Morgunblaðið - 19.08.2000, Page 22
22 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Jón Helgi Jóhannsson í Víðiholti að mála þakið á Qóshlöðunni.
Fegurri sveitir
Laxamýri - Mikið er málað og
tekið til á sveitabæjum landsins í
sumar, en það er liður í átaks-
verkefninu „Fegurri sveitir
2000“.
Mjög mörg sveitarfélög taka
þátt í verkefninu og er markmið-
ið hreinsun á landi og fegrun
mannvirkja í þeim tilgangi að
bæta ásýnd dreifbýlisins og
ímynd þess.
Jón Helgi Jóhannsson bóndi að
Víðiholti f Reykjahverfi er einn
þeirra mörgu bænda sem eru að
mála útihúsin. Þetta er mikið
verk því um mikla fleti er að
ræða þar sem stórar byggingar
eru.
Jón er ekki lofthræddur en
bindur um sig kaðal í öryggis-
skyni því oft getur verið hált á
nýmáluðum þökunum.
Lagarfljótsormurinn bætir við lendingarstöðum
Gamall hertrukkur
notaður sem bryggja
Morgunblaðið/Guttormur V. Þormar
f fjörunni gjálfrar aldan við „Orminn" og gamla hertrukkinn hans Há-
konar sem gegnir hlutverki færanlegrar bryggju með prýði.
Geitagerði - í SUMAR hefur
skemmtiferðaskipið Lagai-fljótsorm-
urinn bætt við lendingarstöðum á
siglingu sinni um Lagarfljót. Þannig
hefur hann um skeið lagt vikulega að
við svokallaðan Húsatanga í Fljóts-
dal, gegnt Atlavík.
Þau hjónin, Sigrún Benediktsdótt-
ir og Hákon Aðalsteinsson, hafa reist
sérstæða byggingu á tanganum, lík-
asta tjöldum sama, nema hvað í stað
skinna er þetta háa sex-strenda tjald
klætt skarsúð úr íslensku lerki. Það
er borið uppi af átta metra háum súl-
um, úr íslensku lerki einnig. Gólflð er
lagt skinnum þar sem gestir láta fara
vel um sig flötum beinum við varð-
eldinn sem logar fyrir miðju gólfi og
hlýða á eða syngja við leik þeirra
Þórlaugar Jónsdóttur og Gylfa
Bjömssonar milli þess sem fljóta
ýmsar sögur af vörum húsráð-
andans, flestar í léttum dúr.
Úti fyrir grillar Sigurður Ananías-
son veitingamaður lambasteikina af
kunnáttu. í fjörunni gjálfrar aldan
við „Orminn“ og gamla hertrukkinn
hans Hákonar sem gegnir hlutverki
færanlegrar bryggju með prýði.
Þessi áfangastaður Lagarfljót-
sormsins á Húsatanga nýtur vin-
sælda og nú er ekki aðeins horft
austur yfir til Atlavíkur eftir mann-
lífi heldur ekki síður úr víkinni norð-
ur yfir á tangann hvort rjúki upp úr
tjaldinu og Lagarfljótsormurinn
liggi þar við festar. Það gerir hann
hvert fimmtudagskvöld og mun gera
svo fram í byijun október.
Þá leggjast af fastar áætlunar-
ferðir skipsins um Lagarfljót til
vors.
Rekstur Lagarfijótsormsins hefur
gengið nokkuð vel í sumar og farþeg-
um farið jafnt og þétt fjölgandi.
Skipstjóri á Lagarfljótsorminum er
Aðalsteinn Valdimarsson frá Eski-
firði.
Lundur Nínu Sæ-
mundsson opnaður
Fljótshlfð - Minningarlundur einnar
frægustu listakonu Suðurlands,
Nínu Sæmundsson, verður opnaður
með viðhöfn 26. ágúst nk. en hún var
fædd þann sama dag árið 1892.
Lundurinn er á gamla bæjarstæðinu
að Nikulásarhúsum í Fljótshlíð sem
var fæðingar- og æskuheimili henn-
ar.
Umtalsverð vinna hefur verið lögð
af mörkum við gerð lundarins en
settar hafa verið göngubrýr úr lím-
tré á tvo læki, sem eru á milli Hlíðar-
enda og Nikulásarhúsa og ætlunin
að gestir lundarins aki að bílastæð-
um Hlíðarendakirkju og gangi síðan
um 100 metra spöl að lundi Nínu. Á
þeirri leið eru tvær girðingar og hafa
verið sett upp fagurlega gerð
skrauthlið í þær, en það er einn ætt-
ingja listakonunnar sem gefur hliðin.
Hlaðinn hefur verið 30 metra langur
bogadreginn setbekkur við lundinn.
Tré hafa verið gróðursett sam-
kvæmt skipulagningu landlagsarkit-
ekts. í lundinum er fögur
uppsprettulind sem búið er að hlaða
upp, en lindin var kæligeymsla á
uppvaxtarárum Nínu og sjálfsagt
síðar.
Lundurinn verður rammi um eitt
listaverka Nínu sem ber nafnið Ung
móðir. Styttan var stækkuð af fag-
mönnum í Englandi og verður 160
cm há á stalli sínum. Lundurinn er
mikil prýði í fögru umhverfi, einkum
eygður frá Hlíðarendakirkju í átt að
gamla bæjarstæðinu að Nikulásar-
húsum, því brýrnar, hliðin og fram-
kvæmdirnar við lundinn bera þess
merki að þarna hefur ekki verið
kastað til hendi, heldur unnið af stór-
hug að því að móta listakonunni
Nínu Sæmundsson verðugan minn-
isreit á fæðingarstað hennar, en
Fljótshlíðin var henni alla tíð kærust
staða.
Ef að líkum lætur verður lundur-
inn ákjósanlegur áningarstaður fyrir
alla sem um Fljótshlíðina fara í
framtíðinni, um leið og staldrað er
við hjá einu af listaverkum konu,
sem var yngst 15 systkina, en komst
til listnáms fyrir aðstoð skilnings-
ríkrar frænku, og vann til æðstu við-
urkenninga fyrir list sína bæði í
Evrópu og Bandaríkjunum, þar sem
hún dvaldist um áratugaskeið.
Einn afkomandi systkinanna 15 í
Nikulásarhúsum, Ríkey Ríkarðs-
dóttir hjúkrunarfræðingur, setti
fram hugmyndina um lundinn í hópi
ættingja Nínu. Ættingjahópurinn
hefur síðan stutt við bak Ríkeyju við
framkvæmd hugmyndarinnar. Leyfi
fékkst fyrir stækkun styttunnar
Ung móðir til uppsetningar í lundin-
um, og jafnframt fékkst leyfi til að
gera 100 styttur eftir frummynd
Nínu, en hún var 40 cm há. Tuttugu
af styttunum eru steyptar í brons en
80 í gifs. Sala þeirra hefur staðið
undir framkvæmdum við lundinn, og
eru vonir bundnar við að innkoman
muni nægja til að ljúka við gerð
lundarins.
Á uppstigningardag, 1. júní, var
efnt til fundar um framkvæmdirnar í
lundi Nínu í Sögusetrinu á Hvols-
velli. Þar mættu um 120 manns og
gerði Ríkey grein fyrir gangi mála,
aðdraganda og framkvæmdum. Hún
minnti líka á hið fagra útsýni frá
lundi Nínu, og sagði að ef til vill
myndi eitthvert af þeim mörgu
menningarfélögum sem unna Fljóts-
hlíðinni og Njáluslóðum, vilja standa
straum af uppsetningu útsýnisskífu
þar.
Við opnun minningarlundar Nínu
Sæmundsson að Nikulásarhúsum í
Fljótshlíð munu Ríkey Ríkharðs-
dóttir, framkvæmdastóri lundarins,
og Björn Bjamason menntamálaráð-
herra flytja ávörp. Séra Önundur S.
Björnsson, sóknarprestur á Breiða-
Morgunblaðið/Önundur S. Björnsson
Uppsprettulindin í Nikulásarhúsum hefur verið snyrt og hlaðin. F.v.
Ríkey Ríkharðsdóttir, frumkvöðull og framkvæmdastjóri Nínulundar,
ásamt Hörpu Viðarsdóttur sem var að skoða aðstæður.
Morgunblaðið/Önundur S. Björnsson
Horft frá Nínulundi í átt til kirkjunnar að Hlíðarenda. Ríkey Ríkharðs-
dóttir fremst á myndinn.
bólstað í Fljótshlíð, mun síðan helga og áður segir laugardaginn 26. ágúst
lund og lind. Athöfnin fer fram eins og hefst kl. 14.
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Kvennareið í
Borgarfirði
Grund - Hin árlega kvennareið
hestakvenna í Borgarfirði var farin
miðvikudagskvöldið 9. ágúst sl.
45 konur komu saman við Hvann-
eyri og riðu upp með Andakílsá, yf-
ir hana við Andakílsárvirkjun og
þaðan að Hreppslaug. Hestunum
var þar sleppt í girðingu á meðan
staldrað var við í tijálundi Guð-
mundar bónda Þorsteinssonar í
Efri-Hrepp.
f trjálundinum var framborinn
veislumatur, grillað Igöt, salat, og
grillaðar kartöflur, öllu skolað nið-
ur með rauðvíni, hvítvíni eða Kóka
Kóla. Þar urðu karlmenn að sjá um
matreiðlsu og alla þjónustu. Eftir
tveggja tíma átveislu og eftir-
minnileg skemmtiatriði var sest á
bak og riðið eftir þjóðveginum til
Hvanneyrar.
Dílaskarfur
langt inni
í landi
Laxamýri - Það er óvanaleg sjón að
sjá algenga sjófugla langt inni í landi
en svo bar við að dílaskarfur fór
langt upp með Laxá og inn á tún.
Fuglinn hljóp allhratt með hjálp
vængjanna en í ljós kom hann gat
ekki flogið nema stuttar vegalengdir
vegna sára á hægri vængnum. í
þeirri von að hann grói sára sinna
var ekið með hann út að sjó við
Húsavík og var hann mjög feginn
frelsinu.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon