Morgunblaðið - 07.07.2000, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000 51
HESTAR
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Þorkell Bjarnason og Ragnheiður Ester Guðmundsdóttir með hluta af fjölskyldunni. F.v. Ragnheiður Bjarna-
dóttir, Margrét Hafliðadóttir, Bjarni Þorkelsson, Gylfi Þorkelsson, hjónin Þorkell og Ragnheiður Ester, Ari
Gylfason, Þorkell Bjarnason yngri, Þorkell Þorkelsson og Bjami Bjarnason.
Fannar Jónasson framkvæmdastj ór i
landsmóts hestamanna
„Stígandi þungi
á mótinu“
Fannar
Jónasson.
Fimm barnabörn Þorkels Bjarnasonar keppa á landsmótinu
Hestamennskan í blóðinu
FIMM bamaböm Þorkels Bjarna-
sonar, fyrrverandi hrossaræktar-
ráðunautar, og konu hans Ragn-
heiðar Esterar Guðmundsdóttur
keppa á landsmóti hestamanna en
flestir í fjölskyldunni em viðloð-
andi hestamennsku á einn eða ann-
an hátt. „Hestamennskan Iiggur nú
alveg örugglega íblóðinu," segir
Þorkell sem hefur þó ekki reynt að
telja hversu margir af afkomendum
hans stunda hestamennsku. „Það
em nú margir brattari í þessum
málum en ég,“ segir Þorkell.
Ættgeng hestamennska
Þorkell segist rekja áhugann fyr-
ir hestum til foreldra sinna. „For-
eldrar mínir t.d. voru bæði hest-
hneigð og þekkt fyrir
hestamennsku," segir Þorkell.
„Föðuramma mín var vissulega
hestakona því hún var Ijósmóðir.
Þá var ekkert farið öðruvísi en á
hesti eða gangandi. Hún reið alltaf
á honum Grána sínum til þess að
hjálpa konunum,“ segir Þorkell.
Hestamennskan hefur síðan verið
ættgeng og umræður í fjölskyldu-
boðum taka mið af því.
„Það verður að segja alveg eins
og er að þær þykja vera svolítið
einhliða. Það er helst rætt um
hesta. Það er eitthvað fleira rætt en
það fer alltaf út í hestana," segir
Þorkell.
Erfitt að fylgjast
með öllum flokkum
„Það er erfitt að fylgjast með
þessu öllu og eiginlega útilokað.
Því þegar svona mörg hross em
mætt til leiks þá er ekkert hjá því
komist að margir flokkar keppi í
einu,“ segir Þorkell. Hann er sér-
staklega hrifinn af hestakosti í
barna- og unglingaflokki. „Það
liggur við að maður sé dolfallinn að
sjá hvað krakkarnir eru á góðum
hestum. Það er hrein fyrirmynd. Ég
veit að margir hafa lagt mikið í að
útvega bömum sínum góða hesta.
Við sem emm með heimabakaða
getum samt verið ánægðir því það
eru til ágætir hestar í því líka,“ seg-
ir Þorkell.
Saknar fjórðungsmótanna
„Mér líst mjög vel á mótið. Þetta
er stórfengleg aðstaða héma,“ seg-
ir Þorkell. „Slfk aðstaða er hvergi
til á landinu og stenst samanburð
við það besta sem gerist úti í heimi.
Ég held að það sé enginn vafi á
því.“ Þorkell segir gæði hrossanna
á landsmótinu mjög mikil. Honum
finnst fjöldi hrossa á mótinu þó með
mesta móti. „Það er svo sem í lagi,“
segir Þorkell en það þurfi þó að
velja strangt. „Þeim fer svo fjölg-
andi, góðu hrossunum. Það eru svo
prýðilegar framfarir í kynbóta-
starfinu," segir Þorkell. „Landsmót
á að vera úrvalsmót með albestu
hestunum. Ég segi fyrir mína parta
að ég sakna töluvert mikið fjórð-
ungsmótanna, ég segi alveg eins og
er,“ segir Þorkell. „En þegar lands-
mót voru fjórða hvert ár var hægt
að hafa öflug mót úti í landsfjórð-
ungunum."
SPENNAN magnast
nú á landsmóti hesta-
manna en úrslit hefjast
í mörgum flokkum í
dag auk þess sem
fyrsta yfírlitssýning
kynbótahrossa á þessu
landsmóti er í dag.
Fannar Jónasson,
framkvæmdastjóri
landsmótsins, segir að
þá megi búast við mikl-
um fjölda gesta.
Tafír vegna bilana
í tölvukerfi
Fannar segist sáttur
við upphaf mótsins þó
bilanir í tölvukerfi hafi
sett strik í reikninginn. Keppni í B-
flokki tafðist m.a. um 30 mínútur á
fimmtudaginn vegna bilunar í tölvu-
kerfi og í barnaflokki þurfti á tímabili
að reikna út einkunnir á blaði og með
blýanti. Sumir landsmótsgestir hafa
einnig kvartað yfir því að erfitt sé að
nálgast upplýsingar um úrslit o.þ.h.
Fannar segir að tölvukerfið sé nýtt
og það hafi orðið nokkrir byrjunar-
örðugleikar í upphafi en hann vonast
eftir því að þeir séu nú að baki. Fann-
ar segir að eflaust megi gera betur
varðandi upplýsingastreymi til móts-
gesta. Hinsvegar séu upplýsingar
um úrslit og dóma með svipuðum
hætti og á fyrri landsmótum. „Eg
kannast ekki við að það hafi verið
verr staðið að þessu en á öðrum mót-
um en það þýðir ekki að það megi
ekki gera betur. Við hugsuðum okk-
ur að hafa risaskjái til að birta ein-
kunnir en það kom í ljós að það kost-
aði á sjöttu milljón,“ segir Fannar.
Sá kostur hafi einfaldlega verið of
dýr en framvegis verða úrslit og
dómar fjölrituð og seld mótsgestum.
„Mótið hefur byrjað mjög vel. Það
eru fleiri hér fyrstu mótsdagana en
við bjuggumst við. Sérstaklega er
það áberandi hversu margir útlend-
ingar eru komnir,“ seg-
ir Fannar. „Það er ávís-
un á að mótið verði
fjölmennt þegar kemur
að úrslitadögunum um
helgina. Það er stígandi
þungi á mótinu og -
smám saman grisjast
hópurinn og eftir verða
betri hrossin." Fannar
segir erfitt að meta
hversu margir gestir
muni sækja mótið en
mótssvæðið getur tekið
við allt að tólf þúsund
manns. „Skráð hross á
sýningar og í keppni
eru um þúsund. Því til
viðbótar má kannski
bæta við hópreiðarhrossunum. Efvið
teljum hrossin í litasýningunni líka
þá erum við að tala um að kannski
tvöþúsund hross hafi verið á svæðinu
yfir mótsdagana," segir Fannai'.
Ekki sama tjaldbúðastemmn- *
ingin í höfuðborginni
Landsmót hestamanna er nú hald-
ið í fyrsta skipti í höfuðborginni.
Fannar segir mótsbraginn vera
nokkuð frábrugðinn því sem hann
hefur átt að venjast. „Yfir daginn er
lítill munur þar á, þetta er hefðbund-
ið keppnisform á landsmóti. Aftur á
móti er ekki tjaldbúðarstemmning á
kvöldin því fólk fer hvað til síns
heima og útaf svæðinu. En að öðru
leyti er þetta venjulegt landsmót."
Framkvæmdanefnd landsmótsins
leigir mótssvæðið af hestamannafé-
laginu Fáki. „Við tókum við svæðinu
fullbúnu og Fáksmenn hafa staðið
sig mjög vel í því að undirbúa svæðið.
Auk þess sýnist okkur sem langflest-
ir hesthúsaeigendur hér á svæðinu
hafi tekið til hendinni og snyrt og
snurfusað,“ segir Fannar. Um 250
manns vinna við mótið, flestir í sjálf-
boðavinnu en kostnaður við það nem-
ur um 50-60 milljónum.
Morgunblaðið/Halldor Kolbeins
Sigrún Sigurðardéttir fylgist með því að allt fari eftir settum reglum.
S
„Egbara
lenti í þessuu
Vítamínsprauta að
fá svona stórmót
Bragi
Ágeirsson
SIGRÚN Sigurðardóttir hefur
verið þulur á hestainótum frá ár-
inu 1982. Sigrún er með lands-
dómararéttindi en þulir þurfa að
vera dómarar því starf þeirra
felst líka í því að fylgjast með að
allt fari eftir settum reglum og
tímaáætlanir séu haldnar. „Við
erum ekkert mörg sem erum
með landsdómararéttindi og enn-
þá færri sem vilja tala í hljóð-
nema. Þannig að ég hef bara lent
í þessu,“ segir Sigrún.
Fyrir mótið tók mótsstjórn nýtt
tölvukerfi í gagnið sem virkaði
ekki sem skyldi fyrstu dagana.
Sigrún segir of mikla tölvuhnökra
hafa verið á mótinu. „Þetta er
mjög sniðugt kerfi þegar það
virkar. Það er enginn vafi á að
þetta er framtíðin en það hafa
verið of miklir byrjunarörðug-
leikar, sérstaklega miðað við að
þetta er landsmót," segir Sigrún.
Miklar endurbætur
hafa verið gerðar á
Fákssvæðinu fyrir
landsmótið. Tveir ný-
ir reiðvellir voru lagð-
ir og endurbætur
gerðar á eldri völlum
og nýr vegur lagður
inn á svæðið. Stór
áhorfendabrekka sem
rúmar um tíu þúsund
manns var auk þess
gerð við Brekkuvöll.
„Þetta small allt sam-
an á síðustu stundu
eins og alltaf og svæð-
ið orðið stórglæsi-
legt,“ segir Bragi Ás-
geirsson, formaður
Fáks.
Endurbæturnar á Fákssvæðinu
hafa tekið þrjú ár og kostað um 150
miHjónir en auk þess hefur Reykja-
víkurborg ráðist í endurbætur á
Reiðhöllinni fyrfr um 60-70 milljón-
ir. „Forsendan fyrir því að við gát-
um farið í þessar framkvæmdir og
haldið mótið var að fá Reykjavíkur-
borg með okkur í dæmið,“ segir
Bragi. „Þetta svæði hefur þá sér-
stöðu, kannski umfram svæðin á
landsbyggðinni, að það er í notkun
allt árið. Hérna eru nýir vegir og
vellir og lýsing. Á svæðinu fer fram
mikil starfsemi. Mörg hesthúsanna
eru í eigu atvinnutamningarmanna
sem eru við þjálfun allt árið og það
er mikil gróska í sýningum og móta-
haldi. Svæðið er í bullandi notkun
allt saman,“ segir
Bragi.
Um þúsund félagar
eru í Fáki en Bragi seg-
ir mikinn vöxt hafa
færst í hestamennsku á
höfuðborgarsvæðinu
síðustu árin. „Fyrst
koma krakkarnir og síð-
an foreldrarnir með og
hestamennskan er að
vinda mikið upp á sig.
Það er að verða alveg
gríðarleg aukning og
það sem kannski helst
stoppar okkur er að það
er ekki nógu mikið
framboð af lóðum fyrir
hesthús,“ segir Bragi.
„Við höfum haft mikinn augastað á
Norðlingaholtinu fyrir framtíðar-
hesthúsabyggð. Reyndar er búið að
skipuleggja svæðið sem íbúðabyggð
og verktakar eru búnir að kaupa þar
lóðir. En það gæti svosem verið hag-
stætt fyrir þá að byggja hesthús þar
því það er svo gríðarleg eftirspurn
eftir hesthúsum og hesthúsalóðum á
öllu höfuðborgarsvæðinu," segir
Bragi. Bragi telur að landsmótið
hafi farið vel af stað, þrátt fyrir
nokkra byrjunarörðugleika. „Það
hefur gífurlega mikið að segja fyrir
félagið að fá svona stórmót. Það þarf
alltaf svona vítamínsprautu, þetta
þjappar fólki saman,“ segir Bragi.
„Og þó við séum ekkert að monta
okkur þá var Fákur með svona
helminginn af stóru hópreiðinni.“
SABIANA
HITABLÁSARAR
SABIANA hitablásarar eru
hentugir tll notkunar fyrlr
heitt vatn og gufu.
Hltaelement blásaranna eru
þriggja raöa.
SABIANA hltablásara eru bœðl
fáanlegir með elns og þriggja
fasa vlftumótor með rakavöm.
Leltlð upplýslngal
VAtNSVIRKINN ehf.
ÁRMÚLA 21 • SlMI 533 2020 • FAX 533 2022
_____- Slöðugl rennsli i 45 ór -_
Aðsendar greinar á Netinu
ýj> mbl.is
_/KLLTAf= etTTHVAÐ fS/ÝTT