Morgunblaðið - 08.07.2000, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000 19
VIÐSKIPTI
VKS og KPMG semja við Mjólkursamsöluna
Sérhæfum okkur í smíði
á sólpöllum, skjólveggjum og girðingum
wHPIwlffiw ''W
Pritiol
HUSASMIÐAMEISTARI
Símar 899 3461 & 863 3312
Netfang prinol@prinol.is
M0C>0 • rax .*><>«> OOc>."> • SíAimuíhi 2 I
|fS EIGNAMIÐUMJV
StmhmmSwtit btímmhfí l&mpcxt, NUfwSi.W—fco.,1^wim. G^nwxkSMqmm Wt *f l»m fetapui. A
4Ui«
Hefur þú fengið 10.000 kr. eingreiðslu?
Starf okkar
þitt s
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Tekið á málum á altæk-
an og faglegan hátt
KPMG ráðgjöf og Verk- og kerfis-
fræðistofan (VKS) hafa gert samn-
ing við Mjólkursamsöluna (MS) um
viðamikið ráðgjafarverkefni sem fel-
ur í sér þarfagreiningu fyrii- nýtt
upplýsingakerfi Mjólkursamsölunn-
ar.
Magnús Ingi Stefánsson, for-
stöðumaður upplýsingasviðs MS,
segir að þegar á daginn hafi komið
að VKS og KPMG vildu bjóða saman
í verkið hafi verið ljóst að MS gæti
fengið afar góða og víðtæka þjónustu
þar sem VKS hafi mikla reynslu af
þarfagreiningu fyrirtækja og KPMG
hafi yfirgripsmikla þekkingu á öllum
þeim þáttum sem lúta að því að inn-
leiða viðskiptahugbúnað og móta
fjármálaumsýslu hjá fyrirtækjum.
„Tölvukerfið sem MS notar er orðið
fimmtán ára gamalt og við væntum
þess að VKS og KPMG aðstoði okk-
ur við að leggja grunn að mun heild-
stæðai-a rekstrarumhverfi. Eitt af
markmiðunum sem við höfum sett
okkur er að bæta og auka aðgang
viðskiptavina okkar og birgja, bæði
að upplýsingum og pöntunarkerfi.
Að þessari vinnu lokinni á að liggja
fyrir lýsing á framtíðarsýn stjóm-
enda MS og ráðgjafanna um starf-
semi fyrirtækisins auk lýsingar á
hugsanlegum breytingum á starf-
semi þess og þeim kröfum sem nýtt
upplýsingakerfi þarf að uppfylla.11
Mjög spennandi verkefni
Sigurjón Pétursson, fram-
kvæmdastjóri VKS, segir að það sem
geri verkefnið sérstaklega spenn-
Útboðskynning deCOPE
Mikill áhugi
fjárfesta í London
UTBOÐSKYNNING var haldin í
gær (e. Roadshow) deCODE Gen-
etics í London. Ahugi fjárfesta á
fundinum virtist vera mjög mikill
að sögn Júlíusar Heiðarssonar hjá
Landsbréfum sem sat fundinn.
Um lokaðan kynningarfund var
að ræða sem deCODE og
umsjónaraðili útboðsins, Morgan
Stanley í London, stóðu fyrir. Auk
þeirra voru á fundinum staddir
fulltrúar fjármálafyrirtækja og
fagfjárfestar.
Aðspurður segir Júlíus að sér
hafi fundist kynningin ganga mjög
vel. „Kynningarferlið er nú í fullum
andi sé að MS hafi ákveðið að taka
heildstætt á allri framtíðarþörf fyrir-
tækisins fyrir upplýsingar og þekk-
ingu og samhæfa jafnframt þessari
vinnu stefnumótun og framtíðarsýn
fyrirtækisins. Mikil vinna eigi sér
stað innan MS samhliða vinnu ráð-
gjafa VKS og KPMG og því sé í
reynd verið að taka á málunum með
mjög altækum og faglegum hætti
sem ekki sé svo algengt. Aðspurður
segir Sigurjón að vinna við verkið sé
þegar hafin en áætluð verklok eru í
nóvember. Tveir til þrír starfsmenn
VKS muni koma að verkefninu og
sömuleiðis tveir til þrír ráðgjafar frá
KPMG auk verkefnisstjóra. Þá megi
ekki heldur gleyma að fjöldi starfs-
manna MS komi að þessari vinnu
með einum eða öðrum hætti.
gangi hjá félaginu og greinilega já-
kvæðir straumar í kringum það.“
Verslað með bréfin
þriðja dag eftir skráningu
Samkvæmt upplýsingum á vef-
síðunni IPO.com er búist við að
skráningardagur bréfa deCODE
verði 17.-21. júlí nk.
I Morgunpunktum Kaupþings í
gær kom fram að tveimur við-
skiptadögum eftir að verð hefur
verið endanlega ákveðið og fjár-
festar hafa fengið útboðslýsinguna
geti útboði talist lokið og því hægt
að versla með bréfin á þriðja degi.
Breytt fjárfestingarstefna
Islenska fjársjóðsins
AKVEÐIÐ var á aðalfundi íslenska
fjársjóðsins hinn 6. júlí síðastliðinn
að útvíkka fjárfestingarstefnu sjóðs-
ins og var sérstök tenging við fjár-
festingar í sjávarútvegi fjarlægð.
Miðast fjárfestingarstefna sjóðsins
nú við að fjárfest sé í fyrirtækjum
sem eiga mikla vaxtarmöguleika, þar
sem hæfir stjómendur, sérfræði-
þekking og íslenskt hugvit skapa
fyrirtækjunum vænlega samkeppn-
isstöðu á alþjóðlegum mörkuðum til
lengri tíma litið, að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu frá Landsbréf-
um hf., sem sjáum rekstur sjóðsins.
Við stofnun Islenska fjársjóðsins í
lok árs 1995 var í fjárfestingarstefnu
sjóðsins lögð áhersla á íjárfestingar í
sjávarútvegsfyrirtækjum. Uppgang-
m- var hjá sjávarútyegsfyrirtækjum
á þessum tíma og íslenski fjársjóð-
urinn ávaxtaði fjárfestingar sínar
þar ríkulega, að því er fram kemur í
tilkynningunni. „Islenski hlutabréfa-
markaðurinn hefur tekið miklum
stakkaskiptum frá stofnun sjóðsins, í
lok árs 1997 var hlutur sjávarútvegs
af hlutabréfamarkaðnum um 40% af
markaðsverðmæti en í lok árs 1999
er þessi hlutur sjávarútvegs um
25%. Nýjar atvinnugreinar hafa
sprottið fram hin síðari ár og eru sí-
fellt fleiri fjárfestingarkostir í boði.“
Til að styrkja enn frekar breyttar
áherslur í fjárfestingum íslenska
fjársjóðsins í tæknigeiranum, nánar
tiltekið á fjarskiptasviði og hugbún-
aðarsviði, var fjölgað í stjórn sjóðs-
ins úr 3 mönnum í 5. Hinir nýju
stjómarmenn eru Eyþór Arnalds,
framkvæmdastjóri Íslandssíma, og
Gísli Heimisson, stjórnarformaður
hugbúnaðarhússins Mens Mentis hf.
I stjóm sjóðsins sitja fyrir Viðar
Þorkelsson, stjómarformaður, Ein-
ar Benediktsson, forstjóri Olíuversl-
unar íslands, og Svanur Guðmunds-
son. Varamaður í stjóm er Sigurður
Atli Jónsson, forstjóri Landsbréfa
hf.
A aðalfundinum var einnig sam-
þykkt að greiða 10% arð til hluthafa.
Uppsagnir hjá Merrill
FREGNIR herma að Merrill
Lynch & Co., sem er stærsta
tryggingar- og fjárfestingarfélag í
Bandaríkjunum, hyggist segja upp
allt að 2.200 starfsmönnum í fjár-
festingardeild félagsins að því er
segir í The Wall Street Journal.
Ef satt reynist yrðu þetta mestu
uppsagnir hjá Merrill frá árinu
1998 en þá sagði félagið upp 3.400
starfsmönnum í kjölfar gríðarmik-
ils tapreksturs á Long-Term Capi-
tal Management-sjóðnum.
Hjá fjármáladeild Merrill, sem
er sú stærsta á Wall Street, starfa
um 14.400 verðbréfamiðlarar auk
22.600 annarra starfsmanna eða
samtals hátt í 37.000 manns. í
febrúar síðastliðnum tók Stanley
O’Neil við af John Steffens sem yf-
irmaður verðbréfaviðskipta og
hann hefur einsett sér að hreinsa
rækilega til í fyrirtækinu. Er sagt
að O’Neil ætli að fækka starfs-
mönnum í verðbréfadeildinni um
5,4% en það er um 3% af heildar-
mannafla Merrill. Ekki stendur þó
til að segja upp verðbréfamiðlur-
um heldur á að reka starfsmenn
og stjórnendur sem vinna að
markaðsmálum, stefnumótun og
tæknimálum. Talið er að með þess-
um uppsögnum muni Merrill spara
allt að 150 milljónum dala á ári eða
um 11,5 milljörðum íslenskra
króna.
Vönduð vinnubrögð -
gerum föst verðtilboð
Vorum að fá til sölu þetta glæsilega atvinnuhúsnæði á
þremur hæðum, alls talið u.þ.b. 857 fm. Um er að ræða
vandað steinhús sem stendur alveg niður á hafnar-
bakkanum við hlið Kaffivagnsins. Húsið er í mjög góðu
ástandi og hefur viðhald þess verið mjög gott. í dag er
eignin innréttuð sem skrifstofu- og þjónustuhúsnæði en
húsið býður upp á mikla möguleika hvað varðar nýtingu.
Óskað er eftir tilboðum í eignina, en allar nánari uppl.
gefa Stefán Hrafn og Óskar. 9618.
Farsími Óskars er 698 6168.
Grandagarður
Slysavarnafélagshúsið
British
Airways
verður að
selja GO-
flugfélagið
EVRÓPUSAMBANDIÐ ætlar
að setja það sem skilyrði fyiir
samruna British Airways og
hollenska flugfélagins KLM að
þau selji lágfargjaldaflugfélög
sín, Go og Buzz, að því er segir í
Scandinavian Travel. Ef af
samruna félaganna verður
munu British Airways og KLM
saman mynda stærsta flugfélag
í heimi miðað við veltu. Velta
hins sameinaða flugfélags yrði
um 21 milljarður punda á ári en
það svarar til um það bil 2.432
milljarða íslenskra króna. Til
samanburðar má nefna að velta
American Airlines, sem er
stærsta flugfélag heimsins sem
stendur, er um 18 milljarðar
punda á ári. Samkeppnisyfir-
völd Evrópusambandsins hafa
meðal annars verið að rannsaka
samkeppni í flugi á milli heima-
landa flugfélaganna, þ.e. Holl-
ands og Bretlands, með það að
markmiði að finna leiðir til þess
að auka samkeppnina en Brit-
ish Airways og KLM fljúga 270
sinnum fram og til baka milli
Lundúna og Amsterdam í viku
hverri.