Morgunblaðið - 19.08.2000, Qupperneq 66
66 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÍDAG
Gítartónleikar í
Pakkhúsinu á Höfn
PÉTUR Jónasson gítarleikari
heldur tónleika í Pakkhúsinu á
Höfn í Hornafirði, sunnudags-
kvöldið 20. ágúst kl. 20.30.
Á tónleikunum mun Pétur
leika spænska gítartónlist eftir
Francisco Tárrega, Isaac Albén-
iz og Manuel de Falla, en einnig
íslensk verk sem samin hafa
verið sérstaklega fyrir hann af
Kjartani Ólafssyni og Eyþóri
Porlákssyni.
Pétur hefur haldið einleik-
stónleika í á þriðja tug landa,
leikið í útvarpi, sjónvarpi og á
geisladiskum. Pétur hlaut heið-
ursstyrk úr Sonning-sjóðnum í
Kaupmannahöfn og var tilnefnd-
ur til Tónlistarverðlauna Norð-
urlandaráðs árið 1990.
Tónleikarnir eru á vegum
Pétur Jónasson
menningarmálanefndar Homa-
fjarðar og styrktir af Félagi ís-
lenskra tónlistarmanna og
menntamálaráðuneytinu.
Tríó Romance
á Seyðisfírði
TRÍÓ Romance mun flytja verk fyr-
ir píanó og flautur eftir Clinton,
Schubert, Gaubert, Bizet, Dinicu,
Liszt, Franck o.fl. á Seyðisfírði á
miðvikudagskvöld, 23. ágúst, kl.
20.30. Tónleikarnir eru í tónleika-
röðinni Bláa kirkjan. Tríóið skipa
þau Peter Máté píanóleikari, Guðrún
Birgisdóttir og Martial Nardeau
flautuleikarar.
Miðar fást á skrifstofu Bláu
kirkjunnar, Ránargötu 3 á Seyðis-
- firði, og í kirkjunni fyrir tónleikana.
Síminn er 472-1775 og
tölvupóstfangið er <muff@eld-
horn.is>. Aðgangseyrir er kr. 1000.
Tríó Romance.
Sinfóníuhlj ómsveit
æskufólks með
þrenna tónleika
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT æsku-
fólks, Elbe-Weser, heldur þrenna
tónleika hér á landi á næstunni.
j- Fyrstu tónleikamir verða í í Hafnar-
borg, Hafnarfirði, í kvöld, laugar-
dagskvöld, kl. 20. Aðrir tónleikar
verða sunnudagskvöld kl. 21 í Reyk-
holtskirkju og hinir þriðju í Lang-
holtskirkju mánudagskvöldið 21.
ágúst kl. 20.
Hljómsveitina skipar ungt tónlist-
arfólk frá níu Evrópulöndum. Megin-
uppistaða hljómsveitarinnar eru þó
nemendur í tónlistarskólum á svæð-
inu milli ánna Elbe og Weser í Norð-
ur-Pýskalandi, m.a. frá Cuxhaven,
vinabæ Hafnarfjarðar í Þýskalandi.
Alls leika 74 hljóðfæraleikarar á aldr-
inum 15-24 ára í hljómsveitinni í ár.
Á efnisskrá hljómsveitarinnar
þetta árið eru Enigma-tilbrigðin eftir
Edward Elgar og píanókonsert í
a-moll eftir Edvard Grieg, þar sem
einleikari á píanó er Hafnfirðingur-
inn Ástríður Alda Sigurðardóttir.
Hún er fædd í Reykjavík 1980. Hún
stundaði nám við Tónskóla Sigur-
'j sveins, Tónlistarskólann í Hafnar-
firði og Tónlistarskólann í Reykjavík,
en þaðan lauk hún einleikaraprófi
með hæstu einkunn 19 ára gömul. Nú
í haust mun Ástríður Alda halda til
framhaldsnáms við Tónlistarháskól-
ann í Bloomington, Indiana (BNA).
Stjómandi hljómsveitarinnar síð-
an 1992 er Svisslendingurinn And-
reas Mildner. Hann nam hljómsveit-
arstjómun hjá próf. Klauspeter
Seibel í Hamburger Hoehschule fur
Musik und Theater, og sat m.a. nám-
skeið hjá Ferdinand Leitner, Leon-
ard Bemstein og Gerd Albrecht. Al-
mennur aðgangseyrir er 1.000 kr. en
500 kr. fyrir böm, nemendur og eldri
borgara.
Sýning
framlengd
Gallerí Sævars Karls
Sýning Tuma Magnússonar
er framlengd til 25. ágúst.
Erum við
hætt að nota
höfuðið?
ÉG var að keyra eftir
Reykjanesbrautinni nú fyrir
stuttu og við ljósin á gatna-
mótum Bústaðavegar og
Reykjanesbrautar hafði orð-
ið aftanákeyrsla. Kem ég þá
að kjama málsins: Oku-
menn bílanna ásamt stálp-
uðu bami stóðu á milli bíl-
anna, sem stoppuðu alla
umferð á þeirri akgrein, og
því var töluverð hætta á að
aðvífandi bílar keyrðu aftan
á og þá hefði tiltölulega sak-
laus aftanákeyrsla orðið að
dauðaslysi eða leitt til
örkumla.
Erum við hætt að nota
höfuðið?
Sigríður Hanna
Jóhannesdóttir.
1.512 þúsiuid krónur
fyrir „ekki neitt“
ENN þann dag í dag er
ríkissjónvarpið íyrirtæki
sem allir eiga og þeir sem
eiga sjónvarpstæki verða að
borga afnotagjöld tdl. Er það
réttlátt að allir sem eiga
sjónvarp verði að borga af-
notagjöld til ríkissjónvarps-
ins (eignar allra lands-
manna)? Það em örugglega
fleiri en einn og fleiri en
tveir sem fá sér sjónvarp til
að horfa á stöð 2, Sýn, Skjá
1, video eða aðrar stöðvar
sem nást nú í síauknum
mæli á Reykjavíkursvæð-
inu.
Hvert er lýðræðið í þess-
um sjónvarpsmálum eigin-
lega? Um leið og maður fær
sér sjónvarpstæki er skylda
að borga af því til einhverrar
stöðvar hvort sem maður vill
eða ekki, annars fær maður
bara lögfræðing á sig. Mikið
hlýtur þetta að vera gott
starf að vera framkvæmda-
stjóri ríkissjónvarpsins.
Maður getur hent hvaða
drasli sem er í landann og
hann skal borga, annars fær
hann lögfræðinginn á sig.
Svona fyrirtæki getur varla
annað en skilað hagnaði.
Hvemig er svo lýðræðisleg
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
samkeppnisstaða sjónvar-
psins gagnvart hinum stöðv-
unum sem þurfa að rembast
við að kaupa dýrara efrii til
að fá áhorfendur í áskrift?
Ríkissjónvarpið/útvarpið
auglýsir sig sem þjóðareign
í þína þágu. En hver vill eiga
úldið lambalæri inni í ís-
skáp? Það er nefnilega
þannig að allt sem maður á
þarf maður að greiða fyrir
og á fólk ekki að fá að
ákveða það hvort það vilji
„eiga“ ríkissjónvarpið eða
ekki? En þetta er ekki nema
2.100 krónur á mánuði. Það
em hvort eð er alltaf að ber-
ast einhverjir tvö þúsund
króna greiðsluseðlar fyrir
hitt og þetta svo mann mun-
ar varla um einn enn á mán-
uði frá Ríkissjónvarpinu,
kunna margir að hugsa.
En setjum nú upp dæmi.
Segjum svo að maður kaupi
sér sjónvarp þegar maður er
orðinn 20 ára gamall, og
borgi afnotagjöld til ríkis-
sjónvarpsins, þangað til
maður er orðinn 80 ára og
fer undir græna torfu. Þetta
em 2.100 krónur á mánuði, í
12 mánuði, sem gerir 25.200
krónur á ári, í 60 ár, sem
gerir 1 milljón, 512 þúsund
krónur.
Maður borgar 1 miþjón
og 512 þúsund krónur fyrir
ekki neitt. Hvert er réttlæt-
ið/lýðræðið í því? Ég skora
því á alþingi að taka á þess-
um málum og gera
ríkissjónvarpið samkeppnis-
hæft. Ef alþingi Islendinga
telur sig vera lýðræðislega
stofnun, sem kosin er lýð-
ræðislega, til að taka lýð-
ræðislegar ákvarðanir, ber
því að taka á þessu máli.
Ég fékk mér nýlega
sjónvarpstæki og ég sé að ef
ég næ því að verða 80 ára
gamall þýðir það að ég muni
þurfa að borga 1 miþjón, 260
þúsund krónur til fyrirtækis
sem ég vil ekkert með hafa.
Sem sagt 1.260,000 fyrir
ekki neitt í mínu tilfelli.
Ásgeir Aðalsteinsson.
Perlur landsins eign
útlendinga?
ÉG vil koma því á framfæri
vegna umræðu í fjölmiðlum
undanfarið að VaÚiöll sé til
sölu að ég er ekki hrifrn af
því að erlendir auðmenn
komi tíl landsins og kaupi
hér eignir í þjóðgarði lands-
ins. Við eigum ekki að þola
það að perlur landsins verði
eign útlendinga og að við
getum jafnvel ekki í framtíð-
inni ferðast um og skoðað
landið okkar því það sé kom-
ið í eigu erlendra auðmanna.
Einn vinur minn, sem býr á
Guam, sagði að erlendir auð-
menn hefðu komið til Guam
og keypt þar upp mikið land
og í dag eigi íbúamir ekki
landið sem þeir búa í.
Ásdís Konráðsdóttir,
Suðurgötu 47, Hf.
Of stutt var um liðið
MARGT hefur verið sagt og
skrifað um kristnihátíð á
Þingvöllum. Nú síðast hefur
birst Gallup-könnun um
sama efni.
Mín skýring á miklum
hluta hinna neikvæðu við-
bragða landsmanna við
hátíðinni er einföld. Ég tel
að hremmingar og von-
brigði, sem þorri manna
mátti þola vegna skorts á
skipulagningu þjóðhátíðar
1994 hafi leikið þar stórt
hlutverk. Enginn var þá
gerður ábyrgur. Gremja hfir
enn misdjúpt í þjóðarsálinni.
Þess vegna var hún svo mót-
tækileg fyrir áróðri þeirra,
sem löttu fólk til þess að
sækja kristnihátíð á Þing-
völlum og ýtti undir neik-
væð viðhorf. Of stutt var um
hðið.
Þóra Jónsdóttir,
Þorragötu 5.
Tapað/fundid
Skór teknir
í misgripum
I JÚLI sl. gleymdi ég skóm
í búningsklefa kvenna í
Laugardalslaug. Þetta eru
Reebok hlaupaskór hvítir
með gylltu munstri og blá-
um sérsmíðuðum innleggj-
um. Sá sem tók þá í misgrip-
um er vinsamlega beðinn að
hringja í Guðrúnu í síma
553-3717.
Dýrahald
Læða í óskilum
BRÚNBRÖNDÓTT ung
læða með hvítar loppur og
hvítan blett á hálsi hefur
verið í óskilum á Urðar-
stekki 8 síðustu 3 vikur. Eig-
andi getur haft samband í
síma 557-4714.
African Gray-fugl
týndist
AFRICAN Gray er stór
fugl. Hann er grár með
svartan gogg og rautt og
svart stél. Hann týndist 9.
ágúst í Hraunbænum. Til
hans hefur sést í Grafarvogi.
Þeir sem hafa orðið varir við
fuglinn hafi samband í síma
567-4804 eða 899-1680.
Páfagaukur týndist
GULUR páfagaukur týnd-
ist frá Laugamesvegi. Þeir
sem hafa orðið varir við
ferðir hans vinsamlega hafi
samband við Sólveigu í síma
696-3343 eða 553-3455 eftir
kl. 19.
Svört læða týndist
frá Miðtúni
SVÖRT htil læða með
rauðköflótta hálsól með
bjöhu týndist frá Miðtúni sl
þriðjudagskvöld. Hún er
ókunnug í hverfmu og gæti
verið villt. Þefr sem hafa
orðið vaiir við hana hafi
samband í síma 862-6798.
Páfagaukur týndist
BLÁGRÆNN páfagaukur
týndist við Heiðargerði.
Þeir sem hafa orðið hans
varir hafi samband í síma
553-4641 eða 699-5641.
Víkverji skrifar...
AUSTURLAND er ákaflega
skemmtilegt heim að sækja,
eins og Víkveiji dagsins komst ný-
lega að. Hann kom þá í fyrsta sinn á
lífsleiðinni á Egilsstaði og Seyðis-
fjörð og heillaðist upp úr strigaskón-
um. Skilur hann engan veginn hvers
vegna í ósköpunum hann hefur aldrei
látið verða af því fyrr að heimsækja
þessa ágætu staði.
Báðir bæir eru einstaklega snyrti-
legir og vel hirtir. Fallegar sumar-
blómaskreytingar setja svip á Eg-
ilsstaðabæ og náttúran umlykur á
alla kanta; grænir skógar og græn
tún nánast inn í miðjan bæ. Heyjað
er á þeim ágætu túnum og þykir Vík-
verja sem þar hafi hugtakið „heima-
hagar“ öðlast fulla merkingu.
Á Seyðisfirði liggur fegurðin einn-
ig í náttúrulegu umhverfinu, en ekki
síður í húsunum sjálfum. Þar eru
menn afar duglegir við að gera upp
gömul hús og hefur tekist vel upp.
Mættu fleiri staðir taka sér til fyrir-
myndar framtak Seyðfirðinga í þeim
efnum. Eitt af þeim húsum sem vel
njóta sín í bænum er Bláa kirkjan, en
þar er í sumar haldið úti metnaðar-
fullri tónleikadagskrá sem ástæða er
til þess að kynna sér, hyggi menn á
ferð austur. Menningarmiðstöðin
Skaftfell er einnig forvitnilegur við-
komustaður, og sennilegt að net-
kaffihúsið á neðri hæðinni sé kær-
komið ferðalúnu fólki sem nennir
ekki að senda póstkort til vina og
ættingja. Farþegar ferjunnar Nor-
rænu bæta vikulega nýrri vídd í bæj-
arlífið og vonar Víkverji að stækkun
Norrænu eigi eftir að verða bænum
enn frekari lyftistöng.
XXX
SKEMMTILEGT er það upp-
átæki veitingastaðarins Pizza 67
á Egilsstöðum að fella matseðla sína
inn í eintök gamalla íslenskra tíma-
rita. Um er að ræða tölublöð frá ár-
inu ’67, að sjálfsögðu, til samræmis
við nafn veitingakeðjunnar. Víkverji
snæddi á staðnum öldungis ágætan
mat en minnstu munaði þó að hann
gleymdi að panta þar sem hann sat í
hláturskasti yfir tískuþáttum, ljós-
myndum og þýddum smásögum í
Vikunni og Kvennablaðinu Hrund
frá 1967. Hátíðlegt málfar, hallæris-
legar hárgreiðslur og óborganlegir
vandamáladálkar vöktu kátínu við
borð Víkverja, auk auglýsinganna
sem sýna að hégóminn er eins á öll-
um tímum. í Kvennablaðinu Hrund
var t.d. eftirfarandi auglýsing:
„Maðurinn hefur um langan aldur
reynt margt til þess að viðhalda hinni
upprunalegu fegurð líkama síns.
Loksins er nú hægt að fá hér það
tæki, sem hefur reynzt einna bezt til
þess að fyrirbyggja óæskilega fitu-
myndun, eða jafnvel eyða fitu sem
þegar hefur safnast á líkamann.
Vibró nudd er einföld og ódýr leið til
grenningar, - og að auki skapar það
veOíðan, sem þér hafið ekki kynnzt
fyrr. Franska Calor Vibro nuddtæk-
ið fæst nú hér á landi. Kynnið ykkur
kosti þess og þér munuð verða sam-
mála okkur um að Calor Vibro nudd-
tækið ætti að vera til á hverju heim-
ili.“
Já, ómissandi heimilistæki geta
greinilega verið af ýmsum toga.
xxx
VÍKVERJI er mikill aðdáandi
tímaritsins Skýja sem er að
finna í flugvélum Flugfélags íslands.
Stuttar og laggóðar greinar, magn-
aðar ljósmyndir og forvitnileg efnis-
tök gera blaðið að hinni ágætustu af-
þreyingu sem yfirleitt endist alla
flugleiðina. Ritstjóri Skýja, Jón
Kaldal, stýrir einnig tímaritinu Atl-
antica sem kúrir í sætisvösum Flug-
leiðavéla og er sömuleiðis oft áhuga-
vert. Einnig í því blaði njóta myndir
Páls Stefánssonar sín til fulls.
Nú skal tekið fram að Víkveiji
þekkir ekki til þeirra Ský-manna
nema af afspurn - þeir eru hvorki
frændur hans né nágrannar. Víkverji
veit heldur ekki til þess að eiga ættir
að rekja austur á firði. Þannig stend-
ur á þessum margradda lofsöng Vík-
verja dagsins að hann er einfaldlega
vel stemmdur í dag og í skapi til þess
að gleðjast yfir því sem vel er gert.