Morgunblaðið - 25.05.2000, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAÖuíl 25. ÍÍAÍ 20o6 65
FUINIDIR/ MANIMFAGNAÐUR
EFUNG
STÉTTAHFÉIMB
Aðalfundur
Eflingar-stéttarfélags
Aðalfundur Eflingar-stéttarfélags verður hald-
inn miðvikudaginn 31. maí 2000. Fundurinn
verður haldinn í Kiwanishúsinu við Engjateig
og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Endurskoðaðir reikningar félagsins liggja
frammi frá og með miðvikudeginum 24. maí nk.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Samfylkingin
Fundur Samfylkingarinnar
um verkalýðsmál
Samfylkingin boðartil opins fundar um verka-
lýðsmál í dag, fimmtudaginn 25. maí, kl. 20.00
í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6.
Á fundinum verður rætt um stöðu kjara og efna-
hagsmála nú í miðri samningalotunni.
Ari Skúlason framkvæmdastjóri ASÍ mun halda
inngangserindi um málið.
Einnig verður rætt um hvernig haga eigi sam-
starfi Samfylkingarinnar og verkalýðshreyfing-
arinnar og mun Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar, halda erindi um
það.
Samfylkingin.
Baráttufundur leigjenda
í kvöld 25. maí kl. 20 verður baráttufundur
leigjenda haldinn á Fosshótel Lind, Rauðar-
árstíg 18 (Rauða kross húsið).
Jón Rúnar Sveinsson, félagsfræðingur, ræðir
horfurá leigumarkaði.
Gunnar Ingi Gunnarsson, yfirlæknir, talar um
áhrif húsnæðisstefnunnar á heilsufar fólks.
Ávörp flytja: Magnús Norðdahl, fulltrúi ASÍ,
Ögmundur Jónasson, form. BSRB, Helgi Selj-
an, framkvstj. Öryrkjabandalagsins, Albert
Snorrason, form. Félags einstæðra foreldra,
Benedikt Davíðsson, form. Landssambands
eldri. borgara og Júlíus Valdimarsson, tals-
maður Húmanista.
Kaffihlé, tónlist og upplestur.
Kynnt verða og rædd drög að nýrri húsnæðis-
stefnu.
Stjórn Leigjendasamtakanna.
Fiskeldi Eyjafjarðar hf.
Aðalfundur
Fiskeldis Eyjafjarðar hf. verður haldinn á Foss-
hóteli KEA, Akureyri, föstudaginn 26. maí 2000
kl. 16.00.
Dagskrá:
★ Venjuleg aðalfundarstörf.
★ Tillögurtil breytinga á samþykktum félagsins.
★ Önnur mál.
PJÓNUSTA
Byggingameistarar/
verktakar
Eigum fyrirliggjandi á lager flestar stærðir af
tengijárnabökkum.
Básfell ehf., sími 567 3560.
HÚSNÆÐI í BQÐI
íbúð í Reykjavík til leigu
200 fm íbúð í hjarta Reykjavíkur til ieigu í
eitt ár eða lengurfrá 1. júní. Fyrirframgreiðsla.
Lysthafendur leggi inn nafn, símanúmer og
nánari upplýsingará auglýsingadeild Mbl.,
merkt: „Ibúð — 9534."
TILKYNNINGAR
Breytingar á Aðalskipulagi
Vestmannaeyja
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur samþykkt
tillögur að breytingu á Aðalskipulagi Vest-
mannaeyja 1988-2008.
Tillaga varðandi Ofanbyggjarasvæðið var aug-
lýst og lá frammi til kynningar á bæjarskrifstof-
um Vestmannaeyja og skrifstofu skipulags-
og byggingafulltrúa frá 9. febrúartil 8. mars
sl. Fresturtil að skila athugasemdum rann út
22. mars sl. og bárust engar athugasemdir.
Þar sem engar athugasemdir bárust við tillög-
una, hefur hún verið send Skipulagsstofnun
sem gerir tillögu til umhverfisráðherra um
lokaafgreiðslu tillögunnar.
Tillaga varðandi Skansinn var auglýst og lá
frammi til kynningar á bæjarskrifstofum Vest-
mannaeyja og skrifstofu skipulags- og bygg-
ingafulltrúa frá 8. mars til 5. apríl sl. Frestur
til að skila athugasemdum rann út 19. apríl sl.
og barst ein athugasemd. Bæjarstjórn hefur
afgreitt þessa athugasemd og sent þeim aðila,
er gerði athugasemd, umsögn sína. Athuga-
semd þessi gaf ekki tilefni til breytinga á tillög-
unni og hefur hún verið send Skipulagsstofn-
un, sem gerir tillögu til umhverfisráðherra um
lokaafgreiðslu tillögunnar.
Tillaga varðandi vatnstankinn í Löngulág var
auglýst og lá frammi til kynningar á bæjarskrif-
stofum Vestmannaeyja og skrifstofu skipulags-
og byggingafulltrúa frá 6. apríl til 27. apríl sl.
Fresturtil að skila athugasemdum rann út
27. apríl sl. og bárust fjórtán athugasemdir og
einn undirskriftalisti. Bæjarstjórn hefur afgreitt
þessar athugasemdir og sent þeim, sem gerðu
athugasemdir, umsögn sína. Áthugasemdir
gáfu ekki tilefni til breytinga á tillögunni og
hefur hún verið send umhverfisráðherra til
lokaafgreiðslu tillögunnar.
Þeir, sem óska nánari upplýsinga um tillögurn-
ar og niðurstöður bæjarstjórnar, geta snúið
sértil skipulags- og byggingafulltrúa Vest-
mannaeyja.
Bæjarstjóri Vestmannaeyja.
Tónlistarskóli
Garðabæjar
Skólaslit
Tónlistarskóla Garðabæjar verður slitið í Kirkj-
uhvoli föstudaginn 26. maí kl. 18.00.
Skólastjóri.
Með fullri reisn
Hæfnispróf fyrir leikritið Með fullri reisn fer
fram á Ægisgötu 7 fimmtudaginn 25. maí
kl. 20.00.
Allir áhugaleikarar eru velkomnir í prufu.
Gott skap skilyrði, söng- og danshæfileikar
ekki fyrirstaða. Upplýsingar í síma 898 1973
(Guðmundur) og 694 3222 (Eiríkur).
TIL SÖLU
Garðplöntusala
ísleifs Sumarliðasonar,
Bjarkarholti 2, Mosfellsbæ, auglýsir:
Rósir, runnarog gróöurskálaplöntur, stór lerki, stafa-
fura og bergfura frá Hallormsstað.
Tilboð: Hansarósir kr. 350, dvergfura kr. 690, einir
kr. 590, 30 stjúpur kr. 990.
Verðið gerist varla lægra. — Sími 566 7315.
Sumarbústaðir
á Suðurlandi
Upplagt fyrir félagasamtök, fyrirtæki,
stéttarfélög og einstaklinga.
Til sölu 5 sumarbústaðir á frábærum stað á
Suðurlandi, sem standa á 6 hektara eignarlandi
og er því möguleiki að byggja 5 sumarbústaði
til viðbótar. Þeir standa allir á fallegu landi sem
er ræktað með trjám. Fallegt útsýni er til allra
átta. Hægt að fá veiðirétt og hefur verið ágætis
veiði í ánni sem umlykur bústaðina. Bústaðirn-
ir eru allir með rafmagni, heitu og köldu vatni.
Stutt er í alla þjónustu, s.s. verslun, sund o.fl.
Þetta er u.þ.b. 1 klst. keyrsla frá Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar gefur ísak á fasteigna-
sölunni Valhöll, sími 588 4477 eða
GSM 897 4868.
Til sölu
10 tonna plastbátur. Rafmagn, tæki og vél allt
nýtt. Verð aðeins 7 millj. Upplýsingar í símum
893 4103 og 565 5930. Einnig ertil sölu á sama
stað Mazda pikkup-bíll.
Skartgripa-
og úraverslun
til sölu í Mosfellsbæ. Vaxandi velta.
Fyrirspurnir sendist í fax 552 7594, Fannar.
SMAAUGLYSINGAR
FÉLAGSLÍF
Föstudagur 26. maí kl. 20.00
Kvöldganga í Krísuvík
Austurengjahver — Eldborg.
Jeppadeild: Hítarvatn, veiðiferö
3.-4. júní.
Fölbreyttar hvítasunnuferðir
m.a. í Skaftafell.
Jónsmessunæturganga yfir
Fimmvörðuháls, 23.-25. júní.
Bókið strax.
Sjá heimasíðu: utivist.is.
Útivist - ferðafélag,
Hallveigarstíg 1,
101 Reykjavík,
sími 561 4330,
fax 561 4606.
http://www.utlvist.is.
Kl. 20.30 Lofgjörðarsam-
koma í umsjón Guðmundar
Guðjónssonar ásamt bræðrum.
Allir hjartanlega velkomnir.
] KFUM og KFUK,
' Aðalstöðvar við
V''i5eí'/ Holtaveg
Við vekjum athygli á samkomu í
Friðrikskapellu i kvöld kl. 20.30 á
fæðingardegi sr. Friðriks Frið-
rikssonar. Vígðir verða steindir
gluggar eftir Leif Breiðfjörð í
minningu um Árna Sigurjóns-
son.
Ræðumaður: Sigurbjörn Þork-
elsson, framkvæmdastjóri KFUM
og KFUK. Erla Björg og Rannveig
Káradætur, Ágústa Óskarsdóttir
og Guðrún Hafliðadóttir munu
syngja tvö lög.
Stjórnandi: Sr. Valgeir Ástráðs-
son.
Boðið verður upp á kaffi og rús-
ínur að lokinni samkomunni.
Allir velkomnir.
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag íslands
Sálarrannsóknar-
% félagið Sóló
- 1918-2000.
Garðastræti 8,
Reykjavík
Skyggnilýsingafundur í Nor-
ræna húsinu í kvöld
Elizabeth Hill, mjög virtur, og
áhugaverður breskur miðill,
starfar um þessar mundir hjá
SRFÍ. í kvöld, fimmtudags-
kvöld 25. maí kl. 20, verður
Elizabeth með skyggnilýsingarf-
und í Norræna húsinu. Miða-
verð kr. 1.000 fyrir félagsmenn
og kr. 1.500 fyrir aðra. Miðasala
við innganginn.
Allir eru velkomnir meðan hús-
rúm leyfir. Missið ekki af þessu
einstæða tækifæri.
SRFÍ.