu blaðsins gegn
EMU. í Berlingske tidende var
kveðið svo fast að orði að sem rit-
stjóri þyrfti Engell í raun að gleyma
sínu gamla sjálfi og verða nýr mað-
ur, sem væri víst meira en hægt
væri að búast við af nokkram manni.