Morgunblaðið - 08.07.2000, Blaðsíða 58
58 LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000
FÓLKí FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ
dsbanki *s
Tílboð til klúbbfélaga
Landsbanka íslands hf.
Rex_______________________________
Tveir fyrir einn á kvöldverði á Rex.
Tilboðið gildir frá sunnudegi til fimmtudags.
Afsláttur í golf__________________
Félagsmenn Vörðunnor, Námunnar,
Sportklúbbs og Krakkaklúbbs
Landsbankans njóta 25% afsláttar af
vallargjöldum hjó GR.
Orlando---------------------------
Vörðufélagar fá ferð til Orlando í 8 eða 15
daga á einstökum kjörum 6. nóv. og til
baka 14. eða 21. nóv.
Hundar éfnir í Kína_______________
Vörðufélagar fá afslátt á myndina Hundar
étnir í Kína (I Kina spiser de hunde) í
Háskólabíói - miðinn á 450 kr.
Öll tilboðin fást gegn framvísun debet-
korts/félagskorts í viðkomandi klúbbi.
Ýmiss önnur tilboð og afslættir bjóðast
klúbbfélögum Landsbanka Islands hf. sem
finna má á heimasíðu bankans,
www.landsbanki.is
Landsbankirtn
m
onustuver 560 6000
Opið frá 9 til 19
I.EIKFELAG ISLANPS
tnstnOtlM 552 3000
THRILLER sýnt af NFVÍ
fnjmsýning fös. 7/7 kl. 2030
nokkur sæti laus
fös. 14/7 kl. 20.30 laus sæti
lau. 15/7 kl. 20.30 laus sæti
fös. 21/7 kl. 20.30 laus sæti
Ath. Einungis þessar 4 sýningar
530 3030
BJÖRNINN — Hidegisleikhús
með stuðningi Símans
lau. 8/7 kl. 12 nokkur sæti laus
fim. 13/7 kl. 12
fös. 14/7 kl. 12
Miðasalan er opin frá kl. 12-18 1 Loftkastalanum
og frá kl. 11-17 I Iðnö. Á báðum stöðum er opið
fram að sýningu sýningarkvöld og um helgar þegar
sýning er. Miðar óskast sóttir I viðkomandi leíkhús.
(Loftkastalinn/lðnó).
Ath. Úsóttar pantanir seldar 3 dögum fyrír sýningu.
Miðasala S. 555 2222
The Hammer of Thor
A mythological action-comedy
fös 14/7 kl. 20 Laus sæti
Sýningartími 50 mínútur.
Ath. síðasta sýning.
mbl.is
LLTAf= Æ/rrHVVUD A/
^Merkingar O
föt og skó
^Laugalækur 4 » S: 588-1980^
Súrefiiisvörur
r Karin Herzog
Silhouette
STUTT
Brúðgumi í
brúðarkjól
► ÞAÐ ER ekki að undra að brúð-
ur ein á grísku eyjunni Krít hafi
fengið taugaáfall
því nóttina fyrir
brúðkaupið kom
hún að tilvon-
andi eiginmanni
si'num, klæddum
í brúðarkjólinn
hennar, í faðmi
svaramannsins.
Hjónaleysin
voru að skemmta
sér í sitt hvorri veislunni kvöldið
fyrir brúðkaupið þegar vinir brúð-
arinnar vildu endilega fá að skoða
kjólinn. Þegar þau komu að heimili
brúðarinnar komu þau að brúðg-
umanum, klæddum brúðarkjólnum,
í faðmi svaramannsins. Brúðurin,
sem hafði verið mjög taugaóstyrk
fram að þessu, brotnaði niður og
var lögð inn á sjúkrahús. Þá hefur
brúðkaupinu verið frestað.
Sísvangur
sælkeri
► CLARK Dounouk býr í Conn-
eeticut í Bandaríkjunum og er sólg-
inn í sælkeramat. Hann hefur nú
verið sakaður um að hafa brotist 35
sinnum inn í matvörubúð á undan-
fömum tveimur mánuðum og ræna
þaðan humri, kampavíni, rækjum og
hæfilega gömlu víni. Lögreglan seg-
ir að Dounouk hafi komist inn í
verslunina gegnum ólæstar dyr
bakatil í húsinu sem voru settar upp
til bráðabirgða.
Höfundur
„Jaws“ berst
fyrir verndun
hákarla
► PETER Benchley, höfundur
metsölubókarinnar „Jaws“, hefur
gengið í lið með dýraverndunarsinn-
um og berst nú fyrir verndun há-
karla.
Benchley, sem nýlega talaði opin-
berlega fyrir hönd WildAid samtak-
anna, sagði afar mikilvægt að gripið
yrði til aðgerða eins fljótt og auðið
er til að hægt væri að bjarga sömu
skepnum og hann gaf heldur slæma
mynd af í skáldsögu sinni sem síðar
var kvikmynduð á ógleymanlegan
hátt af Steven Spielberg.
„Á þeim 25 árum síðan „Jaws“
var fyrst gefin út hafa hákarlar orð-
ið fyrir grimmilegum og stjómlaus-
um árásum." Samkvæmt skýrslu
WildAid samtakanna eru yfir 100
milljón hákarla og fiska sem líkjast
hákörlum drepnir ár hvert. í sam-
anburði eru aðeins 12 manns drepn-
ir af hákörlum á hverju ári.
WildAid segir að vegna ásóknar
Asíubúa í hákarlakjöt til að nota í
hákarlasúpur sínar hafi heimsversl-
un með hákarla aukist mikið á
undanfömum tveimur áratugum
sem gert hefur það að verkum að
sumir hákarlastofnar hafa minnkað
um allt að 90%.
„Þetta em yndisleg dýr sem lifað
hafa nánast óáreitt í hundrað millj-
óna ára,“ sagði Benchley. „Við meg-
um ekki láta eina kynslóð mannfólks
eyðileggja 400 milljón ára þróun.“
Benchley, sem hefur ferð sína um
Asíu síðar í þessum mánuði þar sem
hann mun halda íyrirlestra, hefur
óskað eftir aðstoð stjórnvalda við að
banna allar þær vömr sem inni-
halda efni úr hákörlum. Einnig von-
ast hann til þess að rannsóknir hefj-
ist á hákörlum og misnotkun þeirra.
E g ákvað að syngja
á móðurmálinu
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Herbert Guðmundsson og landsliðið á milli laga í gullgerðarlistinni.
og bændum og býður bækur og ann-
an vaming til sölu. Þetta hefur hann
gert um áralangt skeið og virðist ekk-
ert þreytast á þeytingnum enda er
víðast hvar vel tekið á mótí honum
með ijúkandi kaffi og kleinum.
Hljóðversvinnan gengur að sögn
Hebba þrælvel enda varla annað
hægt, hann sé með „landslið íslenskra
tónlistarmanna í stúdíóinu, þá. Jóa
Asmunds á bassa, Jón Elvar á gítar,
Ingó á trommum og Þóri Úlfarsson á
hljómborð.“ Vinnan þarf líka að
ganga hratt og vel fyrir sig því Her-
bert er að fara í stóra söluferð tíl
Skotlands þar sem hann verður lung-
ann úr sumrinu.
„Við erum að klára að „grunna"
eins og sagt er, svo á ég eftir „over-
dubbið" sem eru hljómborð og fiðlur
en ég ætla að vera með alvöru
strengjasveit sem er skipuð nokkrum
aðilum úr Sinfóníuhljómsveitinni. Svo
á ég eftir að syngja svona „final“-söng
sem kallað er, ég er bara með svona
„scratch“-söng á meðan við erum að
vinna þetta.“ Stefnan er sett á að
mæta aftur í hljóðverið með haustinu
tíl að fullvinna sönginn og strengina.
Gullgerðarmaðurinn
Tónlistin á nýju plötunni er hefð-
bundið „melódískt popprokk" og ball-
öður að sögn Herberts. „Þetta verður
reglulega skemmtileg plata þótt ég
segi sjálfur frá.“
Þetta verður þrettán laga plata og
flestöll lögin eru ný en vegna þess að
nú syngur Herbert á íslensku hefur
hann ákveðið að snúa nokkrum laga
sinna, sem áður vora á engilsaxnesku,
yifir á móðurmálið „og þannig verða
þau sem ný fyrir áheyrendur“.
Tíu af lögunum eru eftir Herbert
sjálfan en hin þijú eru eftir portú-
galska tónlistarmenn, Dýrðlingana
og syndarana, sem hann kynntist á
ferðalagi sínu um Portúgal í fyrra.
„Ég heyrði eitt laga þeirra og kolféll
fyrir tónlistínni og fílaði þá alveg í
botn. Þetta eru ofsalega skemmtíleg-
ar melódíur sem ég peppaði upp og
gaf svolítið aukatmkk svo að tónÚstin
yrði líkari mér.“ Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem ferðalög Herberts hafa
gefið honum innblástur í tón-
smíðamar því í nýlegri söluferð tíl
Egilsstaða bilaði bfllinn hans. „Strák-
urinn sem gerði við bflinn minn, Hugi
Guttormsson, reyndist vera ljóðskáld
líka pg hefur gefið út tvær Ijóðabæk-
ur. Ég gluggaði í bækumar og datt
niður á ljóð sem heitír „Leiðin greið“
sem er nú lag á nýju plötunni. Text-
inn er á þessa leið: Sólin skín í heiði,
um sumarlangan dag, nú ber vel í
veiði, nú vænkast um minn hag.“
Nýja platan leggst mjög vel í tón-
listarmanninn. „Það er langt síðan ég
hef verið svona ánægður, líka af því
að ég er að syngja á hinu ástkæra, yl-
hýra. Það hefur verið vælt í mér öll
þessi ár:,Af hveiju syngurðu alltaf á
ensku?“ en ég gerði það bara af því að
ég hafði gaman af því og það gekk vel
og ég gerði það ágætlega.11
Fyrirhugaður útgáfutími plötunn-
ar er jólavertíðin í ár. Þegar Herbert
er spurður um nafn plötunnar kemur
í fyrsta skipti í spjallinu hik á hann,
en þegar þrýst er aðeins fastar segist
hann vera að hugsa um að skíra perl-
urnar sínar Herbert Guðmundsson;
GuU.
Morgunblaðið/Golli
Þeir eru stuðboltar miklir og snyrtilegir með eindæmum stákarnir í
hljómsveitinni f svörtum fötum.
Meistarinn er mættur
ÞEIR eru ávallt snyrtilegir og ávallt
tilbúnir. Þeir em í hljómsveitinni í
svörtum fötum og klæða sig sam-
kvæmt því.
Góðu fréttimar em þær að milli
kl. 14 og 16 í dag fá íslendingar tæki-
færi tíl að berja þessa snyrtilegu
sveit augum er hún spilar fyrir fram-
an húsnæði verslunar Sævars Karls í
Bankastræti. Á meðan spila-
mennskan ræður ríkjum fyrir utan
verslunina verður Sævar með tilboð
á fötum innandyra. Einnig verður
boðið upp á léttar veitingar.
„Þetta verður hálfgerð tískusýn-
ing,“ segir Þorvaldur Þór Þorvalds-
son, trommuleikari sveitarinnar.
„Söngvarinn mun koma fram í
nokkmm mismunandi fötum en frá
því hljómsveitin var stofnuð fyrir
einu og hálfu ári höfum við komið
fram í fötum frá Sævari Karli. Við
eram langflottasta hljómsveitin á
landinu, alltaf í jakkafötum.
Auk Þorvaldar eru í sveitinni
söngvarinn Jón Jósep Snæbjömsson
(söng m.a. í Abba-sýningunni í
Broadway) gítarleikarinn Hrafnkell
Pálmarsson, bassaleikarinn Sveinn
Áki Sveinsson og hljómborðsleikar-
inn Einar Öm Jónsson.
í svörtum fötum tók menntaskóla-
böllin og árshátíðir fyrirtækja með
trompi í vetur enda flytur sveitin
mikil stuðlög sem fá alla til að hreyfa
skankana. Sveitin leikur mest lög
eftír aðra en nýverið tók hún upp
lagið Meistarinn sem væntanlega á
eftir að hljóma á öldum Ijósvakans í
sumar. „Við stefnum á að gefa út
meira framsamið í framtíðinni en er-
um ekki enn komnir með neina tíma-
setningu á plötu, en það kemur með
tíð og tíma.“
í svörtum fötum spilar í Bankastrætinu í dag
Einn þeirra sem gerðu
árið 1985 jafn eftir-
minnilegt og raun ber
vitni er Herbert Guð-
mundsson en lag hans
Can ’t Walk Away er
löngu orðið rótgróið í
þj óðarvitundinni.
Jóhanna K. Jóhannes-
dóttir sló á þráðinn í
hljóðverið til Herberts
sem er að taka upp
nýja plötu.
Úr hljóðverinu
„Ég er að taka upp nýja sólóplötu, á
íslensku, þannig að það kveður við
nýjan tón hjá Herberti." Það eru orð
að sönnu því Herbert hefur á löngum
tónlistarferli sínum alltaf sungið á
ensku. „Ég ákvað að venda kvæði
mínu í kross og syngja á móðurmál-
inu. Það er ólíkt því sem ég hef verið
að gera og það gengur alveg rosalega
vel, lögin em góð og þetta verður al-
veg megagóð plata sem á eftír að
koma á óvart.“
Herbert, eða Hebbi eins og hann er
oftast kallaður, segir að það eigi eftír
að færa hann nær þjóðinni að syngja
á íslensku. Þjóðin veit samt vel af
Hebba því þótt lítíð beri á honum á
sveitaballamarkaðnum og í tónleika-
sölum er hann samt iðinn við að koma
fram. „Ég syng mikið í skólum, á ár-
shátíðum, í einkasamkvæmum og
brúðkaupum meira að segja, ekki þó í
kirkjunni heldur í veislunni eftir at-
höfnina," segir Hebbi en hann er einn
örfárra íslenskra tónlistarmanna sem
heill aðdáendaklúbbur hefur verið
myndaður um, en HG-klúbburinn
hefur verið starfræktur af miklum
kraftí aðdáendanna í nokkur ár.
Árstíðaskiptin
Vetrarmánuðirnir eru mestí anna-
tíminn í tónlistinni hjá Hebba en öllu
rólegra er á sumrin. Það er þó langt í
frá að þessi viðkunnanlegi orkubolti
sitji aðgerðalaus yfir sumarmánuð-
ina, björtustu daga og vikur ársins
þeysist hann um landið í söluferðum
sínum, bankar upp á hjá húsfreyjum