Morgunblaðið - 19.08.2000, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 65
BRÉF TIL BLAÐSINS
Koffínistar og
aðrir dópistar
Kristnihátíð er lögð í einelti
Frá Guðmundi Rafni Geirdal:
SUNNUDAGINN 16. júlí síðastlið-
inn var endurbirt Morgunblaðsgrein
með yfirskriftinni Ávanaefnavand-
inn á erindi við okkur öll. Hún er eft-
ir barnalækni og aðstoðarlandlækni.
Þar koma þeir með nýja náigun á
viðfangsefnið um hinn tíðrædda
vímuefnavanda, með því að stækka
umræðusviðið og bæta inn í tveimur
óhollum og löglegum efnum sem
ekki eru vímuefni en era hins vegar,
líkt og önnur vímuefni, ávanaefni.
Það eru koffín og nikótín. Þeir setja
koffínið í heildarsamhengið sem
skaðlausasta en um leið algengasta
efnið og að það valdi ekki fíkn þó að
ávani í það þyki sterkur og frá-
hvarfseinkenni þess hvimleið. Þeir
segja að fylgifiskar koffínneysiu séu
þeir að heili okkar venjist í frum-
bernsku á örvandi efni sem „... gæti
vakið með okkur falska trú á öryggi
efna sem hafa áhríf á heilastarfsem-
ina“.
Það athyglisverða er að læknarnir
gefa bendingu um að með notkun á
amfetamíni, dímu og kókaíni sé verið
að „... sækjast eftir vímu og marg:
földum örvandi áhrifum koffíns". I
þessu samhengi verða hörðustu
fíkniefnaneytendur vart mikið verri
en hörðustu kaffiþambarar (sam-
kvæmt geðlækni sem ég hef rætt við
hafa streitusjúklingar verið þekktir
fyrir að drekka allt að 3 lítra af kaffi
á dag). Af öllum þessum ávanaefnum
þá segja þessir ágætu læknar: „Koff-
ín er mest notaða ávanaefni sem til
er.“ Varðandi annað löglegt efni,
sem fólk sækist svo í að það er tilbúið
til að húka út á svölum í næturfrosti,
segja þeir: „Nikótín (ávanaefnið í
tóbaki) er með eitruðustu efnum sem
neytt er.“ Það áhugaverða er að bæði
þessi efni eru lögleg og sleppa þann-
ig framhjá Iaganna vörðum, mitt í
leit þehTa í öllum hornum að fíklum,
sem þeir geta dregið fyrir rétt, og
dæmt. Læknarnir gefa einnig svar
við hvers vegna fólk sækir svo fast í
öll þessi efni, allt frá þeim mildustu
(koffíns) til þeirra sterkustu (am-
fetamíns, dímu og kókaíns): „Losun
dópamíns í stýrikerfí ávana fram-
kallar vellíðunarkennd (euphoria) og
er sameiginleg verkun allra ávana-
efna.“ Við erum semsagt að leita að
vellíðunarkennd með því að láta ofan
í okkur þessi óhollu efni. Annað sem
heldur okkur við þessi efni segja þeir
vera að við óttumst fráhvarfsein-
kenni af hvimleiðum einkennum ef
við hættum. Þetta tvennt heldur
okkur í horfinu, ár eftir ár, og stuðlar
að langvinnri neyslu. Eftirspurn eft-
ir þessum ófullkomnu „gleðigjöfum"
spinnst saman við nútímalega versl-
unarhætti og síaukna flutningsgetu,
þar sem gróði er gífurlegur. Þannig
telja læknarnir hringrásina vera fyr-
ir síaukinni neyslu, sístækkandi víta-
hring í átt til þess sem verra er.
Þetta sjónarhorn læknanna er af-
ar áhugavert fyrir þær sakir að litla
saklausa fólkið úti í bæ sem segir
vinalega að það sé heitt á könnunni
og bíður nágrannann velkominn er
út frá þessu séð að byrla eiturseyði
fyiár öðru ágætu fólki. Saman sötrar
það ávanaefnið koffín og er þannig
þátttakendur í enn stærri vítahring
heilsuspillandi efna. Samkvæmt
þessu er aðeins stigsmunur á koffín-
istum og dópistum. Báðir vilja
„dópa“ sig upp af fölskum gleðigjafa
til að örva dópamín í líkamsvefjum
sínum. Höfum í huga að koffín er líka
í tei, súkkulaði, kakói og kóla-
drykkjum, þannig að börnin okkar
taka jú einnig þátt í hildarleiknum.
Ég legg því til að við öll áttum okkur
á því að menning mannkynsins er
eitt syndandi haf af óhollum efnum,
sem ýmist eru lögleg eða ekki, og að
við erum flest hluti af heildar-
mynstrinu (það hefur víst farið um
þriðjungur af bolla af kaffi á dag inn
fyrir mínar varir undanfarna mánuði
en ég ákvað að hætta þegar ég las
greinina). Við höfum því miður ekki
sloppið frá alþjóðlegum straumum af
þessu tagi uppi á okkar litla íslandi.
Meginmálið er að halda sér eins
hreinum og kostur er frá þessum
ófullkomnu leiðum til velh'ðunar og
leita annarra betri.
GUÐMUNDUR
RAFN GEIRDAL,
skólastjóri.
Svavar A Jónsson skrifar:
MIKIL umræða hefur verið um
kristnihátíðina á Þingvöllum. Hún
var til umfjöllunar löngu áður en hún
fór fram og þá þegar voru fjölmiðlar
duglegir við að finna henni allt til for-
áttu. Andófið gegn henni magnaðist
þegar nær dró hátíðarsetningunni og
segja má síðan þá hafi kristnihátíð
verið lögð í einelti, meðal annai’s af
fjölmiðlafólki. Síðasta dæmið er í
Morgunblaðinu í gær, miðvikudag.
Þar fjallaði bókmenntarýnir blaðsins
um nýlega bók eftir erlenda skáld-
konu. Auðvitað var það ekki hægt án
þess að kristnihátíð á Þingvöllum
væri blandað í málið!
Margt má gagnrýna í Þjóðkirkj-
unni og ekkert við það að athuga þótt
menn kjósi að setja aðfinnslur sínar
fram á beinskeyttan hátt. Kirkjan
hefur á undanfömum vikum enn-
fremur fengið sinn skammt af
skömmum og á síðustu mánuðum eru
fleiri en eitt dæmi um að trú og til-
beiðsla þjóðkirkjufólks hafi verið
höfð að háði og spotti á opinberum
vettvangi. Ég tek undir með séra Sig-
urbirni Einarssyni, biskupi, þegar
hann líkti umræðunni við áróðurs-
brögð í alræðisríkjum. Nasistar og
kommúnistar beittu gjaman þeim að-
ferðum í opinberri umræðu, að þeir
gerðu andstæðinga sína tortryggi-
lega í augum almennings og skopuð-
ust að þeim og skoðunum þeirra.
Full ástæða er til þess að hvetja
kirkjufólk til þess að snúa bökum
saman og standa vörð um þjóðlegan
og öfgalausan kristindóm. Énnfrem-
ur er full ástæða til þess að hafa
áhyggjur af tjáningarfrelsinu í þessu
landi í ljósi úrskurðar siðanefndai’ C.
Prestafélags íslands í máh séra Sig-
urbjöms. Hann sagði sitt álit á um-
ræðunni og tjáði það af miklum al-
vöruþunga. Éfalítið hafa einhveijir
hneykslast á orðum biskupsins. Ekki
hefði ég orðið hissa á því þótt hann
hefði verið beðinn góðfúslega að
skýra mál sitt betur en unnt er í
stuttu blaðaviðtali. Það sem máh
skiptir er þó ekki hvort menn era
sammála eða ósammála hinum frægu
ummælum biskupsins. Aðalatriðið er
hvort menn megi tjá skoðanir sínar.
Þess vegna er úrskurður siðanefndar
til skammar fyrir íslenska presta-- —
stétt og hann er tilræði við tjáningar-
og skoðanafrelsið í þessu landi.
SR. SVAVAR A. JONSSON,
sóknarprestur á Akureyri
DOMUS MEDICA
við Snorrabraut - Reykjavík
Sími 551 8519
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 - Reykjavík
Sími 568 9212
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
Vökum af list í Galleríi Fold
✓
✓
✓
✓
✓
✓
✓
Verið velkomin að sjá, spjalla og njóta
Listamenn verð að störfum í galleríinu við olíu- og vatnslitamálun og leirkeragerð.
Þrykkt verður á fyrstu grafíkpressu sem kom til landsins.
Teiknimyndasamkeppni fyrir böm, 12 ára og yngri - verðlaun veitt fyrir bestu teikningar í hverjum aldursflokki.
Harmonikkuleikari verður á staðnum.
Eins og ávallt - mörg hundruð myndverk til sýnis og sölu eftir um 200 listamenn.
Heitir drykkir og sætar kökur í boði fyrir börn og fullorðna.
Opið frá klukkan 17.00 til 01.00
LÍNA í UNDRALANDI
Boðskort
Kl. 17.00 opnar
Lína Rut
sýningu
á olíuverkum
í Rauðustofunni
Þér er boðið
Gunnlaugur St.
Gíslason
17-20
Vatnslitun
Gyða
Jónsdóttir
17-20
Leir
Hrafnhildur
Bemharðsdóttir
19-22
Olíumálun
Garðar
Pétursson
20-23
Vatnslitun
Guðrún
Jónasdóttir
20 -23
Leir
Ásgúst
Bjamason
22-01
Þrykk
Gunnella
22-01
Olíumálun
RAUDARÁRSTÍG 14-16
SÍIVII 551 0400
OPIÐ TIL KL. 01.00
ÍNÓTT