Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000 59 FÓLK í FRÉTTUM Nemendur Versló dansa og syngja í gamanleiknum Þriller. Þriller aftur í Loftkastalanum Hljómsveitin Land og synir er í hópi þeirra sveita sem skemmtir gestum Kringlunnar á morgun. Svona er sumarið komin út Stutt Blekking- ar hugans ► DRAUGAR hafa ekkert með yf- irnáttúrulega hæfileika að gera heldur eru þeir afleiðing heila- skemmda samkvæmt svissneskum visindamönnum. Slíkar sýnir má líkja við þá til- finningu að hafa enn útlim sem vantar, að sögn taugasérfræðings- ins Peter Brugger sem starfar við Háskólann í Zurich. Sumt fólk sér sjálft sig líkt og spegilmynd en það gæti verið af- leiðing skemmda á því svæði í heilanum sem tekur við myndum frá augunum. „Þegar fólki finnst það fara út úr líkama sínum og sjá sjálft sig gæti það verið afleiðing ofvirkni ákveðinna svæða í heilanum,“ sagði hann. Þá geta stöðvar í heil- anum sem eiga að aðskilja lík- amann frá umhverfinu verið skemmdar í viðkomandi einstak- lingi. Fundu fíngur ►LÖGREGLA er rannsakði rán á Spáni fann ekki eingöngu fingraför innbrotsþjófsins á staðnum heldur einn fingur hans. Maðurinn hafði misst fingurinn er hann reyndi að stela verkfærum á trésmíðaverk- stæði einu í borginni Alicante í síð- ustu viku. Honum tókst ekki að stöðva blæðingarnar og þurfti því að leita læknisaðstoðar. Lögreglan átti því ekki í miklum erfiðleikum með að hafa uppi á manninum og var hann handtekinn á sjúkrahúsi í næsta nágrenni verkstæðisins. • • Oruggur fyrir eggjum ► ÖRYGGISVERÐIR forsetans í Brasilíu hafa komist að því að til þess að fá ekki egg í andlitið frá reiðum and- stæðingum sínum verður forsetinn að standa í 180 feta fjarlægð. Öryggisverðirnir voru í margar vikur að rann- saka nákvæm- lega hve langt, frá eggjakastara forsetinn þyrfti að standa til að komast hjá því að fá eggið í sig. Niðurstöður rannsóknarinnar •eiddu í ljós að forsetinn væri ör- uggur í 150-180 feta fjarlægð jafnvel þótt um vanan eggjakast- ara væri að ræða. Ráðist var í rannsóknina eftir að margir af æðstu stjórnmálainönnum landsins höfðu orðið fyrir barðinu á eggja- kösturum á undanfornum mánuð- um. Dansað við dauðann ►JACKSON Montero hafði gaman uf því að dansa og stúlkurnar sem hann dansaði við hrósuðu honum í hástert fyrir tilþrifin. En hæfileik- ar hans á dansgólfinu kostuðu hann lífið þegar tveir skólabræður hans í Venesúela töldu hann vera ; orðinn of vinsælan fyrir sinn smekk. Montero, sem var aðeins 15 ára, var því skotinn fimm sinnum af tveimur unglingspiltum í borg- inni Valencia eftir veislu þar sem honum tókst að töfra stúlkurnar með nýjum danssporum. „Svo virð- ist sem hann hafi notið of mikillar kvenhylli," sagði talsmaður lög- reglunnar. Hinir grunuðu eru á flótta undan lögreglu en eru taldir I hafa öfundað Montero af danshæfi- ’ leikunum og því ákveðið að skjóta 1 hann. í KVÖLD kveðja nemendur Versl- unarskóla íslands sér hljóðs í Loft- kastalanum og synga og dansa í takt við lög Michaels Jacksons í gaman- leiknum Þriller. Nemendafélag Verslunarskólans stóð í vetur fyrir sýningum á gamansöngleiknum Þriller sem er eftir Gunnar Helga- son sem jafnfram leikstýrir sýning- KVIKMYNDIN The Perfect Storm vakti stormandi lukku í kvikmynda- húsum vestanhafs um helgina og fór beint á topp kvikmyndalistans. Hún er önnur stærsta opnun þessa árs og þriðja aðsóknarmesta myndin sem frumsýnd hefur verið um þjóðhátíð- arhelgi í Bandaríkjunum til þessa. Myndin hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda og einnig Sebastians Junger, mannsins er skrifaði hina sannsögulegu bók sem myndin er byggð á. Segist hann sérstaklega hrifinn af Mark Walhberg sem leikur einn sjómanninn úr áhöfninni sem lendir í sjávarháska. unni. Aðsóknin var góð og því var ákveðið að hafa aukasýningar nú í sumar. Þriller er gamanleikur með söngv- um og dönsum byggður á lögum Michaels Jacksons og samdi Hall- grímur Helgason rithöfundur ís- lenska texta við lögin. Tónlistar- stjóri sýningarinnar er Jón Ólafsson. „Wahlberg er mjög sannfærandi sjómaður," sagði Junger. „George Clooney er of myndarlegur til að vera sannfærandi," segir hann hlæj- andi um mótleikara Wahlbergs. The Perfect Storm á að gerast úti á reginhafi í október árið 1991 þegar mikið fárviðri gekk yfir norðarvert Atlantshafið og margir sjómenn lentu í lífshættu. Það var heldur eng- inn hægðarleikur fyrir Wahlberg að halda sér um borð í bátnum þótt öldugangurinn hafi verið tilbúinn. Meðan á tökum stóð þurfti hann að ganga í gegnum hverja þolraunina á fætur annarri, meðal annars glímdi Á MORGUN kl. 14 verður mikil gleði fyrir utan veitingastaðinn Hard Rock í Kringlunni. Nokkrar af vinsælustu hljómsveitum landsins verða þar saman komnar og taka lagið íyrir gesti og gangandi. Þetta eru einnig sömu sveitir og munu skemmta landsmönnum öllum í' sum- ar á sveitaböllum úti um borg og bý. Tónleikamir em haldnir í tilefni af útgáfú Skífunnar á safhplötunni hvað það var sem kom upp úr mér.“ Leikstjóri myndarinnar, Wolfgang Petersen, heldur því fram að Wahl- berg geti sjálfum sér um kennt. „Mark tók hlutverk sitt mjög alvar- lega og reyndi eftir fremstu getu að setja sig í spor sjómanna. Hann eyddi miklum tíma á kránni með fé- lögunum og reykti tvo pakka á dag. Hann var því ekki í fullu fjöri í sjó- ferðinni." En verst af öllu hlýtur að hafa ver- ið hákarlaárásin. Reyndar var það ekki alvöru hákarl en hann gerði engu að síður atlögu að Wahlberg. „Hann beit sig fastan við fótinn á mér og vildi ekki sleppa takinu,“ rifj- ar Wahlberg brosandi upp. Gervi- tennurnar í honum voru eins og rak- vélarblöð og sá sem var að stjóma dýrinu var um borð í öðrujn báti og sá ekki hvað var að gerast. Ég byijaði á því að setja fótinn í kjaftinn á kvik- indinu áður en það var sett í gang og síðan þegar kveikt var á því klemmdi það skoltinum saman og ég æpti upp yfir mig. Þeir voru mjög ánægðir „Svona er Sumarið 2000“. Sex hljómsveitir koma fram og hefur sveitin Á móti sól leikinn. Þá tekur írafár við og í kjölfarið fylgja Butt- ercup, Skítamórall, Land&synir og Greifamir munu siðan reka lestina en dagskránni verður lokið um 18. Vífilfell, Emmessís og kokkar Hard Rock Café sjá um léttar veit- ingar svo sem flest skynfæri gesta verði virkjuð. Three Kings og enn og aftur munu þeir sjást saman á hvíta tjaldinu í mynd leikstjórans Stevens Soder- bergh, Ocean’s Eleven. „Alla langar að vinna með Steven Soderbergh," segir Wahlberg um myndina, sem er endurgerð á eldri mynd. Auk hans munu Brad Pitt, Julia Roberts og Bill Murray fara með stór hlutverk. Með því að fá hlut- verk í þeirri mynd segja margir að Wahlberg sé formlega kominn á kortið í Hollyv'ood. „Þegar ég h't til baka finnst mér ótrúlegt að éjg hafi náð þangað sem ég er í dag. Eg tók alltaf eitt verkefni í einu og vonaði að það kæmi mér einu skrefi nær tak- markinu. Ég freistaði þess aldrei að sigra heiminn á einni nóttu.“ Þessi speki hefur svo sannarlega orðið Wahlberg til góðs og er hann kominn í hóp eftirsóttustu og virt- ustu leikara af yngri kynslóðinni í Hollywood. Kvikmyndin The Perfect Storm verður frumsýnd hér á landi 11. ágúst í Sam-bíóunum. Nœturgadtin simi 587 6080 I kvöld leikur hljómsveitin Hafrót. Frítt inn til 23.30. Næturgalinn, alitaf lifandi danstónlist. Grandrokk Smiðjustíg 6 Svasil á Grandrokk hipmsveit íslands leikur afró-fönk fyrir ólgandi dansi, föstudags- og laugardagskvöld. Ókeypis aðgangur - ódýrar veitingar Grandrokk - þar sem hjartað slær The Perfect Storm er að gera þad gott í myndinni The Perfect Storm segir frá sjómönnum sem lenda í sjávar- háska. Mark Wahlberg í hlutverki sínu. Æpandií hákarlskjafti hann við sjóveiki og hákarlaárás! „Tökur stóðu yfir í 113 daga og ég var blautur í 85 daga af þeim,“ segir Wahlberg. „Atriðin sem ég var þurr í tók hálftíma að kvikmynda en síðan var ég svamlandi í tankinum [sem notaður var við tökur] í hálft ár. Mér var svo sem sama um að vera blautur en vatnið var ískalt og mikill öldu- gangur var gerður í tankinum til að ná fram sem raunverulegustu um- hverfi." Wahlberg segist hafa verið sjó- veikur mestallan tímann sem hann var um borð í bátnum. „Ég fékk matareitrun og ældi örugglega fimm- tíu sinnum þangað til ég vissi ekki með þessi tilþrif og grunaði ekki að um raunveruleg viðbrögð hafði verið að ræða. Ég leit á þá í þjósti og sagði að fjandans kvikindið væri að slíta af mér fótinn!“ Kominn í hóp þeirra vinsælustu Það var George Clooney sem ráð- lagði aðstandendum myndarinnar að ráða Wahlberg eftir að leikarar á borð við Ben Affleck og Matt Damon höfðu komið í prufur. Wahlberg hefúr mikið álit á vini sínum Clooney enda eru þeir miklir félagar utan vinnunnar. Þeir léku áður saman í myndinni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.