Morgunblaðið - 25.05.2000, Blaðsíða 34
34 FÍMMTUÐAGUR 25. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
SAN FRANCISCO-BALLETTINN
Að vera trúr
hjarta sínu
I Listdansskólanum eru dansarar San
Francisco-ballettsins á sinni fyrstu
æfíngu eftir að hópurinn kom hingað til
lands. Tveir af aðaldönsurunum í Svana-
vatninu, þau Joanna Berman og Roman
Rykine, gefa sér tíma til að setjast niður
með blaðamanni eitt augnablik í hléi áður
en dansinn hefst á ný.
JOANNA Berman er ein af
þremur dönsurum sem skipta
með sér hinu tvöfalda hlut-
verki Odette/Odile og Roman Ryk-
ine er sömuleiðis einn af þremur
dönsurum sem dansa hlutverk Sig-
frieds prins. Þau dansa þó ekki sam-
an, „því miður - ég gæti annars vel
hugsað mér að dansa með þér“, seg-
ir hún og beinir orðum sínum til
hans.
Joanna Berman hefur dansað
með San Franciseo-ballettinum all-
an sinn feril eða allt frá árinu 1984.
Það eru hins vegar ekki nema fjögur
ár síðan Roman Rykine gekk til hðs
við flokkinn, árið 1996. Þar áður
hafði hann dansað með English Nat-
ional Ballet í tvö ár en hann er upp-
runninn í Rússlandi.
Meira návígi í
Borgarleikhúsinu
Bæði segjast þau vera orðin
spennt að stíga á svið Borgarleik-
hússins en þegar viðtalið fer fram á
þriðjudegi eru þau enn ekki farin að
sjá það. Segjast þó vita að húsið sé
mun minna en óperuhúsið í San
Francisco sem þau eru vön að dansa
í og því verði návígið meira, sem
þurfi þó alls ekki að vera verra.
Aðspurð um hvað skýri hinar
miklu vinsældir Svanavatnsins um
allar jarðir á öllum tímum nefnir
Joanna fyrst tónlistina, sem hægt sé
að lýsa í einu orði: Yndisleg. „Svo er
þetta auðvitað sagan um valið milli
góðs og ills og um það að vera trúr
hjarta sínu - nokkuð sem allir verða
að kljást við,“ segir hún. Roman
bætir við að Svanavatnið sé fyrir
löngu orðið einn af frægustu klass-
ísku ballettum sögunnar og nái ekki
síður til þeirra sem minna þekki til
danslistarinnar. Bæði eru þau líka á
því að Helga Tómassyni hafi tekist
einstaklega vel til með endursköpun
sína á verkinu.
Helgi gefur dönsurunum
mikið frelsi í túlkun
Ekki er hægt að sleppa þeim aft-
ur á æfingu án þess að varpa fram
spurningunni hvernig stjórnandi
Helgi sé. Roman verður fyrri til að
svara: „Eg hef náttúrulega ekki
þekkt hann nema í þessi fjögur ár
sem ég hef verið við San Franciseo-
ballettinn en hann hefur reynst mér
mjög vel og hefur gert verulega
margt gott fyrir flokkinn. Ég sé
meira að segja miklar breytingar á
þessum fáu árum.“ Hann kveðst líka
kunna vel að meta að Helgi gefur
dönsurunum gífurlega mikið frelsi
til að túlka sjálfir.
Joanna tekur heilshugar undir -
og hún hefur samanburðinn, því hún
réðst til flokksins ári áður en Helgi
tók þar við stjórninni. „Hann er líka
snillingur í að velja saman fólk úr
ólíkum áttum og að fá hæfa danshöf-
unda til liðs við flokkinn," segir hún.
Beint flug til
Þrándheims
í Noregi
ÍSLANDSFIUG
Flugverð
25.900,-
Afsláttur fyrir böm kr. 4.000
Nú býðst einstakt tækifæri á að fljúga beint til ÞRÁNDHEIMS.
Vikuferð frá 23.-30.júní.
Dagflug, brottför frá Keflavík kl. 09:00
Komið til baka 30.júní kl.15:00.
Sérferð 23.06-30.06: Vika um Firðina
FararstjórTheodór Blöndal
Verð 78.200 á mann f 2m. herb.
Innifalið: Flug, flugvallarg. gisting, akstur og ísl.farastj.
Upplýslngar hjá sölum.
Flogið verður með glæsilegri Boeing-þotu Islandsflugs.
Aukagjöld: Flugvallargjöld kr.4.550 bætast við.
Þú getur pantað sumarbækling TERRA N0VA á heimasíðu okkar, www.terranova.is.
^ TERRA
NOVA
W
ryj
-Spennandi valkostur-
Stangarhyl 3A ■ 110 Reykjavik
Simi: 587 1919 & 567 8545
Fax: 587 0036 ■ www.terranova.is
Morgunblaðið/Golli
Joanna Berman er ein af þremur dönsurum sem skipta með sér hinu tvöfalda hlutverki Odette/Odile og Roman
Rykine er sömuleiðis einn af þremur dönsurum sem dansa hlutverk Sigfrieds prins.
Ferill Helga
Sendiherra Bandarfkjanna á íslandi, Barbara J. Griffiths, bauð Heiga
Tómassyni og dönsurum San Francisco-ballettsins til móttöku í sendi-
ráðinu á þriðjudag. Milli Helga og Barböru J. Griffiths stendur eigin-
kona Helga, Marlene.
HELGI Tómasson fæddist í Reykja-
vfk árið 1942. Hann hóf listdans-
nám ungur að árum og gekk meðal
annars í Listdansskóla Þjóðleik-
hússins. Fimmtán ára gamall hélt
Helgi til Kaupmannahafnar þar
sem hann var tekinn í læri hjá Tív-
olíballettinum og tveimur árum síð-
ar fékk hann styrk til náms við
New York School of American
Ballet, fyrir milligöngu Jeromes
Robbins. Skömmu sfðar hóf Helgi
feril sinn sem atvinnudansari í
Bandarikjunum. Fyrst dansaði
hann hjá The Joffrey Ballet en síð-
an The Harkness Ballet, þar sem
hann var einn af aðaldönsurunum.
Árið 1969 tók Helgi þátt í fyrstu
alþjóðlegu listdanskeppninni f
Moskvu sem fulltrúi Bandaríkjanna
og hreppti silfurverðlaun. Gull-
verðlaunin féllu Mikhail nokkrum
Baryshnikov í skaut.
Ári síðar gekk Helgi til liðs við
New York City Ballet sem aðal-
dansari, þar sem hann dansaði i
fimmtán ár við frábæran orðstír -
var ein helsta skrautfjöður flokks-
ins. Er Helgi almennt talinn einn
fremsti klassiski ballettdansari
sinnar kynslóðar. „Hann er einfald-
lega einn fárra klassfskra listdans-
ara sem hægt er að segja að séu
sannarlega framúrskarandi,“ skrif-
aði Anna Kisselgoff í New York
Times árið 1979.
Sérstaklega gat Helgi sér gott
orð fyrir túlkun á dansverkum
George Balanchines og Jeromes
Robbins, en báðir höfundar bjuggu
til mörg hlutverk með Helga í
huga.
Árið 1980 samdi Helgi sinn
fyrsta ballett, Thetne and Variat-
ions, Polonaise, Op. 65, fyrir School
of American Ballet Workshop. Féll
verkið í fijóa jörð og hvatti læri-
meistarinn Balanchine hann til að
halda áfram á sömu braut.
Helgi lagði skóna á hilluna árið
1985 til að taka við starfi listræns
stjórnanda elsta atvinnudansflokks
Bandaríkjanna, San Francisco-
ballettsins. Hefur hann hafið flokk-
inn til vegs og virðingar og fært
hann f fremstu röð dansflokka í
heiminum.
Helgi hefur samið 29 dansverk
fyrir San Francisco-ballettinn,
meðal annars Giselle, Svanavatnið,
Þyrnirós og Rómeó og Júlíu. Hann
hefur byggt á klassískum grunni
og þykja dansarar hans búa yfir
mikilli breidd og valda óiíkustu stíl-
um og verkum.
Auk þess að semja sjálfur hefur
Helgi virkjað krafta margra af
fremstu danshöfundum heims í
þágu flokksins, svo sem David Bint-
ley, Val Caniparoli, William For-
sythe, James Kudelka og Mark
Morris. Þá hefur hann einnig sett á
svið verk eftir menn á borð við
Frederick Ashton, George
Balanchine, August Bournonville,
Flemming Flindt, Agnes de Mille,
Jerome Robbins og Antony Tudor.
Þá hafa verk Helga sjálfs verið
flutt víða, meðal annars hjá New
York City Ballet, Houston Ballet,
Ballct Arizona, Finis Jhung’s
Chamber Ballet USA og Konung-
lega danska ballettinum.
San Francisco-ballettinn hefur
gert víðreist í tíð Helga. Ber hæst
sýningar í New York City í fjór-
gang, Kaupmannahöfn, París og
síðast í Lundúnum og Belfast.
Helgi Tómasson er margverð-
launaður fyrir framlag sitt til
danslistarinnar í Bandaríkjunum, á
Islandi og víðar.
í 21 ÁRS afmælisveislu Sigfrieds
prins tilkynnir drottningin, móðir
hans, að nú sé mál að hann kvæn-
ist. Honum fellur illa sú tilhugsun
að þurfa að velja sér brúði eftir
ráðagerð móður sinnar, dregur sig
í hlé frá veisluglaumnum og fer á
veiðar, dapur í bragði.
Hópur svana flýgur yfir og
prinsinn fylgist heillaður með
glæstu flugi þeiiTa. Skyndilega
umbreytist einn svananna í undur-
fagra konu. Þetta er Odette,
drottning svananna, en hún er í
álögum sem ekkert fær leyst nema
Sögu-
þráður
einlæg ást og tryggð mennsks
manns. Sigfried sver henni þegar í
stað eilífa ást sína en hinn illi seið-
maður Von Rothbart leikur á hann
með því að láta dóttur sína, Odile,
dulbúast sem meysvan en Sigfried
áttar sig á svikunum.
Hann er harmi lostinn, snýr aft-
ur til vatnsins og sárbænir Odette
um fyrirgefningu. Hún sýnir hon-
um skilning og fyrirgefur honum
en skelfileg mistök Sigfrieds hafa
dæmt hana til að vera svanur um
alla eilífð. Hún kýs þess í stað að
deyja. Von Rothbart reynir að
hrekja Sigfried frá því hann vill
hafa Odette fyrir sjálfan sig, en
elskendurnir hafa betur. Odette
fleygir sér í vatnið og Sigfried fer
að dæmi hennar. Staðföst ást Sig-
frieds og Odette afléttir álögunum
- elskendurnii- ná saman að lok-
um.