Morgunblaðið - 19.08.2000, Page 4
4 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bílastæðasjóður hyggst byggja ný bilastæðahús
Gj aldskrárbr eyting nauð-
synleg til uppbyggingar
Ægir
dregur
Thor Lone
DANSKA flutningaskipið Thor
Lone, sem Eimskip hefur á leigu,
varð vélarvana í fyrrinótt 3 mflur
norðaustur af Garðskaga þegar
stimpill brotnaði. Skipið var á leið
frá Reykjavík til Færeyja þegar
óhappið varð og óskaði skipstjórinn
eftir aðstoð. Varðskipið Ægir var
komið á staðinn um kl. 8 í gær-
morgun eftir fjögurra tíma stím og
tók flutningaskipið í tog. Sóttist sú
ferð vel og komu skipin tvö til hafn-
ar í Reykjavík síðdegis í gær.
VEÐUR hefur verið með eindæm-
um gott í höfuðborginni síðustu
daga.
Blaðamaður Morgunblaðsins
rakst á þessa krakka við Tjömina í
NÝLEGRI gjaldskrá Bílastæða-
sjóðs er ætlað að standa undir bygg-
ingu nýrra bílastæðahúsa fyrir tvo
milljarða, auk þess sem Bflastæða-
sjóður glímir við skuldaklafa eftir
misheppnaðar gjaldskrárbreytingar
árið 1988. Einnig er markmiðið með
hækkununum að freista þess að
Reykjavík þar sem þau spókuðu
sig í blíðviðrinu, en þau voru að
koma úr nammiveislu hjá Nóa og
Síríusi, sem var haldin i tilefni af
80 ára afmæli fyrirtækisins.
stýra nýtingu stæðanna í miðbænum
og færa stæðanotkun yfir í hliðar-
götur. Stefán Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Bflastæðasjóðs, segir
að nauðsynlegt hafi verið að hækka
gjaldskrána, þar sem hún hafi verið
óbreytt í 12 ár frá 1988.
Gjaldskráin var öll endurskoðuð
þar sem nánast allir liðir hækkuðu
og uppbyggingu hennar breytt til
þess að frekar væri hægt að nota
hana sem stjórntæki til að ná fram
betri nýtingu á stæðum . Tímagjald-
ið hækkaði mest við Laugaveg og í
Kvosinni, úr 50 krónum í 150 krónur,
en það hafði verið óbreytt frá árinu
1988. í hliðargötum hækkaði gjaldið
hins vegar aðeins í 80 krónur.
Aukastöðugjald, sem innheimt er
þegar ekki er borgað í stöðumæli,
fór úr 850 krónum í 1.500 krónur, og
tímafrestur til að borga lágmarks-
gjöld var lengdur í 14 daga í stað
þriggja. Þá er innheimt 2.500 króna
sekt ef lagt er á gangstétt og aðra
staði þar sem bannað er að leggja.
Gjaldskrárbreytingamar tóku gildi í
júní sl.
„Fólki bregður auðvitað, en mað-
ur heyrir núna í fyrsta skipti, t.d.
varðandi aukastöðugjöldin, að þetta
sé fjárhæð sem skiptir einhveiju
máli. Þannig að nú fer fólk að spá
meira í þetta og það er tilgangurinn
með þessu, að gera þessa breytingu
og hafa hana hressilega, þannig hef-
ur hún áhrif í þá átt sem við viljum.
Við reiknum líka með að þessum
sektargreiðslum muni fækka og að
draga muni úr vægi þeirra í tekjum.
Og þessum gjaldskrárbreytingum
fylgir líka fyrirheit um að byggja bfl-
astæði fyrir tvo milljarða á næstu
fáu árum,“ segir Stefán.
Gjaldskrárbreytingar
mistókust árið 1988
Bflastæðasjóður skuldar nú um
700 milljónir, þannig að skuldir eru
enn þá töluvert miklar, að sögn Stef-
áns. „Við höfum hins vegar verið að
lækka þær nokkuð hressilega á síð-
ustu 5 árum, og þá hefur okkur tek-
ist að ná þessu niður úr 800-900
milljónum og við höfum verið á
þeirri braut að lækka skuldimar.“
Stefán segir að hægt hefði verið
að hækka gjaldskrána minna og
halda áfram á sömu braut og borga
þau hús sem búið er að byggja, en
borgaryfirvöld hafi ákveðið að
leggja meira í uppbygginguna í mið-
borginni. Hann segir að gjaldskrár-
breytingin tryggi það jafnframt fyr-
ir fram að fjármögnun sé til staðar.
,Árið 1988 mistókust gjaldskrár-
hækkanir og þá brugðust menn
þeirri skyldu sinni að stinga upp-
byggingaráformum niður í skúffu
um leið. Það hefur nú valdið okkur
töluverðum erfiðleikum."
Bflastæðahúsin við Vesturgötu 7,
Ráðhúskjallara, Kolaport og Berg-
staðastræði eru orðin fullnýtt. Trað-
arkot við Hverfisgötu er á eðlilegu
róli, að sögn Stefáns, og Vitatorg við
Vitastíg, nýjasta húsið, ætti fljótlega
að fara að skila sér.
Morgunblaðið/Júlíus
Sveitar-
félög fá
140 millj-
ónir
STJÓRN Eignarhaldsfélagsins
Brunabótafélag íslands (EBÍ)
hefur ákveðið á grundvelli sam-
þykkta fulltrúaráðs félagsins að
greiða aðildarsveitarfélögum
sínum samtals 140 milljónir
króna í ágóðahlut í ár. Greiðslan
rennur til þeirra 86 sveitarfé-
laga sem aðild eiga að Sameign-
arsjóði EBÍ í réttu hlutfalli við
eignaraðild þeirra að sjóðnum.
Akureyri fær hæstu greiðsl-
una, eða rúmar 15 milljónir
króna. Til Kópavogs renna rúm-
ar tólf milljónir, Reykjanesbær
fær tæpar tíu milljónir í sinn
hlut, ísafjarðarbær tæpar sjö
milljónir og Vestmannaeyjabær
tæpar sex milljónir. í samræmi
við samþykktir félagsins mæl-
ast stjóm og fulltrúaráð EBÍ til
þess við sveitarfélögin að þau
verji framlaginu meðal annars
til forvama, greiðslu iðgjalda af
tryggingum sveitarstjóma og
brunavama í sveitarfélaginu, en
ágóðahlutur aðildarsveitarfé-
laganna frá EBÍ hefur orðið til
þess að nokkur sveitarfélög
munu endumýja slökkvibifreið-
ar sínar á næstunni.
EBÍ hefur um langt skeið
greitt aðildarsveitarfélögum
framlag til ágóðahlutar af starf-
semi sinni. Slíkar greiðslur hóf-
ust árið 1934 með samningi
Brunabótafélags íslands við
sveitarfélög um fjármögnun
slökkvitækja.
1
Maður var hætt kominn við viðgerð á lyftu í þjdnustumiðstöð aldraðra við Lindargötu
Oryggismál lyftu
ekki sem skyldi
SVO virðist sem öryggismál fólkslyftu í fé-
lags- og þjónustumiðstöð aldraðra við Lind-
argötu séu ekki sem skyldi en maður sem
var þar staddur við viðgerð á lyftunni var
hætt kominn þegar lyftan fór í gang á með-
an hann var ofan á henni. Atvikið átti sér
stað á miðvikudagsmorgun og er maðurinn
enn á sjúkrahúsi. Hann náði að kasta sér
niður þegar lyftan fór að hreyfast en
klemmdist milli lyftunnar og þaksins. I
fyrstu virtist maðurinn hafa slasast talsvert
en betur fór en á horfðist og í gær var ljóst
að meiðsl hans eru ekki aivarleg.
Var sagt að fríbilið hefði mælst
8,5 sm en átti að vera 30
Samkvæmt teikningum af húsnæðinu er
fríbilið rúmir 30 sentímetrar en svo er nefnt
bilið milli þaks og lyftu þegar lyftan er kom-
in í efstu stöðu samkvæmt upplýsingum
Magnúsar Guðmundssonar tæknifulltrúa hjá
Vinnueftirliti ríkisins en Vinnueftirlitið fer
með rannsókn málsins. Manninum sem slas-
aðist var þó sagt að fríbilið hefði verið mælt
eftir slysið og þá hefði það reynst vera 8,5
sentímetrar. Lyftan var ekki komin í efstu
stöðu þegar hún stöðvaðist með manninn of-
an á.
Veitt undanþága gegn því að
stöðvunarbúnaður yrði settur upp
Að sögn Hauks Sölvasonar, deildarstjóra
hjá Vinnueftirliti ríkisins, var veitt undan-
þága fyrir þessari tilteknu lyftu hvað fríbil
varðar gegn því skilyrði að settur yrði upp
sérstakur stöðvunarbúnaður ofan á lyftunni.
Lyftan var sett upp fyrir um tíu árum.
Magnús segist ekki hafa sannreynt fríbilið
og það sé ekki hluti af reglubundnu eftirliti
Vinnueftirlitsins. Hann segist gera ráð fyrir
að í kjölfar rannsóknar málsins muni Vinnu-
eftirlitið gera úttekt á aðstæðum og koma
með tillögur að endurbótum svo unnt sé að
koma í veg fyrir slys af þessu tagi.
Að sögn Hauks má reikna með að niður-
staða rannsóknar liggi fyrir um miðja næstu
viku en það fari þó eftir því hversu fljótt
lögregluskýrslur berist.
Maðurinn var starfsmaður Iselekt sem
nýverið gerði samning við rekstraraðila
hússins um viðhald lyfta í húsinu en þær eru
átta talsins en umrædd lyfta mun vera sú
eina þar sem þörf var á undanþágu vegna
lítillar lofthæðar.
Fyrirtækinu barst tilkynning um bilun í
lyftunni og við viðgerðina þurfti maðurinn
að vera ofan á lyftunni. Af einhverjum or-
sökum fór lyftan af stað á meðan viðgerð
stóð yfir og við það klemmdist maðurinn
milli þaks lyftunnar og loftsins fyrir ofan.
Magnús segir að við þær aðstæður sem
voru á miðvikudagsmorgun hafi öryggisbún-
aður ekki virkað. Hann segir ekki ljóst
hvers vegna lyftan hafi farið af stað en þó sé
í henni tölvubúnaður sem virki þannig að
eftir að búið sé að vinna við hana leiðrétti
tölvukerfið sig og við það fari lyftan sjálf-
krafa á ákveðna hæð i húsinu til að stilla sig.
Magnús segist telja að það hafi verið það
sem hafi átt sér stað á miðvikudagsmorgun-
inn og viðgerðarmaðurinn hafi ekki áttað sig
á þessu. Þó svo að maðurinn sé þaulreyndur
lyftuviðgerðarmaður segir Magnús hann
ekki hafa áður komið að þessari tilteknu
lyftu og hafi því líklega ekki verið meðvitað-
ur um að ekki væri nóg rými fyrir ofan lyft-
una né heldur hafi hann vitað hvar ofan á
lyftunni stöðvunarbúnaðurinn hafi verið.
Aðstæður óvenjulegar
vegna hönnunargalla
Magnús segir enn fremur að lyftan hafi
ekki farið jafnhátt og hún hefði getað farið
en líklegt að hann hafi fundið stöðvunarbún-
aðinn eftir að lyftan fór af stað og þannig
náð að stöðva hana eða jafnvel að hann hafi
lent á búnaðinum þegar hann kastaði sér
flötum. Annar viðgerðarmaður var inni í
lyftunni og náði að spenna upp hurðina þeg-
ar lyftan stöðvaðist. Magnús segir aðstæður
þarna óvenjulegar sökum hönnunargalla á
húsinu.
Samkvæmt reglum Vinnueftirlits eru þeir
sem eiga lyftur eða reka þær skyldugir til
að gera samning við þjónustuaðila sem kem-
ur minnst þriðja hvern mánuð og yfirfer
lyftuna og búnað hennar. Auk þess yfirfara
starfsmenn Vinnueftirlits allar fólkslyftur
árlega, fara yfir öryggisbúnað og staðfesta
að viðhald sé í lagi.
Stöðvunarbúnaður í lagi
Magnús segir starfsmenn Vinnueftirlits-
ins síðast hafa yfirfarið lyftuna í júní og svo
einnig eftir atburðinn og þá hafi stöðvunar-
búnaðurinn reynst vera í lagi.
Otis, fyrirtækið sem áður hafði eftirlit
með lyftunni, yfirfór hana síðast í maí og þá
reyndist búnaðurinn í lagi að sögn Aðal-
steins Árnasonar framkvæmdastjóra.
Reykjavíkurborg bauð þjónustuna út og við
það náðust samningar við íselekt. Þetta var
þeirra fyrsta útkall vegna lyftunnar.
Maðurinn var fluttur af vettvangi með
sjúkrabfl og þegar slíkt gerist er það regla
Vinnueftirlitsins að kalla til lögreglu. Af ein-
hverjum ástæðum var lögreglu þó ekki j
greint frá slysinu fyrr en daginn eftir.