Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Önnur innrás líkamsþjófa
Þegar
stórt er
spurt...
SJÓNVAPS-
MYJVD
Rfkissjonvarpið
HVAÐ LEYNIST
í SNÆFELLSJÖKLI?
Leikstjóri, handrit shöfundur og
tónskáld Ásgeir hvítaskáld. Kvik-
myndatökumaður Adam Morris
Philip. Dönsk heimildarmynd.
Framleiðandi Silver Sound Film
með styrk frá Det Danske Film-
institut, Filmværksted 1988.
Sjónvarpið 2000
FRÁ upphafi hefur Snæfellsjökull
orðið skáldum yrkisefni. Frá skrá-
setjurum íslendingasagna hafa
margir mætir menn ort til hans á
skinn, blað, stein, tré og filmu. Mönn-
um orðið tíðrætt um orkuna sem í
honum býr og yfirnáttúrlega krafta.
í fyrsta lagi býður ímynd hans upp á
lotningu þar sem hann stendur fag-
urmótaður og svipmikill yst á útnesi.
I öðru lagi hefur hann verið sveipað-
ur ævintýraljóma Jules Veme en það
sem mestu máli skiptir; dulúð einnar
eftirtektarverðastri íslendinga-
sagna, Bárðar sögu Snæfellsáss.
Hún liggur í loftinu undir jökli, ná-
tengd íbúunum í fjölda ömefna. Ekki
aðeins þeim Bárði og Helgu dóttir
hans, heldur mörgum öðrum sögu-
persónum einsog Gróu og Skildi,
Rauðfeldi og Sölva. Um miðja öldina
var ungdómnum kennt að henda ekki
grín að sögunni, gott ef hann drakk
það ekki í sig með móðurmjólkinni.
Þannig hafði það verið og er vonandi
enn. Menn voru örlítið heiðnir, ekki
frítt við að heitið væri á Snæfells-
ásinn, a.m.k. allt gert til að styggja
hann ekki. Öld eftir öld hugsuðu
menn til sagnarinnar af Ingjaldi á
Skinnfeldi ef gaf á bátinn í ólögum.
Skáldjöfurinn Jules Verne skrifaði
annan, merkilegan kafla um hinn
fjarlæga jökul, þau skrif hafa orðið
útbreidd og áhrifarík, ekki síst hvað
snertir dulmögnunarímyndina. Ann-
að gott skáld og Jöklari, Þórður Hall-
dórsson frá Dagverðará, hefur drápu
sína til Snæfellsjökuls svo skýrt og
skorinort: „Ég lít til þín Jökull, í
ljóma frá minningum fornum...“
Dregur saman þungamiðju goð-
sagnarinnar í einni hendingu og talar
fyrir munn allra Jöklara.
Einn af yngri skrásetjurum Jök-
ulsins er Ásgeir hvítaskáld,
rithöfundur og kvikmyndagerðar-
maður sem hefur unnið lengst af í
Danmörku. Kemur því með nokkuð
nýstárlega sýn á jöklasjólann. Virð-
ist nýbúinn að uppgötva hann þegar
hann skellir sér vestur með tæki sín
og tól. Ber upp á einkum hjá nýju
landnámsfólki þar vestra og er það
út af fyrir sig forvitnilegur flötur.
Þannig fáum við nútímalega mynd af
afstöðu manna til jökulsins í bland
við sögu Bárðar. íslandssagan er ein-
att í smíðum.
Ásgeir hefur tekist sitt ætlunar-
verk, að festa brot af goðsögninni á
filmu og njóta sjálfur þeirrar ólýsan-
legu upplifunar að komast að fótstalli
og á kórónu konungsins. Er hann eða
aðrir einhverju nær um viðfangsefn-
ið? Þeirri spurningu er erfitt að
svara. Ásgeiri tekst að komast inn á
þetta einstaka samband íbúanna og
náttúrunnar, það er efamál að ann-
ars staðar á íslandi sé landið og sag-
an jafnsamofin og það á svo jákvæð-
an hátt er dæmin sanna. Þar kemst
hann næst sannleikanum. Myndin er
því vel þegið innlegg í endalausa um-
ræðu um hið óræða náttúrufyrir-
brigði, Snæfellsjökul. Yfirnáttúru-
legt, eitt af undrum veraldar eður ei,
við því eiga ekki að finnast svör en
myndin ætti að brýna fyrir mönnum
að sýna sögunni virðingu og rjúfa
ekki samspilið milli fortíðar og nútíð-
ar.
ERLENDAR
RÆKUR
Spennusaga
„INHUMAN BEINGS“
Eftir Jerry Jay Carroll.
Ace Fiction 1999.250 síður.
BANDARÍSKI spennusagnahöf-
undurinn Jerry Jay Carroll hefur
skrifað þrjár bækur. Tvær hinar
fyrstu voru um verðbréfasala á Wall
Street að nafni William Ingersol
sem breyttist í hund. Sagan hét
„Top Dog“. Framhaldssagan hét
„Dog Eat Dog“. Svo að þegar mað-
ur sest niður með nýjustu sögu höf-
undarins, „Inhuman Beings“, getur
maður í raun átt von á hverju sem
er. I ljós kemur að um vísindaskáld-
skap er að ræða, einskonar nútíma-
útgáfu af „Innrás líkamsþjófanna"
sagða með orðum einkaspæjara sem
á erfitt með að fá fólk til þess að
trúa sér þegar hann heldur því fram
að geimverur séu að taka völdin.
Gömul hugmynd
Innrás líkamsþjófanna eða „The
Invasion of the Body Snatchers"
hefur getið af sér ótal eftirlíkingar,
kvikmyndir og bækur enda hug-
myndin góð. Geimverur taka sér
bólsetu í fólki svo það tekur að
hegða sér einkennilega, verður fjar-
rænt og vélrænt, öll gleði hverfur
úr því, allar tilfinningar yfirleitt,
það verður eins og heilaþvegið.
Þannig stefna geimverumar á
heimsyfirráð án þess að nokkur taki
eftir. Hugmyndin varð til í Kalda
stríðinu og féll í kramið þegar óvin-
urinn var Sovétið og kommúnistar.
Handverk
í Listhúsi
NÚ stendur yfir sýning á hand-
verki Valbjargar B. Fjól-
mundsdóttur (Vallý) í Listhús-
inu í Laugardal í Reykjavík.
Vallý sækir efnivið sinn að
mestu í íslensku náttúrana og
sýnir jafnt þaraskreytingar,
þurrblómamyndir, leðurgrímur
og álrósaskreytingar.
Vallý hefur haft verk sín til
sýnis og sölu á handverkssýn-
ingum bæði í Hrafnagili og
Laugardalshöll. Auk þess rak
hún Vallerý á Hofsósi í nokkur
ár.
Vallý opnar handverksstofu
með eigin verkum í Hafnar-
stræti 83 á Akureyri undir
nafninu Náttúralist um miðjan
júlí.
Sýningin í Listhúsinu stend-
ur til 22. júlí.
Geimverur vora bara annað orð yfir
Rússa.
I dag era aðrir tímar en hug-
myndin stendur fyrir sínu og Jerry
Jay Carroll virðist gæta þess að
fylgja formúlunni mjög nákvæm-
lega. Aðalpersóna hans er fyrrver-
andi lögga sem orðin er einkapæjari
sem býr í San Francisco og sagan
byrjar eins og hver önnur spæjara-
saga á mjög léttum og spaugsömum
nótum. En brátt taka að gerast at-
burðir sem ekkert er gaman að og
spæjarinn gerist æ alvarlegri eftir
því sem fólkið í kringum hann verð-
ur undarlegra.
Hann heitir Goodwin Armstrong
og er fráskilinn, missti allt sitt eftir
framhjáhald. Hann rekur spæjara-
stofu ásamt vini sínum og þangað
kemur roskin kona einn daginn sem
segist vera miðill og finna fyrir ná-
vist geimvera í kiingum sig. Arm-
strong hefði sagt henni að leita sér
lækningar og hent henni út ef hún
borgaði ekki svona vel og hann fer á
stúfana í leit að geimveram. Með
hálfum huga í fyrstu en smám sam-
an taka gransemdir að vakna.
Jafnvel í San Francisco
Goodwin hefur séð myndir í bók-
um og veit að geimverur era lág-
SKAGAFJÖRÐUR - HÓP
Búðirnar í Hópi - Hópkvöld
Skagfirðingar hafa reist tjaldbúðir
sem ætlað er að sýna lifnaðarhætti
landkönnuðanna og bjóða upp á
mat, líkan þeim sem ætla má að hafi
verið á borðum þeirra. ídag er loka-
dagur hátíðarhaldanna. Ávarp flytur
Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir. Með-
al annarra sem fram koma eru Andri
Sigurðsson trúbador, Reflex, DjTon-
ik, Blygðun, Súrefni ogSóldögg. Boð-
ið upp á grísaveislu við búöirnar.
www.skagafiordur.is
SKÁLHOLT KL. 17
Coilegium Musicum
Samtökin Collegium Musicum hafa
um tæpt 15 ára skeið unnið að rann-
sóknum á þeim menningararfi, sem
fólginn erí sönglögum fyrri alda. Um
er að ræða fyrstu heildarrannsókn á
nótum sem fundist hafa í íslenskum
handritum. Á kirkjutónlistarráðstefnu
í Skálholti verða niðurstöður rann-
sóknanna lagðar fram en þær verða
enn fremurgefnar út á árinu. Sex
ung tónskáld hafa verið ráðin til að
gera nýjar útsetningar á nokkrum
þessara fornu tónverka og fá gestir
vaxnar með stóran haus og stór,
möndlulaga augu „sem fólk hlyti að
taka eftir, jafnvel í San Francisco".
Nema hvað þetta eru annarskonar
verar. Þær era ósýnilegar og þú
verður ekki var við þær nema þú
takir eftir smávægilegum hegðunar-
breytingum í fólki, sem geta verið
hinar eðlilegustu. Sagan er byggð
þannig upp að lesandinn veit ekki,
frekar en fólkið sem Goodwin Arm-
strong reynii- að sannfæra, hvort
hann er að ímynda sér hlutina eða
ekki. Hvort hann hafi bilast í seinni
tíð og sé kominn með geimverar á
heilann eða hvort um raunveralega
innrás sé að ræða.
„Inhuman Beings" er í sjálfu sér
ágætis sumarafþreying en það sem
kemur kannski mest á óvart er að
Jerry Jay Carroll skuli ekki reyna
að finna nýja fleti á gamalli hug-
mynd heldur notast við hana næst-
um óbreytta hálfrar aldar gamla.
Það sýnir að góðar hugmyndir era
ódrepandi en það sýnir einnig að
þrátt fyrir skemmtilegt hugarflug á
stundum tekst höfundinum ekki að
gera sér nægilegan mat úr sögunni
til þess að hún virki framleg og
fersk.
Arnaldur Indriðason
Kústarnir fengu að fínna fyrir því.
ráðstefnunnar að heyra afraksturinn.
Verkefnið er unnið í samstarfi við
kristnihátíð og Landsbókasafn ís-
lands - Háskólabókasafn ogstendur
tll 13. Júlf.
www.bok.hi.is
www.reykjavik2000.is, wap.olis.is
HÁSKÓLABÍÓ KL. 20.30.
STOMP
STOMP er alþjóölegur hópur lista-
manna sem farið hefur vítt og breitt
um heiminn og vakið geysilega hrifn-
ingu. STOMP verður hér á landi tll 9.
júlíog verðurmeð átta tónleika á
tímabilinu. Miðasala verður í verslun-
um Skífunnarí Kringlunni ogá
Laugaveginum.
www.stomponline.com
Rósalngólfsdóttirer
yfir sig hrifin
Rósa Ingólfsdóttir er mjög hrifin af Karin Herzog
súrefniskremunum og segir að þau henti sér af-
skaplega vel. „Þessi frábæru krem samræmast al-
veg mínum lífsstíl en ég leitast við að nálgast upp-
runann sem mest. Ég er með blandaða húð en er
heldur betur búin að finna lausn á því með Vita-A-
Kombi 2 og 3. Þau vinna vel á þurrki í húð og líka
bólum. Eins er mjög gott að bera þau á húðina
þegar maður er þreyttur, því þau eru endurnær-
andi. Ég nota kremin alltaf undir farða og þá helst
hann vel á allan daginn. Með fullri virðingu fyrir
öðrum merkjum þá er ég á þeirri skoðun, að Karin
Herzog vörurnar séu húðsnyrtivörur framtíðarinn-
ar.“
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Switzerland
><M-2000
Föstudagur 7. júlí
FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000 29
S
\ veiðitúrinn, línudansinn,
hestamennskuna, sumar-
fríið, útihátíðina, golfið og
til daglegra nota.
Alvöru hattar úr ekta leðrif
Póstsendum samdægurs.
JT JT
%j*i'triim #f
GLÆSIBÆ
Sími 545 1500 • www.utilif.is
Sæbjörn Valdimarsson
I
EINN, TVEIROG ÞRlR 179.098