Morgunblaðið - 19.08.2000, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 21
AKUREYRI
Þeir fiska
sem róa
ÞESSI einmana bátur hefur að lík-
indum lokið sínu hlutverki en hann
himir norðan undir htisvegg_
skammt norðan við Dalvík. I
baksýn má sjá yfir til Hríseyjar og
ekki ólíklegt að bátnum hafi verið
róið á þau mið á sínum tíma en um
aflabrögð er ekki vitað.
Deildarstjóri
umhverfísdeildar
Bjarni
Reykjalín
ráðinn
BJARNI Reykjalín hefur verið
ráðinn deildarstjóri umhverfis-
deildar Akureyrarbæjar og
mun hann taka við stöðunni um
næstu mánaðamót. Um er að
ræða nýtt starf í kjölfar breyt-
inga á stjómskipulagi bæjarins
en í því felst að hann mun taka
við þeim störfum sem skipulags-
stjóri bæjarins og byggingar-
fulltrúi hafa sinnt fram til þessa.
Bjami er arkitekt og tækni-
fræðingur að mennt og hefur
undanfarin ár ásamt öðrum rek-
ið teiknistofuna Form á Akur-
eyri. Tvær umsóknir bámst um
starfið.
Frestað hefur verið að ráða
deildarstjóra framkvæmda-
deildar bæjarins en hafnar era
viðræður við Guðmund Guð-
laugsson verkfræðing hjá Akur-
eyrarbæ um að hann taki starfið
að sér.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
veisla Heimsferða
í vetur
frá kr.
Heimsferðir kynna nú glæsilega vetraráætlun sína með spennandi
ferðatilboðum i vetur og stórlækkuðu verði ffá því í fyrra. Nú lækkar
ferðin um 10-18 þúsund krónur fyrir manninn um leið og við kynnum
frábæra nýja gististaði á ensku ströndinni.
Beint vikulegt flug alla þriðjudaga í allan vetur. Þú getur valið þá
ferðalengd sem þér best hentar, 1, 2, 3, 4 vikur eða lengur, og nýtur
þjónustu okkar reyndu fararstjóra á meðan á dvölinni stendur.
Aldrei lægra verð
Bókaðu strax og tryggðu þér
16-21% verðlækkun frá því
í fyrra.*
Verðkr. 39.255
Vikuferð, 9. janúar, hjón með 2 böm.
Verðkr. 44.755
2 vikur, 9. janúar, hjón með 2 böm.
Vefð kr. 59.990
2 í íbúð, 2 vikur, Monterey.
* Prósentudæmi er miðað við 3ja vikna
ferð i janúar árið 2001, m.v. 3ja vikna
ferð, árið 2000.
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
39.255