Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ingibjörg Svala Jónsdóttir hlaut styrk úr afmælissjóði Svíakonungs Rannsakar viðbrögð plantna við loftslags- breytingum Morgunblaðið/Þorkell Ingibjörg Svala Jónsdóttir dósent í plöntulíffræði við Háskólann í Gautaborg ásamt fjölskyldunni, syninum Jóni Bjarna Ólafssyni, eigin- manninum Ólafi Ingólfssyni jarðfræðingi og Ingólfi Ólafssyni en Ingi- björg Svala hlaut nýlega styrk til rannsókna úr afmælissjóði Svíakon- ungs. Fjölskyldan er á leið til Svalbarða en þar taka þau hjónin við prófessorsstöðum við norska háskólastofnun. INGIBJÖRG Svala Jónsdóttir, dósent í plöntulíffræði við Há- skólann í Gautaborg, hlaut ný- lega styrk úr afmælissjóði Karls Gústafs Svíakonungs, sem stofn- aður var í tilefni 50 ára afmælis konungsins í þeim tilgangi að styrkja rannsóknir í umhverfis- fræðum. „Þetta var mjög óvænt,“ sagði Ingibjörg Svala. „Ég vissi ekkert af þessu fyrr en ég fékk bréf með boði um að koma i konungs- höllina 9. júní og taka þar við 90 þúsund krónum (um 750 þús. ísl.). Það er ekki hægt að sækja um styrki úr sjóðnum heldur er það stjórn sjóðsins sem ákveður hver er styrktur hverju sinni.“ Ingibjörg fékk styrkinn til að rannsaka hvernig fjalla- og heimskautaplöntur bregðast við loftslagsbreytingum en það er rannsókn sem hún hefur unnið að undanfarin ár í Norður-Svíþjóð og á íslandi ásamt Borgþóri Magnússyni hjá Rannsóknastofu Iandbúnaðarins. Rannsóknin hér á Iandi hefur verið styrkt af Vís- indasjóði og Landsvirkjun, sem veitir aðstöðu við Blönduvirkjun og auðveldar mjög þann hiuta rannsóknarinnar sem fram fer á Auðkúluheiði. Engar kvartanir vegna sela ENGAR kvartanir hafa borist Dýraverndarráði vegna aðstöðunn- ar sem selirnir sjö hafa í Húsdýra- garðinum. Dýravemdarráð heim- sótti Húsdýragarðinn í desember sl. og þá voru fimm selir í garðin- um en nú eru þeir sjö. I frétt Morgunblaðsins í gær kemur fram að formaður Dýraverndunarfélags Reykjavíkur telur þá vera of marga en dýrahirðir garðsins seg- ir þá hafa nægt pláss. „Þeir virtust una sér vel þegar við vorum þarna en reyndar orðaði einn nefndarmanna það að sér fyndist vera nokkur þrengsli," sagði Elín Jóhannsdóttir formaður Dýraverndarráðs. „Okkur hafa ekki borist neinar kvartanir eða athugasemdir vegna þeirra en við erum umsagnaraðilar." Sagði hún að það væri í höndum lögreglustjóra og heilbrigðiseftir- litsins að grípa til aðgerða. „Við vorum mjög ánægð með að- stæður, aðbúnað og umhirðu þegar við fórum á vettvang," sagði Elín. „Mér finnst þetta starf í Húsdýra- garðinum til fyrirmyndar. Berist kvartanir er það héraðsdýralæknis að kanna aðstæður." ----------------- Þrír mikið slasaðir ÞRÍR menn sem lentu í umferðar- slysi á Suðuriandsvegi austan Hellu á miðvikudag liggja þungt haldnir á gjörgæsludeildum Landsspítalans í Fossvogi og Hringbraut. Að sögn svæfingarlæknis eru þeir sem liggja á sjúkrahúsinu í Fossvogi alvarlega slasaðir og er öðrum haldið sofandi í öndunarvél. Ails voru fimm fluttir á sjúkrahús eftir áreksturinn en tveir þeirra eru minna slasaðir en hinir. „Þessi rannsókn er hluti af al- þjóðlegri rannsókn og heldur Borgþór um hana hér á landi og auðveldar það rannsóknina þegar maður er ekki sjálfur við,“ sagði Ingibjörg. „Við erum einnig með talsvert umfangsmikla rannsókn í fjöllum Norður-Svíþjóðar og ber- um saman viðbrögð plantna á Is- landi og þar við mismunandi um- hverfisaðstæður. Við setjum upp opin skýli úr plexigleri sem hleypir að birtu og veldur því jafnframt að hitastigið hækkar inni í skýlinu um 1-3°C allt eftir veðurfari.“ Ingibjörg Svala sagði að þessi alþjóðlega tilraun hefði staðið yf- ir frá 3-6 árum og að mesti mun- urinn á þroska plantnanna hafi komið fram í byrjun. „Þær blómgast fyrr og vöxtur hefst fyrr í skýlunum," sagði hún. „Þau viðbrögð eru mjög snögg og greinileg og hafa verið birtar al- þjóðlegar greinar sem greina frá öllum svæðunum sem eru með í' rannsókninni." Áhugavert stig Sagði hún að rannsóknin væri að komast á mjög áhugavert stig. „Núna er að koma í ljós mismun- ur á samspili milli plantnanna í skýlunum," sagði hún. „Það tekur mun lengri tíma að meta þessi áhrif og fá fram og því er margt spennandi að gerast en á sama tíma stöndum við frammi fyrir því að erfitt er að fá fé til að halda rannsókninni áfram. Vandamálið er að þeir sem styrkja rannsóknir styrkja þær gjarnan í 3-4 ár en vilja síðan styrkja ný verkefni. Það hefur gengið mjög erfiðlega að fá þá til að skilja hvað langtíma rannsókn- ir eru nauðsynlegar. Það er erfitt að byggja framtíðarspá á þroska- viðbrögðum. Við verðum að sjá næsta stig og hvaða áhrif hita- stigshækkun hefur á það hvaða plöntur taka yfir og hverjar verða undir. Þess vegna kemur sænski styrkurinn sér sérstaklega vel.“ ingargott og myndi falla vel inn í aðra byggð á staðnum. Grindavíkurbær hafði frum- kvæði að samstarfinu Grindavíkurbær átti frumkvæði að samstarfí sveitarfélagsins og rík- isins. Húsnæðið er tvískipt, en ann- ars vegar er um að ræða sambýli og hins vegar leiguíbúðir fyrir fatlaða einstaklinga. SMFR mun leigja af rekstrarfélagi bæjarins þann hluta Telja iðgjalda- hækkanir óþarfar JÓN Magnússon, varafor- maður Neytendasamtakanna, sagði enga þörf á því að hækka iðgjöld á lögboðnum ökutækjatryggingum á blaða- mannafundi í gær. Þar vitnaði hann í greinargerð Fjármála- eftirlitsins frá því í fyrra, en þá voru hækkanir á lögboðn- um ökutækjatryggingum 25- 39%. Þar af var 25-28% hækkun vegna áhrifa skaða- bótalaganna og 3-13% vegna leiðréttinga á iðgjöldum vegna samkeppni frá erlend- um aðila. Jón sagði jafnframt að tjónaskuld vegna ökutækja- trygginga væri ofmetin hjá vátryggingafélögunum og því væri eingöngu um bókhalds- legt tap að ræða en ekki raunverulegt, samkvæmt greinargerðinni. „Vátrygg- ingafélögin lækkuðu iðgjöld sín þegar Ibex Motors and Lloyd kom inn á markaðinn eða svonefnd FÍB trygging,“ sagði Jón og að sögn hans lækkuðu vátryggingafélögin iðgjöld sín til þess að drepa samkeppnina og að nú væru neytendur að borga þann her- kostnað. Hann skoraði svo á stjórnvöld að gæta hagsmuna neytenda í þessu máli vegna þess að um lögboðnar trygg- ingar væri að ræða sem bif- reiðaeigendum er skylt að taka. Samið um byggingn fyrir fatlaða í Grindavík PÁLL Pétursson félagsmálaráð- herra undirritaði í gær samning um byggingu og rekstur sambýlis og leiguíbúða fyrir fatlaða í Grindavík, ásamt Þór Þórarinssyni, fram- kvæmdastjóra Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Reykjanesi (SMFR), og Einari Njálssyni, bæjar- stjóra Grindavíkurbæjar. Grindavíkurbær mun stofna einkahlutafélag sem sjá mun um byggingu og rekstur hússins, en ráð- gerður kostnaður hefur ekki verið gefinn upp. Stefnt er að því að bygg- ingin, sem hýsa mun sex fatlaða ein- staklinga, verði tilbúin til notkunar í byijun næsta árs. Ný slóð fetuð Páll Pétursson sagðist við undir- skriftina vera mjög ánægður með samningsgerðina. „Hér er verið að feta nýja slóð, sem ég tel að muni reynast gæfusamleg. Með samningnum er leitast við að bæta úr mjög brýnni þörf í Grindavíkurbæ, en biðlistar eru þónokkrir á þessu svæði,“ sagði hann. Hann sagði einn- ig að vilji stæði til að fleiri slík skref yrðu stigin annars staðar á landinu. Þór Þórarinsson, framkvæmda- stjóri SMFR, sagði að með samning- num væri brotið blað í samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Hann talaði um lífs- gæði og sagði að þau mætti flokka í þrennt. í fyrsta lagi væri hinn efnis- legi þáttur, þ.e. hvernig híbýli hinum fötluðu væri boðið upp á. í öðru lagi væri það þáttur í lífsgæðum þeirra að þeir treystu sér tiþ fullrar þátt- töku í samfélaginu. í þriðja lagi nefndi hann tækifæri til að eiga sam- skipti við aðra á heimilinu. Lögð væri miidl áhersla á að þessir þrír þættir væru í lagi. Einar Njálsson, bæjarstjóri Morgunblaðið/Jón Svavarsson Einar Njálsson, bæjarsljóri Grindavíkur, tekur í höndina á félagsmálaráðherra, Páli Péturssyni. Þór Þórarins- son, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Reykjanesi, er til hægri á myndinni. Grindavíkur, sagði að það hefði lengi verið baráttumál að búa betur að fötluðum í bænum. „Grindavíkurbær ákvað að stofna sérstakt félag um rekstur og byggingu sambýlisins. Byggingin verður fjármögnuð að hluta með láni frá íbúðalánasjóði og að hluta með framlagi úr Byggingar- sjóði fatlaðra. Það sem upp á vantar, um 20%, er framlag Grindavíkur- bæjar,“ sagði hann. Hann sagði að stefnt væri að því að húsið yrði end- sem ætlaður er undir sameiginlegt rými, auk þess að borga starfsfólki laun. Grindavíkurbær og SMFR munu svo í sameiningu leigja út íbúð- ir til fatlaðra einstaklinga. Félags- þjónusta Grindavíkurbæjar mun veita íbúum þjónustu samkvæmt lögum um málefni fatlaðra. Húsið verður byggt á lóð við Tún- götu 15-17 í Grindavík. Lóðin er í íbúðahverfi, miðsvæðis í bænum þar sem stutt er í alla þjónustu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.