Morgunblaðið - 19.08.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 29
ERLENT
Ymsar kenningar komnar á kreik um orsakir þess að kafbáturinn Kúrsk sökk
Spurningar vakna
um „þunga hlutinn“
ILÝA Klebanov, aðstoðarfor-
sætisráðherra Rússlands og yfir-
maður rannsóknarnefndar þeirrar
er fer með slysið á rússneska kaf-
bátsnum Kúrsk, hefur undanfarna
tvo daga haldið fast í þá skýringu
að báturinn hafi rekist á „t.iltekinn
þungan hlut“ í Barentshafi og síð-
ar sokkið. ígor Dugalo, yfirmaður
upplýsingadeildar rússneska flot-
ans, sagði við ITAR-TASS í gær að
rannsókn á slysinu beinist nú nær
einvörðungu að meintum árekstri
og farið verði yfir upplýsingar til
að ákvarða stærð og gerð hlutar-
ins. Hafa heimildarmenn innan
rússneska flotans sagt að hlutur
þessi kunni að hafa verið ofan-
sjávar en hafa ekki neitað því að
hluturinn gæti hafa verið neðan-
sjávar. Samgöngumálaráðuneyti
Rússlands hefur lýst því yfir að
engin farskipaumferð hafi verið á
því svæði í Barentshafi þar sem
flotaæfingar rússneska flotans áttu
sér stað um helgina og fullyrti AI-
exander Ushakov ráðherra að eng-
in umferð ísbrjóta hafi verið á
svæðinu. Þykja ummæli ráða-
manna nokkuð óljós og í gær veltu
rússneskir fjölmiðlar fyrir sér
nokkrum kenningum um orsakir
slyssins, þ.á m. að Kúrsk hafi rek-
ist á bandarískan kafbát.
Annar kafbátur
sagður á ferð
Rússneska dagblaðið Segodnia
telur sig hafa heimildir fyrir því að
á laugardag hafi Kúrsk rekist á
annan kafbát, hugsanlega banda-
rískan, og að við áreksturinn hefði
svo stórt gat rifnað á framenda
bátsins á stjórnborða að hann hafi
sokkið. Segodnia rekur frásögn
Evrópusambandið
Skjala-
leynd
efld
Brussel. Reuters.
EVRÓPUSAMBANDIÐ lýsti
því yfir á fimmtudag, að það
myndi héðan í frá framfylgja
strangari stefnu um aðgang að
skjölum í því skyni að herða á
öryggi upplýsinga nú þegar
sambandið vinnur að því að
taka upp sameiginlega öryggis-
og varnarmálastefnu.
„Tilgangurinn með þessum
breytingum er að tryggja að
eingöngu þeir sem til þess hafa
tilskilin réttindi fái aðgang að
gögnum merktum háleynileg,
leynileg eða trúnaðarmál og
varða öryggis- eða varnarmál,“
segir í fréttatilkynningu sem
gefin var út í Brussel.
Evrópusambandið er um
þessar mundii' að vinna að því
að koma á fót 60.000 manna við-
bragðsherliði, sem á að vera
hægt að senda með skömmum
fyrirvara til að stilla til friðar
eða sinna mannúðarverkefnum
á svæðum þar sem pólitísk for-
ysta sambandsins telur þörf á
að grípa inn í með slíkum hætti.
Samruni Vestur-Evrópu-
sambandsins (VES), sem ís-
land hefur sem NATO-ríki átt
aukaaðild að, við ESB er liður í
uppbyggingu sameiginlegrar
öryggis- og varnarmálastefnu
ESB.
Hermálafulltrúar ESB-ríkj-
anna, sem stýra þessu verki,
halda reglulega fundi í Justus-
Lipsius-byggingu ráðherraráðs
sambandsins í Brussel. Hafa
stjórnarerindrekar haft á orði
að þetta hús sé eins götótt og
svissneskur ostur. Alvanalegt
sé að skjöl týnist og þess séu
jafnvel dæmi að dýr húsgögn,
sem höfð hafa verið til sýnis í
byggingunni, hverfi sporlaust.
heimildarmanns síns, yfirmanns í
rússneska flotanum, sem sagði að
rétt áður en Kúrsk sökk hafi hljóð-
sjárbúnaður um borð í beitiskipinu
Piotr Beliki greint ferðir annars
kafbáts á svæðinu. Eftir að sjóliðar
Piotr Belikis hafi ráðfært sig við
stjórnstöð norðurflotans hafi því
verið slegið föstu að báturinn væri
„erlendur".
Greinir blaðið frá því að stuttu
síðar hafi beitiskipið misst sjónar á
„erlenda kafbátnum“ og hann
horfið. Á sunnudag hafi tvær
bandariskar Orion könnunar-
flugvélar flogið yfir slysstað.
Georgei Kostev, aðmíráll í rúss-
neska flotanum, fullyrti í viðtali við
blaðið að ef annar kafbátur hefði
orðið valdur að árekstrinum og
komist klakklaust frá honum væru
líkur á að það hefði aðeins getað
verið bandarískur kafbátur af
Ohio-gerð vegna stærðar slíkra
kafbáta. „Aðeins bátur á stærð við
Ohio-gerðina gæti valdið svo mikl-
um skaða og siglt í burtu,“ sagði
Kostev.
Samkvæmt heimildum blaðsins
heyrði rússneski flotinn kall frá
bandarískum kafbát þar sem beðið
var um leyfi til að leggjast að í
norska höfn í fimm daga. Þangað
hafi báturinn sfðar haldið á litlum
hraða sem bendi til skemmda á ytri
byrðingi.
Grunsamleg
björgunarbelti
Þá vöktu fréttir RTR-sjónvarps-
stöðvarinnar, sem er sú eina sem
hefur fengið leyfi til að sjónvarpa
frá slysstað í Barentshafi, mikla at-
hygli í gær en fréttamaður stöðv-
arinnar, Arkadý Mamontov, sem er
um borð í herskipinu Pétri mikla,
sagði að ónafngreindir heimildar-
menn hafi tjáð sér að í fyrstu
könnunarlciðöngrum niður að
Kúrsk hefðu menn fundið björgun-
arbelti sem ekki voru af rússneskri
gerð þar nærri. „Rétt eftir slysið
fundu menn nokkur björgunarbelti
sem eru ólík björgunarbeltum
rússneska flotans. Rússnesk björg-
unarbelti eru rauð og hvít en þessi
belti voru græn og hvít. Síðar
hurfu þau og sfðan hefur enginn
séð til þeirra," sagði Mamontov í
gær. Frétt RTR virtist styðja þá
kenningu að Kúrsk hafi rekist á
annan bát þrátt fyrir að hvorki
Rússar né nokkurt annað ríki hafi
gengist við því að fley á þeirra veg-
um hafi lent í árekstri á þessum
slóðum. Mamontov sagði að Rússar
hefðu þegar í stað gert rannsóknir
á öllum sínum herskipum á svæð-
inu og að niðurstöður þeirra bentu
til að þau væru öll ósködduð.
Bandaríkjastjórn hefur neitað
því að bátur á þeirra vegum hafí
rekist á Kúrsk. En jafnframt er
Ijóst að einn til þrír bandarískir
kafbátar hafi verið í grennd við
flotaæfingar norðurflotans.
Samsæri á hæstu stöðum?
En samsæriskenningar hafa ekki
látið staðar numið við áreksturinn
sjálfan heldur eru leiddar líkur að
því að leiðtogar Rússlands og
Bandaríkjanna hafi bundist fast-
mælum um að greina ekki frá því
sem gerðist á botni Barentshafs.
Izvestia greinir frá því að skjótt
eftir að slysið átti sér stað hafi
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
átt símaviðtal við Bill Clinton
Bandaríkjaforseta. Þá greinir
blaðið frá því að áður en greint
hafí verið frá því opinberlega að
Kúrsk hefði sokkið hafi samtöl átt
sér stað milli ígors ívanovs utan-
ríkisráðherra og Samuels Bergers
þjóðaröryggisráðgjafa Banda-
rfkjaforseta.
Alkunna er að rússneskir og
bandarískir kafbátar leika „leik
katta og músa“ í undirdjúpunum
og oftlega eru bátar látnir rekast
viljandi á. Mörg dæmi eru um slíkt.
Þá er talið víst að ef kafbátur ann-
ars ríkis er einhvers staðar á ferð
þá sé „skuggi" sem fylgi og greini
ferðir andstæðingsins.
MENNINBARNDTT
□ pið
til kl 23.□□ á laugaveginum
13-lB á margun sunnudag
brjálað verðhrun á frábærum vörum
allt að BD% afsláttur
góð stemmning í miðbarginni
Kanur
Kapkal
Imltz
□ iesel
Tark
All Salnts
Tara Harmon
IVIenn
Paul 5mith
Van Bils
4-yau
French Cannectlan
□KNY mens
Llayd
5kór
Billi Bl
5helly's
Bull Boxer
Vagahand
Farnarlna
Kaokai 5hoes
cafésautján
gallerisautján
Laugavegi 91. 511 1/1/