Morgunblaðið - 08.07.2000, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Síðbúið kvenna-
hlaup á Hellu
Hellu - Árlegt kvennahlaup ÍSÍ
og Sjóvá-Almennra hf. var haldið
víða um land þ. 18. júní sl. Á Hellu
var hlaupinu hins vegar frestað
vegna jarðskjálftanna enda íbúar
alls ekki í neinum hlaupahugleið-
ingum daginn eftir stóra skjálft-
ann. í lok mánaðarins hlupu hins
vegar nokkrar konur í nafni
kvennahlaupsins en þátttakan var
frekar dræm. Þær sem tóku þátt
létu það þó ekki aftra sér, hituðu
upp við sundlaugina og hlupu svo
eða gengu sinn hefðbundna hring.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Þingforseti og skrifstofustjdri Iettneska þingsins ásamt fslensku fbru-
neyti í Vestmannaeyjum á dögunum.
Þingforseti lettneska
þingsins í
Vestmannaeyjum - Forsætisnefnd
Alþingis heimsótti Vestmannaeyjar
3. júlí sl. með góðum gestum, þing-
forseta lettneska þingsins Janis
Straume og skrifstofustjóra þings-
ins sem jafnframt er þingmaður,
Silvija Dreimane.
Gestirnir létu mjög vel af dvölinni
í Eyjum og ekki síður höfðu þau
gaman af Kristnitökuhátíðinni en
þar voru þau gestir ríkisstjórnar-
innar. Staume sagði í samtali við
Morgunblaðið að veðrið á íslandi
hefði komið sér á óvart og væri mun
heimsókn
betra en á Lettlandi þessa stundina.
Janis Staume fannst mikið til
andstæðnanna í Vestmannaeyjum
koma og sagðist aldrei hafa kynnst
öðru eins í lífinu en hópurinn fór í
skoðunarfreð auk þess sem þau
fóru í siglingu hringinn í kringum
Heimaey og skoðuðu ummerki jarð-
skjálftanna í Eyjunum auk þess
sem mikið fuglalíf vakti athygli
þeirra.
Halldór Blöndal, forseti Alþingis,
var meðal gesta í förinni auk þing-
manna og starfsmanna Alþingis.
• •
Oðrum áfanga lokið
Sundlaug’in opnuð á ný
Húsavík - Sundlaugin hefur verið
opnuð á ný eftir gagngerar endur-
bætur. Lokið var við annan áfanga
sem fólst m.a í því að innrétta nýja
klefa en fyrsti áfangi var að byggja
klefana.
Þá var gamla byggingin öll tekin
í gegn s.s. forstofa, afgreiðsla, nýtt
gufubað ofl. en öll aðstaða starfs-
Dilbert á Netinu
/§) mbl.is
_AL.LTA/= eiTTH\SA£> tJÝTT
fólks gjörbreytist við þetta. Rúnar
Arason, forstöðumaður sundlaug-
arinnar, var hæstánægður með
verkið en Norðurvík ehf. var verk-
taki við annan áfanga og undir-
verktakar m.a Vermir ehf. sem sá
um pípulagnir, Tónninn ehf. sá um
málningu, Málmur ehf. um loft-
ræstikerfið, EG Jónasson ehf. um
rafmagn og Steinholt ehf.um múr-
verk og flísalagnir. Hljóðvist og
hönnun sá um eftirlit með verkinu.
Kostnaður við þennan áfanga er
rúmar 40 milljónir og samanlagt
um 90 milljónir króna en auk þessa
var gert nýtt bílastæði með
bundnu slitlagi.
Sundlaugin, sem verður 40 ára í
ágúst, er að jafnaði vel sótt og eftir
tveggja mánaða lokun hefur fólk
verið duglegt að koma í sund og
ekki hefur veðrið dregið úr áhuga
fólksins að sækja laugina.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Minnisvarðanum var valinn staður rétt ofan við Mormónapoll sem stendur í flæðarmálinu á Torfmýri.
Minnisvarði til heiðurs Utah-
förum frá Vestmannaeyjum
Vestmannaeyjum - Minnisvarði til
heiðurs Utahförum frá Vestmanna-
eyjum var afhjúpaður á Torfamýri í
Vestmannaeyjum sl. föstudag rétt
ofan við Mormónapoll sem stendur í
flæðarmálinu rétt vestan við 16.
braut á golfvellinum á Torfmýri.
Gefendur eru íslendingafélagið í
Utah en sljóm félagsins samþykkti
á fundi stjómar á sl. ári að reisa
minnisvarða til heiðurs þeim 410 fs-
lendingum sem á árunum 1854-
1914 fluttu til Utah til að endur-
reisa fagnaðarerindið um Jesú
Krist og til að byggja upp samfélag
hinna hjartahreinu.
íslendingafélagið hefur átt gott
samstarf við bæjarstjóm Vest-
mannaeyja um málið og fékk henn-
ar leyfi til að reisa minnisvarðann
rétt ofan við Mormónapoll sem
haldið hefur nafni sínu í 145 ár.
Samúel Bjarnason var fyrstur fs-
lendinga til að yfirgefa Vestmanna-
eyjar ásamt konu sinni Margréti
Gísladóttur og kona að nafni Helga
Jónsdóttir var með í för. Þau yfir-
gáfu fsland í desember árið 1854 og
sigldu til Liverpool á Englandi.
Þaðan fóru þau til New Orleans,
siðan upp eftir Missisippiánni til St.
Louis. Þaðan gengu þau og óku í
kerru til Mormon Grove í Iowa og
þaðan til Salt Lake City og komu
þangað 7. september árið 1855.
Vegalengdin sem þau fóru var
14.930 km og tók 300 daga._
Afkomendur þeirra 410 íslend-
inga sem fóru vestur um haf og búa
í Utah em um 20.000 manns.
Fjölmargir tóku til máls við af-
hendingu minnisvarðans, m.a. Guð-
jón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum, Gary Price,
hönnuður minnisvarðans, J. Breent
Haynon, heiðurskonsúll íslands í
Utah og Jón Baldvin Hannibalsson
sendiherra. Það var síðan David
Ashby sem afhenti Sigrúnu Ingu
Sigurgeirsdóttur, forseta bæjar-
stjórnar, minnisvarðann. Við at-
höfnina söng Davíð Art Sigurðsson
tenór við undirleik Védísar Guð-
mundsdóttur.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
David Ashby afhenti Sigrúnu Ingu Sigurgeirsdóttur minnisvarðann.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Þeir voru viðstaddir afhendingu minnisvarðans. Frá vinstri Jóhann
Friðfinnsson, fyrram safnvörður Byggðasafns Vestmannaeyja, Jón
Baldvin Hannibalsson, sendiherra í Washington og Rasmusen, en hann
er yfir öllum Mormónasöfnuðum á Norðurlöndum .
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Stíflugerð í
Remundargili
Fagradal - Þór Jónsson var iðinn við
stíflugerð í læknum í Remundargili á
Höfðabrekkuafrétti en það er hans líf og
yndi að sulla og leika sér í vatni og svo er
líka miklu skemmtilegra að moka með
svona stórri skóflu heldur en venjulegum
plastskóflum. Á meðan grilluðu foreldr-
arnir kvöldmatinn og höfðu það notalegt í
dýrlegu veðri.