Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Veðurklúbburinn á Dalvík gefur út nýja spá Hlýr en jafnvel vætusam- ur júlí Dalvfk. Morgunblaðið. VEÐURKLÚBBURINN á Dalvík hefur sent frá sér spá fyrir júlímán- uð. í spánni telja meðlimir klúbbs- ins að júlí verði gðður og vilja sér- staklega nefna að gott veður er ekki bara sól og sæla; hlýtt, rólegt og vætusamt veður með góðum þurrki á réttum tíma geti t.d. verið gott fyrir bændur. Júlí verður að sögn þeirra hlýrri en júní en jafnframt vætusamari, en það verði að teljast gott vegna þess hve síðasti mánuður var þurr. Tvö tungl kvikna í júlí. Það fyrra kviknaði 1. júlí í vestri, tók hann tunglinu mjög vel og vona þeir Veð- urklúbbsmcnn að það endist út mánuðinn. Ef veðrið breytist hins vegar hinn 13. júlí, við upphaf hundadaga, er óvíst hvert fram- haldið verður. Ef það helst hins Morgunblaðið/fgígja Þau Kolfinna, Arey og Stefán Þór una sér vel í sólinni sem skinið hefur óspart á Dalvík í sumar. vegar gott er von á góðu sumri fram yfir 20. ágúst. Veðurklúbburinn telur að vætu- samara verði seinni hluta mánaðar- ins. Þar sem hundadagarnir í ár hefjast á Margrétarmessu, getur það boðað vott haust. Aðrir vilja hins vegar meina að veðrið á Ja- kobsmessu, 25. júli, skipti mestu máli. Ef er þurrt þann daginn þá verður góð nýting á heyjum. Ef sólskin er allan daginn þá verður vetur harður og kaldur, en ef rignir verður veturinn mildur. Fyrrverandi dagvistarfulltrúi stefnir Akureyrarbæ Krefst tæpra sex milljúna vegna launamisréttis FYRRVERANDI deildarstjóri dagvistardeildar Akureyrarbæjar, Ingibjörg Eyfells, hefur stefnt Ak- ureyrarbæ til greiðslu á tæpum sex milljónum króna vegna launamis- réttis. Ingibjörg hafði áður kært Akureyrarbæ til kærunefndar jafn- réttismála, sem komst að þeirri nið- urstöðu að Akureyrarbær hefði brotið jafnréttislög við launaákvarð- anir sínar. Ingibjörg fer nú fram á að henni verði bættur launamismun- ur auk skaðabóta vegna þeirra óþæginda og hneisu sem hún hafi orðið fyrir, eins og segir í stefnu. Forsaga málsins er sú að Ingi- björg gegndi starfi deildarstjóra dagvistardeildar Akureyrarbæjar frá 1. maí 1991 til september 1997. Starfsheitið deildarstjóri dagvistar- deildar breyttist árið 1992 í deildar- stjóra leikskóladeildar. Fjölskylduhátíð með nýju sniði er fyrirhuguð um verslunarmannahelgina Á FUNDI Miðbæjarsamtakanna á Akureyri með Kristjáni Þór Júlíus- syni bæjarstjóra og Þórarni B. Jónssyni, formanni íþrótta- og tómstundaráðs, kom það fram að Miðbæjarsamtökin hafa ákveðið að standa fyrir fjölskylduhátíð um verslunarmannahelgina. Akureyr- arbær hefur einnig gefið það út að bærinn muni koma að þeirri hátíð með einhverjum hætti. „Miðbæjarsamtökin munu standa fyrir fjölskylduhátíð með uppákom- um í miðbænum um verslunar- mannahelgina. Akureyrarbær mun Miðbæjarsamtökin vilja breytta ímynd koma að þessu með okkur í formi fjármagns og hafa sýnt mikinn vilja í því að styðja við okkur,“ sagði Ingþór Bjarnason, formaður Mið- bæjarsamtakanna. Hann sagði að nú myndu samtökin fara í það að leggja fram tillögur um fram- kvæmd þessarar skemmtunar, en mikilvægast sé að breyta ímynd hennar í hreinræktaða fjölskyldu- hátíð. .AUir eru sammála um þá hugarfarsbreytingu að gera þetta að fjölskylduhátíð frekar en ung- lingahátíð,“ sagði Ingþór. Að sögn Ingþórs munu Miðbæj- arsamtökin ekki nota „Halló“-nafn- ið, en eftir er að ákveða hvaða nafn verði notað í staðinn. „Við erum bjartsýn á framhaldið og ánægð með þann mikla vilja sem bærinn hefur sýnt á að taka þátt í þessu með okkur,“ sagði Ingþór. „Miðbæjarsamtökin tilkynntu okkur það á fundi í dag að þeir ætla að standa fyrir fjölskylduhátíð í miðbænum um verslunarmanna- helgina og Akureyrarbær mun koma að því með einhverjum hætti,“ sagði Þórarinn B. Jónsson. í stefnu segir að Ingibjörg hafi alltaf verið ósátt við kjör sín og fundist starf sitt vanmetið til launa, miðað við sambærilegar stöður hjá Akureyrarbæ. Einnig segir í stefnu að henni hafi verið ljóst að veruleg- ur munur væri á launakjörum henn- ar og annarra yfirmanna með sam- bærilega starfsábyrgð og umfang, bæði hvað varðaði laun, trygginga- kjör og bifreiðarstyrk. í desember 1997 skrifar Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leik- skólakennara, Jakobi Bjömssyni, þáverandi bæjarstjóra, bréf þar sem hún óskar eftir því að launamál Ingibjargar verði endurskoðuð. I febrúar 1997 voru laun stefnanda hækkuð um tvo launaflokka, aftur- virkt til október 1996. í stefnu segir að Ingibjörg hafi sótt um leiðrétt- ingu aftur til ársins 1992. Hún hafi óskað eftir skýringu á því hvers vegna þeirri kröfu var hafnað og ekki fengið. Hún sagði starfi sínu lausu 1. júlí 1997. Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri Akureyrarbæjar, vill ekki tjá sig um stefnuna. Hann sagði að bæjarlögmaður muni taka saman greinargerð iyrir bæjaryfirvöld og frekari afstaða til málsins verði lík- lega tekin i ágúst. Auglýsing um lausar byggingalóðir Umsóknareyðublöð, úthlutunarskilmálar og skipulags- og byggingaskilmálar liggja frammi á skrifstofu byggingafulltrúa og í upplýsingaanddyri bæjarskrifstofu að Geislagötu 9. Umsóknum skal skila á þessa staði fyrir 20. júlí nk. Eldri umsóknir skal endurnýja. Eftirtaldar lóðir eru lausar til umsóknar. EINBÝLISHÚS Bakkasíða 6 ein hæð Urðargil 2-8 ein hæð Bakkasíða 16 ein - ein og hálf hæð Valagil 2-14 tvær hæðir Borgarsíða 22 ein og hálf hæð Valagil 11-23 tvær hæðir Borgarsíða 23 hæð og ris Vesturgil 1-9 tvær hæðir Borgarsíða 29 hæð og ris Vesturgil 14-20 tvær hæðir Borgarsíða 39 ein og hálf til tvær Víkurgil 2-6 tvær hæðir Brekkusíða 6 ein hæð Stórholt 14 tvær hæðir Brekkusíða 8 ein hæð Miðteigur 8 tvær hæðir Brekkusíða 10 ein hæð Steinatröð hæð og ris (kjallara) Brekkusíða 16 hæð og ris RAÐHÚS - PARHÚS Valagil 1-9 tvær hæðir FJOLBYLISHUS Skessugil 7-11 tvær hæðir IÐNAÐAR- OG ÞJÓNUSTULÓÐIR UTAN MIÐBÆJARSVÆÐIS Kiðagil 1 Freyjunes 4 Óseyri 24 Sandgerðisbót Ósvör Þjónusta/verslun/6 íbúðir iðnaöur/þjónusta/ verslun lóð á hafnarsvæði verbúðir verbúðir BYGGINGAFULLTRUI AKUREYRARBÆJAR Guðsþjónusta í Laufási GUÐSÞJÓNUSTA verður í Laufáskirkju sunnudaginn 9. júlíkl.11. Samþykktar breytingar á tæknisviði Akureyrarbæjar valda óröa innan bæjarkerfísins Skipulagsstjóri og yfirverkfræðing’ur hafa sagt upp störfum ÁRNI Ólafsson, skipulagsstjóri Ak- ureyrarbæjar, og Guðmundur Guð- laugsson yfirverkfræðingur hafa sagt upp störfum en uppsagnir þeirra voru til umræðu á fundi bæj- arráðs í gær. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins tengjast uppsagn- irnar óánægju með fyrirhugaðar breytingar á tækni- og umhverfis- sviði bæjarins. Áður hafði Gunnar Jóhannesson yfirmaður hönnunar- og mælinga- deildar bæjarins sagt upp störfum vegna óánægju og þá hefur Morgun- blaðið heimildir fyrir því að unnið sé að því að gera starfslokasamninga við fleiri yfirmenn innan bæjarkerf- isins í kjölfar þessara breytinga. Guðmundur Guðlaugsson sagði að uppsögn sín væri persónulegs eðlis og vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið en hann hefur verið í starfi yf- irverkfræðings frá árinu 1977. Krist- ján Þór Júlíusson bæjarstjóri sagði að breytingar á tæknisviði bæjarins hafi verið til umræðu í rúman áratug en af einhverjum ástaeðum ekki komist í framkvæmd. í málefna- samningi núverandi meirihluta væru ákvæði um endurskipulagningu tæknisviðs og unnið væri að fram- kvæmd þeirrar samþykktar nú. Við afgreiðslu málsins í bæjar- stjórn fyrr á árinu var breytingin samþykkt með 10 samhljóða atkvæð- um og sagði Kristján Þór að það væri alveg ljóst að hún myndi koma til framkvæmda í kjölfarið. „Það er vissulega töluverð þekk- ing og reynsla að fara út úr bæjar- kerfinu með þessum mönnum og er nokkur eftirsjá í því. Við ráðum hins vegar ekki yfir ákvarðanatöku ein- staklinga og í breytingunum felast einnig tækifæri fyrir bæjarkerfið. Þarna verður hægt að byggja upp svið með nýjum stjórnendum í nýju kerfi.“ Bæjarstjóri sagði að við breyting- ar á félagssviðinu á sínum tíma hefði einnig orðið vart við ókyrrð meðal starfsfólks. Það hefði svo jafnað sig og hann sagðist ekki vita annað en að starfið á félagssviði gengi vel fyrir sigídag. Óöryggi fylgir breytingum „Það fylgir óöryggi öllum breyt- ingum sem og hreyfingu á fólki. Breytingum fylgir endurnýjun og hún er oftast holl hverjum þeim sem tekur þátt í henni. Þótt menn hafi skiptar skoðanir um málið tel ég að þessar breytingar séu lífsnauðsyn- legar fyrir bæjarkerfið. Innra skipu- lag þessa nýja sviðs er eftir og það hefst ekki fyrr en nýr sviðsstjóri, Ár- mann Jóhannesson, kemur til starfa í ágúst.“ Kristján Þór sagði að með þessum breytingum myndi deildarstjórum fækka um sex. Tæknisviðið hefur verið rekið með 8 sjálfstæðum deild- um, sem hver hafði sinn deildar- stjóra. Á tækni- og umhverfissviði verða aðeins tveir deildarstjórar, undir sviðsstjóra. Bæjai'ráð sam- þykkti á fundi sínum í gær að auglýsa deildarstjórastöðurnar laus- ar til umsóknar. Ekki náðist í Árna Ólafsson skipu- lagsstjóra. ------»-H------- Bókmennta- vaka BÓKMENNTAVAKA verður haldin í Deiglunni í kvöld, föstudagskvöldið 7. júlí, á vegum Listasumars. Bók- menntavakan nefnist „Skáldaþing" og fjallar um skáldin Heiðrek Guð- mundsson og Rósberg G. Snædal og verk þeirra. Umsjónarmenn vökunnar og les- arar eru Erlingur Sigurðarson, Jón Erlendsson, Sigurður Jónsson og Þröstur Ásmundsson. Bókmennta- vökur eru haldnar á hverju föstudagskvöldi í þær 10 vikur sem Listasumar 2000 stendur yfir. Að- gangur er ókeypis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.