Morgunblaðið - 08.07.2000, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000 21
ÚR VERINU
Morgunblaðið/Björn Gíslason
Áhöfn Gullfaxa, Kristinn Arnberg skipsljóri, Magnús Þór Ársælsson, Sigurvin Jón Halldórsson og Kristinn
Arnberg Kristinsson við lúðurnar góðu í Grindarvíkurhöfn.
„Svakalegar lúður“
GULLFAXI GK 14 kom að landi í
Grindavfk í fyrrakvöld með þrjú
tonn af lúðu en þar á meðal voru
tvær risalúður. Kristinn Arnberg
skipsljóri segir að lúðurnar stóru
hafi veiðst á Fjöllum um 120 mílur
vestur af Garðskaga. Lúðurnar
eru hvor um sig yfír 200 kílóa
þungar og eru um tveggja metra
langar.
„Þetta eru svakalegar lúður,“
segir Kristinn. „Við fengum aðra í
gær en hina í fyrradag. Það gekk
vel að koma þeim um borð enda
eru vanir menn hér um borð. Þess-
ar stóru lúður eru ekkert sérstak-
lega verðmætar enda þykir stór
fískur yfirleitt ekki eins góður og
sá smærri. Heildaraflinn í ferðinni
var þrjú tonn þannig að þetta var
mjög góður túr.“
Kristinn segir að lúðan sem þeir
veiði sé sett í gáma og flutt erlend-
is og þá leið fara lúðurnar stóru.
Ágæt veiði undanfarið
VEIÐAR á loðnu og kolmunna hafa
verið með ágætum undanfarið.
Fimm kolmunnaskip eru á miðun-
um og hefur verið ágætis veiði í
Rósagarðinum. Sex bátar voru á
loðnumiðunum í gær og voru þeir
staddir norður undir miðlínu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Samtökum fiskvinnslustöðva er búið
að landa rúmlega 30 þúsund tonnum
af loðnu það sem af er sumarvertíð-
inni og eftirstöðvar útgefins loðnu-
kvóta eru því um 388 þúsund tonn.
Tiltölulega fá loðnuskip voru á
miðunum í gær, segir Guðlaugur
Jónsson, skipstjóri á Óla í Sand-
gerði AK, en hann var við það að
fylla sig þegar Verið náði tali af
honum í gærmorgun. „Við erum
búnir að fylla núna og erum að dæla
afganginum úr nótinni yfir í Grind-
víking. Við komum hér í gærkvöldi
og erum að fylla núna en veiðin hef-
ur verið ágæt undanfarið. Þrátt fyr-
ir að veiðin sé ágæt er frekar dauft
yfir þessu og menn eru að kasta
mikið þar sem það er lítið að finna.
Reyndar urðu menn vel varir
aðfaranótt fimmtudags en það róað-
ist aftur þegar leið á daginn. Það er
því óhætt að segja að það sé veiði en
það er enginn kraftur í henni,“ segir
Guðlaugur.
Notaðar búvélar
á kostakjörum
Mikil verðlækkun
Mikið úrval
Ingvar
Helgason hf.
Sœvarhöföa 2 - Sírni 525 8000 - Beinn sími 525 8070
Fax: 587 9577- www.ih.is - Véladeild - E-mail: veladeild@ih.is
Kristrún veiðir
karfann á línu
LÍNUBÁTURINN Kristrún RE
177 hefur að undanförnu verið á
karfaveiðum á Reykjaneshrygg og
segir Halldór Gestsson skipstjóri að
veiðin hafi verið ágæt undanfarið.
„Þetta hefur verið svolítið nudd und-
anfarið en annars ganga veiðarnar
ágætlega. Það hafa verið að koma
um 10 tonn á lögnina en línan er ekki
látin liggja lengi. Við leggjum frekar
stutta línu og togum hana svo strax
inn aftur þannig að það er frekar lítið
af línu úti í einu. Hún liggur því að-
eins um tvo tíma. Við beitum aðal-
lega smokkfiski og síld og karfinn
virðist vera gráðugur í þetta.“
Halldór segir að veiðamar séu að
mestu bundnar við Reykjaneshrygg
en þó á fremur óhefðbundnum slóð-
um. „Við höfum ekki verið á þessum
hefðbundnu togslóðum heldur höf-
um við verið að þvælast út eftir
hryggnum að leita að stærri karfa.
Við erum búnir að vera á karfan-
um mestmegnis í allt sumar eða frá
því í maí og reiknum við með því að
vera á karfanum fram í september.
Þetta er ekki fyrsta sumarið okkar á
karfanum, við höfum farið síðustu
sumur og það hefur gefist ágæt-
lega,“ segir Halldór.
Kristrún tekur um 55 tonn í kör-
um og er karfinn ísaður um borð og
fluttur í gámum út til Þýskalands.
Halldór segir að verðið sem fengist
hefur fyrir karfann hafi verið heldur
slakt undanfarið en hafi heldur verið
að skána síðustu vikur.
------------------
Sjö sviptir
veiðileyfí
FISKISTOFA svipti sjö báta veiði-
leyfi í síðastliðnum júnímánuði og
voru þeir allir sviptir veiðileyfi vegna
afla umfram aflaheimildir. Veiðileyf-
issviptingin gildir þangað til afla-
marksstaða bátsins hefur verið leið-
rétt en þetta voru Ritur ÍS 22,
Grótta RE 26, Brimrún ÞH 15 og
Gullfaxi ÓF 11. Einnig voru sviptir
Dagfari GK 70, en hann fékk leyfið
að nýju 23. júní, Jón Guðmundsson
ÍS 75, en hann fékk leyfið að nýju 5.
júní, og Gullfaxi ÓF 1 sem fékk leyfið
að nýju 5. júní.
Bæjartind 4
200 Kópavogur
Sími: 544 4420
Dekor
Felliborð Ferkantað Verð: 19.000,-
Felllborð Hringlótt Verð: 17.900,-
Felllborð Áttkantað Verð:
Fellibekkur Verð: 11.900,-
Fellistóll Verð: 6.900,-
Sólbekkur "Steamer”
Verð: 12.900,-
Að sjálfsögðu emm við ennþá
með fjölbreytt úrval af
húsgögnum
og
gjafavöru
sœa
Dekor
Má - Fö: 10:00 til 18.-00
Laugardag: 10:00 tfl 17:00 Bæjariind 4
200 Kópavogur
Sími: 544 4420