Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Landsþing KÍ á Hvolsvelli Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir Kvenfélagskonur víðs vegar af landinu virða fyrir sér handverk. Konur fjölmenntu á afmælisþing Hellu-32. Landsþing Kvenfélaga- sambands íslands var haldið á Hvolsvelli 23.-25. júní sl. en þetta var jafnframt afmælisþing, þar sem sambandið varð 70 ára á þessu ári. Landsþingið var í boði Sambands sunnlenskra kvenna en yfirskrift þingsins að þessu sinni var siðfræði, siðmennt og siðblinda. Fundarsetning fór fram í Breiða- bólstaðarkirkju í Fljótshlíð þar sem sr. Önundur Björnsson tók á móti um 160 landsþingsfulltrúum og gest- um. Ólafía Ingólfsdóttir, formaður SSK, bauð konur velkomnar en Drífa Hjartardóttir, alþingismaður og frá- farandi forseti KÍ, setti þingið og Eggert Pálsson, bóndi á Kirkjulæk, flutti þingheimi kveðjur Bændasam- taka Islands. Hlé var gert á fundar- störfum til að skoða Njálusafnið á Hvolsvelli undir leiðsögn Arthúrs Björgvins Bollasonar. Á þinginu fluttu fyrirlestra sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og Sigurður Bjömsson lektor auk Baldurs Sigfússonar sem flutti erindi um mikilvægi krabba- meinsleitar hjá konum. Tíu vinnu- hópar störfuðu á þinginu um marg- vísleg málefni og fram komu margar tillögur og ályktanir. Hátíðardag- skrár vom bæði kvöldin, þar sem margir góðir listamenn innan og ut- an héraðs komu fram, en héraðs- nefnd Rangæinga, nokkur sveitarfé- lög í Árnessýslu og fyrirtæki á Suðurlandi buðu konum til hátíðar- kvöldverðar á laugardagskvöldið. Tvær konur voru heiðraðar á þing- inu, þær Sigríður Ingimundardóttir úr Reykjavík, en hún var varafor- maður KÍ til margra ára og auk þess ritstjóri tímaritsins Húsfreyjunnar, og Stefanía M. Pétursdóttir, Kópa- vogi, fyrrverandi formaðm- KI. Nýr forseti Kvenfélagasambands íslands var kjörinn, Helga Guðmundsdóttir, Reykjavík, í stað Drífu Hjartadóttur, sem gegnt hefur embættinu sl. sex ár. Mývatnsmaraþon 2000 Ingélfur Geir sigraði í 5. sinn Mývatnssveit - Árlegt stórhlaupa- mót hófst í Mývatnssveit fyrir skömmu með því að ræst var í mara- þonhlaup á hefðbundnum stað hjá Kálfaströnd. Fjöldi keppenda var 61. Veðrið var bjart og fagurt en nokkur vestan gola í fangið fyrsta kastið og frekar svalt í veðri, varð þó kaldara er leið nær miðnætti. Hlaupinn var hringvegurinn um Mývatn og þó ríf- lega það til að ná tilskildum 42 km. Fyrstur í mark varð Ingólfur Geir Gissurarson sem vann nú hlaupið í 5. sinn, hann hljóp á tímanum 2:53,20. Annar varð Ingólfur Öm Arnarson á 2:59,23 og Trausti Valdemarsson varð þriðji á 3:05,16. I kvennaflokki sigraði Rannveig Oddsdóttir á tímanum 3:13,20, Val- gerður Ester Jónsdóttir varð önnur á 3:37,14 og Theodóra Björk Geirs- dóttir þriðja á 3:57,46. Eftir hádegi á laugardag var ræst i hálfmaraþon við Neslandatanga, í 10 km hlaup við Geiteyjarströnd og 3 km skemmtiskokk hjá Garði. Pá var sólskin og besta hlaupaveður. í hálfmaraþoni voru keppendur 53. Par sigraði Aðalbjörg Hafsteins- dóttir í kvennaflokki á tímanum 1:43,41 en Daníel Smári Guðmunds- son í karlaflokki á nýju brautarmeti, 1:13,44. í 10 km hlaupi sigraði Fríða Rún Þórðardóttir á 39,55 og ívar Trausti Jósafatsson á 38,22. í 3.000 metra skemmtiskokki voru sigurvegarar Anna Benny Harðar- dóttir á 12,41 og Stefán Hallgríms- son á 10,32. Heildarfjöldi keppenda var nálægt 360. Þeir sem vilja kynna sér úrslit frekar geta nálgast þau á heimasíðu keppninnar: www.myvatn.is/mara- thon. Pau eru með ýmsu móti, viðhorf þeirra sem mæta til þessa leiks. Nokkrir koma til að heyja harða keppni um sigur, aðrir koma til að sanna fyrir sjálfum sér árangur þrotlausra æfinga og enn aðrir eru að safna mótum og fara þeir vítt um heiminn í þessu skyni og eru sumir langt að komnir. Allir koma þó fyrir ánægjuna fyrst og fremst og fara glaðir heim eftir skemmtilegt mót við Mývatn. Démsmálaráðherra opnar nýja lögreglustöð á Hélmavík SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála- ráðherra opnaði á dögunum nýja lög- reglustöð á Hólmavík. Dómsmálaráðherra minntist á það í ræðu sinni að það væri tími til kom- inn að lögreglan á Hólmavík flytti í betra húsnæði en hún hafði áður að- stöðu í kjallara embættisbústaðarins á staðnum. Nýja lögreglustöðin er búin tveim- ur fangaklefum en áður var enginn fangaklefi á Hólmavík og með því sparast bæði tími og fyrirhöfn af því að ekki þarf lengur að færa fanga til nærliggjandi sýslumannsembætta á ísafirði eða Blönduósi, sagði dóms- málaráðherra í ræðu sinni. Einnig minntist dómsmálaráðherra á að á síðasta ári var fjöldi lögreglumanna við embættið tvöfaldaður og nú eru þeir tveir. Viðstaddir opnunina voru allir fyrrverandi og núlifandi sýslumenn Strandamanna ásamt núverandi embættishafa. Frá vinstri: Rúnar Guðjúnsson, nú sýslumaður í Reykjavík, Andrés Valdimarsson, nú sýslumaður á Selfossi, Hjördís Hákonardóttir, nú hér- aðsdómari, Sólveig Pétursdóttir, dómsmálaráðherra, Bjarni Stefáns- son, sýslumaður á Hólmavík, Ríkarður Másson, nú sýslumaður á Sauð- árkróki, og Ólafur Hauksson, nú sýslumaður á Akranesi. Fíkniefnaleitarhundur til lögreglunnar í Bolungarvík Bolungarvík - Fíkniefnaleitarhund- urinn Nökkvi er kominn „til starfa“ hjá lögreglunni í Bolungarvík. Eig- andi Nökkva er Jón Bjarni Geirsson, lögregluvarðstjóri í Bolungarvík, og hefur hann unnið að þjálfun hans undanfarin ár. Nökkvi sem er sjö ára og er af labrador-kyni var tveggja ára er Jón Bjarni eignaðist hann og hóf að þjálfa hann til leitar í snjóflóðum og hefur Nökkvi verið í A-flokki björg- unarhunda og á svokölluðum út- kallslista björgunarsveitanna í um þrjú ár. Það er mikil vinna að koma upp góðum leitarhundi og kostar mikla alúð og þolinmæði, en þjálfun fíkni- efnaleitarhunda er í umsjón Ríkis- lögreglustjóra og embættið lætur síðan fagmenn taka út hæfni hund: anna áður en þeir verða viðurkennd- ir til að nota við fikniefnaleit. Hund- arnir eru svo hæfnisprófaðir reglulega. Mikill fengur að fleiri hundum Guðmundur Guðjónsson hjá Rík- islögreglustjóra sagði að það væri mikill fengur að því að fá fleiri sér- hæfða fikniefnaleitarhunda, Nökkvi yrði í Bolungarvík en kæmi til með að fara í verkefni víða eftir því sem tilefni gæfust hverju sinni. Á Isafirði er starfrækt rannsóknardeild með tveimur stöðugildum og er annað þeirra staða sérstaks fíkniefnarann- sóknarmanns og sagði Guðmundur að mikil og góð samvinna væri meðal lögregluumdæma á Vestfjörðum í þessum málaflokki. Þá sagði Guðmundur að á Hólma- vík væri einnig fiknefnaleitarhundur og það væri vissulega mikill styrkur að hafa tvo sérhæfða hunda til þess- ara verkefna þarna fyrir vestan en verkefni þeirra væru ekki bundin við það svæði, t.d. hefðu báðir hundarnir verið „að störfum" í Þórsmörk um sl. helgi. Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Nökkvi og eigandi hans Jén Bjarni Geirsson lögregluvardsljéri. Heimsmeistari svífur yfír Víkinni Thomas Wagner paragliding flugmaður og Kari Eisenhut paragliding world cup winner 1999 að gera sig klára fyrir flug af Reynisfjalli f Mýrdal og grind- in fyrir myndavélina fest í strengi fallhlífarinnar. Við rásmark í heilmaraþoni voru 61 keppandi. Myndataka úr svifu Fagradal - Thomas Ulrich ævin- týraljósmyndari frá Sviss er hér á landi um þessar mundir ásamt tveimur öðrum svifköppum til að taka myndir af íslenskri náttúru. Ljósmyndavél er fest í ramma í strengi svifunnar (paraglide) á milli svifunnar og flugmannsins. I svif- unni undir myndavélinni svífur Kari Eisenhut sem er heimsmeist- ari í svifu (paragliding) 1999. Hann segir að aðstæður á Reynisfjalli séu mjög góðar en þær séu ekki fyrir r • n Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Thomas Wagner og Kari Eis- enhut á svifdrekum sínum. nema vana menn. Þeir félagar eru búnir að svífa víða yfir Suðurlandi og sagði Thomas að þeir hefðu dag- inn áður svifið yfir Landmanna- laugum og tekið myndir. Frá Vík fara þeir að Vatnajökli. Myndimar úr íslandsferð þeirra félaga verða seldar til blaða og tímarita um allan heim.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.