Morgunblaðið - 25.05.2000, Qupperneq 79
MÖRGUNBLADÍf)
riMMTliDAGUll'ae. MAÍ í20(K) 79
MAGNAÐ
BÍÓ -
/í
McgRran
Diane Keaton
LisaKudnw
Vialter Mattiiau
Laiiftavcttl 94
.★★l
Fiöiskyldán er að stækka
★
★
TT 553 2075
I (XI Dolbý
■ DIOI rAL +
== = === STAFRÆNT
^T = = = HJÓeKffiR í
_== =_=• ðULUM SÖLUMI
ST/BUTIA TJMDB MBB
HX
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
SJÁIÐ ALLT UM HANGING UP á stjornubio.is
MYNDBÓND
Rólegur
Bond
Thomas Crown-ævintýrið
(The Thomas Crown Affair)
(Spennum.ynd)
★★
Leikstjóri: John McTieraan. Hand-
rit: Leslie Dixon og Kurt Wimmer.
á handriti Alan R. Trustman.
Aðalhlutverk: Pierce Brosnan,
Rene Russo og Denis Leary. (113
mín.) Bandaríkin, 1999. Skífan.
Öllum leyfð.
PIERCE Brosnan bregður sér
hér í gervi sem ekki er alls ósvipað
Bond-hlutverkinu en á dálítið lág-
stemmdari nótum.
I myndinni segir
frá auðmanninum,
lífskúnsternum og
Wall Street-hákarl-
inum Thomas
Crown sem þrátt
fyrir mikla vel-
gengni í starfi þráir
: aukna spennu í líf
sitt. Þess vegna
fremur hann kaldrifjað listaverkarán
sem er svo útsmogið að aðeins ein
manneskja kemst á sporið. Það er
tryggingarannsóknarkonan Banning
sem Rene Russo leikur. Það gæti
komið mörgum á óvart að hér er ekki
um spennumynd að ræða nema að
takmörkuðu leyti. Myndin snýst að
méstu um samband Brosnans og
Russo, en það byrjar sem eins konar
kattar- og músarleikur en verður
brátt mun innilegra, og líður myndin
nokkuð fyrir að leikstjóri hennar,
John McTieman sem er vanur has-
armyndaleikstjóri, höndlar tilftnn-
•ngar á mun stirðari hátt en byssu-
bardaga. Hinn fjallmyndarlegi
Brosnan gerir sitt besta til að halda
myndinni gangandi og það takmark-
aða afþreyingargildi sem hún hefur
er honum að þakka. Þess má að lok-
um geta að hér er á ferðinni endur-
gerð á samnefndri kvikmynd frá ár-
mu 1968, en þar voru Steve McQueen
og Fay Dunaway í aðalhlutverkum.
Heiða Jóhannsdóttir
Reuters
Meðlimir hljómsveitarinnar Smashing Pumkins
hafa gert upp hug sinn: hljómsveitin Ieggur upp
laupana á næstunni.
Smashing
Pumpkins öll
Hún vakti smábæ ti!
Julia
Rqbe)
g
_perts
,is ,
Byggt á sannsögulegum atbi
CayMaifWieWMM im
tm'mMxrnWimm
'^SSPHILiP yiSSDIA EO LACPMAK líi
P«3GAIL irm æ^JOhN HAfiDr CAÆA SAKTDS SKAIVSBS
■TOTfMBI MDtöSHW STASTSIB’
"TSOTSCMÍSH -
AiWfBSflLPCnH£-S-
Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.30.
www.laugarasbio.is
ÞÁ ER það ákveðið. Hljómsveitin
Smashing Pumpkins er að hætta og
söngvarinn Billy Corgan hefur því
sungið sitt síðasta í bili.
Sveitin starfaði í rúmlega áratug
en ferill hennar hefur að mörgu leyti
verið þymum stráður. Tónlistin féll
vissulega í kramið hjá mörgum en
samstarfsörðugleikar innan sveitar-
innar og eiturlyfjaneysla markaði
djúp spor í sögu hennar.
Það var síðan í gær að Corgan gaf
út þá yfirlýsingu í útvarpsþætti á
rokkstöðinni KROQ að dagar
Smashing Pumpkins væru taldir.
Sumir vilja meina að aðrir meðlimir
sveitarinnar hafi ekki samþykkt yf-
irlýsinguna en Corgan þvertekur
fyrir það og segir alla hafa vitað að
platan Machina: The Machines of
God yrði sú síðasta.
„Það er allt í góðu á milli okkar í
sveitinni,“ sagði Corgan, „en tónlist-
armenningin hefur þróast á þann
veg að það er erfitt að halda áfram
að berjast við Britney [Spears] og
félaga.“
Corgan bætti þó við að verið gæti
að hljómsveitin legði upp í tónleika-
ferð um Bandaríkin í kveðjuskyni.
Þá er þess einnig að vænta að gefið
verði út efni sem ekki komst á síð-
ustu plötu.
„Það er þungu fargi af mér létt.
Mér finnst eins og ég hafi gengið um
með undarlegt leyndarmál innra
með mér. Ég held að djúpt undir
niðri hafi aðdáendur okkar vitað að
endalokin voru að nálgast."
Á ýmsu
hefur gengið
HJjómsveitin Smashing Pumpkins
var stofnuð árið 1989 af þeim Corgan
og D’Arcy Wretzky, bassaleikara
sveitarinnar. Fljótlega bættist gítar-
leikarinn James Iha og trommuleik-
arinn Jimmy Chamberlin við og í
kjölfarið gaf hljómsveitin út plötuna
Gish árið 1991.
Árið 1993 kom síðan út platan
Siamese Dream og hljómsveitin var
orðin ein af vinsælustu rokksveitum
samtímans. Ári síðar kom Pisces
Iscariot í verslanir og árið 1995 vin-
sælasta plata sveitarinnar til þessa,
Mellon Collie and the Infinite Sad-
ness. En ýmis vandamál fóru þá að
koma upp á yfirborðið, eiturlyfja-
neysla dró hljómborðsleikarann
Jonathan Melvoin til dauða og stuttu
síðar var Chamberlin rekinn úr
sveitinni en hann átti einnig við eit-
uriyfjavandamál að etja.
Þá hafa lögfræðingar ýmissa aðila
verið iðnir við að höfða mál gegn
sveitinni nú síðast vegna myndbands
sem sagt er vera stolið. Bassaleikar-
inn Wretzky hætti í sveitinni á tíma-
bili en var lögsótt vegna gruns um að
hafa eiturlyf í fórum sínum. Ilún hef-
ur nú verið sýknuð af þeirri ákæru.
Nýdönsk og KK hita
upp fyrir Sir Elton
NÚ ER komið á hreint
að hljómsveitin
Nýdönsk kemur saman
og hitar upp fyrir Sir
Elton John á Laugar-
dalsvellinum 1. júní.
Ekki nóg með það held-
ur ætlar KK að stíga á
svið með þeim piltum í
Nýdönsk sem sérstakur
gestur sveitarinnar í til-
eftii að hinum stóra við-
burði. Guðrún Krist-
jánsdóttir, einn
aðstandandi tónleik-
anna, segir það mikið
gleðiefni að tekist hafi
að fá svo vel metna og
vinsæla íslenska tónlist-
armenn til að vera með
og segist viss um að
með þessari kærkomnu
viðbót verði merkur
viðburður emi merkari.
Aðspurð hvers vegna
Nýdönsk varð fyrir valinu segir
Guðrún að sú sveit höfði einfald-
Iega sterkt til þess áhorfendahóps
sem mestan áhuga virðist hafa á
tónleikunum sem só fólk á al-
drinum tuttugu og fimm til fimm-
tugs: „Við teljum jafnframt að tón-
Ieikarnir höfði til fleira fólks með
Nýdönsk og KK innanborðs. Þar á
meðal karlmanna á miðjuni þrí-
tugsaldrinuni sem hafa kannski
hingað til verið tregir að viður-
kenna að þá langi til að sjá Elton en
hafa nú loksins fengið ástæðu og
afsökun."
Dagskrá tónlcikanna er því orðin
Daníel Ágúst verður fjarri góðu gamni á
Laugardalsvellinum 1. júní en í hans stað
spilar KK með drengjunum í Ný dönsk.
Ijós. Hlið Laugardalsvallarins verð-
ur opnað kl. sex og munu Nýdönsk
og KK stíga á sviðið um sjöleytið.
Upp úr átta mun síðan sjálfur Sir
Elton hefja leikinn en hann hefur,
að sögn Guðrúnar, í hyggju að spila
tveggja tíma dagskrá.
Guðrún segir miðasöluna annars
ganga ágætlega: „Hún færist í auk-
ana dag frá degi og ég held að vín-
veitingaleyfíð hafi haft töluverð
áhrif þar á.“ Síðast þegar Guðrún
vissi voru seldir upp undir fimm '
þúsund miðar en hún benti á að sú
tala kynni að hafa hækkað eitt-
hvað.
HÍlSÍíI
fej ■IDIINM l»l
V Ninth Gai
Forsýnd Id. 10.
fjiTfi\
SýndH. 6.8og10.Vi| nr. 83
Sýnd kl. 6. Vit nr. 56. B.i 12. Síð. sýningar.
Sýnd kf. 8. Vit nr. 85