Morgunblaðið - 08.07.2000, Síða 57

Morgunblaðið - 08.07.2000, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000 57 I DAG BRIDS limsjón: Guðmuntliir Páll Arnarson FYRIR daga Roman-lykil- spilaspurningarinnar gat verið vandasamt að segja á spil norðurs við opnun makkers á þremur spöð- um: Suður gefur; allir á hættu. Norður *3 ¥ A964 ♦ AK632 + AKD Vestur * 95 v KDG8 * G97 * 10863 Austur * KG7 ¥ 10752 ♦ D105 + G95 Suður + ÁD108642 ¥3 ♦ 84 + 742 Vestur Norður Austur Suður 5grönd Pass Pass Pass Þetta er klaufalega sagt, því venjan er að stökk í fimm grönd biðji makker að segja sjö með tvo af þremur efstu í tromplitn- um. Með svo veikt tromp ætti norður frekar að hoppa í fimm spaða og þá myndi suður koma við í fimm gröndum með AKD í litnum. Roman-lykilspila- spurningin fjögur grönd gerir slíkar krókaleiðir óþarfar, því suður sýnir í svari sínu nákvæmlega hvað hann er með af háspilum í trompi. En hvað sem því líður, þá er suður staddur í sjö spöðum og verður að gera sitt besta. Útspil vesturs er hjarta- kóngur. Sagnhafi drepur og spilar spaða í þeirri veiku von að austur haldi á KG í tvíspili. En austur fylgir með sjöu. Þá er að treysta á KG7 í austur og trompbragð í lokin. Suður svínar tíunni og notar svo innkomurnar á tígul og lauf til að stinga þrjú hjörtu og einn tígul. Eftir fjórar trompstungur _er suður kominn niður á ÁD stakt í trompi og eitt há- lauf í borði. Hann spilar laufi og austur fylgir blessunar- lega lit. Blindur á út í tveggja spila endastöðu og KG austurs fer fyrir lítið. Unnið spil, en norður ætti að sleppa því að gorta af eigin sagnvisku. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælis- barns þarf að fylgja afnuelistilkynningum og/eða nafn ábyrgð- armanns og símanúm- er. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1,103 Reykjavík Arnað heilla Q A ÁRA afmæli. Nk. tJ\J mánudag, 10. júlí, verður níræð Valgerður Pálmadóttir frá ísafirði, nú búsett á Patreksfirði. Hún tekur á móti ættingj- um og vinum í safnaðar- heimili Grensáskirkju við Háaleitisbraut frá kl. 16- 19 í dag, laugardag. JT A ÁRA afmæli. í dag, OU laugardaginn 8. júlí verður fimmtugur Stein- þór Ólafsson, leiðsögu- maður, Gautavík 17, Reykjavík. Af því tilefni tekur hann á móti ættingj- um og vinum í veislutjaldi á tjaldstæðinu á Þingvöll- um í dag frá kl. 18. SKAK Umsjón Helgi Áss Grétarsson ALEXEI Shirov (2.751) er kunnur fyrir villtan og skemmtilegan skákstíl. Sjaldan er lognmolla í skákum hans en það sama er ekki hægt að segja um Peter Leko (2.725), and- stæðing hans í stöðunni þar sem hann setur að öllu jöfnu öryggið á oddinn. Fyrr í skákinni einlék drottning Shirovs innan herbúða svarts og nú virð- ist sem líf hennar sé á enda án þess að það verði bætt að ráði. Stjórnandi hvítu herjanna hafði þó ráð undir rifi hverju og hristi fram úr erminni stórhættulega sókn. 34. Dxe7! Dxe7 35. Hxe5 Db7 36. He8+ Kf7 37. Rf3! Hxa2 38. Hle6 R6d7? 38. ...Hxc2 hefði leitt til ósig- Hvítur á leik. urs eftir 39. Re5+ Kg7 40. H8e7+ Dxe7 41. Hxe7+ Kf6 42. He6+ og hvítur hefur unnið endatafl. Hins vegar hefði 38. ...Rxd5 ver- ið mun kröftugri vörn þar sem t.d. eftir 39. Re5+ Kg7 40. cxd5 Dxd5 41. Hxg6+ Kh7 42. He7+ Kh8 er óljóst hvort hvítur hafi meira en jafntefli í hendi sinni. 39. H6e7+ Kf6 40. Hh7! Db6 41. Hee7 og Ungverjinn gafst upp þar hann verður mátaður eftir t.d. 41. ...g5 42. Hhf7+ Kg6 43. Bxf5+ Kh5 44. g4# COSPER Nú hefur þú eitthvað alvarlegt á samviskunni, góði minn. LJOÐABROI SU ÞJOÐ... Sú þjóð sem löngum átti’ ekki’ í sig brauð en einatt bar þó reisn í fátækt sinni, skal efnum búin orðin þvílíkt gauð er öðrum bjóði sig að fótaskinni. Sú þjóð sem horuð ærið afhroð galt af ofurheitri trú á frelsið dýra, hún býður lostug sama frelsi falt með fitustokkinn beig og galtarsvíra. Sú þjóð sem veit sér ekkert æðra mark en aurasníkjur, sukk og fleðulæti, mun hljóta notuð herra sinna spark og heykjast lágt í verðgangsmanna sæti. Sú þjóð sem dottar dáðlaus, viljasljó, og dillar þeim er ljúga, blekkja, svíkja, skal fyrr en varir hremmd í harða kló. Hægt er að festast, bágt mun úr að víkja! Jón Helgason. STJÖRIVUSPA eftir Frances Drake KRABBI Afmælisbarn dagsins: Þú ert forvitinn og framtakssamur og átt auðvelt með að ganga í augun á öðrum meðglensi oggamansemi. Hrútur (21. mars -19. apríl) Þú munt eiga rólegan dag og gætir fengið óvænta heim- sókn sem gleður þig. Ekki hvað síst hversu góðar fréttir þú færð.\ Naut (20. apríl - 20. maí) \Þú hefðir gott af því að breyta til á einhver hátt hvort sem er heima fyrir eða í vinn- unni. Gefðu þér tíma til að hugsa máiiðA Tvíburar , ^ (21. maí - 20. júní) AA \Þú átt bágt með að einbeita þér að starfmu þar sem áhyggjur af einkamálum dreifa athyglinni. Láttu einkamálin hafa forgangA Krabbi ^ (21. júní-22. júlí) Þú þarft að taka þig saman í andlitinu og einbeita þér að því sem fyrir liggur. Kapp er best með forsjáA Ljón (23. júlí - 22. ágúst) M \Þér er nauðsyn að hafa aiit á hreinu varðandi eignir þínar og fjárhag enda ágætt að hafa í huga að hver er sinnar gæfu smiðurA Meyja (23. ágúst - 22. sept.) <S$L Með sama áframhaldi mun vinna þín skila þér arði og ánægju. Farðu samt varlega því einhver reynir viljandi að villa þér sýn.\ Vog (23. sept. - 22. okt.) VI Þú þarft að gæta þess að að hnýta alla enda þess máls sem þú ert að glíma við á vinnustað þínum. Án þess gæti allt farið úr böndunumA Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Þú munt ekki sjá árangur erf- iðis þíns strax en varastu óþolinmæði því þitt starf eins og allt annað, hefur sinn tímaA Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) aUv Það eru oft einföldustu hlutir sem vefjast mest íyrir manni. Vertu þolinmóður og leystu hvern hnút fyrir sigA Steingeit ^ (22. des. -19. janúar) ac Mundu að virða skoðanir ann- arra þótt þær komi ekki alveg heim og saman við það sem þér finnst. Vertu víðsýnn og jákvæðurA Vatnsberi (20. jan. -18. febr.) \Þú ert í skapi til að vera kæruiaus og það er allt í lagi. Þú þarft virkilega á góðri hvfld að halda til að ná góðu jafnvægiA Fiskar (19. feb. - 20. mars) \Það er ekki allt gull sem glóir og margt reynist eftirsókn eftir vindi. Vertu raunsær í peningamálunumA Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. FRETTIR Sumarnámskeið kennara „KENNARAR á nýrri öld“ er yfir- skrift norræns sumarnámskeiðs kennara á Laugarvatni 5.-11. júlí. Um 140 fulltrúar ýmissa kennara- samtaka á Norðurlöndum taka þátt, þar af fjórtán íslenskir. NLS (Nordiske lærerorganisat- ionernes samrád) var stofnað í nú- verandi mynd 1995. Það er sameig- inlegur vettvangur 23 kennarasamtaka sjö landa: Dan- merkur, Finnlands, Færeyja, Grænlands, íslands, Noregs og Sví- þjóðar. í samtökunum eru u.þ.b. 600 þúsund félagar. Tvenn íslensk kenn- arasamtök eru í NLS: Kennara- samband Islands og Félag íslenskra leikskólakennara. Meginþema nám- skeiðsins er að fjalla um framtíðar- stöðu og hlutverk kennara og þróun kennarastarfsins á nýrri öld, sér- staklega þróun upplýsinga- og sam- skiptatækni í skólastarfi allt frá leik- skóla til háskóla. Verðhrun - Verslunin hættir Allt á að seljast 50-70% afsláttur Rýmingarsala hefst mánudaginn 10. júlí. Verið velkomin. Sfll/rtlhoíím, Garðatorgi 3, Garðabce. LANGUR LAUGARDAGUR SANDALAR Teg. 3005. Stærðir 36-41 Litir: Svartur og blár Verð áður 5.995. Verð nú 3.995. DOMUS MEDICA við Snorrabraut - Rvík Sími 551 8519 KRINGLAN Kringlunni 8-12 - Rvík Sími 568 9212 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS FRA Mexx Teg. 44122, Stærðir 36-40 Litur svartur. Verð 7.995 Teg. 44123, Stærðir 38-41 Litur grár. Verð 7.495 DOMUS MEDICA við Snorrabraut - Rvík Sími 551 8519 KRINGLAN Kringlunni 8-12 - Rvík Sími 568 9212 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.