Morgunblaðið - 25.05.2000, Page 54
54 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
Stúdentspróf - Hópur nemenda í Menntaskólanum við Hamrahlíð kýs að taka alþjóðlegt stúdentspróf. Kennt
er á ensku í tvö ár og eru nemendur búnir undir námið í eitt ár. Gunnar Hersveinn kynnti sér námið og ræddi við
stallara þess, kennara og nemanda um reynsluna af IB-stúdentsprófí, en þeir fyrstu útskrifast á næstu dögum.
Prófin eru alþjóðleg. Nokkrir af IB-nemendunum í lokaprófi í MH.
og kennsla
á ensku
J• „Það kom manni í koll að fresta hlut-
unum. Ég lærði að vinna sjálfstætt."
• „Það er auðveldara að vera fyndinn og
skemmtilegur á móðurmálinu.“
IBO (Intemational Baccalaur-
eate Organisation) eru form-
leg samtök skóla sem ekki eru
rekin í hagnaðarskyni. Sam-
tökin hafa höfuðstöðvar sínar í Sviss
og bjóða upp á fjölþættar námsleiðir:
Diploma Programme, IB stúdents-
próf, sem er viðurkenndur undirbún-
ingur undir háskólanám, Middle
-Jfears Programme, unglingadeild,
Tyrir nemendur á aldrinum 11-16 ára
og Primary Years Programme,
grunnskóladeild, fyrir nemendur
þriggja til tólf ára.
Flestir sem fá inngöngu í IB-nám
hér á landi stunda fyrst nokkuð hefð-
bundið nám við Menntaskólann við
Hamrahlíð í eitt ár þar sem áhersla
er lögð á að styrkja þekkingu þeirra
á séríslenskum námsþáttum sem
ekki er lögð áhersla á í IB-greinum.
„I vor útskrifum við fyrstu IB-stúd-
entana okkar,“ segir Wincie
Jóhannsdóttir, sem hefur verið IB-
stallari í MH.
Núna útskrifast 13, en nokkrir í
viðbót taka lokapróf í stökum grein-
'iUm í IB-náminu og verður það nám
metið sem hluti af íslenska stúdents-
prófinu þeirra. Peir sem hingað til
hafa helst sótt í þetta nám eru:
1) Nemendur sem eru sérstaklega
góðir námsmenn og langar að flýta
námi eða bara takast á við spennandi
verkefni. 2) Islenskir nemendur sem
hafa búið lengi erlendis með foreldr-
um sínum. 3) Útlendingar sem eru
hér t.d. vegna vinnu foreldra sinna.
Peir hafa t.d. verið frá Mongólíu,
Rúmeníu og Kína. „Nemendur í skól-
anum geta einnig tekið einn og einn
áfanga á ensku í IB náminu til að
kynnast orðaforða greinanna og und-
irbúa sig betur fyrir háskólanám,"
segir Wincie og að almennt sé vax-
andi áhugi á þessu námi, t.d. spyrji
oft foreldrar, sem ætla að flytja heim
eftir nám og störf í útlöndum og eru
með stálpaða krakka, um námið.
Hún segir að fjórtán kennarar hafi
farið utan á námskeið í kennslu sinn-
ar greinar í IB-náminu, og að fimm
fari nú í sumar á námskeið. „Eg held
að þetta efli kennarana," segir hún,
„bæði í sínu fagi og einnig í kennslu-
fræðinni.“
Námsefni og mælikvarðar í IB-
náminu eru endurskoðuð á fimm ára
bili með þátttöku fagkennara um
heim allan. Þeir sem vilja kynna sér
IB-námið nánar geta farið á heima-
síðuna: www.mh.is
Dugar ekki að hugsa
„þetta reddast“
Stefán Andri í lokaprófi í sögu.
STEFÁN Andri Gunnarsson er í
fyrsta hópnum sem útskrifast sem
stúdent í IB-náminu í MH. Hann
flutti með foreldrum sínum til íslands
árið 1998 eftir dvöl í Indianafylki í
Bandaríkjunum. „Ég hafði lokið High
school þegar við komum heim og ég
kannaði hvort ég kæmist því beint inn
í Háskóla Islands, en svo var ekki,“
segir Stefán Andri og að Wincie Jó-
hannsdóttir kennari hafi í framhaldi
af því kynnt honum IB-stúdentspróf-
ið.
„Ég bjó mig undir það með því að
fara í nokkra almenna MH-áfanga á
vorönn 1998 og byrjaði svo strax í IB-
náminu um haustið,“ segir hann en
námið sjálft er tvö ár auk árs í undir-
búningi. Stefán var því í fyrsta hópn-
um. Hann viðurkennir að þetta hafi
verið stíft nám og að það hafi verið
álag að fyrsti hópurinn í IB-náminu
hafi þurft að ryðja veginn. Lokaönnin
var stíf því í kjölfar ritgerðaskila og
lokaáfanga, sem heitir CAS og kemur
í staðinn fyrir líkamsrækt, hafi loka-
prófin skollið á.
„Við rákum okkur strax á að ís-
lenski hugsunarhátturinn „þetta
reddast" dugði skammt," segir hann,
„það kom manni í koll að fresta hlut-
unum. Aftur á móti lærði ég að í þessu
námi að vinna sjálfstætt. Þetta var
góð reynsla og nemendahópurinn var
þéttur þótt sumir væru aðeins eina
önn eða tvær í náminu vegna þess að
þeir fluttu út aftur. Tveir voru frá
Kanada, einn frá Japan, annar Aíríku
og sá þriðji frá Bretlandi." Stefán
Andri telur að vaxandi þörf sé fyrir
IB-námið bæði vegna þess að útlend-
ingum fjölgar sökum starfsmöguleika
og einnig vegna aukinnar heimkomu
langskólagenginna foreldra.
I haust býst hann við að bytja í sál-
arfræði eða læknisfræði í Háskóla ís-
lands.
„Breytir áherslum í ann-
arri kennslu hjá mér“
ÞAÐ er töluverður
munur á að kenna IB-
nemendum sögu og
öðrum nemendum.
Ekki vegna þess að
þessir nemendur séu
eitthvað öðruvísi, held-
ur fyrst og fremst af
því að ytri umgjörð
kennslunar er önnur.
„Eins og annað IB-
nám erum við að kenna
samkvæmt námskrá
sem kemur frá útlönd-
um, nemendur taka
samræmt próf eftir
henni, við kennum út-
lendar kennslubækur
og við tölum að mestu ensku í tímum.
Fyrir mig sem kennara er auðvitað
mjög fróðlegt að kynnast þessu þó að
þessi fyrstu ár hafi verið erfið,“ segir
Þorsteinn Þórhallsson, sögukennari
í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
„Mér líkar reyndar vel við nám-
skrána því hún er sveigjanleg og
býður upp á mikið val. Helstu
ákvæði hennar eru að kenna skuli
valda þætti úr sögu heimsins á tut-
tugustu öld og sögu einnar álfu á 19
og 20. öld. Síðan er lögð áhersla á að
nemendur öðlist leikni í meðferð
heimilda og læri ekki bara stað-
reyndir heldur líka að skilja gang
sögunnar. Það sem mér finnst
kannski verra er að í þessu námi er
engin saga fyrri alda og það má
segja að áherslan sé
frekar á pólitíska þætti
sögunnar þó að um það
hafi kennarar nokkuð
vaf. Mér skilst að IB-
sagan sæki helst fyrir-
myndir til námskráa í
Bretlandi. Fyrir mig
persónulega er
skemmtilegast að
kynnast því hvað
áherslan er mikil á
söguskilning og heim-
ildarýni vegna þess að
þar hefur mér fundist
ég veikastur fyrir.
Kannski er það eitt-
hvað í hefðinni okkar
sem hefur áhrif þarna. Ég hef heyrt
frá IB-mönnum úti að skandínavísk-
ir sögunemar séu sterkari á sviði at-
burða og frásagnar en skilnings í
samanburði við aðra sögunemendur.
Ég vona að ég geti nýtt kynni mín af
IB til að breyta áherslunum í annarri
kennslu hjá mér.“
Allt námsefni er á ensku. Þor-
steinn verður að panta kennslubæk-
ur frá Englandi og gæta þarf þess að
hafa ítarefni á ensku á bókasafninu.
Þessar aðstæður hafa bæði kosti og
galla í för með sér. „Ég er ekki fasta-
gestur í bókabúðum í London og hef
því orðið að velja bækur eftir tillög-
um annarra IB-kennara og eftir upp-
lýsingum sem ég hef viðað að mér á
Netinu og í bæklingum bókaútgáfa.
Sumt af því efni sem ég fengið hent-
ar vel til kennslu, annað miður. Ég
og nemendur mínir hafa því bæði
fengið að kynnast frábærum
kennslubókum og öðrum heldur
tyrfnari. Ég held áfram að leita enda
finn ég að þegar enskukunnátta
nemendanna er misjöfn, hefur
kennsluefnið mikil áhrif á námsgleð-
ina.“
Það er auðvitað svolítið sérstök
upplifun fyrir kennara að kenna á
ensku. Þorsteinn finnur það vel í
samanburði við sína venjulegu
kennslu, að í hugvísindagreinum
eins og sögu skiptir málið mjög
miklu. Málið er stór þáttur í því að
skapa áhuga og stemmningu fyrir
náminu. „Það er alltaf auðveldara að
vera fyndinn, skýr og skemmtilegur
á móðurmálinu," segir hann. „Þetta
háir okkur líka svolítið í umræðum
og hópvinnu, að fólk er misgott í
ensku hvort sem um er að ræða ís-
lendingana hér eða útlendu nemend-
urna. Arangurinn af þessu verður
samt alltaf sá að nemendurnir þjálf-
ast í því að lesa ensku og tjá sig á
ensku um sögu. Ekki er ég í neinum
vafa um að það komi þeim að gagni
seinna í lífinu. Sjálfur hef ég auð-
vitað lært heilmargt á þessu og kom-
ist í samband við það sem er að
gerast í sögukennslu í nágranna-
löndunum. Eg hef sjálfur farið á eitt
IB-námskeið og vonast til að komast
fljótlega á annað.“
Þorsteinn
Þórhallsson
HUiHlll
Sundaborg 3 — Sími: 568 4800