Morgunblaðið - 19.08.2000, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Montana lýst hamfarasvæði
Miklir skógar-
eldar í Vestur-
ríkjunum
Los Angeles, Helena, Montana. AP, AFP.
MIKIÐ hefur verið um skógarelda í
Bandaríkjunum undanfarið og
brunnu á fimmtudag eldar á 86 stöð-
um. Vesturríkin hafa orðið einna
verst úti og hafði í gær verið tilkynnt
um skógarelda í 13 ríkjum í vestur-
hluta Bandaríkjanna.
Skógareldur geisaði m.a. á ellefu
stöðum í Yellowstone-þjóðgarðinum
sem liggur á mörkum ríkjanna
Wyoming, Montana og Idaho. Mest-
ar skemmdir vegna skógarelda hafa,
til þessa, orðið í Montana og var ríkið
lýst hamfarasvæði á fimmtudag.
„Himinninn í austri er rauðlog-
andi,“ sagði Mike Kohnke, yfirmað-
ur neyðarþjónustu í Broadwater-
sýslu í Montana, í gær um skógareld
sem kom upp norður af Missouri-
ánni á þriðjudag. „Hver einasti
brunabíll og hver einasti björgunar-
og lögreglumaður er að vinna í mál-
inu,“ sagði Koehnke. „Eldhafið er
mikið og þótt við teljum engan vera í
lífshættu þykir okkur miður hve
margir munu missa heimili sitt og
eignir." Sagði hann enn ekki vitað
hve mörg hús hafi eyðilagst í brun-
anum.
Um 1,1 milljón hektara lands hef-
ur eyðilagst sökum eldsvoða í Vest-
unákjunum í sumar og í Bandaríkj-
unum í heild hafa rúmar 2 milljónir
hektara lands orðið eldi að bráð.
Þetta er rúmlega tvisvar sinnum
meiri eyðilegging heldur en búast
má við á hverjum áratug og sagði
AP-fréttastofan marga telja skógar-
eldana í sumar þá verstu sem geisað
hefðu sl. 50 ár.
Eyðileggingin er mikil í Montana,
en Idaho fylgir fast á hæla þess og
geisuðu skógareldar á 25 stöðum í
ríkinu í gær. Unnu um 5.000 slökkvi-
liðsmenn við að ráða að ráða niður-
lögum eldanna. Búist er við að skóg-
areldarnir muni færast heldur í
aukana nú um helgina, en samkvæmt
veðurspá fyrir Vesturríkin má bæði
búast við eldingum og auknum vindi.
Ástæða þessara mikiu skógarelda
er m.a. rakinn til mikilla þurrka I
sumar, sem og rangra aðferða við
ræktun skóglendis.
AP
Vörubíll með vatnstanki sést hér aka fram hjá skógareldi sem geisar
milli bæjanna Helena og Bozeman í Montana. Skógareldar hafa valdið
mikilli eyðileggingu í Montana og var ríkið lýst hörmungasvæði.
Japanskur truflokkur
Svelt í hel
Tókýó. AFP, The Daily Telegraph.
JAPANSKA lögreglan hefur fundið
fimm rotnandi lík í húsi í Osaka og er
fundurinn sagður tengjast búddista-
helgisiðum sem 66 ára gamall karl-
maður hafi staðið fyrir. Var hann yf-
irheyrður í gær ásamt systur sinni
sem tók þátt í helgisiðunum með
honum en segir bróðurinn hafa verið
stjórnandann og ráðið öllu. Hún er
móðir þeirra sem fundust látnir.
Líkin lágu hlið við hlið á dýnum í
tveim herbergjum í húsinu er lög-
reglan kom á staðinn eftii' að
áhyggjufullir ættingjar fólksins
höfðu gert henni viðvart.
„Þegar við komum að húsinu barst
að vitum okkur hræðileg stækja,"
sagði lögreglumaður. Karlmaðurinn
umræddi, Takao Wakasa, og systir
hans, Akiko, sem er 64 ára, neituðu
að hleypa lögreglumönnunum inn og
sögðust vera upptekin við trúarlegar
æfingar. Lögreglan beitti þá valdi til
að komast inn. „Við vissum þegar í
stað að þessi megna lykt stafaði af
því að einhver væri látinn inni í hús-
inu. Lyktin var ólýsanleg vegna þess
að engin loftkæling var á staðnum,"
sagði lögreglumaðurinn.
Hin látnu voru böm Akikos, fjórar
systur og einn sonur og voru á aldr-
inum 27-41 árs. Álítur lögreglan að
þau hafi látist fyrir um það bil tveim-
ur mánuðum. Dánarorsökin hafði
ekki verið staðfest en Akiko tjáði
lögreglunni að Takao hefði bannað
fimmmenningunum að neyta nokk-
urrar fæðu eða drykkjar, það væri
„guðleg skipun". Nágrannar segja
að hópurinn hafi haft í frammi ýmsa,
undarlega siði og grafið fjórar,
kringlóttar holur í garðinum, um
tveggja metra djúpar. Mun Ákiko
hafa sagt að holumar gerðu „Guði
kleift að anda“.
Systkinin tvö voru illa haldin af
næringarskorti og eru nú á sjúkra-
húsi.
Verðskyn neytenda
Sigurður Freyr Magnússon og
Perla Björk Egilsdóttir.
• Nýmjólk 1 lítri: 70 krónur • Smjör 500 gr: 500
krónur • Tómatar 1 kg: 300 krónur • Nautahakk 1
kg: 1100 krónur • Kók 2 lítrar: 180 krónur
• Skinka 1 kg: 1700 krónur • Ýsuflök 1 kg: 950
krónur
Elba Nunez.
• Nýmjólk 1 lítri: 75 krónur • Smjör 500 gr: 400
krónur • Tómatar 1 kg: 156 krónur • Nautahakk 1
kg: 600 krónur • Kók 2 lítrar: 158 krónur • Skinka 1
kg: 2000 krónur • Ýsuflök 1 kg: 600 krónur
Hvað
kostar í
matinn?
Nokkrir viðskiptavinir í Nýkaupi í Kringlunni og
Bónusi á Laugavegi tóku vel í beiðni Bryndísar
Sveinsdóttur um að giska á verð á nokkrum al-
gengum matvörutegundum, Allir vissu nokkurn
veginn hvað mjólkin kostaði en flestir töldu smjörið
mun dýrara en það er.
UNDANFARIÐ hefur matvöru-
verð hér á landi verið mikið til um-
ræðu í fjölmiðlum og er skemmst
að minnast nýlegrar könnunar
neytendasamtakanna þar sem út-
koman var ekki sem best fyrir ís-
land. En hvað finnst hinum al-
menna neytanda sem fer og kaupir
í matinn? Er það verðið sem ræður
því hvaða vörur fara í körfuna? Vita
menn almennt hvað hlutirnir
kosta?
í Nýkaupi reyndist viðmælend-
unum erfiðast að giska rétt á verð
tómatanna, að meðaltali töldu
menn að kílóið væri á 223 krónur en
rétt verð er 398 krónur. Muninn má
ef til vill skýra með því að verð á
tómötum breytist ört á þessum
tíma árs og því erfitt að geta sér til
um rétt verð þegar það getur
breyst vikulega eða jafnvel oftar.
Flestir voru með á hreinu hvað
mjólkurlítrinn kostaði en ágiskanir
voru á bilinu 65-79 krónur á meðan
rétt verð er 78 krónur.
Svíar eltast við tilboðin
í Nýkaupi varð fyrst á vegi okk-
ar Sigrún Ragna Jónsdóttur sem
sagðist spá mikið í matvöruverð.
Hún hafi búið í Svíþjóð þar sem fólk
væri mjög meðvitað um matvöru-
verð en sér virtist íslendingar vera
Rétt verð
Bónus Nýkaup
Mjólk 1 lítri 72 78
Smjör 500 g 149 179
Tómatar 1 kg 229 398
Nautahakk 1 kg 748 989
Kók 2 lítrar 169 199
Skinka 1 kg 1.528 1.698
Ýsuflök 1 kg ekki til 899
að taka við sér í þeim efnum.
„í Svíþjóð eltast menn mikið við
tilboðin og segja má að þegar eitt-
hvað fer á tilboð sé það á matar-
borði allrar þjóðarinnar. Þannig er
því í raun stjórnað hvað þjóðin
borðar. Stundum gerist þetta hér
eins og til dæmis þegar kjúklingar
fara á tilboð þá kaupa allir kjúkling
í matinn." Sigrún sagðist helst
finna fyrir háu grænmetisverði hér
á landi og því væri ofboðslega
kostnaðarsamt að vera grænmetis-
æta. „í Svíþjóð borgar sig hins veg-
ar frekar en hér að borða hollan
mat því þar er ruslfæði eins og sæl-
gæti og snakk mjög dýrt.“
Við ostaborðið stóð Valgeir Guð-
mundsson og beið á meðan kona
hans var að velja osta. Hann sagð-
Valgeir Guðmundsson.
• Nýmjólk 1 lítri: 65 krónur
• Smjör 500 gr: 150 krónur
• Tómatar 1 kg: 150 krónur
• Nautahakk 1 kg: 500 krónur
• Kók 2 lítrar: 150 krónur
• Skinka 1 kg: 3000 krónur
• Ýsuflök 1 kg: 560 krónur
Sigrún Ragna Jónsdóttir
• Nýmjólk 1 lítri: 79 krónur
• Smjör 500 grömm: 135 krónur
• Tómatar 1 kg: 280 krónur
• Nautahakk 1 kg: 900 krónur
• Kók 2 lítrar: 178 krónur
• Skinka 1 kg: 1500 krónur
• Ýsuflök 1 kg: 800 krónur