Morgunblaðið - 19.08.2000, Side 8
8 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
FramsóknarfLokkiir.
sýni íhaldi Mæmar
Framsóknarmenn
nggandi vegna fylgis-
lægðar flokksins.
Ungliðar heimta
„meiri grimmd gegn
íhaldinu.“
Það er ekki hægt, húsbóndi, hún er bara með klaufir.
Sólargleði
ÞAÐ var líf og fjör á öldrunardeildinni á Landakoti á
fimmtudag. Starfsmenn deildarinnar skipulögðu sólar-
gleði fyrir sjúklingana í veðurblíðunni, tónlistarfólk frá
Morgunblaðið/Ami Sæberg
og söngur
menningarmiðstöðinni í Gerðubergi spilaði og kór
starfsmanna söng nokkur lög fyrir fólkið. Sumir tóku
jafnvel nokkur vel útfærð dansspor.
Fræðslusjóður verka-
fólks á landsbyggðinni
tekur til starfa
FRÆÐSLUSJÓÐUR verkafólks
á landsbyggðinni hefur formlega
tekið til starfa.
Sjóðurinn er afsprengi síðustu
kjarasamninga á milli Verka-
mannasambands Íslands/Lands-
sambands iðnverkafólks og Sam-
taka atvinnulífsins, þar sem
ákveðið var að veita fjármagni í að
efla menntun verkafólks á lands-
byggðinni.
Hlutverk verkefnisstjómar er
að sinna stuðningsverkefnum,
þróunar- og hvatningaraðgerðum í
starfsmenntun verkafólks og
stuðla þannig að hæfara starfs-
fólki sem síðan skilar sér í bættri
samkeppnisstöðu fyrirtækja.
Á fyrsta fundinum var ákveðið
að leggja 500.000 krónur í átakið
„Menntun er skemmtun“. Þar er
lögð áhersla á mikilvægi menntun-
ar fyrir verkafólk og í tengslum við
viku símenntunar sem haldin verð-
ur 4-10 september næstkomandi.
í nýrri verkefnisstjóm vom
skipaðir Ingi Bogi Bogason, Sam-
tökum iðnaðarins og Halldór Frí-
mannsson VÍS fyrir hönd atvinnu-
rekenda, Aðalsteinn Baldursson,
Vlf. Húsavíkur, Elínbjörg Magn-
úsdóttir, Vlf.
Akraness og Hjördís Þóra Sig-
urþórsdóttir, Vökull-stéttarfélag
og fyrir hönd Vinnumálastofnunar
situr Gissur Pétursson.
„Á ekki að
geta gerst“
UMTALSVERÐ röskun varð á starf-
semi Flugfélags íslands á miðviku-
dag þegar svo vildi til að þrjár vélar
flugfélagsins biluðu í einu. Varð
seinkun á mörgum leiðum ílugfélags-
ins og fella varð eina ferð niður. Jón
Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍ,
segii’ að ótrúleg tilviljun hafi ráðið því
að þrjár vélar biluðu svo til á sama
tíma. „Þetta á ekki að geta gerst. Við
hljótum að vera búnir með kvótann
núna,“ segir hann, en ein ATR-vél og
tvær Fokker-vélar varð að taka úr
áætlun vegna bilunar. í tílviki tveggja
véla var aðeins um smávægilega bilun
að ræða, en ein Fokker-vél varð fyrir
skemmdum af völdum lausamalar á
flugvellinum í Vestmannaeyjum.
Hratt gekk að koma flugvélunum í
lag aftur, að sögn Jóns Karls, og voru
samgöngur á vegum félagsins komn-
ar í samt lag aftur á fimmtudag.
Garðyrkja og gróðursvæði
Níu reynitré
í Menningar-
borgarlundi
Jóhann Pálsson
IDAG verður gróður-
settur í Laugardal
sérstakur Menning-
arborgarlundur, þar sem
fulltrúar menningarborg-
anna níu gróðursetja sér-
staka runna, en þegar hafa
verið gróðursett í lundin-
um níu reynitré.
„Reynir vex í öllum
þessum níu löndum sem
menningarborgimar eru í,
þess vegna varð hann fyrir
valinu,“ sagði Jóhann
Pálsson, garðyrkjustjóri
Reykjavíkurborgar.
„Runnarnir verða und-
irgróður og er þá valin teg-
und sem er upprunaleg í
landi viðkomandi borgar."
- Hvaða tegundir eru
þetta t.d. ?
„Fyrir Reykjavík er val-
inn loðvíðir, fyrir Santiago de
Compostela er valinn geislasópur,
sem er upprunnin úr Pyrenea-
fjöllum en er algengur í íslenskum
görðum engu að síður og þannig
koll af kolli."
- Haustið nálgast hröðum
skrefum þótt sumarið sé enn í
fullum þroska. En hvernig hefur
gróðrinum vegnað í sumar ?
„Vorið var gróðrinum erfitt,
það var kalt, en þegar fór að hlýna
þá tók hann aldeilis við sér og hef-
ur verið með eindæmum kröftug-
ur í allt sumar. Rigning hefur ver-
ið lítil svo illgresið hefur ekki
verið sérlega hvimleitt.
- Hvað með skordýraplágur?
„Ekki hefur verið mikið um
slíkt og mega gai-ðeigendur í
Reykjavík vera ánægðir með að
ekki hefur borið á ryðsveppum
sem voru farnar að hrjá bæði gljá-
víði og ösp í fyrrasumar."
- Hefur sjúkdómum í plöntum
fækkað vegna kuida?
„Kalt vor getur gert slíkt að
verkum að sumu leyti en ekki er
það þó einhlítt. Ef árferði er kalt
er gróður oft viðkvæmari en ella,
en á hlýjum sumrum geta sveppa-
sýkingar orðið erfiðar, en það hef-
ur ekki borið mikið á því í sumar.“
- Er það ný stefna að gróður-
setja svona mikið af túlípönum
eins og gert var í vor, öllum veg-
farendum til mikilsyndisauka?
„Það hefur farið sívaxandi að
setja túlípanalauka á áberandi
staði. Það er dálítið kostnaðar-
samt vegna þess að það þarf að
gróðursetja önnur sumarblóm
seinna um sumarið af því að
túlípanarnir eru búnir að blómg-
ast í júlíbyrjun. En okkur fínnst
þetta kostnaðarins vert því borg-
arbúar hafa verið ánægðir."
- Hvað getur þú sagt okkur um
grænu svæðin í Iteykjavík?
„Við höfum lagt mikla áherslu á
sumarblóm, mér finnst að Austur-
völlur hafi aldrei verið fallegri en í
sumar. “
- Hvernig veljiðþiðlitina?
,Á haustin ræða garðyrkju-
menn og landslags-
arktitektar um hvað
heppnast hafi vel sl.
sumar, byrja að leggja
línurnar og undirbúa
gróðursetningu næsta
árs og þá eru litir vald-
ir í hvert og eitt
svæði.“
-Hvað með Grasa-
garðinn í Laugardaf!
„Þar hafa orðið töluverðar
breytingar í sumar. Þar eru núna
vikulega sérstaklega kynntar
plöntur vikunnar og fyrir rúmri
viku var opnaður nýr hluti í garð-
inum, nytjaplöntugarður, þar sem
► Jóhann Pálsson fæddist í
Reykjavík 21. júlí 1931. Hann
lauk leiklistarprófi frá Leiklist-
arskóla Þjóðlelkhússins 1952 og
stundaði leiklistarstörf í um 16
ár en tók svo stúdentspróf 1969
frá Menntaskólanum í Reykjavík
og próf í líffræði frá Háskóla ís-
lands 1972. Stundaði síðan nám í
grasafræði við háskólann í Upp-
sölum til 1978, þegar hann tók
við starfi forstöðumanns Lysti-
garðsins á Akureyri. Garðyrkju-
stjóri Reykjavíkurborgar varð
hann í nóvember 1985. Hann er
kvæntur Hrafnhildi Jónsdóttur
þýðanda og eiga þau eina dóttur,
Hrefnu Kristínu Jóhannsdóttur,
sem er líffræðingur að mennt.
fólk getur kynnst öllum nytja-
plöntum sem ræktaðai- eru á land-
inu. Aðsókn hefur vaxið mjög
mikið að garðinum, ekki síst eftir
að tekið var að reka veitingastað
þar. Laugardalurinn er raunar
orðinn vinsælasti skrúðgarður
borgarinnar."
- Hvaða trjátegundir eru
heppilegastar hér í opinberum
görðum?
„Við notum mest birki, greni og
ösp. En aðalatriðið er að við höf-
um verið að byggja upp töluvert
mikinn samfelldan trjágróður í
borginni til að mynda fljótt skjól
og hlýlegt umhverfi. Viðkvæmari
tegundir eins og hlynur og álmur
eru svo gróðursettar í skjóli
hinna.“
- Hvert er virðulegasta tré
borgarinnar?
„Eg held að mér þyki alltaf silf-
urreynirinn í gamla kirkjugarðin-
um við Aðalstræti virðulegasta
tré borgarinnar. Schierbech land-
læknir gróðursetti hann 1884.“
- Hver eru helstu verkefnin
fram undan?
„Við erum að ljúka við að ganga
frá svæði við vesturenda Oskju-
hlíðar, þar sem viðra má hunda.
Þar geta hundeigendur sleppt
hundum og leyft þeim
að hlaupa ftjálsum, en
annars má ekki vera
með hunda á þessum
slóðum nema í ól.
Fram undan eru svo
haustgróðursetningar.
Þar er stærsta verk-
efnið að gróðursetja í
kringum mislæg gatna-
mót Miklubrautar og
Skeiðarvogs. Síðan er verið að
vinna að ýmsum minni nýbygg-
ingarverkefnum á leiksvæðum og
síðan tak svo hin hefðbundnu
haustverk, skýla og hreinsa til og
loks að klippa og grisja."
Verið að
ganga frá
svæði við
Öskjuhlíð þar
sem hundar
mega hlaupa
frjálsir