Morgunblaðið - 25.05.2000, Page 70
70 FÍMMtUDÁGÍJR 25. MÁf2000
nM(jRGlJNDl.AÐÍÐ
Dýraglens
EGFÆEKKJTRJAt)
PVÍAb msÉUM
EKKIKOMNIR
LENGRA Á ÞRÓUNAR
BRAUTINNI!
■^ÍV^
Grettir
Ljóska
Mér þykir leiðinlegl að nefna það, Ef einhver skorar þrefalt, þá munu Sendu lágan bolta.
en ekki er gert ráð fyrir að önnur þeir troða á hausnum á þér.
höfn sé notuð sem koddi.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Bindindi
er orkugjafí
Frá Árna Helgasyni:
ÉG las fyrir nokkru þessar setning-
ar hafðar eftir forseta Bandaríkj-
anna: Enginn er sá stórglæpamaður
í allri sögu mannkynsins er fengið
hafi gegn sér slíkan fjölda vitna sem
methafi allra glæpa en það er áfeng-
ispúkinn. Og ætli þetta megi ekki
fullyrða enn. Þetta var talað í upp-
hafi síðustu aldar og ekki er betra
ástandið í dag. Við horfum daglega
yfir blóði drifnar slóðir eftir áfengis-
nautn sem er svo undanfari vímu-
efna, sem ekki voru til þegar fyiT-
greind ummæli voru höfð eftir.
Ég las líka grein Arnar Clausens
lögfræðings í Morgunblaðinu í vetur.
En þar segir hann: Ég hef kynnst
alls konar fólki á ferli mínum sem
lögfræðingur. Það verður að segjast
eins og er að í langflestum tilvikum
eru áfengisneysla og fikniefni þar
með í spilinu vegna afbrotamanna.
Þetta höfum við daglega fyrir aug-
um og allir tala um þennan vanda og
segjast vilja vinna gegn honum. En
alltaf er byrjað á öfugum enda, sem
verður svo hálfkák eitt. Það er ekki
unglingavandamál hvernig komið er,
heldur vandamál fullorðinna, sem
hægt væri að leysa með samstilltu
átaki ef fólk á annað borð vildi gera
það og vera þátttakandi í því. Við sjá-
um alltaf vaxandi vandræði af þess-
um fíkniefnum, eftir því sem slakað
er á takmörkum á sölu og dreifingu
þeirra. Valdamenn þjóðarinnar eru
alltaf að koma þessum efnum nær og
nær þegnunum með kjörorðinu að
frelsi þurfi að ríkja en engin boð og
bönn. Á sama tíma eni valdhafar að
setja lög um umferðarmál þar sem
bannaður er akstur sem valdið getur
dauðsfóllum, en þá er ekki minnst á
frelsi einstaklingsins til að ráða sjálf-
ir sínum akstri. Þessar hömlur eru
svo þverbrotnar og jafnvel áfengið
sem oft er með í för fær ekki sinn
rétta dóm þegar kemur að því að ölv-
aður maður er stöðvaður undir þess-
um vímuefnum. Ég hefi alltaf haldið
því fram að eina sem gildir í þessum
efnum er bindindi á áfengi og vímu-
efnin, en það vilja „frelsishetjurnar“
ekki skilja. En bindindið hefir verið
mér orkugjafi gegnum árin. Og því
er ég alveg steinhissa þegar áfengis-
og vímuvarnafulltrúi ríkisins lýsir
því yfir að hún sé ekki bindindismað-
ur! Hvernig getur slíkur aðili unnið á
móti skaðlegum efnum ef hún neytir
þeirra sjálf? Það þarf virkilega að
herða á lögunum um meðferð
áfengra drykkja og allra vímuefna
og jafnvel þótt talað sé um brot á
þeim má alls ekki slaka þar á, heldur
láta almenning finna íýrir því að með
þessum reglum er verið að varðveita
hann bæði í umferðinni og tjóni á sál
og líkama. Eina ráðið til að ráða nið-
urlögum áfengispúkans er að hinir
fullorðnu hætti að veita honum lið. I
upphafi ætlar enginn sér að verða
drykkjumaður. En þetta frelsi og all-
ar þessar gyllingar sem gróða-
hyggjumenn halda á lofti enda fyrir
alltof mörgum í helsi. Það fer ekki
milli mála. Góðtemplarar gerðu stór-
virki á sínum tíma í útrýmingu
áfengis. Á meðan Reglan var í önd-
vegi var ekki eins ljótt að litast um
og nú, en hún boðaði bindindi og
bræðralag. Ef fólkið vildi fylgja þeim
ráðum nú myndi birta yfir landi og
þjóð. En vill þjóðin mín það eða bölv-
un áfengisins og allrar vímu?
ÁRNIHELGASON,
Stykkishólmi.
Vistvænar
fískveiðar
Frá Sveini Þorsteinssyni:
UNDIRRITAÐUR vill gera það að
tillögu sinni til „ráðamanna" að ein-
göngu verði leyfðar fiskveiðar með
krókum ( þ.e. handfærum og línu) á
friðuðu svæði sem væri lokað fyrir
veiðum með dragnót, botnvörpu og
netum, frá Skagatá að vestan og að
Gjögri að austan og svo langt frá
landi sem sérfræðingar um fiskveið-
ar telji að hagkvæmt sé.
Allur fiskur sem veiddist á áður
nefndu hafsvæði yrði unninn á þeim
stöðum sem liggja innan þeirra land-
fræðilegu marka sem að ofan grein-
ir, t.d. Sauðárkróki, Hofsósi, Siglu-
firði, Ólafsfirði og svo á þeim stöðum
við Eyjafjörð sem hafa verið í fisk-
vinnslu.
Veitt verði samkvæmt sóknar-
marki, sem sett verði upp að tillögu
Hafrannsóknarstofnunar, með sam-
þykki Alþingis.
Hafsvæðið yrði sérstaklega
rannsakað í byrjun framkvæmdar og
þetta yrði sérstakt verkefni sem
Hafrannsóknarstofnun ynni að með
það að markmiði að kanna veiðiþol
þessa svæðis og viðgang. Einnig til
að styrkja byggð á þessu svæði sem
byggir afkomu sína svo mjög á fisk-
veiðum og vinnslu.
Taka þyrfti mið af áður úthlutuð-
um veiðiheimildum svo að þeir sem
nú eru með heimildir skaðist ekki um
of.
Allur fiskur veiddur á svæðinu
yrði merktur sem umhverfisvænt
veiddur á umbúðum og tekið fram að
hann sé veiddur á hreinu og ómeng-
uðu hafsvæði.
Með þessu móti tel ég að atvinnu-
leysi á ofangreindum stöðum heyrði
sögunni til og þær samgöngur sem
nú er til staðar og fyrirhugaðar eru
myndu nýtast til miðlunar hráefnis
ef þyrfti.
Ég er þess fullviss að fiskistofnar
víða við land eru vannýttir.
SVEINN ÞORSTEINSSON,
Hvanneyrarbraut 60, Siglufirði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga.
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.