Morgunblaðið - 07.07.2000, Side 54
- 54 FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
EKKI LATA MIS TEFJA PIS FRA
PVI SEM PU VAR5T A6 SERA !
öatnamotin þarna rétt
hjá vœru miklu betri
. staSur til þess
og var i þann mund að
fara fram úr honum
rétt við skólann.
5em vaeri algerlega
óraunhæft ^
Þetta var skritinn draumur!
Eg var í hörku kapphlaupi
við Maurice Green hér
i nágrenninu...
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
GoneWiththeWind 111
The story of Rhett
and Scarlett.
Á hverfanda hveli III.
Sagan af Rhett og Scarlett.
It was a dark and
5tormy marriaqe.
Þetta var dimmt og
stormasamt hjónaband.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Sorgarsaga frá
Siglufírði
Frá Fanneyju Birkisdóttur:
ÉG SKRIFA ykkur í von um að saga
mín verði birt.
Ég er tveggja bama móðir á Siglu-
firði og hef að mínu mati stundað
mína vinnu eins vel og mér er unnt.
Mætti alltaf á réttum tíma og hef unn-
ið við rækjuvinnslu frá því að ég fór út
á vinnumarkaðinn. Eða síðan 1984.
Ég er þrítug, fædd og uppalin á Siglu-
firði og þekki ekkert annað en fisk-
vinnslu enda er það ágætis vinna.
Þegar ég eignaðist seinna bamið fór
að bera á höfuðverkjaköstum hjá mér
sem síðar leiddi í ljós að ég greindist
með mígreni. Allir sem við þann sjúk-
dóm glíma vita að hann er ekki mjög
þægilegur og verstu köstin eru yfir
hásumarið þegar birtan er sem mest.
Það hefur komið fyrir að ég hef
ekki getað stundað vinnu dag og dag
vegna sársauka, þó hef ég fengið öll
bestu og nýjustu Iyf sem eru á mark-
aðinum í dag. En fyrir skömmu var
uppsagnarbréfið í pósthólfinu bara si
svona. Yfirmaður minn hjá Rækju-
vinnslunni Pólar á Siglufirði gat ekki
gefið ástæðu í bréfinu svo að ég fór á
fund hans og krafðist skýringa á upp-
sögninni. Þá sagði hann að ég stund-
aði vinnuna vel þegar ég væri í vinnu.
Eins og að ég mætti bara tvisvar í
viku!
En yfirmaður minn er að mínu mati
áskrifandi að sínum launum, sem eru
125.000 kr. á viku, eða 500.000. kr á
mánuði og hann er lítið við og kemur
aldrei niður í vinnsluna. Heldur situr
hann í sínum fína stóli og talar í sím-
ann og fer svo inn á Akureyri en þar á
hann sína fjölskyldu, en hefur frítt
fæði, húsnæði, bíl o.fl. á Siglufirði.
Þetta finnst mér helvíti hart og súrt
að þurfa að hverfa frá vinnu því það er
ekid um auðugan garð að gresja að fá
vinnu hér á Siglufirði.
FANNEY BIRKISDÓTTIR,
Aðalgötu 15, Siglufirði.
Sannkölluð list
Frá Hermanni R. Jónssyni:
JÆJA, þá er Evrópumótinu lokið,
dapurt fyrir suma en gleði fyrir aðra.
Mikið hefur verið rætt og ritað um
Evrópukeppnina sem nú er nýaf-
staðin og rætt um ábyrgðarleysi
Ríkissjónvarps gagnvart lands-
mönnum þegar jarðskjálftarnir riðu
yfir í miðri keppni.
Ég er mildll knattspyrnuáhuga-
maður og hafði mikla skemmtun af
Evrópumótinu. Mér fannst þetta
skemmtilegasta stórmót í knatt-
spyrnu sem fram hefur farið,
skemmtilegir og spennandi leikir,
mikið af mörkum, vítaspyrnukeppni,
allt sem knattspyman hefur upp á að
bjóða. Að sjá leikmenn eins og Zid-
ane, Totti, Figo, Davids, Toldo, Klui-
vert o.m.fl. sýna að knattspyrna er
sannkölluð list. A mínu heimili var ég
í minnihluta er keppnin hófst en er á
keppnina leið höfðu allir gaman af.
Ríkissjónvarpið stóð sig mjög vel í
umfjöllun um þessa keppni (nema ég
hefði kosið að sjá leik Júgóslava og
Spánverja beint frekar en leiðinlega
„frændur“ okkar Norðmenn spila
gegn Slóvenum).
Gagnrýni verður ávallt til, mis-
jafnlega sanngjörn þó, því finnst mér
að íþróttamenn Ríkissjónvarpsins
eigi hrós skilið, þeir hafa staðið sig
vel í lýsingum sínum, verið vel undfr-
búnir fyrir leiki og valið menn sér til
aðstoðar í lýsingum sínum sem vita
meira um knattspymu en almennt
gerist. Það má líka segja frá því sem
gott þykir.
En ég skil þá sem gagnrýna Ríkis-
sjónvarpið fyrir fréttafiutning af
jarðskjálftunum. Getur Ríkissjón-
varpið ekki haft íþróttarás þegar
stórmót eru? Til dæmis Evrópumót,
HM-keppnin og nú em Ólympíuleik-
ar framundan. Yrði þá ekki farin
sanngjörn leið sem flestir (það verða
víst aldrei allir sáttir) yrðu sáttir við.
Ég vil að lokum enn og aftur
þakka íþróttafréttamönnum Ríkis-
sjónvarpsins fyrir fagleg og vönduð
vinnubrögð.
HERMANN R. JÓNSSON,
Mosarima 13, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
*BRÚÐARGJAFIR
afc-SÖFNUNARSTELL
*GJAFAKORT
$1$