Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Halldór Guðjón Magnússon fæddist á Selabóli í Önundarfirði 21. maí 1916. Hann lést á Landakotsspítala 29. júní siðastliðinn. Foreldrar hans voru Magnús Kristján Halldórsson, skip- stjóri, f. 9. desem- ber 1878 á Brekku á Ingjaldssandi, d. 26. ágúst 1923, og Guð- rún Guðbjartsdótt- ir, húsfreyja, f. 28. júní 1875 á ísafirði, d. 21. júnf 1938. Þau bjuggu lengst af á Flateyri. Hálfsystir Halldórs var Sigríður Þórðar- dóttir, f. 2. ágúst 1895, d. 22. október 1958, maki Finnbjörn Finnbjörnsson, f. 19. mars, 1892, d. 18. ágúst 1975. Alsystkini Hall- dórs voru: a) Sigríður Jenný Magnúsdóttir, f. 30. júlí 1909, d. 6. september 1978, maki Halldór Gfslason, f. 19. ágúst 1899, d. 7. desember 1999. b) Þórður Jóhann Magnússon, f. 24. september 1910, d. 15. nóvem- ber 1985, maki Anna Tryggvadóttir, f. 17. júní 1922. Hinn 20. aprfl 1946 kvæntist Halldór Fjólu Finnbogadótt- ur, húsmóður, f. 16. desember 1917 f Vestmannaeyjum, og bjuggu þau í Reykja- vík. Þau eignuðust fjögur börn: 1) Magn- ús Kristján Halldórs- son, f. 2. inaí 1947, kvæntur Kristínu Ólafsdóttur, f. 23. mars 1950. Börn þeirra eru Unn- ur Gyða, f. 1976, Ólafur, f. 1980, og Halldór Guðjón, f. 1984. 2) Jónfna Birna Halldórsdóttir, f. 4. júlí 1949. Sonur hennar er Hall- dór Guðjón Jónasson, f. 1967. 3) Finnbogi Halldórsson, f. 27. jan- úar, 1952, kvæntur Eyju Hall- dórsdóttur, f. 10. júní 1954. Dæt- ur þeirra eru: Fjóla, f. 1980 og Fanney, f. 1988. Áður hafði Eyja eignast Halldór Jón Sævarsson, f. 1971. 4) Þórður Guðjón Halldórs- son, f. 10. júlí 1955, kvæntur Karólfnu Gunnarsdóttur, f. 22. október 1958. Börn þeirra eru: Elma Rut, f. 1980, Gunnar Örn f. 1982 og Jakop Trausti, f. 1989; Halldór lærði málaraiðn á Isa- firði hjá Finnbirni Finnbjörns- syni mági sfnum. Að því loknu fluttist hann til Reykjavíkur og lauk verslunarprófi frá Verzlun- arskóla íslands. Um skeið starf- aði hann sem skrifstofumaður f Reykjavík en sneri sér sfðan að málningarvinnunni og varð meistari í þeirri iðn. Hann starf- aði mikið að félagsmálum, fyrst fyrir Málarasveinafélag Reykja- vfkur og sfðan Málarameistarafé- lag Reykjavíkur. Hann var gjald- keri þess til margra ára og framkvæmdastjóri frá árinu 1974 til 1989. Jafnframt þessum störf- um var hann einn af stofnendum Verktakafélags málarameistara og framkvæmdastjóri þess frá stofnun 1953 til ársins 1993. Hann var í stjórn Iðnaðarmanna- félags Reykjavíkur um áraraðir og átti sæti í iðnráði. Halldór var virkur meðlimur í Oddfellow- reglunni á íslandi og Kiwanis- hreyfingunni og var einn af stofnendum hennar hérlendis. titför Halldórs fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. HALLDÓR GUÐJÓN MAGNÚSSON Hann afi situr ekki lengur við skrif- borðið sitt og leggur kapal. Hann sit- ur líklegast á enn betri stað með spil- in sín, stað þar sem hann er aftur orðinn heilbrigður og líður vel. En þar til við hittum hann aftur huggum við okkur við dýrmætar minningam- ar um þær mörgu góðu stundir sem við áttum saman. Við systkinin vorum svo lánsöm að alast upp með ömmu og afa í næsta húsi. Til þeirra var alltaf hægt að leita, sama hvað á bjátaði. Afi lumaði ávallt á sælgætismola í náttborðs- skúífunni og í hanskahólfinu á bflnum sínum. Þeir voru allra meina bót. Við minnumst einnig allra hinna skemmtilegu ferðalaga, innanlands sem utan, þar sem afi og amma voru með í för. Ofarlega í huga eru ferðim- ar austur að Laugarvatni þar sem öll fjölskyldan, með afa og ömmu í broddi fylkingar, átti yndislegar stundir saman. Afi var félagsvera og mjög vina- margur. Við göntuðumst stundum með það að afi og amma djömmuðu meira heldur en við unga fólkið. Það var ekki ofsögum sagt því þau vom eftirsóttir félagar enda einstaklega skemmtileg og lífsglöð. Þrátt fyrir að afi hafi gleymt mörgu á undafömum ámm var það eitt sem aldrei leið honum úr minni. Það var hversu heitt hann elskaði hana ömmu. Þetta höfum við séð glöggt nú á undanfömum mánuðum þegar hann lagði sig allan fram við að að- stoða ömmu í veikindum sínum. Sama hversu veikur afi var, alltaf hafði hann rneiri áhyggjur af því hvemig ömmu liði og hvort hann gæti ekki að- stoðað hana á einhvem hátt, breitt yf- ir hana sængina, sótt vatnsglas eða einfaldlega smellt á hana kossi. Nú þegar afi er farinn yfir móðuna miklu er efst í huga okkar þakklæti fyrir þann yndislega tíma er við átt- um saman. Við kveðjum hann nú og biðjum góðan Guð að gæta hans. Elsku amma, sem ert svo sterk, megi Guð vera með þér og við vitum líka að afi vakir yfir þér þar til þið hittist á Unnur Gyða, Ólafur og Halldór Guðjón. Þegar ég að morgni 29. júní frétti að Halldór væri farinn í sína hinstu ferð, þá mnnu minningamar um liðna tíð hratt í gegnum huga minn. Ég átti því Iáni að fagna að kynnast Halldóri þegar hann kom á heimili foreldra minna á Sólvallagötu til að eyða kvöldinu í nærveru móðursystur minnar, hennar Fjólu, svo og annarra sem áttu heima þar á þessum tíma. Halldór var einstaklega bóngóður maður og gmnar mig að ég hafi notið þess oftar en ég man, t.d. þegar hann keyrði mig á dansæfingar hjá Sif Þórs í Þjóðleikhúsinu en þá hef ég orðið hvað mest bflhræddur á ævi minni þegar hann branaði niður Túngötuna á litla svarta bflnum, sennilega vegna þess hvað ég var seinn fyrir, en hann eflaust haft eitthvað annað á sinni könnu þegar hann var að skutla mér. Kvöldheimsóknum hans lauk með því að Fjóla og Halldór giftu sig og fór at- höfnin fram á heimili foreldra minna og man ég vel þá athöfn. Halldór og Fjóla hófu búskap sinn á Sólvallagötu 19 og var því áfram gott og mikið samband á milli heimila okkar. Árin liðu og samband okkar verður meira eftir því sem ámnum fjölgar. í Oddfellow-reglunni varð samband okkar nánara og það var síðan fyrir áeggjan Halldórs að ég varð stofnfélagi í fyrsta Kiwanis- klúbbnum hér á landi, Heklu, ásamt honum og fleiri góðum mönnum. Við hjónin og bömin okkar höfum notið þess að ferðast með þeim; innanlands sem utan, veiðiferða við Álftá og víð- ar. í öllum þessum ferðum var Hall- dór hinn ljúfi og skemmtilegi ferðafé- lagi, sem er ómissandi í hverri góðri ferð. Þegar skilnaðarstundin kemur, sem allir vita að er óumflýjanleg, SIGURÐUR HALLDÓRSSON + Sigurður Hall- dórsson fæddist á ísafirði 8. sept. 1920. Hann lést á deild 18 á Landspít- ala Kópavogs 1. júlí síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Svanfríðar Alberts- dóttur, f. 26.10. 1895, d. 20.6. 1966, og Halldórs Fr. Sig- urðssonar skip- stjóra, f. 26.1. 1880, d. 17.11. 1960. Systkini Sigurðar voru: Anna, f. 18.8. 1913, d. 27.4 1978; Jónína Kat- rín, f. 15.8. 1915, d. 27.4. 1935; Guðjón, f. 18.8. 1917, d. 2.10. „Varðveit hjarta þitt framar öllu öðm því að þar era uppsprettur lífs- ins.“ (Salómon.) Þessi orðskviður kom mér í hug er ég settist niður til þess að minnast okkar elskulega bróður og ástvinar, hans Sigga. Siggi bróðir veiktist ungur drengur og varð að dvelja fjarri átthögum sínum mestan hluta ævi sinnar. í hjarta sínu varðveitti hann alltaf bamið í sjálfum sér, ást- ina á fjölskyldu sinni og vinum. Hann uppskar einnig ást og vin- áttu sinna nánustu og þeirra sem þekktu hann vel. Ragna vinkona hans var honum mikils virði, hún annaðist hann ekki aðeins í starfi sínu heldur sýndi hún honum mikla vináttu og tryggð og emm við syst- kinin henni mjög þakklát. Einnig var hún Samía honum sérstaklega góð, lét flytja sig í starfi til þess að fylgja honum á deild 18 er hann var orðinn sjúkur og þreyttur og sat hún hjá honum þegar hann dó. Starfsfólkið á deild 18 var honum mjög gott og ann- aðist hann vel og fæmm við þeim öll- um hjartans þakkir fyrir. Siggi bróðir dvaldi lengi á deild D þar sem honum leið vel, enda var það hans heimili. Þar annaðist Snót og annað starfsfólk hann mjög vel alla 1991; Lilja, f. 4.6. 1919; Sturla, f. 13.7. 1922; Guðjón Guð- mundur, f. 2.1. 1926, d. 2.9. 1954; Steindór, f. 24.9. 1927; Ólafur, f. 16.7. 1929, d. 19.6. 1999; Málfríður, f. 22.5. 1931; Jón Laxdal, f. 7.6. 1933; Jón Hjörtur, fóstur- bróðir, f. 27.4. 1935. Sigurður fór að heiman ungur og dvaldi lengst af á Landspítalanum í Kópavogi. titfbr Sigurðar fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. tíð og færam við þeim bestu þakkir. Siggi bróðir hafðl þann eiginleika að laða að sér fólk, hann var glettinn og stríðinn en gat verið skapstór þótt það stæði aldrei lengi. Hann var tryggur ættingjum sínum og vinum og lét það í Ijós þó hann ætti stund- um erfitt með að tjá sig. Hann og Steindór bróðir vora saman í mörg ár á Landspítalanum í Kópavogi og vora miklir vinir. Þeir mættu alltaf saman á ættarmótin sem hafa verið haldin til minningar um foreldra okkar. Aðeins einu sinni komst Siggi ekki vegna veikinda og kom þá ekki til greina hjá Steina bróður að koma heldur var hann hjá Sigga. Á ættarmótunum hafa þeir alltaf verið heiðursgestir og hefur þeim alltaf verið sýnd mikil virðing og hlýja af öllum, ungum sem gömlum. Verður Sigga sárt saknað á næsta ættarmóti eins og allra vinanna sem horfnir eru. Foreldrar okkar bára sérstaka umhyggju fyrir drengjunum sínum þremur sem allir veiktust ungir og sem þau urðu að láta frá sér sökum mikilla örðugleika. Þau sendu þeim alltaf gjafir og fengu stöðugt fréttir af þeim og var hugur þeirra alltaf hjá þeim og fundum við systkinin fyrir verður manni veralega ljóst hvað maður hefur átt góðan vin og félaga í rúm 50 ár og fyrir það þakkar maður. Elsku Fjóla, böm, tengdaböm, bamaböm og aðrir ættingjar. Guð veiti ykkur styrk í sorg ykkar. Blessuð sé minning Halldórs G. Magnússonar. Bjami B. Ásgeirsson. Það var fyrir rúmum fimmtíu árum að leiðir okkar lágu fyrst saman. Þessi hægláti og Ijúfi piltur að vestan hafði fangað hug og hjarta stóra syst- ur. Mikið var það gott því það var ekki bara gæfa Fjólu að eiga hann Halldór, það var líka okkar happ að eiga þau alltaf að vinum. Á þessari skilnaðarstund er okkur þakklæti efst í huga því við eigum ótal minningar um yndislegar sam- verastundir. Ferðalög, heimboð, veiðiferðir, leikhúsferðir þar sem Halldór var alltaf hinn góði félagi og vert þegar svo bar við. Ogleymanleg- ar era ferðimar sem við fóram um landið í gamla daga með ört stækk- andi bamahópinn í gamla bláa „trutru". Ekki þótti bömunum verra að í hanskahólfinu hjá Halldóri leynd- ist alltaf brjóstsykur eða annað góð- gæti. Halldór var einstaklega ljúfur maður og hafði hægláta og hárfína kímnigáfu. Hann hafði mikið yndi af góðri tónlist og sem ungur maður spilaði hann í mandólínhljómsveit með nokkram félögum sínum. Hann var einstakur fagmaður og vann öll sín verk af mikilli vandvirkni. Hann var ákaflega félagslyndur maður og var m.a. einn af stofnendum Kiwanis- hreyfingarinnar á Islandi. Fyrst og fremst minnumst við hans þó sem vinar og fjölskyldumanns. Þau Fjóla vora einstaklega samhent og áttu góða ævi saman. Bömin þeirra fjögur hafa alla tíð verið miklir félagar þeirra og fjölskyldulífið í Mel- bænum bar þeim öllum gott vitni. Nú að leiðarlokum viljum við þakka fyrir þetta allt og senda okkar innilegustu samúðarkveðjur til þín, elsku Fjóla, og allrar fjölskyldunnar. Sjá grasið sprettur, gleðstu, mundu að þú grerir sjálfur fyrrum líkt og það, þó innra með þér blikni sef og blað gef beyg og trega engan griðastað! (Snorri Hjartarson) Gréta og Trausti. Halldór vinur minn er farinn, ábyggilega feginn hvíldinni. Eftii’ stöndum við, sorgmædd, en full af þakklæti fyrir allar góðar stundir. Hugur minn reikai’ aftur um rúm fimmtíu ár þar sem ég, h'til stúlka með elsku frænku minni í heimsókn á Barónsstígnum hjá Halldóri. Ég man htið eftir honum þá en hann hefur áreiðanlega gefið mér eitthvað til að maula,- en það var spil- verkið (mandóhn) í skápnum hans fína sem heillaði mig. Svo man ég brúðkaup þeirra Fjólu frænku heima hjá foreldram mínum á Sólvallagötunni. Þá man ég nú aðal- lega eftir Fjólu minni, hvað mér fannst hún falleg með þetta sérstaka höfuðskraut.. Síðan fylgdi ég þeim alltaf eftir í öll híbýh þeirra, Sólvallagötu, Eiríks- götu og Hjarðarhaga. Passandi börn- in þeirra og þau að passa mig. Að lok- um enda þau í þessum dýrðar ranni í Melbæ 43 með bömin sín í kringum sig. Alltaf, alltaf vora þau sáman, Fjóla og Halldór. Vinir og ættingjar komu á öllum tímum í mat og kaffi.. Svo var það fyrir ári síðan, að ég átti samleið með þeim í Hveragerði. Þar, eftir fimmtíu ár, fann ég enn ást- ina, virðinguna og tilhtssemina sem er einstök fyrir þau tvö. Guð blessi þeirra sambúð, Fjólu og Halldórs. Ég þakka fyrir allar stundir sem ég hefi átt samleið með þeim. Dísella. söknuðinum sem bjó í hjarta þeirra. Sjálfsagt hefur það verið þess vegna sem við systkinin höfum haldið þeim sið að elska þá og virða og sýna þeim það í verki, reyna að heimsækja þá þrátt fyrir fjarlægð og eins að fá þá í heimsókn og gleðja þá eftir mætti. Duglegust voru þó Guðjón heitinn bróðir og Karlotta kona hans með því að taka þá heim í Hafnarfjörð, heimsækja þá og tala við þá í síma. Hjartans þakkir færum við Köllu fyrir allt sem hún hefur gert fyrir þá og óskum við henni góðs bata, en hún dvelur nú á DAS í Hafnarfirði. Okkur langar til þess að láta fylgja hér ljóðið Við dánarbeð eftir Davíð Stefánsson. Við sjáum að dýrð á djúpinu slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þina sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóstið þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumamótt og svanur á bláan voginn. Við kveðjum ástkæran bróður okkar, við vitum að hann er hjá Guði og hjá pabba og mömmu og öllum hinum. Guð blessi hann. Við sendum þakkir til allra á Landspítalanum í Kópavogi fyrir frábæra umönnun sem þau veittu bróður okkar og einnig ómetanlega hjálp við andlát hans. Guð blessi ykkur öll. Málfríður, Sturla, Lilja, Jón Laxdal og Jón Hjörtur. Mig langar að minnast þín, kæri vinur minn, með nokkram orðum. Ég byijaði að vinna á Sambýli - D á Kópavogshæli hinn 12. júlí árið 1992, þannig að liðin eru nær átta ár frá því að við kynntumst, Siggi minn. Við urðum fljótt mjög góðir vinir og sú vinátta óx með hverjum deginum sem leið. Það var mjög margt sem við gerðum saman á þessum áram og frá mörgu að segja. Við flökkuðum mikið um og fóram t.d. til ísafjarðar að heimsækja fjölskyldu þína og á ættarmót. Einnig fóram við til Vest- mannaeyja til mömmu minnar og á marga fleiri staði og alls staðar var tekið vel á móti okkur, hvort sem það var hjá mínu fólki eða þínu og alltaf var gaman hjá okkur. Við ætluðum líka til Danmerkur að heimsækja Ólöfu Jónasar sem var deildastjórinn okkar en ég veit að þú verður með mér þar og hjá Öllu systur í Svíþjóð. Þú hafðir mjög gaman af ljúfri músík og að horfa á sjónvarpið og áttir þú margar videospólur og hafðir gaman af þegar Gunnar Geir, sonur minn, kom í heimsókn með spólurnar sínar sem þið horfðuð á saman og þegar þið horfðuð á þínar spólur. Þú varst alltaf góður við hann. Þú varst mikill Ijúflingur en hafðir gaman af að stríða fólki í kringum þig og gera létt grín. Þegar Steini bróðir þinn og Gunna giftu sig langaði þig líka til að giftast og þú baðst mig um að verða konan þín en þar sem þú varst miklu eldri en ég hentaði betur að þú værir afi minn og eftir það kallaði ég þig afa og það líkaði þér vel og sagðir öll- um sem heyra vildu. Þú varst bara svo feiminn að það voru ekki margir sem kynntust þér mjög vel, en ég var ein af þeim heppnu og á ég margar góðar minningar. Það er svo stutt síðan þú komst í kaffi til mín og í lok mars komstu þegar Sveinbjörn Berg, yngri sonur minn, var skírður og þá varstu svo hress að þú baðst um brennivín og var það ágætt dæmi um glaðværð þína þrátt fyrir að lík- aminn væri farinn að gefa sig. Kæri Siggi minn, ég gæti lengi haldið áfram en mig langar að kveðja þig með þessu fallega ljóði, Frá mér til þín, sem hún Ragna, amma mín, samdi fyrir mig: Þú liðinn ert sem ljós úr þessum heimi, þig leiði drottinn fram um gi-eiðan veg. Návist þinni og alúð aldrei gleymi, mér ávallt fannst hún vera þægileg. Þú gerðir ekki á heiminn kröfu háa, en hjartanlega þakklátur þú varst, fyrir allt hið litla, létta og smáa sem laun til okkar hlýlegt bros þú gafst. (Ragna S. Gunnarsdóttir.) Guð veri með ættingjum þínum og vinum. Þín vinkona, Ragna Berg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.