Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Mikill viðbúnaður á Norður-Irlandi •• Ofgamenn sagðir undirbúa árásir á lögreglumenn Bclfasl. Rcuters, AFP, The Daily Telegraph. ORYGGISVIÐBUNAÐURINN á Norður-írlandi var aukinn í gær eftir að breskum hersveitum var beitt þar gegn óeirðaseggjum í fyrsta sinn í tvö ár. Grunur leikur á að liðsmenn skæruliðahreyfinga mótmælenda hafi staðið fyrir óeirðunum síðustu daga og lögreglustjóri Norður-ír- lands segir að þeir séu að undirbúa sprengju- og skotárásir á öryggis- sveitirnar. Herinn sagði að í Belfast hefðu verið meiri óeirðir á miðvikudag en allt síðastliðið ár. Hermt er að 30 lög- reglumenn hafi særst í átökunum. Óeirðaseggimar settu víða upp veg- artálma, stálu strætisvögnum og bíl- um og kveiktu í þeim. Óeirðir blossuðu einnig upp í þorp- inu Drumcree þar sem ein af hefð- bundnum göngum Óraníureglu mót- mælenda hefur verið bönnuð. Hermenn í Drumcree settu upp víg- girðingar úr stáli og gaddavír á ýms- um stöðum til að koma í veg fyrir frekari óeirðir. Her- og lögreglumönnum hefur verið skipað að framfylgja banni við fyrirhugaðri göngu Óraníureglunnar á sunndaginn kemur frá Drumcree og inn í hverfi kaþólskra í bænum Portadown. Yfirvöld bönnuðu einnig í gær göngu sem Óraníumenn hafa ráðgert í suðurhluta Belfast á miðvikudaginn kemur. Óeirðimar hafa ekki einskorðast við svæði mótmælenda á Norður-ír- landi. Kaþólsk ungmenni réðust á lögreglumenn í bænum Lurgan, suð- vestur af Belfast, köstuðu í þá grjóti, flöskum og golfkúlum þegar þeir fjarlægðu 200 málningarsprengjur sem fundust í auðu húsi. Lögreglu- menn fundu einnig 17 bensínsprengj- ur í hverfi kaþólskra í bænum. Sir Ronnie Flanagan, lögreglu- stjóri Norður-írlands, sagði í fyrra- kvöld að öfgamenn úr röðum mót- mælenda hygðust gera fleiri árásir á öryggissveitirnar eftir skotbardaga mÚli lögreglumanna og liðsmanna skæruliðahreyfingar mótmælenda í norðurhluta Belfast á þriðjudag. Skotið var þá úr byggingu, sem er á valdi Johnnys Adairs, leiðtoga skæruliðahreyfingarinnar UFF. Lögreglustjórinn bætti við að öfgamennimir hygðust beita byssum og sprengjum í árásunum. Hann skoraði á Óraníumenn að fordæma slíkar aðgerðir og koma í veg fyrir að „illgjamt fólk“ gæti notfært sér deil- rma um göngur reglunnar til að tendra ófriðarbál á Norður-írlandi. Ekki væri nóg að Óraníureglan lýsti því yfir að hún bæri ekki ábyrgð á of- beldinu. Reuters UNGMENNI í Belfast grýta lögreglumenn til að mótmæla banni við göngu Óraníureglunnar um helgina. Prodi í heimsókn á Grænlandi Nuuk. AFP. ROMANO Prodi, forseti fram- kvæmdastjómar Evrópusam- bandsins (ESB), kom í fjögurra daga heimsókn til Grænlands í gær. Heimsókninni er ætlað að styrkja tengsl milli ESB og Græn- lands, sem eins og kunnugt er til- heyrir ESB-ríkinu Danmörku en er samt utan sambandsins. Það var Jonatan Motzfeldt, for- maður grænlensku landstjórnar- innar, sem bauð Prodi til Græn- lands og munu þeir ræða tengsl landsins við ESB. Samningar um fiskveiði í grænlenskri lögsögu verða einnig á dagskrá, en fiski- skipum ESB-ríkja er nú heimilt að veiða í lögsögu Grænlands gegn greiðslu og gegn því að grænlensk vara hljóti vissa forgangsmeðferð á mörkuðum Evrópu. Endumýja þarf samningana fyr- ir 1. janúar á næsta ári og segja yf- irvöld á Grænlandi skrifræði innan ESB hafa tafið fyrir gerð þeirra. Með nýjum samningum vilja græn- lensk yfirvöld gjaman sjá að innan ESB verði sett upp sérstök deild sem sjái um málefni er varði norð- urskautsvæðið þannig að unnt verði að taka sérstakt tillit til þeirra aðstæðna sem ríki í ná- grenni Grænlands. Svartagaldrar Tonys Blair Það hefur lengi tíðkast í stjórnmálum að elta manninn og ekki boltann og þá líka í breskum stjórnmálum. En í kjölfar reiðilesturs ýmissa stuðningsmanna Tonys Blair velta ýmsir því fyrir sér hvort forsætisráðherrann beiti fremur slúðri en stefnumálum í stjórnmálabarátt- unni og þá slúðri gegn eigin flokksmönnum, skrifar Sigrún Davíðsdóttir frá London. Rithöfundurinn Ken Follett er ekki óvanur því að skapa spennu. Það tókst honum líka meistaralega um helgina með grein í The Observerþar sem hann ásakaði Tony Blair forsætisráðherra um að hafa gert „illgjamt slúður að daglegu verkfæri" í breskum stjómmálum og kallaði spunalæknana hlaupatíkur sem bæru út slúður og róg. Sama dag og greinin birtist kom hann fram í öllum helstu útvarps- og sjónvarpsstöðv- um og hikaði ekki við að fullyrða að Blair bæri ábyrgðina. ,,Já, hann er yfimiaðurinn. Það er hann sem getur stoppað þetta.“ Næst kom Frank Field, fyrrum aðstoðarfélagsmálaráð- herra. Hann segist sjálfur hafa orðið fyrir barð- inu á rógsvélinni og fræddi Blair og aðra á því að yrði þessu ekki hætt þegar í stað birti hann bók sem hann hefur skrifað um ráðherratíð sína og reynsluna af verunni í innsta hring Verka- mannaflokksins. Sé slúðrinu komið á framfæri með velþóknun Blairs beinist athyglin að þeim sem framkvæma verknaðinn, spunalæknunum svokölluðu. Þetta eru aðstoðarmenn sem ekki fást aðeins við að spinna þráðinn áfram í pólitísku skyni og í glím- unni við andstæðingana heldur vinna gegn flokksmönnum sem hafa fallið í ónáð. „Köllum hlutina sínum réttu nöfnum,“ sagði hlustandi í bréfi til BBC í vikunni. „Spunalæknar mega með réttu kallast lygarar." Dropinn sem fyllti mælinn Ken Follett hefur að öllum líkmdum reynst Verkamannaflokknum drýgri við fjársöfnun en flestir aðrir. Sagt er að fyrirframgreiðslur út- gefenda fyrir bækur hans nemi um fimm milij- ónum punda, nálægt 600 milljónum íslenskra króna. Auk þess sem hann lagði sjálfur í kosn- ingasjóðina beitti hann sér og frægð sinni fyrir málstaðinn og kona hans Barbara situr á þingi fyrir fiokkinn. En nú er Follett nóg boðið. Með greininni er Follett að mótmæla því vinnulagi sem virðist vera orðin árátta hjá Blair og nánustu fylgismönnum hans. Ónefndir innan- búðarmenn Verkamannaflokksins fræða blaða- menn á óþægilegum upplýsingum um ráðherra eða aðra sem eru Blair þymir í augum. Þar með er upplýsingunum komið á framfæri en það er líka heilmikið af slúðri og rógi sem fómarlömbin fá að heyra úr öllum áttum án þess að Ijóst sé hvaðan ófognuðurinn komi. Það er grafið undan trausti á þeim og allir fjarlægjast þá líkt og í sov- éskum hreinsunum. Það sem þykir sennilegasta ástæðan fyrir gusunni frá Follett er að góð vinkona hans, Mo Mowlam, fyrrverandi N-Irlandsmálaráðherra, varð illilega fyrir barðinu á svona áróðri. Mowlam varð að víkja úr sæti fyrir sérlegum vini Blairs, Peter Mandelson, þegar honum var kippt inn í hlýjuna aftur eftir smáhneyksli er hann hafði fengið að láni stórfé til að kaupa sér viðeig- andi húsnæði. Hún situr þó enn í stjóminni og á miklu persónufylgi að fagna, enda alveg sérstak- ur kvenmaður, en fellur ekki í kramið hjá Blair. Þegar Mowlam lét þau orð fjúka í blaðaviðtali fyrir nokkm að réttast væri að konungsfjöl- skyldan fyndi sér látlausara húsnæði en Buck- inghamhöll var tækifærið notað og hún ausin Tony Blair nafnlausum svívirðingum. Þessar árásir kunna að vera ástæðan fyrir gusu Folletts en ef svo var þá kunni Mowlam ekki að meta hjálpina því hún þvertók fyrir að hún hefði orðið fyrir ómaklegum árásum. Follett beindi spjótum sínum mjög að tals- manni Blairs, Alastair Campbell, sem einmitt sannaði orð Folletts með því að svara honum í þeim tón sem Follett gagnrýndi. Campbell sagði að halda mætti að Follett væri á leið með bók sem þyrfti dálitla athygli. ,fylvarlega þenkjandi fólk tekur gusu hans með þeirri fyrirlitningu sem hún á skilið," klykkti Campbell út með. F oll- ett skemmti sér yfir að benda á að hann kæmi ekki aftan að neinum og keyrði rýting í bakið eins og spunalæknamir. Hann kæmi framan að Blair. Slúður í stað steftiu Það dettur engum í hug að orð Folletts muni hafa langtímaáhrif en þau hafa ýtt enn frekar undir spunaumræðuna sem var fyrir. Þeir eru nefnilega ekki ófáir ráðheirar sem hafa orðið fyrir því að hæfileikar þeirra og geta hefur verið dregin í efa af ónafngreindum aðilum nálægt stjóminni. Næsta skref er venjulega að þeir hafa orðið fyrrverandi ráðherrar. Einn þeirra er Frank Field, sem nú hótar með bókaskrifum láti Blair ekki af þessu háttalagi. Field virtist annars upprennandi stjama í stjóm Blairs 1997 þegar Blair sagði að Field ætti að „hugsa hið óhugsandi" um velferðarmál. A endanum fékk Field á sig ónafngreindar árásir í fjölmiðlum um að hann kæmi engu í verk. Þar með var hans ráðherraskeið á enda. Um leið og hann gekk út úr ráðuneytinu sem fyrr- verandi ráðherra vatt hann sér að næstu sjón- varpsmyndavél og sagði sína skoðun skýrum orðum. Skýring hans var að hefði hann ekki hætt hefði rógsvélin strax farið af stað aftur og hrakið hann út í hom. Annar maður er Ken Livingstone sem í vik- unni tók við sem fyrsti borgarstjórinn sem kjör- inn er beinni kosningu. Hann neyddist á endan- um til að bjóða sig fram sem óháður því hann hlaut ekki náð fyrir flokkseigendunum þrátt fyr- ir miklar vinsældir. Hann þótti hættulega rót- tækur á mælikvarða þeirra. En er þetta þá ekki aðeins eðli stjómmála? Vissulega, svara margir, en benda jafnframt á að Blaii- og stuðningsmenn hans gangi lengra en áður hafi sést. Meðal annars hafa þefr hrúgað inn „sérfræðingum" í ráðuneytin, sem skáki embættismönnum til hliðar í skjóli endurskipu- lagningar. Þessir sérfræðingar séu síðan iðnir við að rækta samband við fjölmiðla og láta ósóm- ann renna áfram. Menn skelfast þau völd sem kosnir stjómmálamenn fá í hendur mönnum sem enginn hefur kosið. Fjölmiðlamir kynda undir Ástæðan fyrir öflugu staríi spunalækna í breskum stjómmálum er ekki aðeins að þar sé meira lagt upp úr yfirborðinu en innihaldinu og bresk stjómmál séu grimmari en annars staðar. Þau eru meðal annars eins og þau eru af því blöð- in nota hikstalaust ónafngreinda heimildar- menn. Það gera reyndar einnig fjölmiðlar í öðr- um löndum en þeir bresku hika ekki við að vitna í ónafngreind persónuleg ummæli um menn. Á stórblaði eins og New York Times er það til dæmis yfirlýst regla að nafnleysi eigi aldrei að nýtast til að fela persónuárásir. Það kemur óvönum óneitanlega á óvart að bresk blöð, sem era annars að ýmsu leyti afar vönduð, skuli á svo takmarkalausan hátt leyfa ónafngreindum við- mælendum sínum að ráðast á nafngreinda ein- staklinga af fantalegum krafti. Strax eftir kosningamar sagði William Hag- ue, leiðtogi íhaldsflokksins, að aðdáunin á Verkamannaflokknum ætti eftir að breytast í hrifningu og síðan í vonbrigði. í vikunni sagði hann að nú væri komið að næsta stigi, fyrirlitn- ingunni. Hague er vissulega ekld óvilhallur gagnrýnandi en það er margt sem bendir til að það sé að verða Blair til trafala að stjóm hans er í vaxandi mæli álitin einn allsherjarspuni án nokkurra stefnumála.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.