Morgunblaðið - 19.08.2000, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 19.08.2000, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR19. ÁGÚST 2000 5 7 keppnisliðinu sem tU Evrópu fór. Signrður var þá 55 ára gamall og ég veit ekki til að eldri knapi hafi keppt fyrir íslands hönd á þessum mótum. Árið 1970 hóf Magnús sonur hans félagsbúskap með foreldrum sínum og stóð sá félagsbúskapur í 24 ár eða þar til Sigurður og Guðrún fluttu til Blönduóss 1994. Þá hafði Magnús tekið við stærstum hluta búsins. Þessi félagsbúskapur gekk með miklum ágætum og samvinna þeirra feðga góð. Það var eitt af einkennum Sigurð- ar hve auðvelt hann átti með að vinna með sér yngra fólki. Áhuginn var svo lifandi. Þetta kom ekki síst fram í hestamennskunni en þar var hann drífandi kraftur með ungu mönnunum sem vildu bæta ræktun- ina heima í héraði. Hann átti mjög auðvelt með að vinna með þessum mönnum þótt þeir væru hálfri öld yngri en hann. Þetta var glöggt dæmi um það hve lifandi hann var og fylgdist vel með. Á Blönduósi bjuggu þau Sigurður og Guðrún sér mjög fallegt heimili að Mýrarbraut 25 og undu þar vel hag sínum. Ekki fórum við hjón svo í gegn á Blönduósi að ekki væri drukkinn kaffisopi hjá Sigga og Nunnu væru þau heima. En það var ekki líkt því að verið væri að heim- sækja öldruð hjón. Þau voru heima í öllu sem var að gerast. En oft barst þá talið að hestum. Þegar elsti sonur minn var 12 ára var hann í sveit á Hnjúki. Hann kom um haustið með sótrauðan fola á fjórða vetur. Það urðu fyrstu kynni mín af hestum Sigurðar. Þessi hest- ur var nefndur Gáski og reyndist gæðingur. Eftir það hafa mörg hross frá Hnjúki komið í mína eigu og sú hryssa sem ég hef verið að rækta út af, Fjöður 4344, var frá honum. Mig langar að segja hér frá einu tilsvari Sigurðar sem sýnir vel viðhorf hans og skynsemi. Það var á fjórðungsmóti á Kaldármelum að ung hryssa sem Sigurður hafði selt sem tryppi til Grundarfjarðar fékk fyrstu verðlaun. Þá segir einn móts- gestanna við Sigurð: „Mikið hefur þú verið óheppinn að selja frá þér svona gott hross, hún hefði veið góð í ræktuninni þessi.“ Þá svaraði Sig- urður: „Það er nú ekkert víst að hún hefði náð þessum árangri hjá mér og hún auglýsir ekki síður mín hross þótt hún sé í annarra eigu.“ Já, það er margs að minnast þeg- ar litið er til baka yfir svo langan tíma. Haust eftir haust fór ég norður á hrossaréttir í Vatnsdal og tók þátt í að smala hrossunum til réttar. Þá var stóðið rekið til réttar um Hnjúksland og auðvitað komu þá all- ir inn og þáðu kaffi hjá húsmóður- inni og Sigurður bragðbætti sopann. Það var sérstök hátíð að fara í rétt- irnar og mikil tilhlökkun að leggja af stað norður eftir vinnu á föstudegi til að geta smalað á laugardeginum og farið svo í hrossadráttinn á sunnudeginum og rekið heim. Eftir að hross voru komin í nátthaga á laugardagskvöldið var komið við á bæjum. Alls staðar átti Sigurður þar vinum að mæta. Á sunnudeginum þegar Þverhreppingar riðu hjá með sitt stóð var staðið á tröppunum á Hnjúki og tekið lagið en Sigurður var góður söngmaður sem og synir hans. Fyrri hluta sumars fór ég norður til að reka stóðið á heiðina og svo seinna á haustin þegar ásetningur var ákveðinn. Þannig hrúgast minn- ingarnar upp og alltaf var Sigurður hrókur alls fagnaðar. En mest er þakklætið fyrir að hafa kynnst þess- um ágæta manni, sem mér fannst aldrei gamall þótt hann yrði aldrað- ur og fjölskyldu hans og átt vináttu þeirra jafnlengi og raun ber vitni. Oft ræddum við eilífðarmálin og Sigurður bar ekki kvíðboga vegna vistaskiptanna. Hann var þess full- viss að þegar þessari jarðvist lyki þá tæki við annað tilverustig. Hann var þakklátur fyrir að vera borinn í heiminn af góðum foreldrum, eign- ast góða fjölskyldu og eiginkonu sem hann virti mjög mikils. Hennar er nú mestur söknuðurinn við brotthvarf hans. En hún eins og við öll sem Sigurð þekktum getum yljað okkur við minningar um góðan dreng. Nunna mín. Við Ingibjörg send- um þér, sonum þínum og fjölskyld- um þeirra okkar innilegustu samúð- arkveðjur og biðjum ykkur Guðs blessunar. Kári Amórsson. Sgurður vinur minn, fyirverandi bóndi á Hnjúki er látinn. Ég talaði við hann nokkrum dögum áður, þá var hann hress og kátur eins og venjulega. Fljótt skipast veður í lofti. Vinátta okkar Sigurðar hefm- haldist síðan við vorum saman í barnaskóla og í Reykholtsskóla í Borgarfirði. Hann var mjög vinsæll meðal skólasystkina enda alltaf kát- ur og grínsamur alla tið. Við Sigurð- ur vorum sveitungar mestan hluta ævinnar og kom okkur alltaf vel saman. Við unnum saman í ýmsum nefndum og störfum. Hann flug- mælskur í ræðustól og talaði oftast blaðalaust á fundum. Við Sigurður fórum oft saman í göngur, var þá ætíð gaman í Fljótsdrögum er við hittum Borgfirðinga þar sem var mikið sungið og talað saman. Við Sigurður vorum ekki óvanir að syngja saman þar sem við vorum báðir í kirkjukór og blönduðum kór í okkar sveit. Sigurður var kunnur hestamaður og alltaf vel ríðandi. Hann ræktaði sín hross og vann að því að fá inn í héraðið þá bestu stóð- hesta sem völ var á. Sigurður og Guðrún kona hans byrjuðu búskap á Hnjúki og settu þau fljótlega upp stórbú. Þetta var blandaður búskap- ur, kýr, kindur og hross. Þau stóðu fyrir miklum framkvæmdum, svo sem byggingum, ræktun og upp- þurkun á landi. Daginn áður en Sig- urður fór á sjúkrahúsið á Akureyri talaði ég við hann í síma. Hann var jafnhress og kátur og venjulega, hann spurði mig hvort ég héldi að við gætum ekki farið saman í undan- reið í haust. Ég tók því vel en sagði að við þyrftum að þjálfa hestana áð- ui' „Það er nú ekki mikið mál“ sagði Sigurður. Svona er minning mín um Sigurð, léttur og grínsamur félagi alla tíð. Guðrún og Sigurður lifðu í fai-sælu hjónabandi í rúm50 ár. Við hjónin og fjölskylda okkar þökkum þeim vináttu liðinna ára og sendum Guðrúnu og fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur. Leifur og Elna. í morgunsárið sunnudaginn 6. þ. m. lagði Sigurður á Hnjúki upp í ferðina miklu. Oft mun hann hafa tekið daginn snemma og vel við hæfi að hann fengi að ganga árla til vista- skiptanna þegar dýrð sumarsins var í hámarki. Sigurður Magnússon var elstur fimm bræðra frá Brekku í Þingi og má telja það sérstakt að þeir urðu allir bændur í sinni heimasveit, Sveinsstaðahreppi, þótt einn þeirra væri jafnframt kennari um skeið. Sigurður kvæntist ágætri konu, Guðrúnu Jónsdóttur einkadóttur hjónanna á Hnjúki í Vatnsdal, og bjuggu þau_ fyrstu átta árin í Reykjavík. Árið 1955 keyptu þau jörðina Hnjúk, sem var óðal hús- freyjunnar. Þar er víðsýnt og fagurt um að litast og má geta nærri um bjartsýni ungu hjónanna þegar þau voru komin þangað heim. Þau hófu þegar umsvifamikinn búskap en þá fór í hönd mesta framfara- og fram- kvæmdaskeið íslensks landbúnaðar. Slíkir tímar voru Sigurði vel að skapi. Hann var stórhuga og dug- mikill framkvæmdamaður, bóndi sem rak gagnsamt bú í nálega fjóra áratugi. Hann var hestamaður og þótti vænt um hrossin sín. Má vera að þau hafi verið honum sem krydd- ið í búsýslunni og átt betur við hans eigin skapgerð en hinn hæggengari búsmalinn sem þó stóð að megin- hluta undir afkomu búsins. Auk þessa kom Sigurður víða við í félags- málum, m.a. á sviði samvinnufélag- anna í héraðinu. Sigurður var hvatlegur í hreyfing- um og óvílinn til starfa. Hann var mannblendinn og lífsglaður maður, sem með glaðværð sinni og glettni smitaði út frá sér á mannfundum og á meðal samferðamanna. Kunn- ingjahópurinn var stór og víða átti hann vinum að mæta. Heimili þeirra hjóna var mynda- rlegur rausnargarðm' og áttu þau bæði óskiptan hlut þar að. Sigurður var flestum mönnum glaðari heim að sækja og skorti hvergi á um ríkuleg- ar veitingar þeirra hjóna. Mér varð þar stundum skrafdrjúgt. Hann var vel að sér á mörgum sviðum, raun- sær og ráðhollur. Ég á honum margt að þakka frá langri leið og mér fannst að ég tæki ævinlega með mér eitthvað af gleði hans og bjartsýni er ég hvarf af hans fundi. Haustið 1994 seldu þau hjónin jörð og bú að fullu í hendur Magnús- ar sonar síns, sem þá hafði búið ásamt þeim í allmörg ár, og fluttu til Blönduóss. Þar keyptu þau einbýlis- hús og bjuggu sér fallegt heimili. Ég hygg þó að Sigurður hafi átt ærið margar ferðirnar að Hnjúki til að grípa í verk fyrir son sinn sem stundum vann utan heimilis, en þó fyrst og fremst sjálfum sér til lífs- fyllingar. Alltaf kallaði ég hann Sig- urð á Hnjúki þótt hann hefði fært sig um set. Sigurður var gæfumaður. Sú mikla ágætis kona sem hann eignað- ist og synir þeirra áttu þar auðvitað drýgsta þáttinn. Þau hjónin virtust einstaklega samrýmd. Eftir að þau fluttu til Blönduóss tóku þau sem áður þátt í því sem var að gerast í samfélaginu og voru oft í hópnum þar sem fólk kom saman. Þau fóru saman ýmsar ferðir til útlanda, síð- ast fyrir tæpum tveimur árum þegar þau áttu gullbrúðkaupsafmæli. Þau nutu lífsins saman meðan bæði stóðu. Sigurður hélt léttleika sínum og skopskyni að heita mátti til hinstu stundar, þótt þrekið væri mjög að bila síðustu vikumar. Hann varð aldrei gamall maður þótt hann næði 85 ára aldri. Að leiðarlokum flyt ég Sigurði þakkir fyrir samskipti okkar öll, fyr- ir vináttu hans og stuðning við mig um áratuga skeið. Ég veit að honum mun fylgja ferskur blær til nýrra heimkynna. Við Helga sendum Guð- rúnu, sonum þeirra hjóna og öðru venslafólki einlægar samúðarkveðj- ur. Megi minningin um góðan dreng ylja þeim á komandi tímum. Pálmi Jónsson. Hratt flýgur stund. Síðasta sumar aldarinnar vel hálfnað, kom seint, er þegar orðið eitt hið besta á öldinni. Þeim fækkar stórbændunum í Vatnsdal sem voru kóngar hver í sínu ríki, horfðu til heiðanna með blik í augum, sáu í huga sínum „hvítagulli streyma til byggða,“ eins og Ágúst á Hofi orðaði það svo snilldarlega. Ekki var blikið daufara í augum Sigurðar þegar hann var mættur á hrossamarkaði, þá gerðist hann svo umsvifamikill að mönnum stóð ekki á sama. Þegar hann gekk berserksgang, hafði öll ráð í hendi sér og hafði jafnan hag af. Þau hjón sátu á friðarstóli á Blönduósi hin síðustu ár enda heilsu og burðum að hraka eftir langan vinnudag. Ég held að Sigurður hafi verið veðurglöggur og sannspár er hann lyfti hendi af enni og kvað úr um að gott yrði á heiðinni í dag, fylgdist vel með öllu er menn lögðu á Árnarvatnsheiði að Fljótstungu í einum áfanga með ekki allt of marga hesta. Það er rétt mánuður síðan við kvöddum þau Guðrúnu og Sigurð eftir smá innlit og kaffibolla. Menn voru kátir yfir síðasta landsmóti hestamanna í Reykjavík. Við þurft- um ekki að hotta á okkar fólk né hesta, landsmótið var glæsilegt svo ekki sé meira sagt. Sigurður á Hnjúki var áhugamaður á öllum sviðum samfélagsins og um félags- mál. Hann fylgdist vel með öllum þeim hestum sem hann lét til ann- arra og gladdist vel þegar vel tókst til. Þegar við í þessum hóp vorum til hressingar á Orkinni í Hveragerði var farið ásamt Njáli Gunnarssyni að skoða sjöunda eða níunda undur veraldar sem sagt stærsta hesthús landsins. Vorum við Sigurður og Njáll sammála um að heldur mynd- um við hafa klárana okkar úti á klakanum en að vera í þeim húsa- kynnum. Við hjón þökkum þeim hjónum frábæra kynningu og sam- verustundir, við vottum Guðrúnu og fjölskyldu hennar samúð. Hjálmar Gunnarsson, Grundarfirði. + Gyða Þorsteins- dóttir fæddist í Sælingsdal í Dölum 2. apríl 1942. Hún lést á Landspítalan- um við Hringbraut 28. júlí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogs- kirkju 11. ágúst. Fyrir um það bil 11 árum kynntumst við hjónin Gyðu og Guð- mundi er við keyptum land á sumarbústaða- svæðinu við Gíslholts- vatn í Holtum. Hófust kynni okkar með þeim hætti að Guðmundur átti sendiferðabíl á þeim tíma og flutti hann fyrir okkur efni til byggingar bústaðar okkar og ekki stóð á því að það væri sjálfsagt. Érá þeim tíma hefur vinskapur aukist milli okkar og þeirra jafnt og þétt. Við biðum alltaf eftir að þau hjónin kæmu þær helgar sem Guðmundur átti fríhelgi. Einnig eyddu þau mestum tíma sínum í sumarleyfum í bústaðnum. Tóku þau hjón mikinn þátt í uppbygg- ingu svæðisins. Guðmundur var gjaldkeri fyrir félag okkar í mörg ár og tók Gyða ekki síður þátt í störfum á svæðinu og hafði hags- muni og uppbyggingu svæðisins í fyrirrúmi. Sérstaklega hafði hún hagsmuni barna í huga og hafði forgöngu um að koma upp leikvelli fyrir börnin og þau Guðmundur sáu um hirðingu og viðhald í mörg ár. Margs er að minnast þann tíma er við vorum samtímis við Gísló. Gyða var dugleg göngukona og fór oft langar leiðir og undruðumst við oft hvað hún var dugleg. Heim- sóknir á kvöldin voru margar og voru þá oftast rædd áhuga- málin sem voru oftast í þá veru hvernig við gætum gert svæðið sem snyrtilegast og fallegast. Þar lagði Gyða margt gott til mála og hafði ákveðnar skoðanir á málum. Gestrisni var Gyðu í blóð borin, kaffi og meðlæti var komið á borð áður en maður vissi af. Á sumrin var gestagang- ur mikill og öllum sýnd sama gestrisnin hvort sem það voru heimamenn á svæðinu eða skyld- fólk og kunningjar. Dugnaður Gyðu við hannyrðir var undraverð- ur, marga fallega gripi sáum við hjá henni og kenndi hún okkur það sem okkur langaði að læra. Veik- indi Gyðu komu okkur í opna skjöldu, því sjúkdómur hennar tók hana þvílíkum heljartökum og gekk hratt yfir, að okkur sem fylgdumst með veikindum hennar var mjög brugðið. Guð tók hana of fljótt. Hún sem átti svo mikið ógert í þessu lífi. Okkur finnst það mikið lán að hafa kynnst Gyðu og notið vináttu hennar og Guðmundar, því þau voru oftast nefnd í sama orð- inu, Gyða og Guðmundur. Þar sem Gyða var, þar var Guðmundur líka og öfugt. Við þökkum Gyðu sam- veruna og vináttuna og munum minnast hennar því Gísló og Gyða eiga samleið í huga okkar, þau góðu ár sem við áttum þar. Takk fyrir allt, Gyða okkar. Við biðjum Guð að styrkja fjölskyldu Gyðu. Stella og Nikulás. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs sambýlismanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og bróður, EYJÓLFS JÓNSSONAR frá Flateyri, síðar búsettur á ísafirði. Helga Hermundardóttir, Guðrún Eyjólfsdóttir, Guðmundur Níelsson, Jón Eyjólfsson, Guðrún Indriðadóttir, barnabörn og systur hins látna. + Móðir mín, tengdamóðir og systir, KATRÍN DALHOFF BJARNADÓTTIR fiðluleikari, andaðist í Hamborg sunnudaginn 6. ágúst síðastliðinn. Fyrir hönd annarra vandamanna, Margrét Dannheim, Jón Björnsson, Björg Bjarnadóttir. GYÐA ÞORSTEINSDÓTTIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.