Morgunblaðið - 08.07.2000, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.07.2000, Blaðsíða 22
0002 IJUl .8 HUOACIHAOTJ A J 22 LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000 ERLENT GIGAJHHUDHOM MORGUNBLAÐIÐ Fleiri greinast með alnæmi í Afríku en á nokkrum öðrum stað í heimin- um. 12 milljónir afrískra barna eru nú munaðarlaus vegna alnæmis. Barnið í forgrunni myndarinnar er á bamaheimili fyrir þau böm sem greinst hafa með veiruna í Suður-Afríku. Alþjóðleg alnæmisráðstefna í S-Afríku Óttast deilur vísindamanna við Mbeki Soweto, Durban, Jóhannesarborg. AP, AFP. ALÞJÓÐARÁÐSTEFNA um al- næmi hefst í Durban í Suður-Afríku nú á sunnudag. Þetta er í 13. skipti sem ráðstefnan er haldin, en í fyrsta skipti sem Afríkuríki heldur ráð- stefnuna og er þema hennar að þessu sinni „Rjúfum þögnina“. Um 34,3 milljónir manna í heiminum öllum hafa greinst með alnæmisveiruna og þar af er 24,5 milljónir þeirra að finna í suðurhluta Afríku. Nú þegar hafa yfu- 11 milljónir manna látist úr alnæmi í Afríku einni og er ástandið verst í Suður-Afríku þar sem 4,2 milljónir landsmanna bera veiruna. Mikil öryggisgæsla verður á ráðstefnunni sem stendur dagana 9.-14. júlí og verða mótmæli aðeins leyfð að takmörkuðu leyti. En yfir 10.000 manns frá 178 löndum taka þátt. Margir gagnrýnendur Thabo Mbeki, forseta Suður-Afríku, óttast að þær niðurstöður sem ráðstefnan kunni að leiða í Ijós muni hverfa í skuggann af deilum virtra vísinda- manna við Mbeki. Forsetinn hefur frá því í apríl á þessu ári stutt kenn- ingar nokkurra vísindamanna sem halda því fram að ekki séu tengsl milli alnæmissjúkdómsins og hinnar svo- nefndu HIV-veiru, heldur sé í suður- hluta Afríku um að ræða félagsleg vandamál s.s. fátækt og vannæringu. Stuðningur Mbekis við slíkar kenningar hefur vakið reiði margra vísindamanna sem leita leiða til að hindra hraða útbreiðslu alnæmis í Afríku. í kjölfar þessa hafa á fimmta þúsund vísindamenn undirritað Durban-yfirlýsinguna þar sem tengsl HIV-veirunnar og alnæmis eru sögð sannanleg. í Afríkuríkinu Botsvana er einn af hverjum þremur íbúum með veiruna og í Malaví er meðalævi íbúa 37 ár vegna alnæmis. Sé litið á einstakar starfsstéttir í Suður-Aíríku þá kemur í ljós að tveir af hverjum þremur her- mönnum eru sýktir af alnæmisveir- unni og smitast 1.700 manns þar í landi á degi hverjum. í Svasílandi, Zimbabve og Lesótó er einn af hverj- um fjórum íbúum sýktur og í Suður- Afríku, Zambíu og Namibíu er talan einn af hverjum fimm. í Zimbabve ætti meðalævi manna að vera 65 ár en vegna alnæmis er hún 39 ár. Þau vandamál sem alnæmi hefur í för með sér tengjast bæði efnahagi og heilbrigðismálum þessara þjóða. Fjöldinn allur af vinnufæru fólki deyr nú úr sjúkdóminum og um 12 milljón- ir barna í Afríku eru munaðarleys- ingjar vegna alnæmis. Vandinn er þó e.t.v. ekki síst afneitun og fáfræði al- mennings. Hinir sjúku eru gjaman útilokaðir af fjölskyldum sínum og reknir úr starfi. Þá eru þeir hæddir af nágrönnunum og sumum jafnvel neitað um læknismeðferð þar eð þeir muni hvort eð er deyja. Lyfjakostnaður of hár Þróunarsamband ríkja í suður- hluta Afríku (SADC) hefur undanfar- ið leitað leiða til að draga úr út- breiðslu veirunnar með því að hvetja til breytinga á stefnu erlendra lyfja- fyrirtækja. í Suður-Afríku vilja yfirvöld hvetja lyfjafyrirtæki í álfunni til að fram- leiða sams konar lyf og erlend lyfja- fyrirtæki selja í dag þar sem kostnað- urinn við kaup þessara lyfja er of hár fyrir Afríkuríidn. Dómsúrskurður sem fenginn var að ósk erlendra lyfjafyrirtækja hindrar þó Suður-Afríku þessa stundina í að hrinda þeirri áætlun í framkvæmd. Samkeppnisyfírvöld í Svíþjóð sekta olíufélögin Höfðu samráð um verðhækkanir SÆNSKA samkeppnisstofnunin hefur fundið stærstu olíufélögin í Svíþjóð sek um ólöglegt verðsamráð og dæmt þau til að greiða rúmlega 6,4 milljarða ísl. kr. í sekt. Talið er, að samráðið hafi kostað sænska neyt- endur rúmiega 4,5 milljarða króna. Olíufélögin, sem um ræðir, eru Statoil, OK-Q8, Shell, Hydro og Preem en í skýrslu sænsku sam- keppnisstofnunarinnar segir, að full- trúar fyrirtækjanna hafi haft með sér samband næstum daglega frá 25. maí til 14. desember á síðasta ári. Tilgangurinn var sá að hækka verðið til stórra kaupenda, sem fá magn- afslátt hjá olíufélögunum. Olíufélögin fyrmefndu velta um 304 milljörðum ísl. kr. á sænska markaðinum og magnafslátturinn tekur til um 40% af veltunni. Yfirskinið var umhverfismál Samráðsfundir oh'ufélaganna voru haldnir undir því yfirskini, að á þeim væri verið að ræða umhverfismál og um bætiefni í bensín í staðinn fyrir blý en Ann-Christine Nykvist hjá samkeppnisstofnuninni segir, að fundarefnið hafi ávallt verið hvernig haga skyldi bensínverðinu til að fela hækkunina til þeirra, sem fá magn- afsláttinn. Samkeppnisstofnunin lét til skarar skríða gegn félögunum í rauðabítið 16. desember sl. og var þá gerð hús- rannsókn hjá þeim öllum. Þar var lagt hald á geysimikið af skjölum og tölvugögnum og m.a. um fyrmefnda samráðsfundi. Um rannsóknina hafa síðan verið skrifaðar 6.000 blaðsíður, yfirheyrslur hafa staðið í meira en 100 klukkutíma og hafa þar komið við sögu 30 lykilmenn auk þeirra full- trúa kaupenda, sem kallaðir hafa verið fyrir. Með samþykki æðstu manna Einna erfiðast fyrir starfsmenn samkeppnisstofnunarinnar var að átta sig á hvernig olíufélögin höfðu farið að við að hækka verðið án þess of miklar grunsemdi vöknuðu. Það tókst þó að leysa það og var þá m.a. haft til hliðsjónar verðlagningar- mynstrið, heimsmarkaðsverðið og svo aftur bensínverðið frá dælunni. I skýrslunni segir einnig, að enginn vafi sé á því, að forstjórar félaganna og aðrir helstu stjómendur hafi verið með í þessu. A samráðsfundunum vora allir helstu markaðs- og sölu- stjórar olíufélaganna. Brottrekstur hjá Shell Statoil og OK-Q8 hafa bragðist við þessu máli með því að færa menn til í starfi en í gær var skýrt frá því, að einn af yfirmönnum Shell í Svíþjóð hefði verið rekinn. Var hann ekki nefndur á nafn en fyrir þremur dög- um var öðram vikið frá um stundar- sakir a.m.k. Olav Ljösne, settur að- stoðarforstjóri Shell í Svíþjóð, fullyrti þó í samtali við Dagens Ny- heter í gær, að yfirstjórn fyrirtækis- ins hefði ekki haft nokkra vitneskju um verðsamráðið. Reuters Fy rirbyggj andi áfallahjálp London. Daily Telegraph. FLEST bendir til þess, að Verka- mannaflokkurinn í Bretlandi haldi völdum eftir næstu þingkosningar en jafnvíst þykir að meirihluti hans á þingi minnki veralega. Vegna þessa er flokkurinn farinn að veita þeim þingmönnum sínum, sem líklegir era til að falla, fyrir- byggjandi áfallahjálp. Meirihluti Verkamannaflokksins hefur nú 177 sæti en svartsýnustu spár gera ráð fyrir að hann fari nið- ur í sextíu sæti. Það er því líklegt að margir þingmannanna verði að snúa sér að öðram störfum. Stórsigur Verkamannaflokks- ins í kosningunum 1997 skolaði inn á þingið mörgum mönnum sem vora í raun ekki undir það búnir að sigra og margir í ágætum störfum fyrir. Þeir urðu þó að láta af þeim vegna þingmennskunnar og fæst- ir geta snúið til þeirra aftur. Einn ráðherra ríkisstjómarinn- ar hefur verið skipaður eins konar „huggari" og hefur hann það starf að telja kjark í þá sem era í mestri hættu og fá þá til að sætta sig við örlögin. Er þeim t.d. kennt að sækja um starf og veitt ýmis önn- ur hjálp. Önnur ástæða fyrir umhyggj- unni er að sögn sú að flokksaginn hefur minnkað og hætta þykir á að þeir sem sjá fram á ósigur í kosn- ingunum láti hann alveg lönd og leið vegna gremju sinnar yfir framtíðarhorfunum. Húsnæði dýrt í Ósló Harry selst sem heitar lummur STARFSFÓLK netbóksalans Ama- zon.co.uk í Bretlandi undirbýr sendingar á 65 þúsund eintökum af nýjustu bókinni um Harry Pott- er, en hún heitir Harry Potter og eldbikarinn. Bókin kom á markað í gær, en er þegar orðin mest selda bók í sögu bóksölu á Netinu. „Þær eru ekki svo raunsæjar að þær séu leiðinlegar," sagði Nat- asha Cook, ellefu ára stúlka í London, um hinar gífurlegu vin- sældir bókanna um Harry, sem nú eru orðnar fjórar. Nýjasta bókin er mun meiri doðrantur en hinar fyrri, er hún 752 blaðsiður, og velti dálkahöfundur New York Times því fyrir sér hvort það væri kannski of stór biti fyrir börn og unglinga. „Fyrstu þrjár bækurnar kenndu mörgum börnum að meta bóklestur. Nýja bókin kennir þeim ef til vill þann mikilvæga sið full- orðinna að láta sjá sig með stórar tiskubækur til að geta sagst vera rétt að byija að lesa þær, ef ein- hver skyldi spyrja," skrifar dálka- höfundurinn, Gail Collins. Fyrsta upplag bókarinnar í' Bretlandi og Bandaríkjunum er 5,3 milljónir eintaka. VERÐ á íbúðarhúsnæði í Ósló hef- ur hækkað mikið að undanförnu og nú er svo komið, að hver fermetri í einstaklingsíbúð í höfuðstað Nor- egs kostar að meðaltali 234.000 ísl. kr. að því er fram kemur í Af- tenposten. Verðið á litlum íbúðum hefur hækkað mest og á einstaklingsíbúð- unum um 35% á einu ári. í tveggja herbergja íbúðum kostar fermetr- inn rétt tæpar 200.000 ísl. kr. og er það 30% hækkun bara frá áramót- um. í raðhúsum og litlum einbýlis- húsum er fermetrinn á 135.000 kr. og í blokkaríbúðum á tæplega 156.000 kr. Á þeim síðastnefndu hefur jafnvel orðið einhver lækkun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.