Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Daníel Hansen Frá sýningu Jóhönnu Sveinsddttur á Hótel Eldborg. Listsýning á Hótel Eldborg Eyja- og Miklaholtshreppur. Morgunblaðið. NÚ stendur yfir sýning á verkum Jóhönnu Sveinsdóttur í Hótel Eldborg á Snæfellsnesi. Jóhanna útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla íslands 1991 og er þetta sjötta einkasýning hennar. Hún hefur einnig tekið þátt í mörgum samsýningum hér á landi, í Noregi og í Danmörku. Verk hennar munu vera til sýnis og sölu meðan Hótel Eldborg verður opið í sumar. Aö sögn hótelstjóranna, Mar- grétar Jóhannsdóttur og Þórdísar Eiríksdóttur, hafa hótelgestir lýst ánægju sinni með sýninguna. Nokkrar myndir hafa þegar selst. Þær segja einnig að mikið hafi verið að gera á hótelinu sfðan það var opnað enda staðsetning og aðstaða góð. Ættarmót eru nánast um hverja helgi og talsvert um er- lenda hópa enda hótelið í ná- grenni við flestar náttúruperlur Vesturlands. Ljósblik á firðinum Ljósmynd/Jón Proppé Frá sýning-u Halldórs Ásgeirssonar í Ljósaklifi. MYJVDLIST L j 6 s a k I i f, Hafnarfirði HALLDÓR ÁSGEIRSSON BLANDAÐEFNI Sýningin er opin alla daga frá 14 til 18 og stendur til 9. júlí. í HRAUNINU vestan við Hafnar- fjörð, neðan við veginn sem liggur út að Garðakirkju og áfram vestur Álftanesið, hafa hjónin Einar Már Guðvarðarson og Susanne Christen- sen komið upp eins konar listamið- stöð þar sem Halldór Asgeirsson sýnir nú. Staðurinn er einstakur, gömul byggð í friðuðu hrauni þar sem víða má sjá minjar um útróður Hafn- firðinga eins og hann var stundaður áður en vélvæðing og verksmiðjur umbreyttu íslenskum sjávarútvegi. Örlitlu ofar í hrauninu stendur síð- an dvalarheimili aldraðra sjómanna þar sem hitta má mennina sem stunduðu þennan útróður. Út frá þessari nálægð gengur Halldór á sýningu sinni og rekur þar á tákn- rænan hátt samband manns, lands og sjávar. í sýningarsalnum hefur hann dregið upp skuggamyndir af gömlum sjómönnum og hengt upp með göml- um ljósmyndum af skipum í sjávar- háska eða hættulegum augnablikum til sjós. Fyrir utan stendur mikil gegnsæ súla, fyllt lituðu vatni, sem aftur leiðir athygli áhorfandans niður að fjörunni þar sem Halldór hefur tekið til gagns hræið af gömlum báti og skreytt það pokum með lituðu vatni sem glóa eins og gimsteinar í sólinni. Með sýningunni tekst Hall- dóri sérstaklega vel að tengja mynd- mál sitt sögunni og umhverfinu svo úr verður sterk og falleg heild. Litað vatnið sem hann notar gjarnan í verkum sínum hefur út af fyrir sig takmarkaða tilvísun, en tekur sér merkingu af samhenginu, af um- hverfinu, leik ljóssins í vatninu og þeim merkingarlegu tengingum sem listamaðurinn býr til. Hér er það sjórinn, sjósóknin og sjómennirnir sem mynda umgjörð sýningarinnar og verkin eru sérstaklega áhrifarík á þessum stað, í hrauninu og fjörunni þaðan sem menn hafa sótt sjóinn um aldir. Verk Halldórs eru alltaf viðkvæm og varfæmislega framsett, háð birtu og oft ekki varanleg. Auk þess að nota litað vatn hefur hann gjaman unnið í hraun sem hann bræðir svo úr leka svokölluð nornahár, fínlegir og brothættir þræðir. Nú vinnur Hall- dór með hraunið sem umgjörð án þess að eiga neitt frekar við það, en tekst aftur á móti að virkja það með einfoldum innsetningum sem stýra upplifun áhorfandans á umhverfinu og sögu þess. Litað vatnið verður eins og linsa sem áhorfandinn horfir gegnum og sér þá aftur í söguna sem gömlu sjómennimir á elliheimilinu íyrir ofan lifðu. Ljósaklif er sérstaklega hentugur sýningarstaður fyrir verk sem unnin era út frá umhverfinu og vinna með því, enda er það meiningin að þarna verði vinnuaðstaða fyrir gestalista- menn, innlenda og erlenda, sem geti sótt innblástur í hraunið og fjörðinn fyrir utan. Jón Proppé SKEMMTUN, FJÖR, BLÓMASALA, TÓNLIST O.FL. O.FL. 20% afsláttur af öllum vörum LAUGAVEGI 32 • SlMI S52 3636 ÚTSflLfl - ÚTSflLfl 20-70% 6FSLÁTTUR Dragtir frá 5.990 Kápur frá 7.990 Kjólar frá 2.990 Bolir - blússur - peysur Mikið úrval af brjósta- Tilboð höldum. í gulu og oranage B-C-D-E Verð 3.950.- Tveir á 6.900.- Buxur 1.490.- Laugavegi 24, sími 562 4235
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.