Morgunblaðið - 19.08.2000, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fyrirlestur
um jökla
og eldfjöll
áMars
JAMES Head frá Brown University
flytur fyrirlestur laugardaginn 19.
ágúst um nýjustu niðurstöður Mars-
könnunar. Heiti fyrirlestursins er:
„Jöklar og eldfjöll á Mars“ og verðui-
hann fluttur í Sal 2 í Háskólabíói, kl.
14.
Head er prófessor. í jarðvísindum
og hnattfræðum (planetology) og í
forystusveit Marsfræðinga nú á dög-
um. Hann hefur tekið þátt í undirbún-
ingi Apollo, Voyager, Viking, Magell-
an, Galileo og Mars Global Surveyor
hnattleiðangranna og haft umsjón
með úrvinnslu gagna frá könnunar-
förunum. Hann tók þátt í þjálfun
geimfaranna sem fyrstir fóru til
tunglsins með Apollo 11 og hefur á
síðari árum m.a. tekið þátt í að undir-
búa Bjama Tryggvason fyrir nýlega
ferð hans út í geim. Hann er nú stadd-
ur á íslandi til að taka þátt í alþjóðleg-
um ráðstefnum um eldgos undir jökl-
um og um heimskautasvæðin á Mars.
I fyrirlestri sínum mun James
Head greina frá nýjum kortum af yf-
irborði Mars, heimskautajöklum
hnattarins og hinum miklu eldl'jöll-
um. Sérstök áhersla verður lögð á
fyrirbæri, sem eiga sér hliðstæður á
Islandi; s.s. eldgos undir jöklum, jök-
ulhlaup, móberg, gervigíga o.fl. Sýnd-
ur verður fjöldi nýrra mynda, sem
teknar hafa verið úr könnunarfarinu
Mars Global Surveyor, og gerð grein
fyrir frekari Marskönnun í framtíð.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Fræðsludag-
skrá í Krýsu-
vík á sunnudag
DAGSKRÁ í tengslum við ár-
þúsundaverkefni Hafnarfjarðar
„Krýsuvík - samspil manns og
náttúru" verður á sunnudag og
er það þriðji og síðasti dagskrár-
dagurinn í sumar. Að þessu
sinni er unnið með orkuna sem
þema.
Fræðsla verður á hverasvæð-
inu við Seltún á klukkustundar
fresti og einnig verður farið í
gönguferð með leiðsögn til Aust-
urengjahvera. Eins og fyrri dag-
skrárdagana er Sveinshús opið,
en þar hafði listamaðurinn
Sveinn Björnsson vinnustofu
sína. Boðið verður upp á kaffi-
veitingar í Krýsuvíkurskóla hjá
Krýsuvíkursamtökunum og
einnig bjóða afkomendur síð-
ustu ábúenda á Stóra-Nýjabæ
gesti velkomna og munu standa
fyrir fræðslu á svæðinu.
Dagskráin á sunnudag hefst
með messu í Krýsuvíkurkirkju
kl. 11, en önnur dagskráratriði
hefjast eftir hádegi. Rútuferðir
verða frá BSÍ og Upplýsinga-
miðstöð ferðamanna í Hafnar-
firði og þar er einnig til sölu ný-
útgefið kort af Krýsuvík sem
gott er að hafa meðferðis.
Samgöngu-
ráðherra á
Nýfundnalandi
STURLA Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra, verður í opinberum er-
indagjörðum á Nýfundnalandi og
Nova Seotia dagana 19.-29. ágúst
næstkomandi. Heimsókn ráðherrans
tengist hátíðahöldum vegna landa-
fundanna og mun hann m.a. vera við
komu víkingaskipsins íslendings til
Halifax. Þá er einnig á dagskrá ráð-
herra að afhjúpa minnisvarða um
125 ára afmæli byggðar íslendinga á
Nova Scotia og heimsókn í höfuð-
stöðvar Eimskips í tilefni af tíu ára
afmæli skrifstofu þeirra í Halifax.
Geir H. Haarde, fjármálaráð-
herra, mun gegna störfum sam-
gönguráðherra í fjarveru hans.
Aukaferðir
hjá SVR
SVR mun aka samkvæmt áætlun
kvöld og helgar til miðnættis í kvöld
en aukaferðir verða á leið 6 og næt-
urvögnum vegna menningarnætur
Reykjavíkur.
Leið 6 mun aka samkvæmt áætlun
í Vesturbæ til kl. 1.32. Næturvagn-
arnir hefja akstur kl. 24.30 og aka á
30 mín. fresti til kl. 5. Næturvagn-
arnir hefja akstur í Lækjargötu á
móts við MR, aka Hverfisgötu og um
Hlemm á leið í austurhverfi borgar-
innar en með næturvögnunum má
komast í öll hverfi borgarinnar sem
liggja austan miðborgar.
„SVR hvetur alla þá sem vilja taka
þátt í viðburðum menningarnætur til
að nýta sér þjónustu strætisvagna en
bent er á að greið leið er úr öllum
hverfum borgarinnar til miðborgar,"
segir í frétt frá SVR.
Gengið um
fornar slóðir
SKÓGRÆKTARFÉLAG Reykja-
víkur stendur fyrir göngu sunnudag-
inn 20. ágúst kl. 13.30 í Heiðmörk.
Er það einn af dagskrárliðum í til-
efni 50 ára afmælis Heiðmerkur.
Að þessu sinn hefst gangan á plan-
inu við bæinn Elliðavatn og verður
aðaláhersla lögð á skoðun fornminja
á svæðinu. Þar er margt merkilegt
að sjá svo sem fornminjar í Þingnesi,
gömlu íbúðarhúsin á Elliðavatni o.fl.
Aætlað er að gangan taki um 3 klst.
Öllum er frjálst að taka þátt og
það er ekkert þátttökugjald.
Samstarfsaðilar Skógræktarfé-
lagsins að þessu sinni eru Árbæjar-
safn sem mun leggja til sérfróða leið-
sögumenn um fornminjar og
Reykjavík - menningarborg Evrópu
árið 2000 en dagskrá í tilefni 50 ára
afmælis Heiðmerkur er hluti af
heildardagskrá menningarborgar-
innar.
Iðnó með á
Menningarnótt
Á MENNINGARNÓTT verður
Iðnó með opið Kaffihús frá kl. 12 á
hádegi fram á nótt. Jón Gnarr verð-
ur með uppistand kl. 21, 22 og 23. DJ
úr leikritinu Shopping & Fucking kl.
21.30, kl. 22.30. Kl. 24 mun Hljóm-
sveitin I svörtum fötum spila fyrir
dansi fram eftir nóttu.
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 61
1 n
^ndóneáíá
uáaoan
...A FRAMANDI VERÐI
Glæsileg húsgögn frá Inddnesíu úr gegnheilu tekki.
Stjörnuspá á Netinu
v^mbl.is
VELVILDAR
^VOGIN^
M m nCíUiSStóáfc SS E
r - ,± " , * rf
Starfsþróunarfyrirtækið Skref fyrir skref ehf. heldur opinn
morgunverðarfund í Víkingasal Hótel Loftleiða 21. ágúst
nk., kl. 8.00 til 11.00. Tilefnið er að gefa stjórnendum
menntastofnana tækifæri til að kynnast Velvildarvoginni
(Etisk regnskap), nýrri aðferð til árangursmælingar í
stofnunum og fyrirtækjum.
Ipallborði verða auk frummælenda: Ólafur Guðmundsson, skólastióri Kópavogsskóla
og Börkur Hansen, dósent I uppeldisgreinum við Kennarahéskóla Islands.
Fundarstjóri er Anna E. Ragnarsdóttir, kennari og verkefnastjóri hjá Skref fyrir skref ehf.
Fundargjald kr. 1.500 - morgunverður og kaffi.
Ármúla 5 • 108 Reykjavik • sími 581 1314 • fax 581 1319 • www.step.is
Dagskrá
8:00 Gestir boðnir velkomnir - Sigrún Jóhannesdóttir, M.S. í
kennslutækni og menntunarhönnun og verkefnastjóri
hjá Skref fyrir skref
Ávarp - Björn Bjarnason, menntamálaráðherra
Etisk regnskap - den etiske læreproces - Tom Christensen,
ráðgjafi EKL Consult Álaborg
Frumreynslan úr Kópavogsskóla - Jón Ólafur Halldórsson,
foreldraráði Kópavogsskóla
9:00 Kaffihlé
9:15 Erfaringen fra Danmark - Ingelise Thyssen, skólastjóri
Lyndevang skólans í Fredriksberg
Velvildarvogin innleidd - Ketill B. Magnússon, siðfræðingur
og verkefnastjóri hjá Skref fyrir skref
10:10 Pallborðsumræður
11:00 Fundarslit