Morgunblaðið - 25.05.2000, Síða 38
38 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 2000
LISTIR
MORGUNÐLABIÐ
Helg’um
okkur stað í
hverri borg
✓
I Helsinki verður frumsýnt í kvöld dans-
verk þar sem listamenn þriggja menningar-
borga Evrópu árið 2000 taka höndum sam-
an. Erna Omarsdóttir dansari er íslenski
þátttakandinn og Hávar Sigurjónsson sló á
þráðinn til hennar í tilefni dagsins.
EITT af þeim verkefnum sem
menningarárið 2000 hefur alið af sér
er fjöllistaverkefni með þátttöku
listamanna frá þremur menningar-
borgum, Brussel, Helsinki og
Reykjayík. Það eru dansararnir
Erna Omarsdóttir frá íslandi og
Riina Saastamoinen frá Finnlandi
Okkar verð kr. 2.795-
Við reiknum efnisþöriina og veitu
þér fnglegnr róðleggingnr
um vinnu ú viðnum
Grensásvegi 18 s: 581 244^
Þar sem þjónustan
er í fyrirrúmi.
Þú ffærð nllar helstu
fúavarnartegundir hjó
Litoveri, Grensásvegi
Kjörvari 14 4 Itr. - gegnsær
Verð kr.
5.376-
Okkar verð kr.'
Texolin 4 Itr. - þekjandi
kr.
3.447-
Okkar verð kr. 2.75S*
Woodex llltra 2.5 Itr.- gegnsær
Verð kr.
.509-
Okkar verð kr. 2.1 33“
Sólignum 5 Itr.- þekjandi
Verð kr.
3.493-
Erna Ómarsdöttir ásamt Cameron Corbett í verkinu „Krossgötur" eftir Sveinbjörgu Þórhallsdöttur sem sýnt
var í Reykjvik fyrr í vetur.
ásamt arkitektinum og hönnuðinum
Eric Pringels og hljómsveitinni
Martians go home sem eru höfundar
verksins. Það verður frumsýnt í
Helsinki í kvöld en síðan sækir hóp-
urinn heim hinar tvær borgirnar
síðar á árinu.
Erna Ómarsdóttir er ungur og
efnilegur dansari sem hefur þegar
getið sér mjög gott orð í danslistinni
í Belgíu þar sem hún stundaði nám
við hinn þekkta skóla PARTS í
Brussel og útskrifaðist þaðan 1998.
Hún hefur tekið þátt I tveimur sýn-
ingum leikstjórans, danshöfundar-
ins og myndlistarmannsins Jans
Fabre sem er einn þekktasti leik-
húsmaður Belgíu og í apríl sl. hlaut
sýning hans viðurkenningu á Suður-
amerísku leiklistarhátíðinni sem
haldin er árlega í Bogatá í Colombíu
og er ein stærsta slíka hátíð sem
haldin er þar í álfu. Erna tók þátt í
þeii-rí sýningu, sem verður jafn-
framt eitt af framlögum Belga til
heimssýningarinnar í Hannover nú í
júní „Eg hef verið mjög heppin með
verkefni síðan ég útskrifaðist,“ segir
Erna en auk þess sem
að ofan er talið hefur
hún tekið þátt í sýning-
um hópsins Dansleik-
hús með EKKA sem
vakið hefur verðskuld-
aða athygli hér heima
með sýningum sínum.
Erna sagði í samtali
við Morgunblaðið þar
sem hún er stödd í
Helsinki að hugmynd-
in að baki menningar-
borgasýningunni væri
fólgin í þvi að finna
staði í borgunum
þremur sem væru nán-
ast óþekktir. „Við vild-
um finna staði sem
enginn hefði veitt eftirtekt. Við fór-
um til borganna þriggja í fyrra í
þessu skyni og skoðuðum þær með
þetta í huga. I Reykjavík varð hafn-
arsvæðið fyrir valinu og mér fannst
sjálfri merkilegt að uppgötva ýmsa
staði í borginni sem ég
þekkti ekki, þótt ég sé
þar uppalin."
Erna segir að þau
sæki innblástur í rúss-
nesku kvikmyndina
Stalker eftir Tarkovskí
og tónlistin sé byggð á
sönglínum frumbyggja
Ástralíu. „Frumbyggj-
arnir helguðu sér
svæði með því að fara
um þau syngjandi og
við gerum hið sama á
okkar hátt; finnum
okkur stað í borgunum
og helgum okkur hann.
Hér í Helsinki sýn-
um við á auðu svæði
fyrir utan bílageymslu en færum
okkur síðan inn í geymsluna og leik-
um seinni hlutann þar. Sýningin
tekur mikið mið af staðsetningunni
og við erum við æfingar á hverjum
stað í viku áður en við frumsýnum.
Við leyfum staðnum að hafa áhrif á
okkur og kannski verða til ný atriði
á hverjum stað. Sýningin verður því
ekki nákvæmlega eins í borgunum
þremur þótt grunnurinn sé alls stað-
ar sá sami.“
I Helsinki verða þrjár sýningar,
25., 26., og 27. maí, síðan verður
sýnt í Brussel 26.-28. ágúst og hér í
Reykjavík verður sýnt 1.-9. septem-
ber en endanleg ákvörðun um sýn-
ingardagana liggur ekki fyrir að
sögn Ernu. Eftir það verður sýnt í
Marseille í Frakklandi í lok septem-
ber en á þessu stigi hefur ekki verið
ákveðið hvort sýnt verður víðar.
Erna þarf þó ekki að kvíða verk-
efnaleysi því sýning Jans Fabre
verður á ferð um Evrópu þvera og
endilanga í sumar, eftir heimssýn-
inguna í Hannover 14.-18. júní verð-
ur sýnt í París, Berlín og Stokk-
hólmi og vafalaust eiga fleiri
stórborgir eftir að bætast í hópinn
áður en lýkur.
Erna Ómarsdóttir
dansari.
Aströlsk leiksýning markar upphaf hátíðarinnar Hinsegin dagar
Einleikur um karlmennskuna
í kvöld verður sýnd í íslensku óperunni
ástralska leiksýningin Go by Night eftir
Stephen House. Stephen Sheehan hefur
farið víða um heim með sýninguna og hvar-
vetna hlotið góðar viðtökur en sýningin
markar upphaf hátíðarinnar Hinsegin dag-
ar sem hefst í Reykjavík í kvöld.
Morgunblaðið/Sverrir
Stephen Sheehan leikari frá Ástralíu.
STEPHEN Sheehan er Ástrali og
búsettur í Adelaide þar sem hann
hefur starfað að leiklist undanfarin
ár. Go by Night er sagður kraft-
mikill og ögrandi einleikur, sem
fjallar á áleitinn hátt um líf ungs
manns í Ástralíu, Johnny boy, en
hann er hörkutól og hommi af
verkamannastétt. Verkið rekur ör-
væntingarfulla og hættulega leit
Johnny að sjálfum sér, en við fylgj-
um honum á því ferðalagi og end-
um á götum Sidney. „Verkið fjallar
um þörf okkar allra fyrir hlutverk í
lífinu. Það fjallar um þörfina fyrir
að vera elskaður og það fjallar um
karlmennskuna," segir Stephen í
samtali við blaðamann. Höfundur-
inn er ungur Ástrali, Stephen Hou-
se og þeir nafnar hafa báðir fengið
frábæra dóma; House fyrir verkið
og Sheehan fyrir túlkun sína á
Johnny boy. Leikstjóri er Nick Gill
og tónlist er samin af George Kall-
ika. Verkið hefur farið víða í Ástr-
alíu og var nú síðast sýnt á Mardi
Gras-hátíðinni í Sidney.
Sheehan frumsýndi Go by Night
fyrir þremur árum og hefur sýnt
það víða síðan víðsvegar um Ástr-
alíu en einnig í Bretlandi, þar sem
hann sýndi í Gill leikhúsinu, þar
sem Felix Bergsson sýndi Hinn
fullkomna jafningja fyrr í vor.
„Ég hef unnið með ýmsum leik-
hópum og leikið í kvikmyndum auk
þess að sýna Go by Night,“ segir
Sheehan, sem margir kannast ef-
laust við í hlutverki Roger
Woodward, keppinautar hins ein-
staka píanóleikara úr kvikmynd-
inni The Shine. „Það var skemmti-
legt hlutverk og þar segi ég við
hinn unga Helfgott um píanóleik-
inn að hann sé „blóðug glíma.“ Hið
sama má segja um efni Go by
Night. Þar er sagt frá baráttu
Johnny boy upp á líf og dauða og
þó endir verksins sé ekki beinlínis
jákvæður þá er hann raunsær.
Sumir hafa sagt að þetta sé ekki
verk um homma heldur eiturlyfja-
neytanda. Hvorutveggja er rétt
þar sem þetta er saga eintaklings
sem er bæði hommi og eiturlyfja-
neytandi. Hann endar á götunni
sem klæðskiptingur og dregur
fram lífið á vændi. Þetta er ekki
falleg saga en hún er raunsæ."
Þegar gluggað er í gagnrýni ástr-
alskra fjölmiðla um sýninguna vek-
ur einmitt athygli að höfundinum
er hrósað fyrir frábærlega vel
skrifaðan texta; hann er sagður
ljóðrænn og grófur í senn. Sheehan
undirstrikar þetta og segir að feg-
urð verksins sé einmitt fólgin í
þessu.
„Þetta er saga eins manns og
House segir hana frábærlega vel.
Þegar ég var beðinn að koma í
prufu fyrir hlutverkið fann ég
strax að þetta væri eitthvað sem ég
vildi leika og linnti ekki látum fyrr
en mér tókst að fá hlutverkið."
Þar sem verkið fjallar um
homma verður spurningin um
hvort þetta sé leikrit fyrir homma
áleitin. „Ég hef sýnt þetta á hátíð-
um sem samkynhneigðir hafa stað-
ið að og í þeim skilningi hefur það
náð til fleiri samkynhneigðra en
gagnkynhneigðra. Þetta er líka
saga um pilt sem hrekst burt úr því
samfélagi sem hann elst upp í
vegna þess að hann er hommi og
reynir að fóta sig í nýju umhverfi.
Samt er sá raunveruleiki sem verk-
ið lýsir ekkert dæmigerður fyrir
homma í Ástralíu. Ég held að verk-
ið hafi einnig mun breiðari skír-
skotun en svo að einungis samkyn-
hneigðir hafi skilning á þeim
aðstæðum sem þarna eru dregnar
upp.
Aðeins verður þessi eina sýning
á Go by Night í tengslum við opn-
unarhátíð Hinsegin daga, fimmtu-
daginn 25. maí en hátíðin fer einnig
af stað með sýningu Felix Bergs-
sonar á Hinum fullkomna jafningja
sem vakti mikla athygli í London
fyrr í vor eftir góðar viðtökur hér
heima í fyrravetur.