Morgunblaðið - 08.07.2000, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
IMiargmMaíiíÖ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
FIMM KILOMETRA SPRETTUR
FYRIR MORSUNMAT ER TOPPURINN
Hundalíf
Hann er ótrúlegur þessi Þar er sofið Líkar þér Ekki lengur,
sumarbúðabæklingur. í litlum ekki útilegur? ég er öll útiliggjandi.
Hvem skyldi langa þangað? tjöldum
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Hestaeigendur þrífa aldrei nokkum skapaðan hlut upp eftir
hestana sína, segir bréfritari og er orðinn leiður á að hjóla
í hrossaskít á göngustígunum.
Hrossaskítur
í Arbænum
Frá Bjartmari Oddi Þey
Alexanderssyni:
ÉG SENDI þetta bréf til að kvarta
undan öllum hrossaskítnum á göngu-
stígum Árbæjar. Ég held að það sé
útaf þessu hestamóti þama fyrir of-
an mig. Ég hjóla alltaf í vinnuna (er
að fara að fá bflpróf eftir viku sem
betur fer) og þegar ég kem í vinnuna
eru dekkin þakin hrossaskít.
Ég var nefnilega að hugsa það að
hundaeigendur hafa staðið sig mjög
vel í Árbænum við að taka upp skít-
inn frá hundunum sínum og ættu all-
ir sem einn að fá hrós, en annað get-
ur maður sagt um þessa
hestaeigendur. Þeir þrífa ekki upp
neinn skapaðan hlut eftir sig. Flestir
hestaeigendumir búa úti á landi þar
svo ég tel að þeim finnist allt í lagi að
skflja þetta bara eftir vegna þess að
þeir gera það heima. Það er bara
heimska í þeim að ríða á malbikinu í
staðinn fyrir malarveginn fyrir neð-
an. Þá er bara hægt að sparka skítn-
um í gróðurinn. Það ætti að sekta
landsamband hestaeiganda og láta
þá borga þrifin á gangstígnum og
kannski bara hjólinu mínu líka.
BJARTMAR ODDUR ÞEYR
ALEXANDERSSON,
Brekkubæ 38, Reykjavík.
Sjötíu töskur týndar
í tvo sólarhringa
Frá Gerði Steinþórsdóttur:
AÐFARANÓTT 2. júlí sl. kom flug-
vél frá Flugleiðum frá borginni Ziir-
ich í Sviss. Komutími var 00.15 sam-
kvæmt áætlun. Seinkun varð á
fluginu, sem ekki er í frásögur fær-
andi, og nýr komutími 01.35. Far-
þegar héldu að þeir fæm með flugvél
Flugleiða en svo reyndist ekki vera
heldur flugu þeir með svissneskri
flugvél. Var enn þrengra milli sæta
en í flugvélum Flugleiða, svo mjög að
legið var svo að segja í kjöltu þess
sem fyrir aftan sat þegar sæti var
hallað aftur. Rétt hefði verið að far-
þegar hefðu verið látnir vita að um
leiguflugvél væri að ræða þegar þeir
keyptu miðana.
Til Keflavíkur komu fáar töskur
og það leið og beið. Þá fór að kvisast
út að sjötíu töskur vantaði, en engin
opinber tilkynning þess efnis kom
fram. Loks fór að myndast röð við
þjónustuborðið en tveir starfsmenn
fengu það hlutverk að skrá upplýs-
ingar um týndar töskur. Þetta tók
einn og hálfan tíma. Svissnesk kona,
sem var komin til að ferðast um land-
ið í hóp, var gráti nær. Ferðafötin
vom í töskunni og allar upplýsingar
og símanúmer. Farþegar fengu bréf
um farangursleit þar sem gefið var
upp símanúmer á Keflavíkurflugvelli
til að fá upplýsingar. Svo þurftu þeir
að koma sér sjálfir í bæinn, því ekki
hafði þeim heldur verið tilkynnt um
verkfall Sleipnis. Daginn eftir var
ekki svarað í þeim símanúmeram
sem bent var á. Á öðrum degi náðist
samband við símsvara sem bað um
skilaboð, sem ekki var svarað. Einn-
ig var í bréfinu gefin upp slóð á vefn-
um en þar kom fram að leitað væri að
töskunum og bent á að hafa samband
við viðkomandi flugfélag. Hringt var
í önnur númer og talað við nokkra
starfsmenn, sem virtust vita um
þetta atvik, en gáfu villandi upplýs-
ingar. Að kvöldi annars dags komu
töskumar fram og var ekið heim að
dyram. Það var eini ljósi punkturinn
við þessa ömurlegu flugferð, þar sem
ekkert stóðst. Því er spurt: Hefur
hagræðingin hjá Flugleiðum, sem
fólgin er í fækkun starfsfólks, haft í
för með sér að fyrirtækið ræður ekki
við óvæntar aðstæður? Er forsvar-
anlegt í skjóli lágra flugfargjalda,
flugfrelsis, að bjóða farþegum upp á
hvað sem er?
GERÐUR
STEINÞÓRSDÓTTIR,
Kvisthaga 16, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.