Morgunblaðið - 08.07.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000 31
LISTIR
Morgunblaðið/Golti
Finnski listamaðurinn Rax Rinnekangas.
var að fyrr en á 8. áratugnum þegar
ég fór að lesa um einhverfu.11
Ljós og vinir
Hvað með vini?
„Ljósið var besti vinur minn. Eg
gat skoðað það endalaust og gaf því
mína eigin merkingu. Til dæmis við
matarborðið heima hjá mér. Við
morgunverðinn féll ljósið frá glugg-
anum á sætið mitt við borðið og þegar
það gerðist fannst mér ég vera hinn
sonur Guðs. Ég tók afstöðu til fólks
eftir því hvernig ljósið féll á það. Ef
ljósið gerði fólk ekki fallegra var það
ekki ljóssins virði.
Annar vinur minn frá sjö til ellefu
ára aldurs var drengur sem hafði
engin eyru og heyrði þar af leiðandi
ekki. Við áttum dásamleg samskipti.“
M segist hafa lesið um einhverfu á 8.
áratugnum. Lastu mikið sem dreng-
ur? „Nei, ekki fyrr en eftir að ég fór
að tala og þá las ég líka mikið.“
En ekki tókst Rax að sannfæra
fólk um að hann væri eins og fólk er
flest. Þegar hann sótti um inngöngu í
herinn fékk hann neitun og var í stað-
inn sendur til að vinna á geðsjúkra-
húsi.
„Þeir héldu að ég væri skrítinn og
fannst réttast að ég ynni í kringum
mína líka. En eftir hálft ár hætti ég í
því starfi og fékk vinnu sem plötu-
snúður. Það gekk ágætlega og ég var
alvöru atvinnuplötusnúður um tíma -
eða allt þar til ég fór að skrifa bæk-
ur,“ segir Rax og bætir því við að
hann hafi eins og annað fólk alltaf
haft tilfinningu fyrir því hvað hann
ætti að gera og hvert hann ætti að
stefna. Munurinn á honum og öðrum
hafi verið sá að hann hafi fylgt þess-
ari tilfinningu.
Fylgi alltaf innsæinu
„Ég hitti konuna mína fyrir sextán
árum. Eftir þriggja klukkustunda
kynni bað ég hennar og við vorum
gift innan hálfs mánaðar."
Hvernig datt þér það í hug?
„Þetta var vissa - eins og ég hafði
upplifað í æsku. Hún var líka viss.
Enda segi ég öllum að fylgja eðl-
isávísun sinni. Jafnvel þótt þú lendir
inni í völundarhúsi veistu að það var
beina leiðin þín þegar þú kemst út úr
því.“
Og ekki virðist vissan hafa verið
nein ranghugmynd því sextán árum
síðar er Rax enn kvæntur sömu kon-
unni og eiga þau þrjár dætur.
Þetta var árið 1984. Fyrsta ákvörð-
unin sem tekin var í hjónabandinu
var að selja allar eigur - sem voru
tveir gamlir bílar - og halda á vit æv-
intýranna. „Við fórum til Suður-
Frakklands þar sem okkur var sagt
að hvað sem við gerðum skyldum við
ekki fara til San Sebastian í Baska-
landi. Þess vegna fórum við þangað -
og það var rétt ákvörðun.
Strax á fyrsta degi hitti ég mann
og við tókum tal saman. Það kom í
ljós að hann var framkvæmdastjóri
Kvikmyndahátíðarinnar í San Seb-
astian. Það fór mjög vel á með okkur
og ég bauð honum í afmælið mitt um
kvöldið. Þar bauð hann mér í veislu
þar sem ég hitti Kurosawa. Hann
spurði mig hvað ég ætlaðist fyrir og
ég sagði honum að mig langaði að
starfa við ljósmyndun.
Þá sagði hann mér að fara næsta
dag að sjá RAN; hún hefði verið film-
uð á þann hátt sem hann væri viss um
að passaði mér. Ég sá myndina næsta
dag og þetta var einmitt það sem ég
hafði í huga. Ég fór þess vegna út í
þetta starf fyrir hvatningu Kuros-
awa. Þannig byrjaði þetta allt.
Jaðarsvæðin
Ég og fjölskyldan mín höfum síðan
dvalið mikið í San Sebastian og þar
varð ég ástfanginn af jaðarsvæðum.
Mér hefur alltaf fundist heimili mitt
vera á jaðrinum. Þegar ég var barn
var hann á jaðri veruleikans og eftir
að ég varð fullorðinn hef ég sótt mikið
í jaðarsvæði Evrópu. Þess vegna er
ég mjög stoltur yfir því að fá að sýna
hér í Reykjavík. Island er eitt af jað-
arlöndum Evrópu og sumar af mynd-
unum á sýningunni eru héðan. Énda
var það svo að þegar ég var að undir-
búa sýninguna gekk hún undir vinnu-
heitinu „Leyndardómar þorpsins
sem er kallað Evrópa." Fyrir mér er
Evrópa eins og menn sáu hana fyrir
hundrað árum. Þá þótti ekkert til-
tökumál að ferðast á milli stórborg-
anna, til Lundúna og Parísar til að
versla og síðan til Rómar. Það voru
engin landamæri, engar vegalengdir
- en samt hafði hvert land sín sér-
kenni. Evrópa er í rauninni ein heild.
Þar er alls staðar sama rafmagnið,
sömu símamir, sama tónlistin, sama
Björk að syngja alls staðar. í miðju
þorpinu er síðan tvær stórar mið-
stöðvar, í Strassborg og Brussel, og
ég kalla þetta Evró-kommúnismann.
Þar er miðstýringin sem er löngu
búið að sanna að getur ekki gengið
upp.
Hún er á skjön við skynjun manns-
ins og tilfinningu. Hún er á skjön við
sköpunarkraft hans og mér finnst að
skapandi fólk í Evrópu eigi að taka
höndum saman um að mynda heild
þar sem ekki er pláss fyrir þessar
verslunarmiðstöðvar."
Sýningin er opin alla daga kl. 11-
18, fimmtudaga kl. 11-19 og stendur
til 27. ágúst.
Refsingar ó Islandi í Hillebrandtshúsi
á Blönduósi. EyjafjörSur frá öndver&u í
Minjasafninu á Akureyri. Dygg&irnar sjö a&
fornu og nýju í Listasafninu á Akureyri. I
Löngubú& á Djúpavogi. Þeir settu svip á
söguna í Bygg&asafninu í Hafnarfir&i.
Upplýsingar um starfsemi Þjó&minjasafns
eru á heimasí&u þess: natmus.is
Þjó&menningarhúsi&
Hverfisgötu 15. Fjölbreytilegar menningar-
sögulegar sýningar, m.a. Landafundir og
Vínlandsfer&ir og Kristni í þúsund ár.
Veitingastofa opin. Lei&sögn um húsi& á
klukkutíma fresti. Opi&l 1-17.
Minjasafn Egils Ólafssonar
Hnjóti, Orlygshöfn. Bygg&asafn V-Barða-
strandasýslu. Safnið byggir á mikilli breidd.
Sögð saga um lífsbaráttu hins li&na fram til
okkar daga. M.a. munir frá héraðssjúkra-
húsi Patreksfjarðar, símstöðog sparisjóði.
Flugminjasafn og flugskýlið í Vatnagörðum.
Kaffisala. Leiðsögn um safnið. Opið 9-18.
Safn Jóns Sigurðssonar
Hrafnseyri við ArnarfjörS. Öllum boðin
ókeypis aðgangur að safninu á safnadaginn.
Hefðbundin dagskrá. Veitingasala í bursta-
bæ. Opið 13 - 20.
Bygg&asafn Akraness og nærsveita
Görðum. Gamlir kirkjugripir frá kirkjum á
Vesturlandi. Margir gripanna eru þjóðar-
gersemi s.s. altarisstjakarnir frá Saurbæjar-
kirkju að upplagi frá 12.öld. Jarðfundnir
munir frá fyrstu öld Islandsbyggða frá
svæðinu. Fastasýning safnsins. Opið 10:30
-12:00 og 13:30- 16:30.
Bygg&asafn Dalamanna
Laugum, Sælingsdal. Gott safn gamalla
muna úr bændasamfélaginu í Dölum fyrir
síðustu aldamót. Leiðsögn um safnið. Opið
15 - 19.
Bygg&asafn Snæfellinga og Hnappdæla
Norska húsið, Stykkishólmi. Myndlistar-
sýningar: Ebba Júlíana Lárusdóttir og Hlíf
Ásgrímsdóttir. Ljósmyndasýning: Húsamyndir
úr sýslunni frá 1960. Munir úr fórum ByggSa-
safns Snæfellinga og Hnappdæla og safn-
búð. Opið 11-17.
Gamia pakkhúsið Ólafsgötu
Ólafsvík. Ljósmyndasýning: Húsamyndir úr
Olafsvík frá 1960. Sýning á munum úr
fórum safnsins. Upplýsingamiðstöð ferða-
manna er í húsinu. Opið 9-19.
Safnahús Borgarfjar&ar
Bjarnarbraut 4-6, Borgarnesi. Listasafn,
byggðasafn, bókasafn, skjalasafn, náttúru-
gripasafn. Opi& 13 - 18.
Síldarminjasafni&
Siglufirði. Þar sem ævintýrið gerist enn.
Síldarsöltun, tónlist og dans laugardaga kl.
15. OpiS alla daga í sumar frá 10 - 18.
Bóka- og bygg&asafn Nor&ur-
Þingeyinga
Snartarstöðum, Kópaskeri. Setning og kynning
á sögu safnsins. Ungar stúlkur sýna þjóð-
búninga í eigu safnsins. Ur dagbókum
Norður-Þingeyinga, upplestur. Kynning á
safngripum úr búi Helga í Leirhöfn. Börnum
boði& á hestbak. Kaffi. Opið 13 - 17.
Bygg&asafn Húnvetninga og
Strandamanna
Reykjum Hrútafirði. Gömul vinnubrögð sýnd
kl. 15. Segið með orfi og Ijá, hey hirt af
vellinum. Tóvinna ofl. Gömul ökutæki og
dráttarvélar sýnd. Kaffisala. Opið 10 - 18.
Bygg&asafn Skagfir&inga
Glaumbæ. Safnadagar i Glaumbæ 8 - 9.
júli kl. 14. Laugardagur: Heyskapur og
handverk, ullar- og hrosshársvinna,
lummubakstur á hlóðum, torfrista og -
hleðsla. Sunnudagur: Sýningin Gluggað í
handrit, þjóðdansar og þjóðleg tónlist.
Heimilisi&na&arsafni&
Blönduósi. Safn heimagerðra tóvinnu- og
textílmuna. Þjóðbúningar og listfengar hann-
yrðir. Á safnadaginn verður sýnd tóvinna.
Opið 14- 17.
Minjasafni& á Akureyri
Aðalstræti 58. Nýjar sýningar: Eyjafjörður
frá öndverðu, Akureyri - bærinn við Pollinn
og Ljósmyndir Sigrí&ar Zoéga. I tilefni
dagsins verður sýnt úrval íslenskra kven-
búninga úr eigu safnsins. Opið 11-17.
Nonnahús
A&alstræti 54, Akureyri. Bernskuheimili
Nonna, Jóns Sveinssonar, jesúíta, prests og
rithöfundar. Leiðsögn. Opið 10 - 17.
Safnahúsi& á Húsavík
Svipmyndir úr sögu Húsavíkur á 20. öld -
Ijósmyndasýning i Safnahúsinu í tilefni 50 ára
kaupstaðarafmælis Húsavíkur. Opið 10 - 18.
Bygg&asafn Austur-Skaftafellssýslu
Höfn í Hornafirði. Pakkhúsið. Kl. 10 - 14:
Morgunkaffi, Hornafjarðarmyndir Ásgríms
Jónssonar og sjóminjasafn. Opið til 18.
Gamlabúð. Kl. 13-21: Mótorhjólasýning.
Gömul og ný hjól. Búvéla- og bílasýning.
Kl. 13: Mýra Rauðka gangsett eftir 35 ára
hvíld. Kl.14: Heyskapur með gamla laginu.
Kl.15: Kaffi og vöfflur í Gömlubúð. Mikli-
garður. Kl. 17: Leiðsögn, spjall og kaffi.
Fundarhús Lónmanna. Kl. 21-24:
Harmónikkuball. Hólmur í Laxárdal í Nesjum.
kl. 11 og 15: Leiðsögn um fornleifauppgröft.
Handraðinn. Kl. 14 - 21: Handverk og kaffi
í einu af elstu húsum Hafnar.
Jöklasýning í Sindrabæ
Höfn Hornafir&i. Jöklasýningin er fróðleiks-
náma um konung evrópskra jökla, Vatnajökul
og veitir innsýn í tengsl hans við aðra þætti
náttúru og mannlífs 1 héraðinu. Opið 8 - 20.
Minjasafn Austurlands
Laufskógum 1, Egilsstöðum. Mörk heiðni og
kristni, sýning á niðurstöðum fornleifarann-
sókna safnsins á Geirsstöðum í Hróarstungu
og Þórarinsstöðum í Seyðisfirði. Opið 11 -
17. Leiðsögumenn verða á rannsóknar-
stöðunum tveimur frá 13-17.
Minjasafni& Burstarfelli
Vopnafir&i. Gamli bærinn er meðal fegurstu
torfbæja sem varðveittir eru á Islandi. Þar er
fjöldi gamalla muna og er safnið gott sýnis-
horn af íslensku stórbýli frá fyrri tíð. Fjölbreytt
dagskrá á safnadaginn frá 14-1 8.
Heyskapur, járnsmi&i, ýmiss tóvinna o.m.f.
Kaffi og lummur.
Bygg&asafn Árnesinga
Húsinu, Eyrarbakka. I borðstofu kirkna-
myndir Jóns Helgasonar, biskups.
Kl. 11: Hús, skúr, líkkistuklæði og
pelagónia. Leiðsögn, sagt frá húsum og
safnmunum. Kl. 14 - 17: Lestarkaffi í tjöldum
á túninu norðan Hússins. I samstarfi við
Kaffi-Lefolii. Leikir á túninu. Kl. 14-16:
Spunnið á rokk í Húsinu. Kl. 14 ^ 17: Píanó-
leikur í stássstofu Hússins og sagt frá tón-
menningu á Suðurströndinni fyrrum.
Sjóminjasafni& á Eyrarbakka
Kl.14: Gönguferð um Eyrarbakka með
lei&söfn. Gangan hefst við sjóminjasafnið.
Kl. 14-17: Handbrögð með net og linu.
Kl. 16: Harmonikkuleikur.
Listasafn Árnesinga
Tryggvagötu 23, Selfossi. Sýningin Teglt í
tré. Opið 13 - 18. Sýningin Þorpsmyndir í
samkomuhúsinu Stað á Eyrarbakka.
Rjómabúi& Baugsstö&um
Vélar bússins gangsettar fyrir gesti. Opið
13 - 18.
Bygg&asafni& a& Skágum undir
Eyjafjöllum
Sjóminjadeild, lanbúna&ardeild, handverks-
deild, handrita- og skjaladeild auk vísis að
náttúrugripasafni. Nokkur endurbyggð hús
sýna þróun húsakosts landsmanna frá torf-
bæ til timburhúsa. Safnkirkja. Sýning á
bókum og handritum auk sýningar á náttúru-
gripasafni sem Andrés H. Valberg gaf til
safnsins. Opið 9-19.
Bygg&asafn Vestmannaeyja
Sexæringurin Farsæll og munir tengdir sjó
og sjósókn í Eyjum. Opið 11 - 17.