Morgunblaðið - 07.07.2000, Side 8

Morgunblaðið - 07.07.2000, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kraftar í kögglum Mola HLÝTT hefur verið í veðri í Mosfellsbænum jafnt og víðast hvar um landið síðustu daga. Þyrpast lands- menn þá gjaman út til að njóta veðurblíðunnar meðan hún varir. Ekki er það þó aðeins mannfólkið sem nýtur sín á góðviðrisdögum. Hundurinn Moli telur augljós- lega sjálfur, að hann hafi mikla krafta í kögglum. Impala klæðaskápur úr kirsubeijaviði/melamíni með fellihurðum. B231 x D60 x H255 sm kr. 69.410,-. HUSGAGNAHOLUN Bíidshöfða, 110 Reykjavík sími 510 8000 www.husgagnahollin.is Trio klæðaskápur úr kirsubeijaviði/melamini. B207 x D60 x H226 sm kr. 59.680,-. A Þjóðlagahátíð á Siglufirði Gamlir sálmar o g áhrif þeirra Smári Ólason AÞjóðlagahátíðinni á Siglufirði mun Smári Ólason tón- listarfræðingm' halda tvö námskeið og tvo fyrirlestra 18. til 23. júlí nk. Hann var spurður hvað hann ætlaði að fjalla um í fyrfrlestrum sínum? „Fyrsti fyrirlesturinn er um það sem kallað er borbún í íslenskri tónlist, eða liggjandi bassatónn. Við þekkjum þetta best í sekkjapípuleik Skota þar sem drynur alltaf með fast- ur bassatónn. Þetta er hefð sem var til á Islandi, bæði í hljóðfæraleik og í dánsi. Is- lenska langspilið og ís- lenska fiðlan eru báðar með borbún-streng en það má gera ráð fyrir að þessi hefð hafi týnst í lok 18. aldar. Einnig eru til fjölmargar lýsingar á sönghætti vikivakanna þar sem er sungið með borbún eða liggjandi bassatóni. Eg mun sýna fram á þessa glötuðu hefð með heimildum sem ég hef undir höndum. Hinn fyrirlesturinn verður um munnlega geymd og sálmalög og þá sérstaklega þau sálmalög sem fyrirfinnast nú á dögum í sálma- söngsbókum íslensku þjóðkirkj- unnar og teljast vera íslensk þjóð- lög, það er arfinn eins og hann er í dag.“ - A hverju byggist þessi arfur? „Þetta eru smáleifar af þeirri arfleifð sem til var á nítjándu öld en glataðist þá. Þetta glataðist af því að það kom þá inn ný tónlist, sér- staklega gerðist þetta í kjölfar þess að í kirkjur landsins komu hljóð- færi - það er orgel og harmoníum." - Hvað ætlar þú að fjalla um á námskeiðunum? ,Á fyrra námskeiðinu skoða ég þær upplýsingar sem til eru um mjög foma kirkjutónlist og út frá því hvemig þróast miðaldahymnar (sálmalög), og þá hvemig söng- háttur á þessum tíma hefur verið á annarri tónlist, t.d. hugsanlega hvemig galdur hefur verið galaður og hvemig sönglag í-ímnanna þróast út frá þessari fomu tónlist- arhefð. Hitt námskeiðið er um sálmalög eftir siðaskipti - eða gömlu lögin sem kölluð vora. En það era lög sem þróuðust frá mið-evrópskum sálmalögum en tóku breytingum og urðu að íslenskum þjóðlögum. Hingað bárast í lok 16. aldar með dönskum og þýskum bókum sálmalög siðbreytingarinnar sem skráð vora í sálmabók 1589 og í Grallara 1594. Þessi lög tóku breytingum og þróuðust og urðu að íslenskum þjóðlögum eins og fyrr sagði. Það era þau lög sem týndust á 19. öldinni." - Var þessi tónlist mjög frá- brugðin því sem við þekkjum núna? „Hún var fornlegri og byggist á miklu eldri tónlistararfi en sú tónlist sem við lif- um og hrærumst í í dag - þess vegna mjög framandi fyrir „skóluð" eyra. Nær öll tónlist sem við heyram núna er hljómræn tónlist, byggist á ákveðnu hefðbundnu hljómakerfi, þetta á við um nánast alla tónlist nema nútímatónlist sem kölluð er. - En hvað um gömlu þjóðlögin ? „Sú tónlist byggist meira upp á laglínuuppbyggingu og allt öðru hljómakerfi eða módalisma. Hún varðveittist hér á landi þannig að þegar þjóðlegur fróðleikur var hljóðritaðurmestáárunum 1960 til 1974 á vegum Ámastofnunar og Ríkisútvarpsins þá flaut með tals- ► Smári Ólason fæddist í Reykja- vík 10. júlí 1946. Hann lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1967 og stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og framhaldsnám við Hochschule fiir Musik und dar- stellende Kunst í Vínarborg í tón- fræðagreinum og tónvísindum, kirkjutónlist og hljómsveitar- stjórn. Hann stundaði einnig framhaldsnám í tónvísindum við háskólann í Lundi. Þá hefur Smári einnig stundað nám í þjóð- fræði við Háskóla íslands. Hann hefur starfað sem organisti og kennari. Kona Smára er Ingi- björg Styrgerður Haraldsdóttir veflistakona og eiga þau þrjú börn og eitt bamabarn. vert af rímum og sálmalögum, mest af lögum við Passíusálma Hallgríms Péturssonar. Eftir 1974 var þetta nær útdauð hefð, þá voru flestallir þeir látnir sem höfðu lært þessa tónlist á heimilum sínum í æsku.“ - Er þessi gamla tónlist notuð eitthvað núna? „Það er vaxandi áhugi á bæði fomri þjóðmenningu íslendinga og eins er fólk miklu opnara nú á dög- um fyrir annarri hefð heldur en endilega þeirri sem það er vaxið upp í. Segja má að aÚt annað við- horf ríki í dag gagnvart þessari gömlu tónlist heldur en ríkti þegai' ég hóf að rannsaka hana 1974. Það er alltaf að aukast að gamla tónlist- in sé notuð af nútímamönnum. Eg hef til dæmis sungið alla Passíu- sálmana með þessum „gömlu“ lög- um og nú fyrir síðustu páska flutti ég ásamt ungri söngkonu, Eyrúnu Jónasdóttur, útsetningar mínar á tólf af þessum lögum, bæði á tón- leikum og í útvarpinu." - Er eitthvað til sem heitir sérís- lenskt í tónlist? „Það er ekkert uppranalegt í heiminum, allt byggist á annarri hefð. En það sem er sérstakt og séríslenskt við þessa gömlu tónlist er sá flutningsmáti sem hver og einn viðhafði á þessum gömlu sálma- lögum. Við fengum inn á 16. öld þýsk sálmalög og þróuðum þau á eigin sérstaka hátt, bæði tóntegundina og flutningsmátann." - Hvemig var tóniistin fyrir siðaskipti? „Við vitum nær ekkert um hvemig tónlistin var þá, en ég hef með getgátum leitt líkur að hvem- ig hún gæti hafa verið. Af ítekuðum árásum Guðbrands biskups í bók- um sínum á alþýðutónlistina má glöggt sjá að hún hefur verið mikið iðkuð meðai almennings. Besta heimildin er því árásir biskupsins á tónlist alþýðunnar. Vaxandi áhugi á gamalli tónlist I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.