Morgunblaðið - 08.07.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000 33
LISTIR
Kastiainens, Fantasíu fyrir orgel,
sem var skrifað árið 1976. Kastia-
inen stundaði nám við Sibeliusar-
akademíuna í Helsinki. Síðan 1971
hefur hann kennt við háskólann í
Jyváskylá auk þess að vera þekkt-
ur kórstjóri og tónskáld. Síðasta
verk tónleikanna er einnig fínnskt,
Tokkata eftir Mauri Wiitala, samið
árið 1977, en í upphafi þess er ein-
ungis leikið á fótspil orgelsins.
Miðverk tónleikanna er Dans nr.
4. fyrir orgel eftir bandaríska tón-
skáldið Philip Glass. Hann hefur
m.a. samið fímm óperur í fullri
lengd, kvikmyndatónlist og tónlist
fyrir leikhús og dansflokka.
Á milli þessara verka leikur
Wikman Prelúdíu og fúgu í D-dúr
BWV 532 og Tokkötu adagio og
fúgu í C-dúr BWV 564 eftir
Johann Sebastian Bach. D-dúr
prelúdían er í frönskum stíl á með-
an C-dúr tokkatan er meira
ítalskrar ættar. í þessum verkum
er einnig fótspilseinleikur. Hákan
Wikman nam orgelleik hjá Enzio
Forsblom og Olli Porthan við
Sibeliusar-akademíuna í Helsinki.
laugardag og surii
-VERÐDÆMI
Tríó Árna
Heiðars á
Jómfrúnni
3 Petúniur
að eigin vali 4
SJÖTTU sumartónleikar veit-
ingahússins Jómfrúrinnar við
Lækjargötu fara fram í dag,
laugardag, kl. 16-18. Að
þessu sinni kemur fram tríó
píanóleikarans Árna Heiðars
Karlssonar. Aðrir meðlimir
tríósins eru bassaleikarinn
Ólafur Stoltzenwald og
trommuleikarinn Matthías
Hemstock.
Tónleikarnir fara fram ut-
andyra á Jómfrúrtorginu ef
veður leyfir en annars inni á
Jómfrúnni. Aðgangur er
ókeypis.
Djasstónleikar verða síðan
á Jómfrúnni á sama tíma alla
laugardaga í júlí og ágúst.
margir
Gítarleikur á
Hólum
ÞÓRÓLFUR Stefánsson leik-
ur verk eftir Barrios, Rarr-
ega, Brouwer o.fl. í Dóm-
kirkjunni á Hólum í Hjaltadal
annað kvöld, sunnudagskvöld,
20 Stjúpur
Þórólfur hóf tónlistarnám á
Sauðárkróki sem barn. Hann
útskrifaðist frá Tónskóla Sig-
ursveins 1987. Framhaldsnám
stundaði hann í Stokkhólmi
hjá prófessor Rolf LaFleur
og við Stockholms musik-
pedagogiska institut. Hann
hefur komið fram víða á
Norðurlöndum, frumflutt ís-
lensk verk og hlotið styrki,
m.a. úr Norræna menningar-
sjóðnum.
Hann starfar nú sem yfir-
kennari gítardeildar við Kult-
urskolan í Jönköping.
10 Flauelsblóm
Sumarkvöld við orgelið
Finnskur organisti í
Hallgr ímskir kj u
AÐRIR tónleikar Sumarkvölds við
orgelið verða í Hallgrímskirkju
sunnudaginn 9. júlí kl. 20. Áð
þessu sinni er það finnski organ-
istinn Hákan Wikman sem leikur á
Klais-orgelið og á efnisskránni eru
þrjú orgelverk sem eru skrifuð á
síðari hluta þessarar aldar. Tvö
þeirra eru eftir finnsk tónskáld.
Tónleikarnir hefjast á verki Pekka
Framhaldsnám stundaði hann við
Sweelinck-tónlistarháskólann i
Amsterdam undir leiðsögn Jacqu-
es Van Oortmerssen. Wikman hef-
ur auk þess sótt námskeið víða um
heim. Hann hefur komið fram á
tónleikum víða í Evrópu og gert
margar hljóðritanir fyrir finnska
ríkisútvarpið auk þess að hljóðrita
á geisladiska verk frá barokktíma-
bilinu, þar á meðal Fúgulistina eft-
ir Bach. Wikman er orgelleikari
við Kirkju heilags Lárentíusar í
Vantaa, sem er eitt af hverfum
Helsinki-borgar, auk þess að
kenna við Sibeliusar-akademíuna í
Helsinki.
Tónleikarnir eru á dagskrá
Reykjavíkur - menningarborgar
árið 2000.
Hákan Wikman orgelleikari.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
www.mbl.is
Upplýsingasími: 5800 500