Morgunblaðið - 07.07.2000, Síða 57

Morgunblaðið - 07.07.2000, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000 57 ÍDAG KIRKJUSTARF BRIDS Umsjón Guðmuiidiir Páll Arnarson MAKKER þarf nauðsyn- lega að fara í símann og kemur því samningnum í þína hönd með því að opnun- ardobla í byrjun á spil sem margir myndu frekar strögla á spaða. Það er von- andi í lagi þín vegna: Vestur gefur; allir á hættu. Norður * ÁK863 ¥ D ♦ KD5 * AG103 Suður 4. G1094 ¥862 ♦ Á82 4.754 Vestur NorOur Austur Suður lhjarta Dobl Pass lspaði 2 hjörtu 3 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Vestur tekur fyrsta slag- inn á hjartaás og heldur áfram með kónginn, sem þú trompar í borði. Þú leggur niður spaðaás og báðir mót- herjar fylgja. Hvert er svo framhaldið? Greinilega er hætta á því að gefa slag á spaðadrottn- ingu og tvo á lauf. Hins veg- ar er nokkurn veginn öruggt að vestur er með annað mannspilið í laufi, svo tví- svining þar ætti að tryggja samninginn. En vandinn er sá, að þú átt aðeins eina ör- ugga innkomu heim á tígul- ásinn til að spila laufmu. Norður * AK863 ¥ D * KD5 * AG103 Vestur Austur 4.2 4. D75 ¥ ÁKG1073 ¥ 954 ♦ G73 ♦ 10964 4. K96 4.D82 Suður * G1094 ¥862 ♦ Á82 4.754 Ef þú tekur spaðaásinn og spilar meiri spaða svarar austur með hjarta, sem þú verður að trompa með síð- asta spaða blinds. Og þá er aðeins hægt að komast heim einu sinni til að spila laufinu. Leiðin framhjá þessari ógn er að spila smáum spaða eftir ásnum! Austur drepur og spilar væntanlega hjarta. Þú trompar með kóng í borði og tekur síðasta tromp austurs með þvi að fara heim á spaðagosa. Þá kemur lauf á tíu og drottningu aust- urs, en síðan má nota inn- komuna á tígulás til að svína aftur í laufi. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, bniðkaup, ætt- armót og fieira lesend- um sínum að kostnað- arlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og sfmanúmer. Fólk getur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heiila, Morgunblaðinu, Kringlunni 1,103 Reykjavík ÁRA afmæli. í dag, föstudaginn 7. júlí, verður fimmtugur Orn Gunnarsson grunnskóla- kennari, Breiðvangi 73, Hafnarfirði. Eiginkona Arnar er Jóhanna Vald- emarsdóttir sérkennari. Þau hjónin verða á ferð er- lendis á afmælisdaginn. Ljósmyndastofan Mynd, Hafnarf. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 27. maí sl. í Garða- kirkju af sr. Braga Friðriks- syni Sigurlaug Sverrisdótt- ir og Gunnar Karl Ársælsson. Heimili þeirra er á Vesturtúni 29a. Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu kr. 2.895 til styrktar Rauða kross Islands. Þær heita Elísa Haukdal Ólafsdóttir, Kristín Björk Lilliendahl og Helga Björt Lilliendahl. Árnað heiila Hlutaveita Þessar duglegu stúlkur söfnuðu með tombólu 6.208 kr. til styrktar Rauða krossi íslands. Þær heita Snædís T. Brynjarsdóttir og Hanna Ragnarsdóttir. LJOÐABROT STÓÐ EG VIÐ ÖXARÁ Stóð eg við Öxará hvar ymur foss í gjá; góðhesti úngum á Arason reið þar hjá, hjálmfagurt herðum frá höfuð eg uppreist sá; hér gerði hann stuttan stans, stefndi til Norðurlands. Úr lundi heyrði eg, hvar hulduljóð súngið var; fanst mér eg þekti þar þann sem sló kordurnar: alheill og orðinn nýr álfurinn hörpu knýr, ástvinur eingum jafn alfari úr Kaupinhafn. Stóð eg við Öxará árroða á fjöllin brá, kátt tók að klíngja og fast klukkan sem áður brast, alskærum ómi sló útyfir vatn og skóg. Mín klukka, klukkan þín, kallar oss heim til sín. Halldór Kiljan Laxness STJÖRNUSPA eftir Frances Drake KRABBI Þú ert stórtækur og stefnir hátt, en þarft að varast til- hneigingu þína tii þess að misbjóða fólíd. Hrútur (21. mars -19. apríl) Brostu framan í heiminn og þá mun heimurinn brosa við þér. Það hefur ekkert upp á sig að vera með sút, slíkt dregur menn bara niður að óþörfu. Naut (20. apríl - 20. maí) Þú verður að finna tíma fyrir sjálfan þig, að öðrum kosti áttu á hættu að mál, sem þér er mjög annt um, fari algjör- lega út um þúfur. Tvíburar . (21.maí-20.júní) AA Þú virðist hafa lent á vegg með verkefni, sem þér var falið. Þá er ekki um annað að ræða en leita hjálpar til þess að koma málinu aftur á hreyfingu. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Leyfðu öðrum að deila sigur- gleðinni með þér. Þótt sigur- inn sé þér sætur verður hann enn dýrmætari, þegar aðrir fá að taka þátt í honum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) M Láttu drauminn um frekari menntun rætast. Það er mikil lífsbjörg að breyta til og leyfa sjálfum sér að taka út aukinn þroska á sem flestum sviðum. Meyja -jf (23. ágúst - 22. sept.) tfi$L Forðastu illdeilur við náung- ann. En þótt rétt sé að seilast langt til friðarins, þá er engin hemja að láta vaða yfir sig og sín réttindi. V-9-v- (23.sept.-22.okt.) Þú hefur gefið öðrum mikið af sjálfum þér, en nú þarftu að snúa við blaðinu og sýna mikla eigingimi! Gerðu sjálf- um þér eitthvað til góða. Sporðdreki (23. okt. -21. nóv.) Það getur reynzt erfitt að ákveða nokkuð í dag svo þú skalt forðast þau mál, sem geta dregið dilk á eftir sér. Haltu þig bai'a á léttari nót- unum. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) nO Stuðningur annarra er þér mikils virði, því án hans stæðir þú ekki í þeim sporum sem þú ert. Gleymdu ekki velgjörðarmönnum þínum. Steingeit (22. des. -19. janúar) áV Nú er sko komið að því að þú brettir upp ermarnar og gangir í það að leysa þau mál, sem þér hafa verið falin og þú hefur lofað að annast. Vatnsberi f , (20. jan. -18. febr.) Cfiet Reyndu að finna einhverjar nýjar leiðir til þess að hrinda áhugamálum þínum í fram- kvæmd. Það er engin ástæða til þess að hrekjast frá við mótbyr. MV> Fiskar (19. feb. - 20. mars) Loksins lýst upp fyrir þér leyndardómur, sem þú hefur velt vöngum lengi yfir. Láttu aðra ekki finna til þótt mál taki stefnu þér í vil. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísind Safnaðarstarf Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í Strandbergi laugardagsmorgna. Trú og mannlíf, biblíulestur og kyrrðar- stund. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkomur alla laugardaga kl. 11. Næstu 5 laugardaga verða samkom- urnar með aðeins breyttu sniði. Það verður mikill söngur og síðan biblíu- fræðsla en prédikun sleppt. Á morg- un sér Ragnheiður Ólafsdóttir Lauf- dal um biblíufræðslu. Á laugardögum starfa barna- og ung- lingadeildir. Allir eru hjartanlega velkomnir. Víkurprestakall í Mýrdal. Kirkju- skólinn í Mýrdal er með samveru á laugardagsmorgnum kl. 11.15 í Vík- urskóla. Frelsið, kristileg miðstöð. Bæna- stund kl. 20 og Gen X, frábær kvöld fyrir unga fólkið kl. 21. Sjöunda dags aðventistar á Is- landi: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjón- usta kl. 11.15. Ræðumaður Björgvin Snorrason. Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2, Keflavík: Biblíu- fræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Sigi’íður Kristjáns- dóttir. Safnaðarheimiii aðventista, Morgunblaðið/Þorkell Nú er aðeins bekkur með skreytingu neðst á tuminum. Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíu- fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Eric Guðmundsson. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Kristján Friðbergsson. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn- arfirði: Guðsþjónusta kl. 9.45. Bi- blíufræðsla að guðsþjónustu lokinni. Ræðumaður Björgvin SnoiTason. e. itllATSU Shiatsu er tækni sem ó nóttúrlegan hátt kemur jafnvægi á orkuflæði líkamans, eykur liðleika líkamans, heilbrigði og vellíðan. Meðferðin byggist á öndun, þrýstingi og teygjum í gegnum léttan klæðnað. / júlímánuði eru meðferðaraðilar frá Englandi að slörfum á Nuddslofunni Eygló, Langholtsvegi 17. Nánari upplýsingar og timapantanir ísímum 553 6191 og 568 4590. W EYGLO Snyrti- og nuddstofa Langhóltsvegi 1 7 20% afsláttur á bergkristal- klösum í dag og á morgun Gríptu tækifærið! Tarot-tímar og námskeið Upplýsingar í versluninni LANGUR LAUGARDAGUR SANDALAR Mary B. F A S H I O N Teg. 3005, Stærðir 36-41 Litir: Svartur og blár Verð áður 5.995. Verð nú 3.995 DOMUS MEDICA við Snorrabraut - Rvík Sími 551 8519 STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN KRINGLAN Kringlunni 8-12 - Rvík Sími 568 9212 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS ■----------------------------------y

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.